Morgunblaðið - 27.11.2002, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 27.11.2002, Blaðsíða 46
Röddin skapar manninn ÞEGAR Bjarni Arason sigraði í Látúnsbarkakeppninni varð þjóðin hreint agndofa yfir þroskaðri rödd þessa 15 ára Árbæjargutta sem fór létt með að taka Egil og Elvis. Og nú 15 árum síðar er það enn röddin sem skapar manninn, röddin sem skilur Bjarna frá öðrum – þessi djúpa og kröftuga rödd sem allir þekkja og margir gæfu aðra höndina fyrir að hafa. Af ýmsum ástæðum hefur Bjarni ekki verið sá allra iðnasti í plötuútgáfunni og aðallega leyft fólki að njóta raddarinnar á söng- skemmtunum. En á Trú, von og kærleika, sem hann gaf út fyrir tveimur árum, mátti vel greina að látúnsbarkinn efnilegi hafði vax- ið úr grasi og röddin þroskaða og djúpa var ekki lengur bara þroskuð heldur einnig kröftug og góð. Og hér er það enn þessi margumtalaða rödd sem upp úr rís. Er ástin þig kyssir inniheldur ell- efu lög, fjögur íslensk, önnur erlend, en öll róleg og rómantísk. Vestra hefur tónlist þessi kallast „fullorð- inspopp“, hér heima gjarnan „bylgjupopp“ eða „léttpopp“ í höf- uðið á samnefndum útvarpsstöðv- um. Lögin eru misgóð og því ým- islegt út á sjálft lagavalið að setja – kann t.d. ekki að meta erlent titillag- ið og er meinilla við að heyra „Make You Feel My Love“ Dylans í sykr- aðri útgáfu og „Minningu“ – en það breytir því ekki að flutningur Bjarna er svo gott sem hnökralaus, allt í senn kraftmikill, næmur og einlægur. Það er einna helst í lög- unum sem komast næst því að geta talist léttklassík, „Ástin“ (metnað- arfullt lag eftir Bjarna sjálfan en þó óþægilega líkt „Time To Say Good- bye“ með Bocelli og Brightman) og „The Prayer“, sem greina má hnökra á flutningi Bjarna, því þar er ekki laust við að manni finnist hann færast fullmikið í fang. Í það minnsta tel ég dægurlögin henta betur rödd hans og í reynd finnst mér að hann eigi að halda sig við þau, því nægir eru óperusöngvar- arnir en svo kraftmiklir dægurlaga- söngvarar á hinn bóginn ekki á hverju strái. Þetta kemur hvað skýrast fram í frábærum flutningi hans á besta lagi plötunnar, „Þú átt mig ein“, eftir Magnús Þór Sig- mundsson og Vilhjálm Vilhjálms- son, sem hinn síðarnefndi gerði ódauðlegt. Fyrir var ég algjörlega harður á því að enginn annar en Vil- hjálmur gæti flutt þetta lag með sóma, svo krefjandi er það, en Bjarni afsannar þá kenningu mína rækilega hér, syngur lagið listilega vel og útsetning Þóris á því er til mikils sóma, líkt og flest annað sem hann gerir á plötunni. Ekki verður hjá því komist að geta þess að út- setningar hans eiga til að vera of- hlaðnar og fullsykraðar en þó ber að hafa hugfast að þær eru það oftar en ekki þegar „fullorðinspoppið“ er annars vegar. Annars ber að hrósa öllum sem að plötunni koma fyrir einskæra fagmennsku og vitaskuld er hljóðfæraleikurinn hnökralaust, enda ber hann gæðastimpil Mezzo- forte. Textar Ingibjargar Gunnars- dóttur eru fallegir og einlægir, vissulega væmnir á köflum, en alltaf viðeigandi. Síðan er ekki hægt að fjalla um plötuna án þess að geta framlags eiginkonu Bjarna, Silju Rutar Ragnarsdóttur, sem ku ný- byrjuð að syngja opinberlega. Ótrú- leg staðreynd það því hún syngur í tveimur lögum með manni sínum, ágætri útgáfu af „Up Where We Be- long“ og „The Prayer“, af öryggi söngkonu með áralanga reynslu og kemst því vart hjá því að láta meira að sér kveða í framtíðinni. Hann leynir sér ekki metnaður- inn sem liggur að baki gerð Ef ástin þig kyssir. Það er náttúrlega engan veginn allra, þetta rólega, róman- tíska og oft á tíðum dísæta ballöðu- popp, en þeir sem kunna að meta það, þeir sem veikir eru fyrir róm- antíkerum á borð við Bocelli, Mich- ael Bolton, Celine Dion og Marc Anthony, ættu ekki að verða sviknir af ástarkossi Bjarna Arasonar. Tónlist Bjarni Arason Er ástin þig kyssir Skífan Sólóplata Bjarna Arasonar, Er ástin þig kyssir. Bjarni syngur, leikur á trompet og samdi tvö laganna, „Ástina“ og „Þú göfgar mína sál“. Ingibjörg Gunn- arsdóttir á alla íslenska texta nema við „Ef finn ég þig“ sem Karl Olgeirsson samdi. Önnur lög eru erlend. Silja Rut Ragnarsdóttir syngur dúett með Bjarna í „Up Where We Belong“ og „The Pray- er“ og Diddú syngur dúett með honum í „Ástinni“. Hljóðfæraleikarar eru Þórir Úlfarsson á píanó, hljómborð og hamm- ond, Friðrik Karlsson á gítar, Jóhann Ás- mundsson á bassa, Gunnlaugur Briem á trommur og slagverk, Matthías Stef- ánsson á fiðlu og Vilhjálmur Guðjóns- son á saxófón. Gospelkór Reykjavíkur syngur í „Up Where We Belong“ undir stjórn Óskars Einarssonar. Um upp- tökustjórn sá Þórir Úlfarsson en Björg- vin Halldórsson sá um upptökur á söng í „Minningu“ og „Beautiful Maria“ og ásamt Þóri í „Up Where We Belong“. Skarphéðinn Guðmundsson Tónlistin á plötu Bjarna Ara ætti að höfða sterkt til þeirra sem kunna að meta rólegar og rómantískar ofurballöður. 46 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 10 Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. Ben Cronin átti bjarta framtíð, en á einu augnabliki breyttist allt saman. Nú er hans mesti aðdáandi orðin hans versta martröð. Frábær spennutryl- lir sem fór beint á toppinn í Bandaríkjunum Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Kvikmyndir.com DV HJ. MBL Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. DV 5 og 7.30. 1/2Kvikmyndir.com USA Today SV MblRadíóX  ÓHT Rás 2 Ben Cronin átti bjarta framtíð, en á einu augnabliki breyttist allt saman. Nú er hans mesti aðdáandi orðin hans versta martröð. Frábær spennutryl- lir sem fór beint á toppinn í Bandaríkjunum Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Bi 14. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Hann er með 1000 andlit...en veit ekkert í sinn haus! Dana Carvey fer á kostum í geggjaðri gamanmynd sem er framleidd af Adam Sandler. One Hour Photo Sýnd kl. 5 og 7.30. B. i. 16. HÉR fer spánýtt banda- rískt fjölskyldudrama sem hlotið hefur fádæma góða umsögn gagnrýn- enda vestanhafs. Myndin fjallar um mæðgur, móður og þrjár dætur hennar, tvær eru uppkomnar og ein ung og ættleidd. Það er vægt til orða tekið að líf þeirra sé ein allsherjarflækja en sagan gerist á nokkrum dögum þegar mikið gengur á í fjölskyldunni. Móðirin ætlar í lýtaað- gerð og fitusog og dæt- urnar eiga allar við sín vandamál að glíma, Mich- elle er listakona sem berst í bökkum og lifir í draumaheimi, Elizabeth leikkona sem gengur lítið betur á frama- brautinni og ver tímanum í að sanka að sér flækingshundum og Annie hin átta ára ættleidda stúlka á erfitt með að aðlagast nýju aðstæðum. Myndin skartar nokkr- um eðalleikurum í helstu hlutverkum. Fremsta skal nefna hina bresku Brendu Blethin, sem leik- ur móðurina, Catherine Keener leikur Michelle en m.a. annarra leikara má nefna Jake Gyllenhaal sem vann leiksigur í hinni rómuðu Donnie Darko. Leikstjóri og handrits- höfundur er Nicole Holfcener sem leikstýrt hefur nokkrum Sex and the City þáttum. Eins og fyrr segir hafa gagnrýnendur vestra lofað myndina í hástert, sumir hafa kall- að hana „sápuóperu með heila“og aðrir gengið svo langt að orða frammistöðu leik- kvennanna við Óskarinn. Sýnd í Regnboganum í kvöld kl. 22.30, 17.30 á morgun, mánud. og þriðjud. og kl. 22.30 um helgina. Bíófélagið 101 sýnir bandarísku myndina Lovely and Amazing Mæðgur í allsherjarflækju Jake Gyllenhaal og Catherine Kenner í Lovely and Amazing sem hlotið hefur mikið lof. HITMAN 2: SILENT ASSASSIN Hitman-leikurinn varð skyndilega alræmdur vestan hafs fyrir stuttu þegar morðóðir menn tóku upp á því að skjóta fólk af handahófi úr launsátri, en leikurinn byggist einmitt á því að drepa menn á færi. Ekk- ert annað er þó sameig- inlegt með leik og raunveruleika, enda er morðinginn í leiknum að vinna fyrir opin- bera aðila. Fyrri leikurinn var bara til fyrir PC en Hitman 2 er fáanlegur fyrir PlayStation 2, PC og Xbox. Nýi leikurinn hefst þar sem hinum lauk; aðalpersónan, Agent 47, dvelur í klaustri á Sikiley, en þarf að grípa til sinna ráða þegar einum munkanna er rænt. Í leiknum þarf að leysa 20 þrautir víða um heim og eins og áður felast þrautirnar að- allega í því að drepa illmenni, en spilanda er í sjálfsvald sett hvernig hann fer að því, hvort hann drepur einfaldlega alla sem á vegi hans verða þar til hann finnur fórn- arlambið, eða hann læðupokast, dulbýst, þar til hann kemst í skotfæri. Einkunnagjöf eftir hverja þraut fer reyndar eftir því hversu margir sakleysingjar féllu í aðgerð- inni og því er síðarnefndi kosturinn betri. Líka er hægt að velja hversu vel vopn- aður maður er þegar lagt er upp, en vopn sem maður kemst yfir í hverri þraut eru til- tæk eftir það. Gefur augaleið að betra er að vera léttvopnaður ef á að dulbúast, enda er hætt við að menn taki illa pizzasendli sem er vopnaður hríðskotariffli til að mynda. Framleiðandi: Eidos Vélagerð: PlayStation 2 Aldursmörk: Fyrir tólf ára og eldri  KINGDOM HEARTS Kingdom Hearts er býsna sérkennilegur leikur við fyrstu sýn, enda er í honum stefnt saman fígúrum úr Disn- ey-teiknimyndum og persónum úr Final Fantasy-leikjunum, en Squaresoft og Disney lögðu saman í púkk við smíði leiksins. Leikurinn er um margt dæmigerður æv- intýraleikur þar sem frelsa þarf vini úr klóm óþokka, en ótrúlega vel heppnaður sem slík- ur. Víst er hann ekki gallalaus, en margt sem maður telur galla framan af er bara reynsluleysi; það tekur svolítinn tíma að ná tökum á leiknum, en eftir það er ánægjan líka óblandin. Alls eru um 100 Disney-fígúrur í leiknum og níu Disney-heimar, en Final Fantasy- vinir fá líka sitthvað fyrir sinn snúð. Graf- íkin er vel heppnuð og fellur eins og flís við rass að fígúrunum. Raddir eru líka vel heppnaðar og hljóðið er gott. Stjórn leiksins er almennt mjög góð og þrautir/bardagar býsna erfiðir, en af bardögum er nóg. Frá- bær leikur. Framleiðandi: Disney/Squaresoft Vélagerð: PlayStation 2 Aldursmörk: Fyrir alla aldurshópa  Tölvuleikir Árni Matthíasson Í KVÖLD verður efnt til hipp- hoppveislu á Gauki á Stöng. Ein- hver ferskasta hipphoppsveit í Evrópu, LoopTroop, mætir þá á svæðið en um er að ræða sænska rappara sem tröllriðið hafa hipp- hopplífi í heimalandinu og víðar. Önnur breiðskífa sveitarinnar var að koma út og er hún nú í heims- reisu. Auk LoopTroop koma fram íslenskir úrvalshipphoppara; Móri, Mezzias MC og Dj Big G. Tónleik- arnir hefjast kl. 21. Aldurs- takmark er 18 ár og aðgangseyrir 1.200 kr. LoopTroop verður í Smáralind á morgun og mun rappa og árita. Ferskt rapp á Gauknum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.