Morgunblaðið - 27.11.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 27.11.2002, Blaðsíða 42
DAGBÓK 42 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag koma Mánafoss, Detti- foss og Selfoss. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sól- vallagötu 48. Skrifstofa s. 551 4349, opin miðvikud. kl. 14–17. Flóamarkaður, fataútlutun og fatamót- taka opin annan og fjórða hvern miðvikud. í mánuði kl. 14–17, s. 552 5277. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofa, kl. 13– 16.30 opin smíða- og handavinnustofa, kl. 13 spilað. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 glerlist, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–17 fótaað- gerð, kl. 10–10.30 Bún- aðarbankinn, kl. 13–16.30 spiladagur, bridge/vist, kl. 13–16 glerlist. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánud.: Kl. 16 leikfimi. Fimmtud.: kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bókasafn- ið, kl. 15–16 bókaspjall, kl. 17–19 æfing kór eldri borgara í Damos. Laug- ard.: kl. 10–12 bókband, línudans kl. 11. Inn- kaupaferð í Kringluna á morgun kl. 13. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–14 aðstoð við böðun, kl. 10–10.45 leik- fimi, kl. 14.30–15 banka- þjónusta, kl. 14.40 ferð í Bónus, hárgreiðslustofan opin kl. 9–16.45 nema mán. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handa- vinnustofan, kl. 9 silki- málun, kl. 13–16 körfu- gerð, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 11–11.30 leikfimi, kl. kl. 13.30 bankaþjónusta Bún- aðarbanka. Félagsstarfið, Furugerði 1. Í dag kl. 14 les Viðar Finnsson upp úr bók sinni Stephan G. Steph- ansson. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, mosaik, gifs og íslenskir steinar og postulínsmálun, hár- greiðslustofan opin kl. 9– 14. Félagsstarfið, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9.30 hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10 hársnyrt- ing, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna, kl 13.30 enska, byrjendur. Strætó-kórinn kemur og syngur í kvöld kl. 20. Félag eldri borgara Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15–16. Skrifstofan opin í dag kl. 16.30–18. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Tréskurð- ur kl. 9, myndlist kl. 10– 16, línudans kl. 11. Gler- skurður kl. 13, pílukast kl. 13.30. Opið hús á morgun, fim. 28. nóv. kl. 14. Glerskurður kl. 13. Dansleikur föst. 29. nóv. kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Mið: Göngu- hrólfar ganga frá Ás- garði, Glæsibæ, kl. 10. Línudanskennsla Sig- valda kl. 19.15. Almennur félagsfundur með þingmönnum Reykjavíkur laug. 30. nóv. í kl. 13.30. Jólafagnaður í Ásgarði Glæsibæ mið. 4. des. Ljósaskreytingar á Akranesi stutt dagsferð 15. des. uppl. á skrifstofu FEB. Félag eldri borgara, Suðurnesjum Selið, Vall- arbraut 4, Njarðvík. Kl. 14 félagsvist alla mið- vikudaga. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar, frá há- degi spilasalur opinn. Á morgun kl. 13.15 „Kyn- slóðir saman í Breið- holti“. Félagsvist í sam- starfi við Fellaskóla. Allar uppl. í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum frá kl. 10–17, kl. 9.30 boccia, kl. 10.45 hæg leik- fimi, kl. 13 félagsvist, kl. 15.15 söngur Guðrún Lilja leikur undir á gítar, kl. 15–16 viðtalstími FEBK, kl. 16 hring- dansar, kl. 17 bobb. Lax- nessdagur í Gjábakka á morgun, fim. 28. nóv. Dagskrá: Boðið í ferð á heimaslóðir skáldsins kl. 10. (500 kr.) Kl. 12.15. Hvað vitum við um skáldið í umsjón kennara og nemenda Snælands- skóla. Kl. 14 hefst dag- skrá Bókmenntaklúbbs Hana-nú. Ólafur Ragn- arsson les úr bók sinni um skáldið. Kl. 20.30. Ég býð þér dús mín elsku- lega þjóð. Leikhópur flytur dagskrá úr verk- um skáldsins (kr. 1.000). Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, bútasaums- ur, útskurður, hár- greiðsla og fótaaðgerð, kl. 13 bridge, harðangur og klaustur. Jólafagn- aður 6. des. Skráning á skrifstofu fyrir 4. des. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, föndur og jóga, kl. 10 jóga, kl. 13 dans- kennsla framhaldshópur, kl. 14 línudans, kl. 15 frjáls dans og teiknun og málun. Fótaaðgerðir og hársnyrting. Í dag er Hvassaleitisstöðin 16 ára og af því tilefni verður morgunkaffi kl. 10. Kl. 15 gott afmæliskaffi. Spilað á píanó og fjöldasöngur. Korpúlfarnir, eldri borg- arar í Grafarvogi. Fimmtud.: Kl. 10, aðra hverja viku púttað á Korpúlfsstöðum, hina vikuna keila í Keilu í Mjódd. Vatnsleikfimi í Grafarvogslaug á þriðjud. kl. 9.45 og föstud. kl. 9.30. Uppl. í s. 5454 500. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 10 ganga, kl. 9.05 leikfimi kl. 9.55 stólaleikfimi, kl. 13 keramikmálun. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–12 tréskurður, kl. 10– 11 samverustund, kl. 9– 16 fótaaðgerðir, kl. 13– 13.30 banki, kl. 14 fé- lagsvist, kaffi, verðlaun. Jólabingó fim. 28. nóv. kl. 14. Vesturgata 7. Kl. 8.25– 10.30 sund, kl. 9–16 fóta- aðgerð og hárgreiðsla, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 10.30–11.30 jóga, kl. 12.15 verslunarferð í Bónus, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tré- skurður. Jólafagnaður verður fim. 5. des. Allir velkomnir óháð aldri, uppl. og skráning í síma 562 7077. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10 fótaaðgerðir, morg- unstund, bókband og bútasaumur, kl. 12.30 verslunarferð, kl. 13 handmennt og kóræfing, kl. 13.30 bókband. Að- ventu- og jólakvöld 5. des. kl. 17.45. Uppl. og skráning í síma 561 0300. Háteigskirkja eldri borgar, kl. 11 samvera, fyrirbænastund og stutt messa. Súpa í Setrinu kl. 12, brids kl. 13. Rangæingar – Skaftfell- ingar. Spilavist í kvöld í Skaftfellingabúð, Lauga- vegi 178, kl. 20. Kaffiveit- ingar. Vinahjálp, brids spilað á Hótel Sögu í dag kl. 13.30. Félagsstarf aldraðra í Bústaðakirkju. Í dag kl. 13–16.30 starf aldraðra. Föndur, gáta, spil og helgistund. Gestur Þor- valdur Halldórsson. Veit- ingar að hætti Lovísu. Umsjón Sigrún Sturlu- dóttir. Munið bílaþjón- ustuna í síma 553 0048 og 864 1448 og hjá kirkju- vörðum í síma 553 8500. Hana-nú, Kópavogi. Fundur í kvöld kl. 20 í Bókmenntaklúbbi Hana- nú. Haldið verður áfram með verk skáldanna frá Aðaldal. Fólk er beðið um að hafa í huga að rifja upp, skrá og segja frá stuttum minningum um bernskujólin. Öldungaráð Hauka. Al- mennur félagsfundur verður í dag, mið. 27. nóv., kl. 20 á Ásvöllum. Stjórnin. KFUK. Basar verður laug. 30. nóv. á Holtavegi 28. Opnað kl. 14. Bas- arnefndin. ITC deildin Melkorka heldur fund í Borgartúni 22, 3. hæð, í dag, mið. 27. nóv. Fundurinn er öllum opin. Nánari uppl. veitir Hulda Gísladóttir í síma 587 1712. Kvenfélagið Heimaey verður með sína árlegu jólasölu í Mjóddinni fim. og föst. 28. og 29. nóv. Munið jólafundinn 2. des., tilkynnið þátttöku. Stjórnin. Í dag er miðvikudagur 27. nóv- ember, 331. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Jesús segir við hana: Sagði ég þér ekki: Ef þú trúir, munt þú sjá dýrð Guðs? (Jóh. 11,40) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 ökutæki, 4 hraka, 7 tæl- ir, 8 krók, 9 blekking, 11 fuglinn, 13 vex, 14 skatt- ur, 15 ómjúk, 17 ófús, 20 tjara, 22 hitasvækja, 23 líðandi stund, 24 flækja, 25 glerið. LÓÐRÉTT: 1 landbúnaðartæki, 2 ganga, 3 magurt, 4 spýta, 5 stirðleiki, 6 kjánar, 10 hagnaður, 12 miskunn, 13 op, 15 hangir, 16 hæg- lát, 18 skrifað, 19 góð- mennskan, 20 vísa, 21 röskur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 ribbaldar, 8 líkir, 9 tinna, 10 tel, 11 tunna, 13 afræð, 15 krafs, 18 illur, 21 tíð, 22 nagli, 23 nabbi, 24 rangindin. Lóðrétt: 2 iðkun, 3 birta, 4 litla, 5 angir, 6 blót, 7 garð, 12 nef, 14 fól, 15 kunn, 16 angra, 17 sting, 18 iðnin, 19 lubbi, 20 reit. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Víkverji skrifar... ÞAÐ er ástæða til að óska ís-lensku boxurunum til hamingju með sigrana þrjá á móti Bandaríkja- mönnum 16. nóvember sl. Þetta voru víst engir byrjendur sem við fengum í heimsókn. Þrír ósigrar reyndar, sem hægt er að læra af og gera bara betur næst. Um svipað leyti og box- að var í Höllinni var Múhameð Ali í skuggaboxi í Kabúl, sem friðar- sendiherra SÞ, en Afganir munu hafa boxið í hávegum og fögnuðu því vel þegar íþróttabanni talíbananna var loks aflétt. Loks gátu menn farið að mæta á æfingar án þess að yf- irvöld refsuðu þeim fyrir uppátækið. Það hlýtur síðan að hafa verið ómet- anlegt að fá Ali í heimsókn í kjölfar- ið, enda varla hægt að ímynda sér meiri uppörvun en nærveru gamla goðsins. Hann þyrfti að koma hingað næst og verða íslensku boxurunum hvatning í íþróttinni. Það væri þó of frekt að ætlast til þess að hann kæmi hingað í þeim tilgangi einum. Hann var jú í Afganistan sem fulltrúi SÞ og heilsaði svona upp á boxarana í leiðinni. Sem friðarsendiboði hefði hann ekkert hingað að gera, enda landið hvorki hervætt né stríðs- hrjáð. Meira að segja löggan er óvopnuð. x x x EN NÚ eru yfirvöld loks búin aðviðurkenna boxið og það þurfti ekki að fella stjórnina með sprengju- árásum til að svo mætti fara. Hún sá sjálf að það var ekkert vit í að banna íþróttina. Og boxarar fagna, líka þeir fjórir sem voru sakfelldir fyrir box- brot í Hæstarétti vorið 1999. Þeir losnuðu af skilorði í fyrra. Færslan í sakaskrána þeirra verður eins og þögult minnismerki um úrelta hugs- un yfirvaldanna fyrr á tíð. Og það má brosa að þessu í dag. Sama verður ekki sagt um þá sem fóru um kýlandi á djamminu þetta laugardagskvöld. Voru ekki tennur slegnar úr dyra- verði við störf sín þarna um nóttina? Og fleiri fengu á kjammann, svo varðar við almenn hegningarlög, lík- amsárás minni, eins og það kallast. Þess má vænta að þeir sem kýldu samborgarana fái sínar færslur í sakaskrá ef mál þeirra enda með sakfellingu fyrir dómi. Og þess hátt- ar færslur verða aldeilis ekki þögult minnismerki um úrelta hugsun lög- gjafans, enda er hegningarlagabálk- urinn ekki nema sextugur og í fullu fjöri. Menn verða bara að gæta þess að kýla í hringnum og vera ekki að slá allt og alla í fylleríi. Víkverji er samt ekkert á leiðinni á boxæfingar, þótt honum finnist þetta flott sport í sjónvarpinu og hafi hrifist af Rocky-myndunum, að ógleymdri Raging Bull auðvitað. En þetta er of hættuleg íþrótt. Gleym- um blóðnösunum, sprungum og skurðum. Það er heilinn sem skiptir máli hérna. Við hvert höfuðhögg hristist heilinn meira eða minna inni í höfuðkúpunni og skiptir svo sem litlu þótt menn séu með þessa hjálma. Höfuðhöggaleiðin er kjörin leið til að byggja undir heila- skemmdir á löngum tíma og kannski er hinn ofurviðkvæmi mannsheili enn viðkvæmari fyrir höggum hjá hinum yngri. Ekki síst 15 ára börn- um, eða hvað þeir voru annars gaml- ir þessir keppendur, sem voru leidd- ir inn í hringinn í Höllinni og lamdir fyrir framan fullan sal af fólki. Gott dæmi um löglegt athæfi en auðvitað svo siðlaust að það tekur engu tali. Til hamingju aftur. Tungumál á DVD FYRIR tveimur árum, þeg- ar framhaldsskólakennara- verkfallið stóð yfir, datt mér í hug að kaupa mér DVD- spilara. Hugsaði mér gott til glóðarinnar þar sem ég var nýbyrjuð í skóla á tungu- málabraut og þessi spilari myndi örugglega hjálpa mér í námi. Fékk ég mér einnig minn fyrsta disk við þessi kaup sem innihélt u.þ.b. 10 tungumál, þar á meðal þau þrjú sem ég þarfnaðist; Þýsku, spænsku og frönsku. Nú hefur borið á því (og hefur verið þannig í nokkuð langan tíma), að diskar eru aðeins gefnir út með 3 eða 4 tungumálum, sem sagt ensku, íslensku, sænsku og stundum finnsku aukalega. Diskar með þeim þremur tungumálum sem ég nefndi áður eru ófinnanlegir, ekki nema ég kaupi gamla diska. Mér finnst þetta mjög lé- leg þjónusta við neytendur, og kollegar mínir hafa einn- ig kvartað út af þessu. Þetta er alveg ómissandi hjálp við lærdóminn og því er mér mikið í mun um að þessu verði breytt. Nú vil ég spyrja útgef- endur þessara diska: Af hverju er þetta ekki fáan- legt hérna á Íslandi, og hvers vegna eru diskar ekki gefnir út með þeim tungu- málum sem nefnd eru í námskránni? Með von um að þessu verði breytt fljótt á næst- unni. Framhaldsskólanemi. Peningana til baka VÆRI það ekki drengileg- ast af íbúðalánasjóði og fé- lagi fasteignasala að nota ekki lögfræðilegar vífilengj- ur gegn þeim sem fasteigna- salinn í Holti sveik, heldur greiða þeim heiðarlega pen- inga sína til baka. Það lítur út fyrir að það hafi verið ein- hvers konar samstarf þeirra í milli um að lofa manninum að leika lausum hala í marga mánuði eftir að hann var kærður. Fyrir sýslumanni, fyrir íbúðalánasjóði og fyrir félagi fasteignasala. Þetta urðu dýrkeypt mistök. Það er mjög ódrengilegt að láta saklaust fólk sem aldrei hef- ur átt í málaferlum missa aleigu sína á þennan hátt. Sýnið þið nú manndóm og lofið þessu fólki sem nú er niðurbrotið af kvíða að halda jólin í friði og sátt. Það er áreiðanlega ósk alls al- mennings í þessu landi. Hómfríður Jónsdóttir. Hvít gerviefni ER einhver sem veit um gott efni til að gera nærföt úr gerviefni hvít á ný? Þá er ég að meina fatnað sem þol- ir ekki klór. Elín. Tapað/fundið NEC-sími týndist LAUGARDAGINN 23. nóvember fór ég austur á Nesjavelli, síðan áfram að Úlfljótsvatni, gegnum Grímsnesið til Hveragerðis og heim. Einhvers staðar á þessari leið glopraði ég nið- ur NEC GSM-símanum mínum. Hann er opnanleg- ur og ljósgrár að framan- verðu. Finnandi vinsamleg- ast hafi samband við mig í s. 565 7425. Hjól týndist í Árbænum HJÓL tapaðist í lok októ- bermánaðar í Rauðási í Ár- bænum. Þetta er blátt Mon- goose-fjallahjól með stöng og festingum fyrir barna- stól. Þeir sem gætu gefið upplýsingar vinsamlegast hafi samband við Björgu í síma 899 3051. Dýrahald Hundur í óskilum í Kópavogi HUNDUR var tekinn í Litlahjalla í Kópavogi um hádegi á laugardag. Þetta er blendingur, líkur íslenskum hundi með ljósan feld. Upp- lýsingar hjá Heilbrigðiseft- irliti Hafnarfjarðar og Kópavogs í síma 897 5070 eða 540 5500. Kisa í óskilum LÍTIL, grábröndótt kisa með gult merkispjald og stór augu sást nálægt Hall- grímskirkju, virtist óskap- lega ráðvillt. Nánari upplýs- ingar í síma 849 4867. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is ÉG heiti Helga Bryndís Björnsdóttir og er 13 ára. Ég bý í miðbænum og hef undanfarið tekið eftir því að það er allt að fara úr miðbænum. Hvernig stendur á því t.d. að Tónabær á að vera fyrir miðbæinn og er í gamla Fram-heimilinu? Eða að Hlemmur er að flytja undir Kringluna? Eða Mcdonald’s er flutt úr Austurstræti og yfir í Smáralindina? Það er allt að fara úr miðbænum og mér finnst að það ætti að taka tillit til okkar unglinganna. Þetta er eitt sem mér finnst að Alþingi ætti að taka upp á þingi! Helga Bryndís Björnsdóttir, 13 ára, Skúlagötu 32. Allt að fara úr miðbænum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.