Morgunblaðið - 27.11.2002, Síða 48

Morgunblaðið - 27.11.2002, Síða 48
MIKILL áhugi er fyrir tónleikahaldi í desember hérlendis. Alls hafa nú þegar selst tæplega 8.000 miðar sam- tals á tónleika ástralska tónlistar- mannsins Nicks Caves, Bretlands- eyjasveitanna Coldplay og Ash og hinnar íslensku Sigur Rósar. Nú þegar er orðið uppselt á tón- leika Caves en búast má fastlega við því að uppselt verði á alla þessa tón- leika en þar með verði hátt í 10.000 miðar seldir. Er þessi mikli áhugi á tónleikunum þremur ekki hvað síst merkilegur í ljósi þess að framboð á tónleikum er með mesta móti í desembermánuði. Þá eru útgáfutónleikar tíðir mjög og jóla- og aðventutónleikar eru þá jafn- an mjög vel sóttir. Einhverjir lýstu fyrirfram áhyggjum yfir því að þrennir stórtónleikar í sama mánuði væri heldur of stór biti fyrir tónlistar- unnendur í svo annasömum mánuði þegar menntaskóla- og háskólanemar þreyta próf, efnt er til jólaglöggs og -hlaðborðs á hverju kvöldi, svo ekki sé minnst á konfektgerðina og sjálf jólainnkaupin. En landsmenn virðast þrátt fyrir það hafa nægan tíma til að rækta andann og sækja tónleika og eru aukatónleikar Nicks Caves til marks um þennan óvænta áhuga. Cave-miðarnir uppseldir á klukkutíma Uppselt varð á aðra tónleika Nicks Caves á innan við klukkustund í gær líkt og hina fyrri. Þessi ástralski tón- listarmaður heldur tvenna tónleika á Broadway, 9. og 10. desember. Alls voru 2.000 miðar í boði. Aðrir 1.900 miðar eru í boði á tvenna tónleika Sigur Rósar fimmtu- daginn 12. og föstudaginn 13. desem- ber í Háskólabíói. Alls hafa selst um 1.200 miðar og er að verða uppselt á síðari tónleikana. Með Sigur Rós leik- ur strengjakvartettinn Amina og verður Sigurður Ármann sérstakur gestur. Miðasala fer fram í versl- uninni 12 tónum við Skólavörðustíg og er verðið 2.900 krónur. Selst hafa rúmlega 4.500 miðar á tónleika Coldplay og Ash, sem haldn- ir verða í Laugardalshöllinni fimmtu- daginn 19. desember. Að sögn Kára Sturlusonar, skipuleggjanda tón- leikanna, eru tæplega þúsund miðar eftir en uppselt er í stúku. Miðasala gengur vel og býst hann við því að uppselt verði á tónleikana um mán- aðamótin. Þessi mikla aðsókn á tónleikana kemur honum ekki á óvart því Coldplay sé vinsæl hljómsveit og mikill áhugi fyrir Ash. „Þetta er líka kærkomið tækifæri til að lyfta sér upp fyrir jólin,“ segir hann og hittir með þessum einföldu orðum líklega naglann á höfuðið hvað varðar áhuga landans fyrir tónleika- sókn. 8.000 á Cave, Coldplay og Sigur Rós Miðar seldust upp á síðari tónleika Nicks Cave á innan við klukkustund í gær en salan fór fram í Japis. Morgunblaðið/Júlíus Sigur Rós. Chris Martin í Coldplay. Ástralinn Nick Cave. Mikill áhugi fyrir tónleikahaldi í desember 48 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Á SVIÐ með þetta helvíti, heitir leikrit sem leikfélagið Allt milli himins og jarðar hefur sett upp í Verzlunarskólanum. Leikritið er eftir Rich Abbot en þýtt og staðfært af Guðjóni Ólafssyni og fjallar um nokkra unglinga í skólanum sem ekki komust að í „Nemó“, nemendamótssýningu Versl- unarskólans. Ákveða þeir að setja sjálfir upp leikrit sem virðist öruggt til vinsælda. Það sýnir sig síðan að forsvarsmenn Nemó virðast hafa vitað hvað þeir sungu því leikararnir eru ekki upp á marga fiska og eiga í miklu basli með að koma leikritinu frá sér. Leikstjórinn er á barmi taugaáfalls og ekki bæt- ir úr skák að höfundur verksins er stöðugt að trufla æfingarnar með enda- lausum breytingum á leiktextanum. Verkið var frumsýnt sl. föstudag og var verkið sýnt um helgina en næstu sýningar verða 1. og 3. desember. Leikstjóri er Víkingur Kristjánsson. Þeir sem ekki komust í „Nemó“ Diljá Mist Einarsdóttir og Óðinn Davíðsson Löve. Ásthildur Gunnarsdóttir, Garðar Stefánsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Óðinn Davíðsson Löve, Auður Friðriksdóttir og Andri Gunnarsson. ÍSLENSKT hiphop á sér þó ekki langa sögu; ekki eru svo ýkja mörg ár síðan menn tóku að glíma við mækinn hér á landi og enn færri síðan íslenska varð aðal- málið. Á árum áður röppuðu frumherj- arnir á ensku, Quarashi, sem halda sig enn við enskuna reyndar, Subterranean og Kritical Mazz sem sendi frá sér fyrstu breiðskífuna á dögunum samnefnda sveitinni. Snar þáttur í hiphopi er montið, menn stæra sig af því hversu góðir rímnamenn þeir eru, hversu vel vaxnir þeir eru niður og glæsilegir útlits að öðru leyti eða hversu fjáðir þeir eru. Inn í þetta blandast síðan iðulega byssu- og bílaeign og oft að- gengi að fíkniefnum ýmiskonar. Þessi hefð á uppruna sinn ekki síst í því er menn öryrkja á götum úti, eða „battla“ eins og íslenskir hiphoparar kjósa að kalla það, og þegar vel er að verki staðið skiptir ekki svo miklu máli þótt viðfangsefnið sé innan- tómt, þegar vel er ort má gleyma sér í ríminu og líta framhjá innihaldinu að miklu leyti. Þeir félagar Cipah og Reptor grobba út plötuna og gera óspart grín að keppinautum á rappsviðinu samhliða því sem þeir hæla sjálfum sér. Það er svo sem gott og blessað, en málið er bara að þeir eru ekki nógu snjöll rímnaskáld til að standa undir öllu grobbinu; víst má skemmta sér við músíkina, en ef lítið er spunnið í textana lifir skífan ekki lengi. Flutningur hjá þeim félögum er þokkalegur, Cipah heldur skárri og á til að mynda góða spretti í „Memor- ize My Name“ þrátt fyrir slakar lín- ur hér og þar. Sjá til að mynda „And how should I describe ya / Wack like Peter Piper“ („ya“ og „Pipa“ ríma saman) . Gott er að hafa líflegar sam- líkingar og óvenjulegar en ekki finnst mér líklegt að þeir myndu standa sig vel í „battli“ með þannig línur. Útsetningar á plötunni eru marg- ar vel unnar, mikið keyrt á verulega þungum takti og grófum hljóðum, sjá til að mynda „Underground vs. Comercial“ þar sem skerandi væl er skemmtilega notað til að skapa stemmningu í laginu. Í öðrum lögum er þó of mikið af breiðum hljóm- borðshljómum og þannig er laginu „Handz Off“ sem byrjar vel spillt með hljómborðaflekum. Víðar eru lögin ofhlaðin, skemmtilega létt hljómborðslína „Gehenna“ hverfur í haf gervistrengja og svo má telja. Kritical Mazz á rætur að rekja til þess tíma er hiphop kviknaði á Ís- landi og óhætt að telja sveitina meðal brautryðjenda – hún á virðingu skilda fyrir það. Þessi fyrsta breið- skífa sveitarinnar er þó ekki til þess fallin að halda nafni hennar á lofti nema síður sé. Tónlist Þungir taktar Kritikal Mazz Kritikal Mazz Smekkleysa Kritikal Mazz, fyrsta breiðskífa sam- nefndrar hljómsveitar. Liðsmenn eru þeir Ciphah, Reptor, Plain, Scienz og Ágústa, en ýmsir leggja þeim lið á skífunni. Smekkleysa gefur út. Árni Matthíasson Morgunblaðið/Kristinn Í umsögn um fyrstu plötu Kritikal Mazz segir að þeir grobbi út plöt- una og geri „óspart grín að keppi- nautum á rappsviðinu samhliða því sem þeir hæla sjálfum sér“. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Vit 461 KRINGLA Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Vit 468 E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P  Roger Ebert 1/2 Kvikmyndir.is  DV KRINGLA  Kvikmyndir.is 1/2 HL MBL Sýnd kl. 6 og 10.15. Sýnd kl. 8. B.i. 16.Sýnd kl. 5.45 með enskum texta 8 og 10.10. B.i. 12.  Roger Ebert 1/2 Kvikmyndir.is  DV 1/2HL MBL 8 Eddu verðlaun WITH ENGLIS H SUBTIT LES AT 5.4 5 Yfir 53.000 áhorfendur Sýnd kl. 5, 6, 8 og 10. TILRAUNIN Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. Ísl. texti. B.i. 16.  HL. MBL  SK RadíóX  ÓHT Rás2 HK DV BLOOD WORK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.