Morgunblaðið - 27.11.2002, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.11.2002, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞEIR voru ekki háir í loftinu, flugkapparnir sem tóku sér sæti bak við stýri Socata TB-9 Tampico, TF-BRO, flugvélar Flugfélagsins Geirfugls á dög- unum. Þarna voru á ferð krakkar frá leikskólanum Mánagarði í Reykjavík en Geirfugl er með að- setur sitt í Fluggörðum sem er ekki langan spöl frá leikskólanum. Geirfugl er félag 125 hluthafa sem á 6 flugvélar og leigir þá sjö- undu. Nú eru 12 nemendur á nám- skeiði hjá Geirfugli til einkaflug- prófs. Að þessu sinni voru lærisveinarnir þó talsvert yngri en gengur og gerist og fengu börnin að skoða flugvélarnar í krók og kring, setjast undir stýri, hreyfa þau og jafnvel fikta svolít- ið. „Þeim fannst þetta rosalega gaman og æðislega spennandi enda voru þau að setjast á bak við stýri á flugvél í fyrsta skipti,“ segir Matthías Arngrímsson, yf- irkennari hjá Geirfugli. „Og það vantaði ekki fjörið því stýrunum var slegið alveg borð í borð með látum.“ Allir strákar með flugdellu? Þá var ekki síður spennandi þegar krakkarnir fengu að setja á sig heyrnartól og hlusta á tal- stöðvarsamskipti frá flugturninum í Reykjavík og margar áhugaverð- ar spurningar vöknuðu. „Það vantar svolítið meiri fræðslu og jákvæðari umræðu um vélarnar,“ segir Matthías sem á jafnvel von á fleiri krökkum í heimsókn í kjöl- farið. Hann hlær við þegar hann er spurður að því hvort allir strákar séu ekki með flugdellu. „Þeir fá ábyggilega þessa pest einhvern tíma á æviskeiðinu. Er það ekki bara eins og með stelpurnar – þær vilja verða flugfreyjur eða hjúkrunarkonur en strákarnir Krakkar af Mánagarði hjá Flugfélaginu Geirfugli Það var allt í botni hjá Alex og má leiða líkur að því að þarna hafi hann verið í krappri beygju, mið- að við ákafann sem skín úr andlitinu. Stýrun- um sleg- ið borð í borð með látum Vatnsmýri Hér er hópurinn á væng franskrar flug- vélar, Tampico, en hana framleiddi franska verksmiðjan Socata. Á vængnum standa flugkapp- arnir Máni og Sandra og Perla sit- ur. Fyrir framan þau standa félagarnir Nikulás, Höskuldur og Alex. vilja verða slökkviliðsmenn eða flugmenn?“ Hann klykkir þó út með að stelpurnar hafi verið al- veg jafnákafar á bak við stýrið á vélunum og félagar þeirra af gagnstæða kyninu og hver veit nema flugmenn framtíðarinnar hafi þarna verið að stíga sín fyrstu skref í átt að fljúgandi starfsframa í háloftunum. BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur samþykkt að leita eftir samningum við FM-hús ehf. og Nýsi ehf. um kauprétt á þeim grunnskólum í bænum sem þessi fyrirtæki byggðu samkvæmt einkafram- kvæmdasamningum við bæinn. Sölutilboðum FM-húsa í Áslands- skóla og leikskólann Tjarnarási var hafnað þar sem þau þóttu ekki aðgengileg. Skýrsla starfshóps um endur- skoðun á einkaframkvæmdasamn- ingum var kynnt á fundi bæjarráðs í síðustu viku en hlutverk hópsins var að yfirfara þá 7 einkafram- kvæmdasamninga sem sveitarfé- lagið hefur gert við Nýsi og FM- hús. Átti hópurinn að kanna áhuga þessara fyrirtækja á því að selja sveitarfélaginu þær eignir sem byggðar voru í þessum samningum eða gefa kost á kauprétti að eign- unum þegar leigutíma þeirra lyki. Ráðgjafafyrirtækið Pricewater- houseCoopers lagði mat á verð- mæti byggingarhluta samninganna og taldi þá rúmlega 3.450 milljóna króna virði miðað við 6,5 prósenta ávöxtunarkröfu. Stæði sveitarfé- laginu til boða uppkaup á öllum fasteignunum á stofnvirði yrði ávinningur þess talsverður næði það að fjármagna kaupin á betri kjörum en eigendur þeirra gerðu. Þannig gæti ávinningurinn orðið um 314 milljónir króna yrðu kaup- in fjármögnuð með verðtryggðu láni sem bæri 6,5 prósenta vexti og 880 milljónir miðað við 5 pró- senta vexti. Árlegur ávinningur yrði á bilinu 27 milljónir til 67 milljónir króna, allt eftir því hver ávöxtunarkrafan yrði. Breytir ekki fjárhagslegum skuldbindingum Hins vegar kemur fram að skuldfærsla samninganna hefði væntanlega rofið skuldaþak sveit- arfélagsins á síðasta og yfirstand- andi ári. Eigna- og skuldfærsla myndi þannig væntanlega valda talsverðri lækkun á einkunn eft- irlitsnefndar sveitarfélaga á fjár- hagsstöðu bæjarsjóðs. Starfshópurinn telur þó að þetta ætti að hafa lítil áhrif þar sem fjárhagslegar skuldbindingar myndu ekkert breytast, nema til lækkunar ef bæjarsjóður næði að fjármagna sín lán með hagstæðari hætti en leigusalarnir. „Eini mun- urinn er heitið á skuldbindingun- um,“ segir í skýrslunni. Í lok skýrslunnar er farið yfir viðræður við fyrirtækin tvö og kemur fram að FM-hús hafi boðið Áslandsskóla, leikskólann Tjarnar- ás og leikskólann Hörðuvelli til kaups en sölutilboðin þykja ekki hagkvæm enda fjárhæðir í öllum tilfellum talsvert hærri en núvirt skuldbinding bæjarsjóðs vegna leigusamninganna. Þó er talið rétt að skoða betur tilboð í leikskólann Hörðuvelli með tilliti til stoð- greiðslna og í ljósi þeirra tekin af- staða varðandi sölutilboð í hann. Hins vegar hafi ekkert tilboð bor- ist í kauprétt sveitarfélagsins á eignunum í lok samningstímans. Forsvarsmenn Nýsis hafi ekki gert sölutilboð í sínar eignir en þó lýst sig reiðubúna til samninga um að veita bænum kauprétt að eign- unum. Er á það bent í skýrslunni að ekkert ákvæði í samningunum skapi Hafnarfjarðarbæ samnings- stöðu varðandi uppkaup fast- eignanna og því geti ekki orðið af þeim nema vilji leigusala standi til þess, á verði sem bæjarsjóður geti sætt sig við. Bókanir á víxl Á fundi bæjarráðs var hart deilt um skýrsluna og segir í bókun sjálfstæðismanna að þeir lýsi furðu sinni á vinnubrögðum meirihlutans við skoðun á uppkaupum einka- framkvæmdasamninganna. Vilji Samfylkingarinnar til að rifta samningunum sé öllum ljós og er bent á „þau faglegu vinnubrögð“ sem voru viðhöfð við gerð samn- inganna. „Enn halda fulltrúar Samfylkingarinnar áfram að níða niður skóinn af sveitarfélaginu og þeim góðu verkum sem meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks stóðu að á liðnu kjörtíma- bili,“ segir í bókuninni. Tóku fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ekki þátt í atkvæðagreiðslu um málið. Í bókun meirihlutans segir að miðað við eilífðarleigu, eða 40 til 50 ára leigu, muni þessir samn- ingar kosta bæjarsjóð 580 millj- ónir umfram kostnaðaráætlanir „en allar þesssar byggingar munu greiðast að fullu úr bæjarsjóði á þegar umsömdum 25 ára leigutíma án þess að nokkur eignarmyndun eigi sér stað á sama tíma“. Þær niðurstöður séu í samræmi við gagnrýni Samfylkingarinnar á einkaframkvæmdarsamningana á síðasta kjörtímabili. Sem fyrr segir var niðurstaða bæjarráðs sú að fela starfshópnum að leita eftir samningum um kaup- rétt á þeim grunnskólum í bænum sem fyrirtækin tvö eiga samkvæmt einkaframkvæmdasamningum en sölutilboði FM-húsa í Áslandsskóla og leikskólann Tjarnarási var hafnað. Deilt um einkaframkvæmdasamninga Falast eftir kauprétti á grunnskólum Hafnarfjörður Morgunblaðið/Þorkell Áslandsskóli er meðal þeirra skóla sem byggðir voru í einkaframkvæmd en bæjarráð hefur hafnað sölutilboði í fasteignina þar sem það þótti of hátt. BÆJARSTJÓRN Garða- bæjar hefur ákveðið að gera ekki tilboð í fasteignir og lóð fyrirtækisins Héðins en stað- setning þess þótti hentug fyr- ir nýjan grunnskóla fyrir Ása- og Strandhverfi. Eins og Morgunblaðið hef- ur greint frá var verð lóð- arinnar hærra en bæjarstjórn taldi viðunandi en ákvörðun bæjarstjórnar var tekin í framhaldi af viðræðum bæj- arstjóra við eigendur fyrir- tækisins. Samþykkti bæjarstjórn að fela hönnuði Strandhverfis- ins, Birni Ólafs, sem einnig vinnur að tillögu um nýtt að- alskipulag Garðabæjar að vinna að útfærslu á staðsetn- ingu nýs grunnskóla í Strand- hverfi og/eða á Ásum og Grundum í samvinnu við skipulagsfulltrúa Garðabæjar. Ekki gert tilboð í Héð- inslóðina Garðabær lifun tímarit um heimili og lífsstíl númer sjö 2002

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.