Morgunblaðið - 27.11.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.11.2002, Blaðsíða 16
ERLENT 16 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ betri innheimtuárangur ÁFORM eru uppi um það í Suður-Afríku að byggja risastóra styttu af Nelson Mandela, fyrr- verandi forseta landsins og frelsishetju svartra manna. Styttuna vilja menn reisa í borginni Port Elizabeth og skal hún nefnd „frelsisstyttan“. Markmiðið er að skapa Port Elizabeth sérstöðu, reisa þar styttu sem eftir yrði tekið, og um yrði fjallað, í því skyni að blása lífi í atvinnulíf borg- arinnar. Það var auglýsingamaðurinn Kenny McDon- ald sem kom fram með þá hugmynd að gera styttuna af Mandela að miðpunktinum í eitt hundrað milljóna dollara endurreisn hafn- arsvæðisins í Port Elizabeth en McDonald segir Mandela eitt þekktasta nafn í heimi; aðeins vöru- merkið Coca Cola sé útbreiddara. „Við viljum hagnýta okkur þetta. Ég geri ráð fyrir að það megi segja sem svo að við ætlum okkur að misnota nafn hans,“ segir McDonald. „En fátæktin í þessari borg er ótrúleg, og ég þekki ekki betri leið til að skapa ný atvinnutæki- færi og blása von í brjóst fólks.“ Segja lítið úr Mandela gert Um 1,2 milljónir manna búa í Port Elizabeth – sem á sínum tíma var nefnd eftir eiginkonu rík- isstjóra Bretlands á svæðinu, en sem nú er oftast kennd við Mandela – og segja andstæðingar hugmyndarinnar að nær væri að eyða fjár- munum í að byggja íbúðarhúsnæði, skóla og spítala í stað þess að reisa risavaxið minnismerki um hinn hógværa handhafa friðarverðlauna Nóbels. Segja þeir að hugmyndin sé til marks um það hversu menn vilji gera lítið úr baráttunni gegn aðskilnaðarstefnu hvítra manna í Suður-Afríku. Mandela sé ekki vörumerki, að ekki þurfi að steypa eftirmynd af honum úr kopar til að tryggja að hans verði minnst í sögunni, og að hann hafi ekki eytt 27 árum ævi sinnar í fangelsi til að geta seinna laðað ferðamenn að hinum gullnu ströndum Suður-Afríku. „Þegar menn velta fyrir sér hvernig megi gróflega misnota sér eitthvað, eða hugsa sér eins ósmekklega aðferð og hugsast getur til að koma einhverju á framfæri, þá verður varla gert betur en þetta,“ sagði í leiðara dagblaðsins Mail & Guardian. „Ef það eru til peningar þá ættu þeir að byggja þak yfir höfuð fólks,“ sagði jafn- framt Motusi Nkopane, atvinnulaus verkamaður í New Brighton-hverfinu í Port Elizabeth, þar sem allt er í niðurníðslu. Mandela segir ákvörðunina vera annarra Þessi sjónarmið eru þó ekki ráðandi í héraði, sem er hið fátækasta í Suður-Afríku og sem hef- ur verið höfuðvígi Afríska þjóðarráðsins, stjórn- málaaflsins sem Mandela fór fyrir á sínum tíma. Búið er að samþykkja að eyða 200 þúsund doll- ara í rannsókn á hagkvæmni verkefnisins, en auk styttunnar yrði sett á laggirnar „frelsissafn“ á hafnarsvæðinu, ráðstefnuhöll yrði þar byggð og höfn sem gæti rúmað skemmtiferðaskip. Flokksdeild Afríska þjóðarráðsins á staðnum hefur lagt blessun sína yfir verkefnið og hafn- aryfirvöld hafa boðið fram land. Á svæði þar sem atvinnuleysi mælist reglulega yfir 50%, og þar sem barnadauði mælist sums staðar meira en 10%, líta margir jákvæðu auga verkefni sem er ætlað að laða að 5.000 ferðamenn á dag og tryggja tíu þúsund ný störf. Talsmaður Mandela sjálfs, sem orðinn er 84 ára gamall, segir forsetann fyrrverandi ætla að láta ríkisstjórn landsins og Afríska þjóðarráðið um allar ákvarðanir í þessu efni. „Ef þeim finnst við hæfi að hann sé heiðraður með þessum hætti mun hann virða ákvörðun þeirra,“ sagði Zelda LaGrange. Vilja reisa risavaxna styttu af frelsishetjunni Mandela Port Elizabeth. The Washington Post. Myndhöggvarinn Maureen Quin hefur lagt fram þessa hugmynd að styttu af Mandela og ungri stúlku. Styttan myndi vera um 30 hæðir að stærð og rísa yfir höfn borgarinnar Port Elizabeth. ’ Ég geri ráð fyrir að það megi segja sem svo að við ætlum okkur að misnota nafn hans. ‘ The Washington Post undirritaði lögin að breytingarnar væru engin trygging fyrir því að hægt yrði að koma í veg fyrir „allar hugsanlegar árásir“ á Bandaríkin. „Í frjálsu og opnu samfélagi getur ekkert ráðuneyti tryggt algerlega öryggi okkar og varið okkur gegn hugsanlegum árásum manna sem ferðast og starfa í skjóli myrkurs.“ Með 170.000 starfsmenn Gert er ráð fyrir því að 22 stofn- anir heyri undir heimavarnaráðu- neytið þegar breytingunum lýkur. Starfsmenn ráðuneytisins verða alls um 170.000 og fjárveitingarnar til þess eiga að nema nær 40 milljörð- um dollara, andvirði 3.400 milljarða króna. Verður þetta þriðja stærsta ráðu- neyti Bandaríkjanna á eftir varnar- málaráðuneytinu og ráðuneyti sem fer með málefni uppgjafahermanna. Starfsmenn síðarnefnda ráðuneytis- ins, sem veitir 25,3 milljónum upp- gjafahermönnum og fjölskyldum þeirra ýmsa þjónustu, eru nú yfir 223.000, en þar af heyra um 201.000 þeirra undir heilsugæsludeild ráðu- neytisins. Heimavarnaráðuneytið verður stofnað formlega 24. janúar og allir æðstu embættismennirnir, þeirra á meðal 33 aðstoðarráðherrar, taka þá til starfa. Frá og með 1. mars á næsta ári eiga strandgæslan, tollgæslan, Sam- gönguöryggisstofnunin, megnið af Innflytjendaeftirlitinu, Almanna- varnastofnun Bandaríkjanna og GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti undirritaði í fyrradag lög um stofnun heimavarnaráðuneytis og tilnefndi Tom Ridge, fyrrverandi ríkisstjóra Pennsylvaníu, sem ráð- herra þess. Þar með hófust formlega mestu breytingar á bandaríska stjórnkerfinu í meira en hálfa öld, eða frá stofnun varnarmálaráðu- neytisins árið 1947 þegar Harry S. Truman, þáverandi forseti, setti landherinn og flotann undir einn hatt. Meginmarkmiðið með stofnun heimavarnaráðuneytisins er að aftra hryðjuverkamönnum frá því að komast til Bandaríkjanna, tryggja frekar öryggi í samgöngum og finna leiðir til að koma í veg fyrir að árásir verði gerðar á Bandaríkin með kjarna-, efna- eða sýklavopnum. Bush forseti sagði þó þegar hann Leyniþjónustan (Secret Service) að heyra undir heimavarnaráðu- neytið. Leyni- þjónustan, sem hefur gætt ör- yggis æðstu emb- ættismanna Bandaríkjanna, heyrir nú undir fjármálaráðuneytið og hefur m.a. safnað upplýsingum um peninga- þvætti. Gert er ráð fyrir því að 16 aðrar stofnanir verði færðar undir nýja ráðuneytið fyrir 1. september á næsta ári. Skipt í fjórar deildir Ráðuneytinu verður skipt í fjórar deildir. Ein þeirra á að meta upplýs- ingar frá bandarísku leyniþjónust- unni CIA, alríkislögreglunni, FBI, og Þjóðaröryggisstofnuninni og undirbúa viðbrögð við hugsanlegum árásum í samstarfi við bandaríska lögreglustjóra. Þótt CIA og FBI hafi sætt gagnrýni fyrir að afstýra ekki hryðjuverkunum 11. september og fyrir skort á samstarfi sín á milli eiga þessar stofnanir ekki að heyra undir heimavarnaráðuneytið. Önnur deild ráðuneytisins á að hafa yfirumsjón með landamæraeft- irliti, öryggismálum flugvalla og hafna og afgreiðslu beiðna um land- vistarleyfi. Þriðja deildin á að undirbúa við- brögð við hugsanlegum árásum með kjarna-, efna- eða sýklavopnum í samstarfi við heilbrigðisstofnanir, lögreglu og slökkvilið. Hún á einnig að skipuleggja viðbúnað vegna nátt- úruhamfara, svo sem jarðskjálfta, flóða og fellibylja. Vísindadeild ráðuneytisins á að hafa yfirumsjón með þróun vopna- leitartækja og bóluefna og lyfja gegn sýklum sem hryðjuverkamenn kunna að beita. Endurskipulagningin gæti tekið mörg ár Stjórn Bush stefnir að því að ljúka þessum breytingum fyrir 30. sept- ember á næsta ári en stjórnsýslu- sérfræðingar telja að endurskipu- lagningin taki mörg ár. „Það mun taka mörg ár að fella allar þessar ólíku stofnanir saman í eitt skilvirkt og áhrifamikið ráðu- neyti,“ sagði David M. Walker, yf- irmaður endurskoðunarskrifstofu Bandaríkjaþings. Samkvæmt lögunum fær stjórn Bush víðtækt vald til að ráða og reka starfsmenn heimavarnaráðuneytis- ins eða flytja þá á milli stofnana. Stéttarfélög starfsmannanna hafa mótmælt þessu og spáð því að marg- ir af landamæravörðum Bandaríkj- anna láti af störfum vegna óánægju með breytingarnar. „Enginn vill starfa við þær að- stæður að geta átt á hættu að vera rekinn hvenær sem er,“ sagði T.J. Bonner, formaður stéttarfélags um 10.000 bandarískra landamæra- varða, og bætti við að þetta gæti orðið til þess að öryggisgæslan við landamærin minnkaði. „Það eru menn en ekki tölvur og myndavélar sem handsama fólk,“ sagði hann. Bandaríkjaforseti búinn að undirrita lög um stofnun heimavarnaráðuneytis Mestu breytingar á bandaríska stjórnkerfinu frá 1947 Washington. Los Angeles Times, AP. Tom Ridge Verður þriðja stærsta ráðuneyti Bandaríkjanna FRÖNSK lögregluyfirvöld greindu frá því í gær, að þau væru með í haldi til yfirheyrslu sex manns, þar á meðal músl- imaklerk, í tengslum við tilraun brezka múslimans Richards Reid til að fremja sprengjutil- ræði um borð í farþegaþotu á leið yfir Atlantshaf með því að sprengja sprengju sem hann hafði falið í skósólum sínum. Mennirnir voru handteknir í áhlaupum lögreglusveita í Par- ís og nágrenni, sem sérhæfðar eru í hryðjuverkavörnum. Fóru handtökurnar meðal annars fram í tveimur moskum, eftir því sem heimildarmenn AFP- fréttastofunnar greindu frá. Sögðu þeir aðgerðirnar miða að því að „ljúka rannsókninni á samverkaliði Richards Reid“. Zakayev áfram í haldi DÓMSTÓLL í Kaupmanna- höfn úrskurðaði í gær að Akhmed Zakayev, erindreka útlagastjórnar Tsjetsjníu sem Aslan Maskhadov fer fyrir, skyldi áfram vera haldið í gæzluvarðhaldi unz tekin hefur verið afstaða til framsalsbeiðni rússneskra stjórnvalda, en í Rússlandi er Zakayev ákærður fyrir meðábyrgð á hryðjuverk- um. Saksóknarar höfðu farið fram á tveggja vikna framleng- ingu, en dómarinn ákvað níu daga og hvatti hann yfirvöld til að komast að niðurstöðu um framsalsbeiðnina áður en sá frestur rennur út. Hættur við að hætta JÖRG Haider, fyrrverandi for- maður og helzti máttarstólpi austurríska Frelsisflokksins, er hættur við að hætta sem fylkis- stjóri Kärnten- héraðs. Hann bauð afsögn sína úr embætt- inu á mánu- dag, í kjölfar afhroðs Frelsisflokksins í þing- kosningunum sem fram fóru í landinu á sunnudag. Á fundi með með flokksmönnum sínum í Kärnten á mánudagskvöld var hann hvattur til að láta ekki af embætti og varð hann við þeirri beiðni. Að sögn austurrískra dagblaða var þetta í sjötta sinn á þessu ári sem Haider boðar með einum eða öðrum hætti að hann hyggist draga sig í hlé frá stjórnmálum, en hefur alltaf „hætt við að hætta“. Dauðadóms- deila harðnar RÍKISSAKSÓKNARI Írans varaði í gær umbótasinnaða sagnfræðiprófessorinn Hash- em Aghajari við því að dauða- dómurinn sem hann hlaut fyrir að draga óskeikulleik klerka- forystunnar opinberlega í efa verði endanlegur haldi hann áfram að hafna því að áfrýja dómnum. Aghajari, sem er pró- fessor við kennaraháskóla í Teheran, hefur hafnað því að áfrýja dómnum í því skyni að ögra harðlínumönnum í réttar- kerfinu til að fullnægja dauða- dómnum, en hann hefur valdið miklum fjöldamótmælum. STUTT Vinir Reids handteknir Jörg Haider

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.