Morgunblaðið - 27.11.2002, Side 24

Morgunblaðið - 27.11.2002, Side 24
UMRÆÐAN 24 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Á KJÖRDÆMISÞINGI Samfylk- ingarinnar, sem haldið var á Hólma- vík hinn 26. okt. sl., var ákveðið að uppstillingarnefnd myndi raða á lista fyrir komandi alþingiskosning- ar og áttu gömlu kjördæmin þrjú að eiga þar fulltrúa í efstu sætunum. Sú samþykkt hefur nú verið brotin með því að bjóða Vestfirðingum fjórða sæti listans. Mér finnst það umhugsunarvert að stjórnmálaafl, sem heldur því fram að það eigi að bera öll meiri- háttar mál undir þjóðaratkvæða- greiðslu, skuli ekki einu sinni geta farið eftir þeim niðurstöðum sem fást á einu ekki svo margmennu kjördæmisþingi. Það læðist að manni sá grunur þegar upp er staðið að hér sé ekki verið að hugsa um Vestfirðinga, ég tel að það hefði ekki skipt máli hvaða frambjóðanda við hefðum teflt fram – hvort hann hefði átt lögheimili í Súðavík eða á Þingeyri – við áttum aldrei að fá eitt af þremur efstu sæt- unum. Hvers vegna? Svarið er augljóst. Á Akranesi eru tveir sitjandi þing- menn Samfylkingarinnar og ef það er hróflað við þeim verður allt vit- laust! Á þessu svæði er ekki geta til að sameinast um einn fulltrúa í efsta sætið og því ágætt að senda okkur Vestfirðingum vandamálið til úr- lausnar: Þið setjið ykkar fulltrúa í fjórða sætið og ekki orð um það meir. Vestfirðingum hefur alltaf þótt vont að láta setja sér afarkosti, því ákvað sá eini fulltrúi okkar sem gaf kost á sér að þiggja ekki sætið. Það þýðir ekki endilega uppgjöf en það kallar á baráttu, sú barátta mun fara fram heiðarlega en ekki með baktjaldamakki með því að bera út róg um þann sem settur er í þriðja sætið eins og því miður hans fámenni stuðningsmannahópur hér fyrir vestan gerir um fulltrúa okkar. Vestfirðingar munu taka slaginn á kjördæmisþinginu fyrir opnum tjöldum. Ég ætla að vona að sá orðrómur að flokksforystan sé með puttana í framboðsmálunum í Norðvestur- kjördæminu sé bara orðrómur, en það skyldi þó ekki vera að það geti fleiri en Davíð Oddsson slegið menn leiftursnöggt í hausinn ef þeir eru ekki á línunum sem flokkurinn vill? Vestfirðingum stillt upp við vegg! Eftir Kolbrúnu Sverrisdóttur Höfundur er varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ. „Vestfirð- ingar munu taka slaginn á kjördæm- isþinginu fyrir opnum tjöldum.“ UNDANFARIN misseri hefur orðið stöðug aukning á innbrotum í bifreiðar. Þar er í langflestum til- fellum verið að stela hljómflutn- ingstækjum með geislaspilara, far- símum, fartölvum og geisladiskum ásamt öðrum verðmætum. Skýringin á aukningu þessara innbrota er trúlega sú, að þarna ná þjófar í vöru sem auðvelt er að koma í verð. Þá spyr maður sig, hvers vegna skyldi það vera svo að fólk sé tilbúið að kaupa vöru, sem langflestum má vera ljóst að sé stolin, þegar verið er að bjóða um- búðalausa vöru langt undir raun- virði. Með þessu háttalagi er fólk að ýta undir og óbeint að stuðla að þessum þjófnuðum, því ef ekki væri markaður fyrir vöruna væri til lítils að stela henni. Foreldrar þurfa að vera vel á verði þegar þau verða vör við að unglingnum stendur til boða að kaupa til dæmis hljómflutnings- tæki í bifreið sína, á verði sem er langt undir raunvirði. Þá á sá sem kaupir stolna vöru það á hættu, ef málið upplýsist og þjófurinn verð- ur að segja til þýfisins, að verða að skila hinni stolnu vöru og tapar því andvirði hennar bótalaust. Segja má að þáttur þess sem kaupir vís- vitandi stolna vöru sé síst betri en verknaður þjófsins. Þá þurfa bíleigendur að skoða sinn þátt, því oft eru þeir að freista þjófa, bæði með því að skilja bílana eftir ólæsta og eins með því að skilja eftir í þeim verð- mæta hluti og auðseljanlega. Þar ber mest á farsímum og þá er tölu- vert um að fartölvur séu skildar eftir í bifreiðum. Þá er einnig al- gengt að fólk geymi mikinn fjölda geisladiska í bifreiðum. Ekki er óalgengt að þeir séu um 100 tals- ins í sömu bifreiðinni. Þess háttar varðveisla á fjármunum er eitt- hvað sem hver og einn umráða- maður bifreiðar þarf að skoða. Það að stilla út dýrum hlutum í bifreið- inni getur kallað á að inn í hana verði brotist. Þáttur umráðamanns bifreiðar- innar er því stór. Hann getur dregið mikið úr líkunum á því að brotist verði inn í hans bifreið, bara með því að geyma ekki í henni verðmæta hluti. Ef hann einhverra hluta vegna þarf þess, þá á að koma þeim þannig fyrir að þeir séu ekki áberandi. Það að skreppa í kvikmyndahús og skilja eftir á áberandi stað farsímann og fartölvuna, kann ekki góðri lukku að stýra. Til að snúa þessari þróun við þarf að koma til samstillt átak, bæði bíleigenda og alls almenn- ings, sem þarf að hafna því að kaupa stolna vöru. Takmarkinu verður ekki náð bara með því að auka löggæslu, þrátt fyrir að það hafi örugglega sín áhrif. Á þessu ári hefur verið lögð aukin áhersla á eftirlit óeinkenn- isklæddra lögreglumanna, að nóttu til, sem eru á ómerktum bílum og fara um hverfi borgarinnar. Hefur það skilað miklum árangri í að ná til innbrotsþjófa og að upplýsa mál. Nágrannagæslan er mikilvæg til að koma í veg fyrir innbrot í bif- reiðar og að fólk hafi vakandi auga með grunsamlegum aðilum, sem líklegir eru til að hafa eitthvað misjafnt í huga, og láta strax lög- reglu vita verði það vart við eitt- hvað grunsamlegt. Betra er að fá fleiri er færri slíkar ábendingar, þrátt fyrir að í ljós komi að þær eigi ekki alltaf við rök að styðjast. Gefið ekki þjófum færi á eigum ykkar Eftir Árna Vigfússon „Nágranna- gæslan er mikilvæg til að koma í veg fyrir inn- brot í bifreiðar.“ Höfundur er aðstoðar- yfirlögregluþjónn forvarna- og fræðsludeildar. ÍSLENDINGAR lifðu um hríð í þeirri von og trú að yfirlýsing um hlutleysi myndi endast þeim til fram- tíðar. Síðari heimsstyrjöldin kenndi þeim aðra lexíu. Hlutleysisyfirlýs- ingar voru að engu hafðar í þeim hildarleik. Eftir það heita stríð tók við kalt stríð, sem skildi að þjóðir Evrópu og Járntjald féll. Árið 1948 sáu forystumenn lýð- ræðisflokkanna á Íslandi fram á að ekki var lengur til setunnar boðið og gerðu Ísland að félaga í Atlantshafs- bandalaginu, varnarbandalagi vest- rænna ríkja gegn þeirri ógn, sem mönnum virtist steðja að úr austri. Eitt af grundvallarskilyrðum Ís- lands fyrir aðildinni var að Ísland væri herlaust land og vopnlaust og myndi aldrei eiga beina aðild að neinskonar hernaði. Innan tíðar frá stofnun bandalags- ins þótti nauðsyn til bera að reisa herstöð á Íslandi til varnar árás. Og Íslendingar léðu land sitt undir slík vígvirki, enda þótt ýmsum væri þungt í fyrstu. Í því sambandi mætti minna framsóknarmenn á orð Her- manns Jónassonar er hann viðhafði fyrir kosningar 1956; ,,Það er betra að vanta brauð en að hafa her í landi.“ Þar kom þó að menn létu sannfær- ast og reyndist langsýni manna eins og Bjarna Benediktssonar í þeim málum frá upphafi Íslandi gæfusam- legt. En við gerð varnarsamningsins við Bandaríkin 1951 var enn ítrekað af hálfu Íslands að Íslendingar væru vopnlaus þjóð og ætluðu sér að vera það um aldur og ævi; að aldrei kæmi til greina hernaður af þeirra hálfu. Þessi afstaða Íslands hefir staðið óhögguð til þessa dags, að Góðu dát- arnir tveir, Davíð og Halldór, virðast hafa varpað henni fyrir ofurborð án þess að tala við kóng eða prest; nema náttúrlega þjóna sína á Morgun- blaðinu, sem strax eru uppi til handa og fóta. Augljóst er hvaða atburðir hér hafa orðið: Öllum bandalagsþjóðum okkar var fullkunnugt um afstöðu okkar og hefði engri þeirra til hugar komið að fara fram á breytingu þar á að fyrra bragði. Góðu dátarnir tveir hafa því haft frumkvæði að því að bjóða fram hernaðaraðstoð sína af þeim höfð- ingjasleikjuhætti, sem borið hefir mjög á í fari þeirra upp á síðkastið í viðskiptum við aðrar þjóðir. Í viðtölum við Morgunblaðið reyna Góðu dátarnir að láta líta svo út að hernaðaraðstoð þeirra sé sama eðlis og friðargæzla! Og Halldór vill „…tengja það tvennt saman“, þátt- töku í hernaði og þróunaraðstoð! Generáll Halldór sagði í Prag að bylting væri að verða í umhverfi ör- yggismála Íslands! Hvað á maðurinn við? Hann kannski kemur við í alþingi á næstunni og greinir þingheimi frá hinni nýju byltingu, sem þeir dátar hafa hrundið í framkvæmd. Hún er reyndar ekki flóknari en svo, að þeir kumpánar róa nú að því öllum árum að slitinn verði einn mikilvægasti þátturinn í utanríkisstefnu Íslands og gerð að engu eiðsvarin afstaða ís- lenzkrar þjóðar: Að hún muni aldr- eigi bera vopn á aðra menn né að því stuðla. Góðu dátarnir Eftir Sverri Hermannsson Höfundur er formaður Frjálslynda flokksins. „Í viðtölum við Morg- unblaðið reyna Góðu dátarnir að láta líta svo út að hern- aðaraðstoð þeirra sé sama eðlis og frið- argæzla!“ MIKIÐ er talað í háum tölum í þjóðfélaginu þessa dagana. Fyrstu níu mánuði ársins hagn- aðist Eimskip um tæplega fjóra milljarða króna. Á hátíðarstundum er þar stund- um sagt að starfsfólkið sé mesti auður félagsins. Það virðist þó ekki vera því að nýlega tóku þeir upp á því að selja eitt af skipum sínum (ms. Lag- arfoss) og taka eins skip á leigu mannað útlendingum. Telja þeir sig græða 10 milljónir á ári með þessu. Ekki fer orðum af gróða þeirra sem misstu vinnuna. Ekki er heldur spurt um líðan þeirra sem héldu vinnunni. Þeir þurfa að sætta sig við að vinna undir stjórn afarmenna sem gætu átt það til að segja þeim upp um næstu mán- aðamót og ráða í staðinn Filipps- eyinga og Rússa sem ekki leggja krónu til þjóðfélagsins. Þetta er ótrúlegur hroki í garð manna sem hafa sýnt vinnuveitendum sínum hollustu árum saman. Ég efast um sparnað af þessu, t.d. þarf að hafa þrjá Íslendinga um borð samt sem áður, hleðslu- stjóra, rafvirkja og kranamann. Einnig er trúlega dýrara að gera út undir skipstjóra eins og er á ms. Hansiduo, en svo heitir leigu- skipið, sem var einnig í leigu hér áður fyrr. Íslensku skipstjórarnir sigla oft- ast hjálparlaust til og frá bryggju. En kjarkurinn hjá þeim rússneska var ekki meiri en svo að hann þurfti tvo dráttarbáta til að kom- ast að bryggju í Immingham. Auk þess er hann gífurlega erfiður í samstarfi vegna mikilla skapgerð- arbresta. Frést hefur að vandræð- in séu byrjuð strax aftur í fyrsta túr. Hann geri Íslendingunum erf- itt fyrir að stunda sína vinnu. Það er hart að vinna hjá Eim- skip og vera niðurlægður af rúss- neskum skipstjóra. Það voru örugglega ekki þær hugmyndir sem bændur, sjómenn, verkamenn og fleiri gerðu sér um framtíð félagsins og kölluðu það óskabarn þjóðarinnar. Töldu það hluta af sjáfstæðis- baráttu þjóðarinnar að stofna skipafélag svo við gætum séð um okkar flutninga sjálfir. Þessir menn sem nú stjórna eru að svíkja þær hugsjónir fyrir minna en 30 silfurpeninga. Hvað ætla þeir að gera ef brýst út ófriður? Þá eigum við e.t.v. eng- in flutningaskip því að þau eru öll skráð undir hentifánum í Karab- íska hafinu og víðar. Íslenskir sjó- menn fórnuðu lífi sínu til að halda uppi flutningum í stríðinu. Ef svo- leiðis ástand kemur aftur þá erum við líklega nógu góðir tíl að sigla. Gróflega áætlað tel ég að það séu a.m.k. 12 skip í hérumbil föst- um siglingu til og frá landinu, mönnuð útlendingum. Eimskip með fjögur. Samskip með þrjú. Atlantsskip með þrjú. Aðrir með 2–3 skip. (Mætti spara sér bygg- ingu eins álvers.) Ekki þarf að reikna með að stjórnvöld komi farmönnum til að- stoðar. Þau hafa hingað til að- stoðað fiskiútgerðir með lagasetn- ingum þegar þær hafa staðið í sinni kjarabaráttu. Ég skora á íslenska sjómenn að labba allir í land sem einn maður og svínbeygja þau félög, sem ekki setja sín skip undir íslenskan fána, að gera það strax og biðja Íslend- inga afsökunar á því að þeim skyldi hafa dottið í hug að flagga þeim út. Ég er viss um að verkamenn, bændur og fleiri munu standa með okkur. Þetta er hluti af sjálfstæðisbar- áttu þjóðarinnar. Óskabarnið Eftir Baldvin Þorláksson „Ég skora á íslenska sjó- menn að labba allir í land sem einn maður.“ Höfundur er stýrimaður. Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Brandtex fatnaður Nýbýlavegi 12, sími 5544433 Stretchbuxur kr. 2.90 Konubux r frá kr. 1.790 ragtir, kjólar, blús ur og pils. Ódýr nát fatna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.