Morgunblaðið - 27.11.2002, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 49
FYRSTA íslenska rappskífan sem fékkalmenna dreifingu hér á landi varStormurinn á eftir logninu með EyjólfiEyvindssyni sem kallar sig jafnan Ses-
ar Africanus, eða bara Sesar A. Sesar hefur
haldið áfram sínu brautryðjendastarfi, sá til að
mynda um safndiskinn góða Rímnamín sem kom
út í sumar, og sendi í vikunni frá sér sinn annan
disk, Gerðuþaðsjálfur.
Sesar segir að fljótlega eftir að hann var búinn
með síðustu plötu sína hafi hann sest niður og
skrifað niður hvað hann átti í fórum sínum af
hugmyndum. „Þá kom í ljós að ég var með um
sextán hugmyndir að lögum. Ég fór síðan að
vinna efnið nokkuð skipulega og má segja að ég
hafi hugsað og unnið hana á tæpu ári,“ segir
hann en upptökurnar sjáfar fóru fram á tíma-
bilinu frá júlí til september. Rappið var tekið upp
í Geimstöðinni Mír, en Diddú og flestir hljóð-
færaleikarar voru teknir upp í Pornogen Snuff
Studios. Sesar segir að vinnan hafi gengið vel, en
þar sem hann fékk ýmsa til liðs við sig var um-
stangið mikið.
„Ég vann þetta á löngu tímabili og gaf þessu
tíma til að meltast og þróast. Ég er mjög ánægð-
ur með útkomuna.“
Gefur skífuna út sjálfur
Sesar gefur skífuna sjálfur út líkt og síðustu
plötu sína. Hann segist þó hafa rætt við útgáfur
en án árangurs. Skífan hafi lýst áhuga en síðan
hætt við og samskipti hans við Eddu hafi leitt í
ljós að forstöðumaður tónlistardeildarinnar vilji
alls ekki gefa hann út. „Ég hef svo sem ekki efni
á að gera þetta, ekki frekar en ég hafði efni á því
í fyrra,“ segir hann og hlær við. Aðspurður hvort
hann sé þá ekki að tefla á tæpasta vað núna, sér-
staklega í ljósi þess að umbúðirnar eru mun dýr-
ari núna, diskurinn í sérstakri öskju, segist hann
þegar vera búinn að tryggja að útgáfan standi
undir sér. „Mér tókst að selja fyrir kostnaði í
fyrra og þegar platan kemur út núna er hún búin
að borga sig og rúmlega það. Ég gerði samning
við BT um að þeir kaupa af mér fyrsta upplagið
og fá einkasölu af því. Ég fæ svo borgaðan helm-
inginn strax, sem greiðir kostnaðinn,“ segir
hann, en bætir við að diskurinn fari væntanlega í
almenna dreifingu um miðjan desember.
Af ofangreindu má sjá að Sesar er gefinn fyrir
að taka áhættu, en hann gefur ekki mikið fyrir
það, þetta hafi einfaldega verið spurning um að
duga eða drepast, að láta drauminn rætast og
það núna því hann og unnustan eru á leið til út-
landa í nám og það núna því þau frestuðu því til
að honum gæfist kostur á að ljúka við diskinn og
koma honum út. „Ég held ég hætti aldrei að
semja, en það verður kannski bið á að ég gefi
út.“
Í allt öðrum klassa
Sesar segir að plata hans á síðasta ári, Storm-
urinn á eftir loginu, hafi verið, eins og nafnið ber
með sér, hugstormur sem hafi beðið eftir að
brjótast fram. „Mér finnst Gerðuþaðsjálfur aftur
á móti í allt öðrum klassa, miklu betri, enda er ég
búinn að vinna meira í forminu. Áður skrifaði ég
texta út í eitt og setti síðan tónlist undir. Núna
aftur á móti skrifa ég texta við tónlistina og læt
það ganga upp í forminu,“ segir hann og bætir
við að hann hafi einnig þróast tónlistarlega; úr
því að byggja laglínur úr endurunnum hljómum
semji hann nú sínar eigin laglínur. „Þegar ég
byrjaði að vinna með tónlist fyrir tæpum 10 ár-
um notuðum við hljómborð og þ.h. til að semja
eigin línur. Síðan kynnist ég hljóðsmalatækninni
og byggði allt á því en hef hægt og rólega brotið
mig út úr því eins og sést á Gerðuþaðsjálfur.“
Umslag utan um plötuna er býsna sérstakt,
enda má segja að eigandinn þurfi að gera það
sjálfur. „Aðalmálið hjá Haraldi Civelek og Jeff
Ramsey, sem gerðu umslagið, var að hanna það
sem minnst og láta ímyndunarafl eiganda ráða
ferðinni.“ Leiðbeiningar fylgja með til að skýra
ferlið. „Þegar maður hannar umslag styðst mað-
ur oftast við fyrirmyndir til að sjá hvernig við-
komandi leysti eitthvað vandamál en í þessu til-
viki er það ekki hægt þar sem þetta hefur ekki
verið gert áður.“
Sesar tók þá ákvörðun að gefa eitt lag á
heimasíðu sinni sem einskonar 12" mp3 til kynn-
ingar á plötunni. „Tólf tommur eða smáskífur
þrífast ekki á íslenskum markaði en þetta er
örugglega leið til að koma slíku á framfæri og
nota þá netið til þess,“ segir hann en slóðin á vef-
setur Sesars er www.sesar-a.com.
Íslenskan skiptir öllu máli
Sesar er einn helsti brautryðjandinn í íslensku
hiphopi, var sá fyrsti sem gaf út breiðskífu með
almenna dreifingu, og hefur því býsna góða yf-
irsýn yfir hiphop-heiminn. Hann segir að enn sé
hiphop að sækja í sig veðrið, enn séu menn að
heillast af hiphopi og enn eigi eftir að koma út
margir góðir diskar þótt mikið hafi komið út á
þessu ári. „Mér finnst ekki líklegt að nokkur
plata eigi eftir að ná viðlíka sölu og Rottweiler-
hundarnir á síðasta ári, þeir voru einfaldlega
með rétta plötu á hárréttum tíma. Hugsanlega
verður einhver samdráttur í sölu þar hún dreifist
á fleiri titla og þar af leiðandi verður meiri sam-
keppni. En það að rappið er á íslensku skiptir
öllu máli og mun gera að verkum að það festist í
sessi og er komið til að vera, enda höfðar rapp á
íslensku til miklu fleiri eftir því sem fleiri skilja
textana og hlusta frekar á þá fyrir vikið.“
Sesar segist stefna á útgáfutónleika í byrjun
desember, en hann er ekki búinn að ákveða
stund eða stað. Eitt af því sem vefst fyrir honum
er að geta ekki fengið alla þá sem komu að plöt-
unni með honum til að troða upp með sér, enda
segist hann ekki treysta sér alveg til að uppfæra
öll verkin með öllum hljóðfærum og tilheyrandi.
Að því sögðu er hann rokinn, enda þarf han að
fara heim að pakka plötunni, að koma diskunum
fyrir í umbúðunum, en diskarnir eru steyptir úti
en umbúðirnar prentaðar hér heima.
Morgunblaðið/Þorkell
Sesar
gerir
það
sjálfur
Sesar A er meðal brautryðj-
enda í íslensku hiphopi.
Nýr diskur hans þar sem
hann reynir að miða forminu
áfram kom út í liðinni viku.
Árni Matthíasson ræddi við
Sesar sem er á leið utan í nám. „[Þ]að að rappið er á íslensku skiptir öllu máli og mun gera að verkum að það festist í sessi og erkomið til að vera“, segir brautryðjandinn og hugsjónamaðurinn Sesar Africanus.
Geislaplatan Gerðuþaðsjálfur er komin í verslanir.
Útgáfutónleikar verða í desemberbyrjun.
skrefi framar
KYLIE mun
koma fram á
sviði West End í
söngleik tileink-
uðum skemmti-
kröftunum
Morecomb and
Wise sem góð-
gerðarsjóður
Karls Breta-
prins stendur
fyrir.
Prinsinn ákvað sjálfur
hverjir ættu að taka þátt í skemmt-
uninni og setti Kylie efst á óskalist-
ann, og ástralska söngkonan þáði
boð prinsins með þökkum, bæði
stolt og hrærð, enda vissi hún að
hún hafði verið tekin fram yfir
stjörnur á borð við Halle Berry og
Nicole Kidman sem áður höfðu ver-
ið orðaðar við skemmtunina.
Karl valdi Kylie
Prinsinn vill popp-prinsessuna.
Sýningartímar gilda 26 - 29 nóvember
Sýnd kl. 4 ísl tal Vit 448Sýnd kl.4. Vit 448 Sýnd kl.6. Vit 448
AKUREYRIÁLFABAKKI
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P kl. 4 og 8. B. i. 16. Vit 469.
KEFLAVÍK
Kl. 6, 8 og 10. Vit 474 Kl. 10.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 468
1/2HK DV ÓHT Rás2
SV Mbl RadíóX
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 479 Sýnd kl. 8. Vit 479
ÁLFABAKKI AKUREYRI ÁLFABAKKI AKUREYRI ÁLFABAKKI AKUREYRI ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5 og 8. Vit 468Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 468
BLOOD
WORK