Morgunblaðið - 28.11.2002, Page 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GRUNNUR AÐ SAMNINGI
Stjórn Félags heimilislækna
komst að þeirri niðurstöðu í gær-
kvöldi að kominn væri grundvöllur
að frekari samningum við heilbrigð-
isyfirvöld eftir að heilbrigð-
isráðherra lagði fram yfirlýsingu til
lausnar deilunni við heimilislækna. Í
yfirlýsingunni var opnað á þann
möguleika að breyta lögum þannig
að heilsugæslulæknar heyrðu ekki
lengur undir kjaranefnd. Stjórn fé-
lagsins hyggst bera þessa lausn und-
ir félagsmenn.
Efasemdir um sjóðasamruna
Efasemdir komu fram um fyrir-
hugaða sameiningu Lífeyrissjóðs
arkitekta og tæknifræðinga (LAT)
við Almennan lífeyrissjóð Íslands-
banka á aukaársfundi LAT. Gagn-
rýnt var að kynningarfundur skyldi
ekki hafa verið haldinn.
2,4 milljarðar í tjónabætur
Viðlagatrygging Íslands hefur
greitt samtals tæplega 2,4 milljarða
króna í tjónabætur vegna Suður-
landsskjálftanna í júní 2000. Til-
kynnt var um tjón á 2.319 stöðum.
Bush fær grænt ljós í Berlín
Bandaríkjaher fær að nota her-
stöðvar í Þýskalandi og bandarískar
herflugvélar fá að fljúga í lofthelgi
landsins komi til stríðs í Írak, að
sögn Gerhards Schröders kanslara í
gær. Þjóðverjar ætla þó ekki að taka
þátt í hugsanlegum hernaði í Írak.
Snurðulaus vopnaleit
Vopnaleitin í Írak fór vel af stað í
gær þegar eftirlitsmenn Sameinuðu
þjóðanna hófu þar formlegt vopna-
eftirlit að nýju eftir fjögurra ára hlé.
Engin vandamál komu upp.
Afkoman undir áætlun
Hagnaður Sjóvár-Almennra var
320 milljónir króna á fyrstu níu mán-
uðum ársins, rúmum 100 milljónum
minni en á sama tíma í fyrra. Horfur
eru á 500 milljóna hagnaði á árinu.
2002 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
Arsene Wenger sagði 3:1 sigurArsenal á útivelli gegn Róma
einn stærsta sigur liðsins undir hans
stjórn á sex ára ferli Frakkans sem
knattspyrnustjóra. Hann hrósaði
Thierry Henry en tók það fram að án
liðsins væri Henry ekki að gera þessa
hluti. „Thierry var magnaður í leikn-
um. Mörkin hans voru hvert öðru
glæsilegra og öll eru þau ólík. Ég sé
ekki framherja í dag sem hefur sömu
hæfileika og Thierry Henry, enginn
stendur honum á sporði. Við höfum
unnið á útivelli í Auxerre, Eindhoven
og nú í Róm en þetta er sigur liðs-
heildarinnar. Staða okkar er vænleg í
riðlinum og stig á útivelli eru gulls
ígildi,“ bætti hann við og var viss í
sinni sök að hann myndi aldrei skipta
á Henry og öðrum framherja. Róma
átti sínar stundir í leiknum, töldu sig
eiga fá víti í stöðunni 1:1 auk þess sem
Pascal Cygan bjargaði á línu. Róma
hefur enn ekki unnið leik á heimavelli
sínum í keppninni að þessu sinni en
annað er uppi á teningnum hjá Val-
encia sem hefur ekki tapað á heima-
velli í 31 ár í Evrópukeppni.
Bellamy svarti sauðurinn
„Hörmulegt, grimmilegt, ógleym-
anlegt og ófyrirgefanlegt kvöld,“
sagði hinn aldni knattspyrnustjóri
Newcastle, Bobby Robson, eftir 4:1
ósigur gegn Inter á heimavelli.„Við
fengum verstu byrjun sem hugsast
getur gegn gríðar sterku liði, sem er
skipað skynsömum, gáfuðum og hæfi-
leikaríkum leikmönnum,“ bætti Rob-
son við og vildi ekki gagnrýna Craig
Bellamy sem var vísað af leikvelli á 5.
mínútu er Newcastle var marki undir.
„Dómarinn gerði rétt, Bellamy hag-
aði sér ekki rétt. Hann sýndi ekki af
sér fagmennsku og við munum gera
út um þau mál í okkar herbúðum,“
bætti Robson við en Bellamy fékk
einnig rautt spjald í riðlakeppninni.
Reuters
Thierry Henry leikmaður enska liðsins Arsenal fagnaði í þrígang gegn Róma á Ítalíu í gærkvöld.
Arsene Wenger hrósar Thierry Henry í
hástert eftir þrennu Frakkans í Róm
„Henry er
engum líkur“
FRANSKI landsliðsmaðurinn Thierry Henry var maður kvöldsins í
Meistaradeild Evrópu er hann skoraði þrennu í 3:1 sigri Arsenal
gegn Róma á Ítalíu. Spænska liðið Barcelona hefur enn lotið í gras í
keppninni og vann sjöunda leik sinn í röð nú 2:1 gegn þýska silf-
urliðinu Leverkusen. Inter vann stóran sigur á Newcastle á Eng-
landi, 4:1, í viðburðaríkum leik og á Spáni skoruðu Valencia og hol-
lenska liðið Ajax eitt mark hvort um sig undir lok leiks.
ARIE Haan, hollenski knattspyrnuþjálfarinn,
sem er að taka við kínverska landsliðinu,
sagði í samtali við belgíska blaðið Het La-
aste Nieuws í gær að Ásgeir Sigurvinsson
væri í hópi bestu leikmannanna sem hann
hefði þjálfað á ferlinum. Haan hefur víða
komið við og þjálfaði lið Stuttgart í Þýska-
landi þegar Ásgeir lék þar. Blaðið bað Haan
að velja sitt úrvalslið og það var skipað eft-
irtöldum leikmönnum:
Jerzy Dudek (Feyenoord), Georges Grun
(Anderlecht), Ronald Koeman (Feyenoord),
Guido Buchwald (Stuttgart), Adri Van
Tiggelen (Anderlecht), Basualdo (Stuttgart),
Srecko Katanec (Stuttgart), Lozano (And-
erlecht), Ásgeir Sigurvinsson (Stuttgart),
Luc Nilis (Anderlecht) og Jürgen Klinsmann
(Stuttgart).
Ásgeir einn sá
besti, segir Haan
VLADO Stenzel, einn frægasti
handknattleiksþjálfari heims, er
kominn til starfa hjá Wetzlar, liði
Sigurðar Bjarnasonar og Róberts
Sighvatssonar í Þýskalandi. Stenzel
verður þjálfaranum, Velimir Petko-
vic, til aðstoðar, sérstaklega við
þjálfun markvarða og mótun yngri
leikmanna.
Stenzel, sem er Króati, er orðinn
68 ára gamall en blómatími hans var
á áttunda áratugnum. Undir hans
stjórn urðu Júgóslavar Ólympíu-
meistarar árið 1972 í München og
síðan stýrði hann Þjóðverjum til
heimsmeistaratitils árið 1978 í Dan-
mörku þar sem þeir lögðu Sovét-
menn að velli í úrslitaleik.
Vlado Stenzel er
kominn til Wetzlar
Tryggvi hættir hjá KR
TRYGGVI Bjarnason, varnarmaður hjá KR, tilkynnti félaginu í gær
að hann hygðist leika með öðru liði næsta tímabil. Tryggvi, sem verð-
ur tvítugur í janúar, meiddist í fyrravetur og var ekki klár í slaginn
fyrr en um mitt sumar. Hann var í leikmannahópi KR í níu síðustu
umferðunum og kom inná sem varamaður í þremur leikjum. Sumarið
áður, þegar hann var á sínu fyrsta ári í efstu deild, lék hann þrettán
leiki.
Að sögn Bjarna Friðrikssonar, föður Tryggva, er ástæðan fyrir því
að hann fer frá KR fyrst og fremst sú að félagið er komið með gríð-
arlega marga varnarmenn og Tryggva langar að spila meira en hann
fékk í sumar og fyrirsjáanlegt er að hann fái með KR næsta sumar.
Bjarni sagði að nokkur íslensk lið væru þegar búin að hafa samband
við Tryggva og auk þess væri verið að athuga með eitt erlent lið.
KNATTSPYRNUDEILD Grindavíkur hefur rætt við stjórnarmenn
færeyska félagsins B36 um að fá til liðs við sig tvo landsliðsmenn frá
Þórshafnarliðinu. Það eru sóknarmaðurinn Jákup á Borg og miðjumað-
urinn Julian Johnsson. Að sögn Kristjáns á Neystabö, formanns B36,
hafa félögin rætt sín á milli en engin niðurstaða sé komin í málið ennþá.
Jákup er 23 ára gamall sóknarmaður en Julian er 27 ára miðjumaður
sem einnig hefur leikið með Sogndal í Noregi og er í hópi leikjahæstu
landsliðsmanna Færeyja. Jákup var í byrjunarliðinu í báðum EM-leikj-
unum í síðasta mánuði, gegn Litháean og Þýskalandi, en Julian tók ekki
þátt í þeim leikjum.
Tveir Færeyingar
til Grindavíkur?
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F
SJÓNVARP LÍFEYRISMÁL FISKVEIÐAR
Fjölmörg tækifæri í
sjónvarpsrekstrinum,
meðal annars í staf-
rænu áskriftarsjónvarpi.
Fjárfestingastefna líf-
eyrissjóða ræður mestu
um framvinduna og
áhættu sjóðanna.
SKARPARI/4 MIKILVÆGI/6 UM 73%/12
HANNES Þór Smárason, aðstoðarfor-
stjóri Íslenskrar erfðagreiningar, var
kjörinn í aðalstjórn Kers á hluthafafundi
félagsins í gær. Hann-
es tekur sæti í aðal-
stjórn sem fulltrúi
Norvikur, móðurfélags
BYKO.
Boðað var til hlut-
hafafundarins að
beiðni stjórnar eignar-
haldsfélagsins Hest-
eyrar, sem er í eigu
Fiskiðjunnar Skagfirð-
ings hf. og Skinneyjar-
Þinganess hf. Ástæðan
fyrir beiðninni var sú
að Hesteyri vildi fá
fulltrúa í stjórn þar
sem félagið færi með
22,53% hlut í félaginu.
Í kjölfar sölu Hesteyr-
ar á hlut sínum í Keri
til Norvikur, afturkall-
aði Hesteyri beiðni
sína. Hópur hluthafa
sem hefur meira en
þriðjung hlutafjár á bak við sig óskaði
engu að síður eftir því að fundurinn yrði
haldinn.
Fyrir fundinn sagði sitjandi stjórn af
sér en hluthafar samþykktu tillögu um
að sömu aðilar yrðu kjörnir í stjórn að
nýju, utan þess að Hannes Smárason
tekur sæti Þórólfs Gíslasonar. Auk
Hannesar voru kjörnir í aðalstjórn þeir
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, Ólafur
Ólafsson, forstjóri Samskipa, Gísli Jón-
atansson, kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Fáskrúðsfirðinga, og Margeir Daníels-
son, framkvæmdastjóri Samvinnulífeyr-
issjóðsins.
Í varastjórn voru kjörin þau Jón Krist-
jánsson, framkvæmdastjóri eignarhalds-
félagsins Sunds, Guðrún Lárusdóttir, út-
gerðarmaður í Hafnarfirði, og Magnús
Krisinsson, útgerðarmaður í Vestmanna-
eyjum. Hin nýkjörna stjórn hefur ekki
skipt með sér verkum en Kristján Lofts-
son, sem var formaður stjórnarinnar áð-
ur, segir að það verði gert á allra næstu
dögum.
V I Ð S K I P T I
Hannes í
stjórn Kers
Tekur sæti Þórólfs Gíslasonar
HAGNAÐUR Sjóvár-Al-
mennra á fyrstu níu mánuðum
ársins var 320 milljónir króna,
samanborið
við 424 millj-
ónir á sama
tímabili í
fyrra.
Guðmundur
J. Jónsson,
fulltrúi for-
stjóra félagsins, segir að stjórn-
endur séu vonsviknir með niður-
stöðuna, en áætlanir fyrir-
tækisins hljóðuðu upp á 600
milljóna króna hagnað á árinu. Sú
áætlun hefur verið lækkuð í u.þ.b.
500 milljónir. Ef ekki hefði verið
fyrir hagnað af sölu fjárfestinga
hefði afkoman verið 200 milljón-
um króna verri.
Gripið til aðgerða nú þegar
Guðmundur segir að skýringin á
þessari niðurstöðu liggi helst í
slakri afkomu vátryggingarekstr-
ar. „Hún var bara ekki eins góð
og við hefðum viljað. Þar er nið-
ursveifla á einstökum greinum,
fyrst og fremst brunatrygging-
um. Við hyggjumst þegar grípa til
aðgerða sem ætlað er að bæta
þarna úr,“ segir hann. Guðmund-
ur segir þó að stjórnendur fyr-
irtækisins telji að aðeins sé um
tímabundið ástand sé að ræða.
Bókfærð iðgjöld skaðatrygg-
inga voru 6.775 milljónir króna,
en bókfærð iðgjöld líftrygginga
voru 783 milljónir króna. Bók-
færð tjón skaðatrygginga voru
4.019 milljónir króna en bókfærð-
ar líftryggingabætur voru 196
milljónir króna.
Hreinn rekstrarkostnaður
vegna skaðatryggingarekstrar
var 942 milljónir króna og vegna
líftryggingarekstrar 260 milljónir
króna. Fjárfestingatekjur yfir-
færðar á vátryggingarekstur
voru 471 milljón króna en voru
1.099 milljónir króna á sama
tímabili árið áður. Fjárfestinga-
tekjur samstæðunnar voru 979
milljónir króna á tímabilinu og
fjárfestingagjöld voru 478 millj-
ónir króna. Að teknu tilliti til yf-
irfærðra fjárfestingatekna á vá-
tryggingarekstur var hagnaður
af fjármálarekstri 30 milljónir
króna á tímabilinu.
Fjárfestingatekjur lækka
Á fyrstu níu mánuðum ársins
lækkuðu fjárfestingatekjur veru-
lega, miðað við sama tímabil fyrra
árs. Þó er hagnaður af sölu fjár-
festinga sem fyrr segir mun meiri
en fyrir ári, eða 200 milljónir,
samanborið við 10 milljónir króna
2001. Í tilkynningunni er lækkun
fjárfestingatekna skýrð með
styrkingu krónunnar og minni
verðbólgu, „en langtímafjárfest-
ing félagsins í dótturfélögum leið-
ir einnig til tímabundinnar lækk-
unar á vaxtaberandi eignum.“
Í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að afkoma samstæðunnar
eftir þriðja ársfjórðung sé nokkuð
undir væntingum stjórnenda.
Minni hagnaður sé af vátrygg-
ingarekstri en vonast hafi verið til
og óverulegur hagnaður af fjár-
málarekstri. „Hagstæð matsþró-
un eldri ára leiðir til jákvæðrar
afkomu í lögboðnum ökutækja-
tryggingum. Fjöldi ökutækja-
tjóna á árinu 2002 er svipaður og
á árinu áður. Jákvæð þróun í
eignatryggingum framan af ári
hefur gengið til baka á síðari
hluta ársins en tíð stórtjón í
brunatryggingum fasteigna hafa
neikvæð áhrif á afkomu félagsins.
Versnandi afkoma af almennum
ábyrgðartryggingum er einnig
áhyggjuefni. Áhrif dótturfélags-
ins á afkomuna eru neikvæð um
65 milljónir króna á tímabilinu,“
segir í tilkynningunni.
500 m.kr. hagnaður á árinu
Þá segir að lakari afkoma af fjár-
málarekstri ásamt versnandi af-
komu af vátryggingarekstri síð-
ari hluta árs geri það að verkum
að afkoma félagsins á árinu 2002
verði nokkru síðri en áætlanir
hafi gert ráð fyrir. „Í upphafleg-
um áætlunum fyrir árið var gert
ráð fyrir svipaðri eða betri af-
komu en á árinu 2001 en nú virð-
ast horfur á að hagnaður af
rekstri félagsins á árinu verði um
500 milljónir króna.“
Hagnaður Sjóvár-Al-
mennra undir væntingum
Afkoma vátryggingarekstrar undir áætlun sem og af fjármálarekstri. Söluhagnaður
fjárfestinga 190 milljónum meiri en í fyrra. Gert ráð fyrir 500 milljóna hagnaði á árinu
Sjóvá-Almennar
Botnfiskafli í heiminum
heldur áfram að dragast
saman en verðið hækkar
ekki teljandi.
Hannes Þór
Smárason
Kristján
Loftsson
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 40
Erlent 14/23 Umræðan 44
Neytendur 26/27 Kirkjustarf 49
Höfuðborgin 30 Minningar 49
Akureyri 31 Bréf 60
Suðurnes 32 Dagbók 62/63
Landið 33 Fólk 64/69
Menntun 34 Bíó 66/69
Listir 35&40/43 Ljósvakamiðlar 70
Forystugrein 36 Veður 71
* * *
Kynningar – Blaðinu í dag fylgir aug-
lýsingablað frá atvinnumálanefnd
Akraness. Blaðinu verður dreift um
allt land.
AIR GREENLAND íhugar nú að halda uppi
áætlunarflugi á milli Keflavíkur og Kaupmanna-
hafnar með Boeing 757 vél sinni. Finn Øelund, for-
stjóri Air Greenland, segir hátt verð hjá Flug-
leiðum eiga sinn þátt í að málið sé í athugun hjá
félaginu og að það treysti sér vel til að keppa við
það verð sem Flugleiðir bjóða. „Við erum að skoða
þennan möguleika. En við höfum ekki ákveðið
neitt ennþá.“
Øelund segir það ekki vera vandamál þótt
grænlensk flugfélög hafi ekki leyfi til þess að
fljúga á milli Íslands og Danmerkur: „Við getum
sett á stofn fyrirtæki, annaðhvort á Íslandi eða í
Danmörku. Og við getum einnig valið okkur ís-
lenskan samstarfsaðila. Þannig að það eru ýmsir
möguleikar fyrir hendi.“
Air Greenland tók í lok október í notkun Air-
bus-330 vél sem tekur 241 farþega og flýgur á milli
Syðri-Straumfjarðar á vesturströnd Grænlands
og Kaupmannahafnar en félagið ákvað að halda í
Boeing-vél sína og er nú að skoða möguleg verk-
efni fyrir hana og þannig er væntanlega áhugi fé-
lagsins á Íslandi til kominn. Með tilkomu Airbus-
vélar Air Greenland ákvað SAS, eftir margra ára
harða samkeppni við Air Greenland, að hætta öllu
flugi milli Straumfjarðar og Kaupmannahafnar og
er Air Greenland nú einrátt á þeirri leið.
Hátt verð hjá Flugleiðum
Øelund segir það að vissu leyti rétt að Air
Greenland vanti verkefni fyrir Boeing-þotu sína.
„Jú, það má segja það. En það hefur einnig áhrif
að við höfum tekið eftir að verðið hjá Flugleiðum
er mjög hátt. Við umreiknuðum verðið á opinn
miða á hvern kílómetra og þá kostar hver floginn
kílómetri með Flugleiðum milli Keflavíkur og
Kaupmannahafnar 3,70 danskar krónur en verðið
á kílómetrann hjá okkur á milli Syðri-Straum-
fjarðar og Kaupmannahafnar er 1,21 dönsk króna
á kílómetrann. Munurinn er því mikill. Það lítur út
fyrir að verðlagning sé með öðrum hætti hjá okkur
en Flugleiðum og ég hugsa að almenningur á Ís-
landi kynni að meta það ef við færum að fljúga
þaðan til Kaupmannahafnar. Það eru mörg ár síð-
an Flugleiðir hafa fengið samkeppni á heima-
markaði.“
Aðspurður segir Øelund að verið sé að fara yfir
málin og menn geri ráð fyrir að taka endanlega
ákvörðun í síðasta lagi um miðjan janúar.
Øelund segir að reksturinn gangi ágætlega á
þeim fargjöldum sem félagið býður og að Air
Greenland hafi skilað alveg viðunandi hagnaði,
jafnvel í samkeppni við SAS.
„Jú, það er rétt. Þeir hættu samkeppni við okk-
ur þar sem flugleiðin var rekin með tapi að þeirra
sögn en við rákum þetta með hagnaði hjá okkur.
Við höfum aðeins verið að skoða í kringum okkur í
Evrópu og við teljum okkur vera vel samkeppn-
isfæra og það lítur út fyrir að við eigum að geta
keppt við Flugleiðir,“ segir Øelund.
Air Greenland íhugar
samkeppni við Flugleiðir
Höfðu SAS undir í
fluginu á milli Græn-
lands og Danmerkur
SKIPTASTJÓRI þrotabús Frjálsrar
fjölmiðlunar, Sigurður Gizurarson
hæstaréttarlögmaður, hefur vísað
sölu félagsins á eigum þess í netmiðl-
inum Vísi.is til meðferðar efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra.
Kom þetta fram á skiptafundi þrota-
búsins í gær og staðfesti Jón H.
Snorrason, yfirmaður efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra, þetta í
samtali við Morgunblaðið en vildi að
öðru leyti ekki tjá sig um málið. Salan
fór fram sl. vor en Frjáls fjölmiðlun
ehf. var úrskurðuð gjaldþrota í júlí sl.
Fagna skoðun
Í yfirlýsingu sem Jón Gunnar
Zoëga hrl. sendi frá sér í gær f.h.
stjórnarmanna í Frjálsri fjölmiðlun,
segir m.a:
„Yfirlýst stefna Frjálsrar fjölmiðl-
unar ehf. undanfarin tvö ár var að
selja eignir til að létta á skuldum fé-
lagsins. Ráðstöfun þeirra fjármuna
sem komu út úr ofangreindum eigna-
sölum er nú til skoðunar hjá skipta-
stjóra félagsins. Er þar m.a. um að
ræða skoðun á því hvort félagið hafi
verið knúið til þess af einstökum lán-
ardrottnum að ráðstafa fjármunum
sínum á einn veg frekar en annan. Í
einhverjum tilfellum telur skipta-
stjóri að ekki liggi fyrir nægilegar
upplýsingar til að varpa ljósi á einstök
mál. Er því fagnað að skiptastjóri leiti
allra leiða, þ.m.t. leiti aðstoðar þartil-
bærra yfirvalda, við skoðun sína.“
Í endurriti úr skiptabók, sem kynnt
var í gær og Morgunblaðið hefur und-
ir höndum, segir m.a. að skiptastjóri
hafi kallað eftir öllum samningum um
sölu á eignum Frjálsrar fjölmiðlunar
á síðustu misserum.
Fram kemur að eigendur FF hafi
átt mörg dótturfyrirtæki að öllu eða
verulegu leyti. Nefnd eru félög eins
og Ísafoldarprentsmiðja ehf., Bíla-
leigan ehf., Frjálsi hugbúnaðarsjóð-
urinn, Vísir.is, Framtíðarsýn, Mark-
húsið, Ritfell, Póstmiðlun, Heimsljós,
Dagsprent ehf., Nota bene ehf.,
Gæðamiðlun ehf., Lánstraust ehf.,
Time Invest SA og Degasoft. Mörg
þessara félaga hafi nú ýmist verið
seld, hætt starfsemi eða verið lýst
gjaldþrota. Sum gjaldþrotanna hafi
verið mjög stór, s.s. þrot Ísafoldar-
prentsmiðju.
Skiptastjóri segir viðleitni sína að
upplýsa um fjármálalegar ráðstafanir
á eignum félagsins ekki ávallt hafa
borið árangur. Þannig hafi hann t.d.
ekki undirritaðan samning um sölu á
eignum Vísis.is, sem selt hafi verið
síðastliðið vor fyrir „líklega“ um 60
milljónir króna. Síðan segir í endurriti
úr skiptabókinni: „Skiptastjóri kveðst
hafa sýnt mikla þolinmæði í bið sinni
eftir upplýsingum, en bréfum sínum
hafi ekki ávallt verið svarað. Að svo
vöxnu máli kveðst skiptastjóri ekki
hafa viljað taka einn ábyrgð á upplýs-
ingu málsins og því í síðustu viku hafa
vísað því til meðferðar ríkislögreglu-
stjóra, sem þá tæki einnig þátt í að
upplýsa það.“
Salan á Vísi.is til
ríkislögreglustjóra
Gjaldþrot FF/14
FRAKKASTÍGURINN er ekki
ýkja langur og það er algjör
óþarfi að flýta sér þegar hann er
genginn. Ágætt getur verið að
kíkja í búðarglugga og ef til vill
velta fyrir sér hvað eigi að gefa í
jólagjafir eða hvað maður vilji
sjálfur fá í pakka. Eitthvað sér-
staklega áhugavert er í þessum
búðarglugga enda hvorki fleiri
né færri en fjórir viðskiptavinir
að gægjast inn.
Morgunblaðið/Sverrir
Það þarf ekki
að flýta sér
ALMANNAVARNANEFND
Seyðisfjarðar skipaði svo fyrir í
gær, að fimm íbúðarhús í bæn-
um skyldu rýmd vegna hættu
af aurskriðum. Hús við Aust-
urveg, Fossgötu og Baugsveg
voru rýmd eftir fund almanna-
varnanefndar síðdegis í gær.
Ákvörðunin var tekin í ljósi
vaxandi rigninga og óhag-
stæðrar veðurspár sem fram-
undan er.
Funda í dag
Almannavarnanefnd hittist
aftur í dag, fimmtudag, til að
meta stöðuna. Ekki hafa þó
fallið fleiri skriður frá því á
sunnudag, þegar skriða féll úr
Botnabrúnum rétt ofan við
Austurveg. Er þetta í annað
sinn á tæpri viku sem íbúar á
Seyðisfirði þurfa að yfirgefa
hús sín vegna skriðuhættu í
bænum.
Á föstudag í síðustu viku
urðu 30 íbúar í 10 húsum við
Austurveg að finna sér annan
samastað þar til hættuástandi
var aflýst á mánudag. Að þessu
sinni voru það um 10 manns
sem urðu að yfirgefa heimili
sín.
Seyðisfjörður
Hús rýmd
á ný vegna
skriðu-
hættu
Þrotabú Frjálsrar fjölmiðlunar