Morgunblaðið - 28.11.2002, Blaðsíða 27
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 27
RAFMAGN er einn stórvirkasti
brennuvargur nútímans. Á hverju ári
verða margir eldsvoðar sem eiga
upptök sín í rafbúnaði. Stundum
kviknar í vegna bilunar en oftast er
um að ræða að gáleysi í umgengni við
rafmagn valdi slysum eða íkveikju,
segir rafmagnsöryggisdeild Löggild-
ingarstofu sem mælist til þess að fólk
vari varlega með jólaljósin.
Hluti af undirbúningi jólanna á að
vera að ganga úr skugga um að þau
ljós sem nota á séu í góðu lagi. Notum
réttar perur og látum ljósin ekki loga
yfir nótt.
Engin jólaljós eru svo örugg að
hægt sé að útiloka íkveikju af þeirra
völdum. Varasamt er að láta loga á
jólaljósakeðjum (jólaseríum), sem og
öðrum jólaljósum innanhúss, yfir nótt
eða þegar við erum að heiman. Það á
ekki síst við um ljós á jólatrjám.
Flestar nýrri ljósakeðjur til notkunar
innandyra eru þannig gerðar að þeg-
ar ein pera „deyr“ logar áfram á hin-
um. Eftir því sem logar á færri per-
um eykst ljósstyrkur hverrar peru og
þar með hitinn. Ljós sem ofhitna geta
auðveldlega valdið bruna. Því ber að
skipta strax um bilaðar perur í ljósa-
keðjum og hafa í huga að nota rétta
gerð af peru. Röng gerð, stærð eða
styrkur getur valdið ofhitnun sem
leiðir til íkveikju. Seljendur eiga að
vita hvaða perur henta best.
Um díóðuljós, þar sem ekki er
hægt að skipta um peru, gilda í meg-
inatriðum sömu umgengnisreglur og
við eldri gerðir ljósakeðja, það er að
láta ekki loga á ljósakeðjunni þegar
slokknar á perum. Notendur eru
hvattir til þess að fara eftir leiðbein-
ingum sem þeim fylgja.
Ljós og brennanleg efni
Vegna hitans sem stafar frá ljósa-
perum er mikilvægt að alltaf sé nægi-
leg fjarlægð frá ljósi í brennanlegt
efni. Rafljós geta til dæmis ekki síður
kveikt í gluggatjöldum en kertaljós.
Sýnum sérstaka varúð gagnvart jóla-
stjörnum og öðru pappírsskrauti sem
sett er utan um ljósaperur. Ef ljósa-
pera liggur við brennanlegt efni eins
og pappír er mikil hætta á íkveikju.
Logandi kerti eru vitaskuld alltaf
varasöm en komist þau í tæri við raf-
magn er hætta á ferðum. Því er brýnt
að láta kerti aldrei standa ofan á raf-
tækjum eins og sjónvarpi eða hljóm-
flutningstækjum. Kertið getur brætt
sér leið niður í tækið og kveikt í því.
Einnig getur kveikurinn fallið log-
andi af kertinu ofan í tækið eða vax
lekið niður í það og valdið íkveikju.
Ekki nota úr sér gengin ljós
Algengt er að fólk haldi upp á göm-
ul jólaljós sem eru úr sér gengin. Oft
endar þessi hirðusemi með íkveikju
eða slysi af völdum ljósanna. Réttast
er að henda gömlu ljósunum eða láta
fagmann yfirfara þau ef minnsti
grunur leikur á að þau séu í ólagi.
Þegar farið er yfir jólaljósin er
áríðandi að skipta tafarlaust um
brotnar klær og brotin perustæði.
Göngum einnig úr skugga um að allar
rafmagnsleiðslur séu heilar, að ein-
angrun sé alls staðar í lagi og að ekki
sjái í bera víra.
Ekki er til eitt endanlegt ráð til að
ganga úr skugga um hvort jólaljós
séu af vandaðri gerð. Vert er þó að
hafa í huga að sérlega ódýr jólaljós
eru yfirleitt ekki eins vönduð og dýr-
ari ljós af svipaðri gerð. Gæði og ör-
yggi fara saman í þessu sem öðru.
Notum aldrei inniljós úti
Jólaljós utandyra eiga að vera sér-
staklega gerð til slíkrar notkunar. Á
öllum jólaljósum eða umbúðum
þeirra, sem seld eru hér á landi sem
inniljós, á að standa á íslensku að þau
séu eingöngu til notkunar innanhúss.
Að nota inniljós utandyra getur verið
lífshættulegt. Útiljósakeðjur sem
ekki eru tengdar við spennubreyti
(12V–24V) eiga að vera vatnsvarðar.
Brýnt er að perur útiljósa vísi ávallt
niður svo ekki sé hætta á að vatn
safnist í perustæðin. Einnig er mik-
ilvægt að festa útiljós vandlega þann-
ig að perur geti ekki slegist við og
brotnað.
Mikil aukning hefur orðið á und-
anförnum arum í notkun svokallaðra
„slönguljósa“ sem hægt er að kaupa í
metravís. Því miður er nokkuð um
íkveikjur af völdum slíkra ljósa og
nær undantekningarlaust er það
vegna þess að ekki er vandað nægi-
lega til samsetninga. Það er því afar
brýnt að fá nákvæmar leiðbeiningar
frá seljendum um samsetningu og
fara eftir þeim í einu og öllu.
Góður siður er að skipta um raf-
hlöðu í reykskynjurum um hver jól,
segir Löggildingarstofa að síðustu.
Morgunblaðið/Ásdís
Farið varlega með jólaljósin og gangið úr skugga um að þau séu í lagi, seg-
ir Löggildingarstofa. Freyjubrá með rauðum perum lýsir upp náttmyrkrið.
Eru jólaljósin
í góðu lagi?
Einn vinsælasti
matsölustaðurinn í miðbæ
Reykjavíkur til sölu.
Langur leigusamningur.
Veitingaleyfi til kl. 03.00
um helgar.
Nánari upplýsingar veitir
Kristinn R. Kjartansson
sölufulltrúi.
VEITINGAHÚSIÐ
AMIGOS
Staðseting: Lækjargata 6a
Stærð: Um 350 fm
Veitingaleyfi: Til kl. 03.00
um helgar
Sæti: Fyrir 150
manns
Upplýsingar: Kristinn R.
Kjartansson
GSM 8972338
SUÐURLANDSBRAUT Sími 520 9300
Hrafnhildur
Bridde
lögg. fasteignasali
Kristinn R. Kjartansson
sölufulltrúi
GSM 897 2338
Við erum hætt að nota rauða
vaxið utan um Brauðostinn.
Það var vissulega góð vörn á
sínum tíma en með fullkomnari
pökkunar- og geymslu-
aðferðum er það óþarfi.
Aukin hagkvæmni skilar sér
einnig í lækkuðu útsöluverði.
Brauðostur er hollur,
bragðgóður og ákaflega
notadrjúgur.
Við erum vaxin upp úr vaxinu!
NOKKRIR íslenskir bændur fram-
leiða lambakjöt eftir alþjóðlegum líf-
rænum gæðastöðlum, þar sem fram-
leiðslan er vottuð af Vottunarstofunni
Túni. Sex býli markaðssetja og selja
kjötið á tveimur stöðum á landinu.
Annars vegar er það selt hjá símsölu-
og flutningsfyrirtækinu Hagfiski ehf.
og hins vegar í Fríhöfninni í Leifs-
stöð. Kjötið er niðurskorið og tilbúið
til matargerðar og með hverjum
skrokki fylgir upplýsingabæklingur
um afurðina og framleiðendur henn-
ar. Sjá nánar www.hagfiskur.is.
NÝTT
Lífrænt
lambakjöt