Morgunblaðið - 28.11.2002, Síða 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LAXASLÁTRUN er hafin hjá fisk-
eldisstöðinni Sæsilfri í Mjóafirði og
hefur um 70 tonnum af fiski verið
slátrað frá því í byrjun þessa mán-
aðar.
Meðalþyngd laxins er um 5 kg
og hann aðallega seldur á Banda-
ríkjamarkað eftir vinnslu á Norð-
firði.
Stærsti eldislaxinn var 21 punds
bolti eftir 16 mánaða eldi og bætir
Ingólfur Sigfússon stöðvarstjóri
við að fáeinir laxar af þessari
þyngd hafi komið upp úr kvíunum.
Hann segir afurðirnar í heild
ágætar og engar kvartanir hafa
borist frá kaupendum. Slátrunin
stendur sem hæst um þessar mund-
ir og segir Ingólfur að vænta megi
100 tonna fyrir jól. Bakteríusýk-
ingar hafa leikið laxinn grátt í kví-
unum og hafa á milli 3 og 400 lax-
ar drepist á dag af þeim völdum.
Bakterían herjar á fiskinn ef
hann fær sár af því að nuddast ut-
an í kvíanótina, en slíkt getur hent
ef fiskurinn ræður ekki við sig í
sterkum sjávarstraumi.
„Ef þeir missa hreistur ræðst
bakterían á sárið,“ segir Ingólfur.
Þrátt fyrir að þetta hafi ekki
áhrif á gæði fisksins sem matvöru
er það engu að síður stefna fyrir-
tækisins að farga honum. „Við þor-
um ekki að láta hann frá okkur því
ef eitthvað kemur upp með svona
fisk svertir það orðspor fyrirtæk-
isins.“
Morgunblaðið/RAXSigfús Vilhjálmsson og Guðleifur Einarsson hjá Sæsilfri í miðri sláturtíð í Mjóafirðinum.
21 punds bolt-
ar að koma upp
úr kvíunum
STÖÐVARHÚS Kárahnjúkavirkjunar og mannvirki
tengd því verða um 800 metra inni í fjallinu Teigsbjargi
sem gnæfir yfir Valþjófsstað í Fljótsdal, 600 metra hátt.
Meðfylgjandi þrívíddarmynd frá fyrirtækinu ONNO er
birt í nýju fréttabréfi Verkfræðistofu Sigurðar Thor-
oddsen hf. sem að undanförnu hefur unnið að hönnun
virkjunarinnar og gerð útboðsgagna.
Tilboð í gerð stíflu og aðrennslisganga Kárahnjúka-
virkjunar verða opnuð föstudaginn 6. desember næst-
komandi.
Á myndinni efst til vinstri koma tvær þrýstivatns-
pípur, bláar að lit, úr aðrennslisgöngum í 430 metra
hæð niður í stöðvarhúsið. Þaðan er vatnið leitt 1.100
metra löng og 9 metra víð frárennslisgöng niður í
Fljótsdal. Aðkomuhús er þjónustu- og verkstæðishús
ofanjarðar og frá því liggja 800 metra löng og 7,5
metra víð aðkomugöng að stöðvarhúsinu. Frá spenna-
sal við stöðvarhúsið, grænt að lit, liggja sérstök
strengjagöng út að tengivirkishúsi og þaðan liggja svo
háspennulínurnar frá fyrirhugaðri Kárahnjúkavirkjun.
Tölvumynd/ONNO
Mannvirkin 800 metra
inni í Teigsbjargi
PÓSTSENDINGAR frá hinu op-
inbera til dánarbúa skila sér ekki
alltaf í hendur erfingja þar sem
slíkar sendingar eru stílaðar á síð-
asta skráða heimilisfang hins
látna, en ekki til þeirra sem hafa
umsjón með dánarbúinu. Á Hag-
stofunni og hjá Ríkisskattstjóra-
embættinu er það vel þekkt
vandamál að póstur berist ekki
erfingjum eftir að húsnæði hins
látna hefur verið selt til nýrra eig-
enda.
Sóley Ragnarsdóttir, deildar-
stjóri í þjóðskrá á Hagstofu Ís-
lands, segist vita af því að erfingj-
ar og umsjónarmenn dánarbúa
hafi lent í vandræðum þar sem op-
inberar stofnanir sendi póst sem
tengist dánarbúinu á þann stað
sem einstaklingurinn átti síðast
lögheimili. Þegar einstaklingar
deyja eru þeir teknir af þjóðskrá
en upplýsingar um hinn látna,
m.a. annars síðasta lögheimili við-
komandi, eru skráðar í svo kallaða
horfinna manna skrá.
Yfirleitt tekur um ár að ganga
frá dánarbúi, á þeim tíma er ekki
óalgengt að húsnæði hins látna sé
selt og nýir eigendur flytji inn.
Póstsendingar á dánarbúið berast
hins vegar áfram á gamla heim-
ilisfangið. Morgunblaðið þekkir
dæmi þess að erfingjar hafi lent í
miklum vandræðum vegna þess-
arar stöðu. Brugðu erfingjarnir á
það ráð að óska eftir því hjá póst-
húsinu í hverfinu að sendingum á
dánarbúið yrði beint til umsjón-
armanns þess, en það gekk ekki
alltaf eftir og komu sumar póst-
sendingar aldrei í leitirnar.
Sóley segir þetta vera vanda-
mál sem þær opinberu stofnanir
sem sendi póst á dánarbú þurfi að
taka á. Í slíkum tilfellum sé ekki
rétt að miða við upplýsingar úr
þjóðskrá. Hægt sé að afla sér upp-
lýsinga um hverjir séu í forsvari
fyrir dánarbú hjá sýslumönnum á
hverjum stað. Dánarbú geti ekki
átt sér lögheimili, nema þau séu
skráð í fyrirtækjaskrá sem hluta-
félag en það hafi ekki tíðkast.
Þarf lagabreytingu
Aðspurð hvort mögulegt sé að
Hagstofan skrái umsjónarmann
dánarbús í horfinna manna skrá,
segir hún að til þess þyrfti laga-
breytingu. Það sé ekki innan verk-
sviðs þjóðskrár og að horfinna
manna skrá sé aldrei breytt, þar
séu eingöngu upplýsingar sem
liggi fyrir um viðkomandi einstak-
ling á dánardag.
Steinþór Haraldsson, lögfræð-
ingur hjá Ríkisskattstjóraemb-
ættinu, segir að póstsendingar frá
stofnuninni séu sendar út miðað
við skattgrunnskrá sem sé að um
99% leyti byggð á þjóðskrá. Erf-
ingjar geti ekki látið vita hvert
eigi að senda póstsendingar á
dánarbú selji þeir heimili hins
látna. Skrárnar séu þungar, þó
þær séu góðar til síns brúks og því
séu frávik erfið.
Steinþór bendir á að skipta-
stjóri sé skipaður þegar fyrirtæki
verði gjaldþrota og þar af leiðandi
tekin út af þjóðskrá. Því séu
þrotabú skráð á heimilisfang og
það sama þyrfti að gilda fyrir dán-
arbú. Steinþór segist þekkja til
þessa vandamáls og segir að nú sé
verið að endurskoða hvernig stað-
ið sé að öllum sendingum frá
stofnuninni.
Mörg dæmi um að póstsendingar á
dánarbú skili sér ekki til erfingja
Dánarbú
eiga ekki
lögheimili
STORKURINN í Breiðdal er ennþá
á lífi og virðist ekkert fararsnið á
honum. Hefur hann nú þraukað hér í
tvo mánuði, eða allt frá því hann
hraktist af leið til vetrarstöðvanna,
líklega í Afríku. Þótt hann eigi að
venjast heitu loftslagi á veturna
slapp hann lifandi úr klóm Frosta á
dögunum, þegar 12 stiga íslenskum
gaddinum tókst ekki að yfirbuga
hann.
Storkurinn heldur sig í nágrenni
Ásunnarstaða og sáu börnin á bæn-
um hann á þriðjudaginn. Hann er
mjög rólegur og hefur fengið margar
heimsóknir fólks, enda fáheyrt að
slíkur fugl flækist hingað til lands.
Stöðugar rigningar og hlýindi hafa
verið Austanlands að undanförnu og
er talið að storkurinn muni geta lifað
á meðan hann kemst í æti í opnum
lækjum. Þótt hann sé spakur og vin-
sæll hefur hann ekki fengið matar-
gjafir og þaðan af síður hefur honum
verið gefið heiti.
Ekkert
fararsnið á
storkinum