Morgunblaðið - 28.11.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 11
Flíspeysur
Fallegar barnaflíspeysur.
Renndar m. vösum.
Litir: Bláar, rauðar og bleikar. Stærðir 68-152 cm.
Verð kr. 3.400 og 3.900.
Kringlunni - Sími 568 1822
Desember
Dagana 28. nóv. til 5. des.
bjó›um vi› 20 % afslátt af
öllum barnaskóm.
tilbo›
2990 2392
2990 2392
3990 3192
Laugavegi 84, sími 551 0756
Kjólar • Dragtir • Jakkar
Samkvæmisfatnaður frá
Skóaðu þig upp fyrir jólin,
þú kaupir tvö pör og færð það þriðja frítt,
Þrjú fyrir tvö
„þú greiðir fullt verð fyrir dýrari skóna“
Dömustærðir: 42-44
Leðurstígvél og leðurskór í
miklu úrvali
Herrastærðir: 47-50
Margar gerðir
Opið í dag í Grundarhvarfi 1
á milli 14 og 19
eða eftir samkomulagi
í síma 897 4770
Þýsk jakkaföt kr. 18.500
Ullarfrakkar síðir kr. 10.900 — stuttir kr. 9.200
Náttföt — mikið úrval — verð frá 2.400
Skólavörðustíg 8
fræðingur verður á stofunni
í dag milli kl. 13 og 17 og
veitir ráðgjöf um val á hár-
og snyrtivörum.
Verið velkomin.
Tískusýning
í versluninni Anas, Hafnarfirði
föstudaginn 29. nóv. kl. 20
„Eyðimerkurkremið“ - ítalskt þema - tónlist - lífleg stemning
Nánari upplýsingar á www.femin.is
Allir velkomnir!
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ gerir
athugasemdir við mótmæli Svía
vegna fyrirvara Íslands við hval-
veiðibann Alþjóðahvalveiðiráðsins
og þá ályktun sem þeir draga varð-
andi það réttarsamband sem þeir
telja að ríki milli Íslands og Svíþjóð-
ar, að sögn Tómasar H. Heiðar, þjóð-
réttarfræðings í ráðuneytinu. Hann
segir að athugasemdunum verði
komið formlega til bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins, sem er vörslu-
aðili stofnsamnings ráðsins. Tómas
vill þó taka skýrt fram að einhliða
mótmæli Svía breyti að sjálfsögðu
engu um þá staðreynd að Ísland sé
aðili að Alþjóðahvalveiðiráðinu með
fyrirvara við hvalveiðibannið.
Svíar mótmæltu formlega í fyrra-
dag fyrirvara Íslendinga við bann
ráðsins við hvalveiðum í atvinnu-
skyni. Í bréfi til vörsluaðila stofn-
samningsins var jafnframt dregin sú
ályktun af mótmælunum að hval-
veiðisamningurinn gildi milli Íslands
og Svíþjóðar og þar með hvalveiði-
bannið en fyrirvarinn ekki. „Þetta
fær ekki staðist,“ segir Tómas H.
Heiðar. „Það kemur skýrt fram í
okkar aðildarskjali að fyrirvarinn er
óaðskiljanlegur hluti af aðild Íslands
og ríki geta því ekki samþykkt aðild-
ina og hafnað fyrirvaranum. Þetta er
ein órofa heild.“
Einhliða mótmæli
breyta engu
Hann segir að einhliða mótmæli
Svíþjóðar gegn fyrirvara Íslands
breyti engu um það að Ísland sé aðili
að Alþjóðahvalveiðiráðinu með fyr-
irvara við bann ráðsins við hvalveið-
um í atvinnuskyni. Aðild Íslands hafi
verið samþykkt á aukafundi ráðsins í
Cambridge í Englandi 14. október
síðastliðinn og Svíar hafi, sem kunn-
ugt er, staðið að þessari samþykkt
ráðsins.
Tómas segir að Svíum sé að sjálf-
sögðu frjálst að segja skoðun sína á
fyrirvara Íslands og fyrir liggi að
Svíar séu andsnúnir hvalveiðum.
Mótmæli Svía byggist hins vegar á
þeirri forsendu að fyrirvarinn sé
ekki í samræmi við tilgang og mark-
mið hvalveiðisamningsins. „Það fær
ekki staðist þar sem markmið samn-
ingsins er að hvalveiðar verði stund-
aðar en ekki að hvalir verði friðaðir
um aldur og ævi. Þess vegna er
bannið í ósamræmi við markmið
hvalveiðisamningsins en ekki fyrir-
varinn.“
Fyrirvarinn óaðskiljanlegur hluti aðildarskjals Íslands að
Alþjóðahvalveiðiráðinu að mati utanríkisráðuneytisins
Íslendingar gera athuga-
semdir við mótmæli Svía
KVEIKT var í tveimur fjölbýlishús-
um í Reykjavík, að því er talið er,
með skömmu millibili í fyrrinótt, án
þess að teljandi skemmdir hlytust þó
af. Eldsupptökin eru ekki staðfest,
en lögreglan telur flest benda til
íkveikju á báðum stöðum. Karlmað-
ur á þrítugsaldri var handtekinn í
tengslum við annað málið, en lög-
reglan sleppti honum í gær þar sem
hann var ekki talinn viðriðinn málið.
Enginn liggur því undir grun um
íkveikjurnar tvær, en ekki er talið að
sami aðili hafi verið að verki.
Fyrri eldsvoðinn var tilkynntur
klukkan 0.22 í sameign fjölbýlishúss
við Hjaltabakka. Mikill reykur
myndaðist í stigagangi og var óttast
að hann bærist inn í íbúðir. Það gerð-
ist þó ekki og réði Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins fljótt niðurlögum
eldsins. Sendir voru slökkvibílar frá
þremur slökkvistöðvum þar sem ótt-
ast var um afdrif íbúanna. Þegar
slökkvilið kom á vettvang kom í ljós
að eldurinn var minni en óttast hafði
verið. Kveikt hafði verið í borði og
fleiri munum við reiðhjólageymslu í
sameign. Íbúar hússins voru beðnir
um að halda sig inni í íbúðum og
leggja blaut handklæði að útidyrum
færi reykur að berast inn. Eldurinn
var slökktur og stigagangurinn
reykræstur en ekki þurfti að reyk-
ræsta íbúðir.
Handtekinn við Gnoðarvog
Aðeins níu mínútum eftir útkallið
var tilkynnt um annan eldsvoða, að
þessu sinni í ruslageymslu fjölbýlis-
húss við Gnoðarvog. Sá eldur reynd-
ist minni en við Hjaltabakka og gekk
slökkvistarf greiðlega. Eldurinn
barst ekki út úr ruslageymslunni og
skemmdir eru því litlar.
Starfsmaður öryggisfyrirtækisins
Securitas sá karlmann ganga af vett-
vangi og handtók lögreglan hann
stuttu síðar en sleppti honum í gær
að loknum yfirheyrslum þar sem
hann var ekki talinn tengjast málinu.
Útilokað þykir að sami maður hafi
kveikt í á báðum stöðum þar sem
mjög skammur tími leið milli íkveikj-
anna. Málin eru í rannsókn lögregl-
unnar.
Að sögn Harðar Jóhannessonar
yfirlögregluþjóns í Reykjavík, lítur
lögreglan mjög alvarlegum augum á
atvik af þessu tagi. Segir hann mik-
ilvægt fyrir íbúa fjölbýlishúsa að
stýra aðgangi að geymslum og loka
þeim fyrir aðgangi óviðkomandi.
Sterkur grunur um
íkveikju í tveimur
fjölbýlishúsum
ATVINNA mbl.isStórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar