Morgunblaðið - 28.11.2002, Side 15
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 15
ÞORBJÖRN Rúnarsson, ten-
órsöngvari og menntaskólakennari
á Egilsstöðum, hefur undanfarið
sungið í uppfærslu Íslensku óp-
erunnar á Rakaranum í Sevilla eftir
G. Rossini. Hann söng hlutverk
Almaviva greifa ásamt Gunnari
Guðbjörnssyni og fékk glæsilega
dóma fyrir. Þorbjörn hefur flogið
níu sinnum frá Egilsstöðum til
Reykjavíkur til að taka þátt í sýn-
ingunum.
Þegar Þorbjörn var á leið um
borð í Flugfélagsvél til Reykjavíkur
að syngja á síðustu sýningunni kom
Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæj-
arstjóri Austur-Héraðs, aðvífandi
með blómvönd og óskaði Þorbirni
til hamingju með frábæra frammi-
stöðu á óperusviðinu.
Almaviva greifi flýgur
landshorna á milli
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra hefur ákveðið að leggja fyrir Al-
þingi frumvarp til laga um breytingu
á lögum um málefni aldraðra. Felur
frumvarpið í sér að gjald í Fram-
kvæmdasjóð aldraðra hækkar um 614
krónur og verður það 5.440 kr. en var
4.826 kr. á ári.
Þar af eru 500 krónur vegna sér-
staks átaks til uppbyggingar öldrun-
arstofnana og 114 krónur vegna
hækkunar á byggingarvísitölu og
neysluvísitölu.
Í tilkynningu frá heilbrigðisráðu-
neytinu segir að hækkunin skili ár-
lega um 120 milljónum til að byggja
upp öldrunarstofnanir en fénu er ekki
ætlað að fara beint í rekstur þeirra.
Ráðherra hefur einnig ákveðið að
leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga
um breytingu á lögum um almanna-
tryggingar. Er það í framhaldi af til-
lögum starfshóps sem skipaður var af
ríkisstjórninni vegna aðgerða stjórn-
valda til að bæta aðstæður og lífskjör
aldraðra næstu tvö til þrjú árin.
Gjaldið hækkar
um 614 krónur
Framkvæmdasjóður aldraðra
KJÖRSTJÓRN vegna vígslubisk-
upskjörs í Hólastifti hefur komið
saman og verður kjörskrá lögð fram
um helgina, samkvæmt upplýsingum
frá Biskupsstofu. Á kjörskránni eru
nöfn 62 manna sem rétt hafa á að
kjósa sér vígslubiskup. Ef ekki verða
miklar tafir af kærum vegna kjör-
skrárinnar ætti sjálf kosningin að
geta hafist 10. janúar næstkomandi
þegar skrifleg kjörgögn verða send
út. Fram að þeim tíma er hægt að
skila inn tilnefningum um vígslu-
biskupsefni. Að lágmarki þurfa 10%
kosningabærra manna að standa að
slíkri tilnefningu og að hámarki 25%.
Búist er við að úrslit í kjörinu liggi
fyrir í febrúarmánuði.
Sr. Bolli Gústavsson er að láta af
störfum vígslubiskups á Hólum í
Hjaltadal en í forföllum hans hefur
forveri hans í embættinu, sr. Sigurð-
ur Guðmundsson, verið settur
vígslubiskup.
62 hafa rétt á að
kjósa Hólabiskup
BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam-
þykkti á þriðjudag tillögu heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðuneytis um
að heilsugæslustöðvar í Reykjavík,
Kópavogi og Seltjarnarnesi verði
sameinaðar.
Heilbrigðisráðuneytið óskaði eftir
því í júní 2000 að öll sveitarfélög á
höfuðborgarsvæðinu lýstu afstöðu
sinni til sameiningar heilsugæslu-
stöðvanna. Jákvæð svör bárust frá
Seltjarnarnesi og Kópavogi. Einnig
Bessastaðahreppi og Kjósarhreppi
en heilsugæslu í hreppunum er sinnt
frá Hafnarfirði og Mosfellsbæ, sem
voru neikvæð í garð sameiningar.
Samkvæmt lögum um heilbrigðis-
þjónustu greiða sveitarfélög 15% af
kostnaði við byggingu og búnað
heilsugæslustöðva. Í áliti borgarlög-
manns um sameininguna segir að
gera verði ráð fyrir að ráðuneytið
gangi út frá því að kostnaðarhlut-
deild sveitarfélaga falli niður verði
heilsugæslan í þessum þremur sveit-
arfélögum sameinuð, enda munu
mörk heilsugæslusvæða taka mið af
landfræðilegum aðstæðum en ekki
mörkum sveitarfélaga.
Fallist á sameiningu
heilsugæslustöðva
KJÖRSKRÁ vegna fyrirhugaðra
sveitarstjórnarkosninga í Borgar-
byggð 7. desember hefur verið lögð
fram, en kjörskrá skal liggja frammi
í að minnsta kosti tíu daga fyrir kjör-
dag. Kjósendur í Borgarbyggð geta
gert athugasemdir við kjörskrána
fram á kjördag og á að beina slíkum
erindum til bæjarstjórnar, en bæj-
arskrifstofan í Borgarbyggð veitir
nánari upplýsingar um kjörskrána.
Kjörskrá
lögð fram í
Borgarbyggð
♦ ♦ ♦
OD
DI
H
F
J
09
45
74.900 kr. stgr.
Kæli- og frystiskápur
KG 31V421
Nýr glæsilegur skápur.
190 l kælir, 90 l frystir.
H x b x d = 175 x 60 x 64 sm.
79.900 kr. stgr.
Eldavél
HL 54024
Ný stórglæsileg eldavél.
Keramíkhelluborð, fjórar hellur,
fjölvirkur ofn, létthreinsun,
sökkhnappar, stangarhandfang.
Gæðagripur sem sómi er að.
69.900 kr. stgr.
Bakstursofn
HB 28055
Fjölvirkur bakstursofn með létthreinsikerfi.
Sannkallaður gæðaofn frá Siemens.
12.900 kr. stgr.
Þráðlaus sími
Gigaset 4010 Classic
Númerabirtir. DECT/GAP-staðall.
Einstök talgæði. Siemens færir þér draumasímann.
66.900 kr. stgr.
Helluborð
ET 72554
Keramíkhelluborð með snertihnöppum.
Stílhreinn gæðagripur frá Siemens.
56.900 kr. stgr.
Þvottavél
WXB 1060BY
Frábær rafeindastýrð þvottavél
á kostakjörum. 1000 sn./mín.
9.900 kr. stgr.
Ryksuga
VS 51B22
Kraftmikil 1400 W ryksuga,
létt og lipur, stiglaus sogkraftsstilling.
59.900 kr. stgr.
Uppþvottavél
SE 34234
Einstaklega hljóðlát
og sparneytin.
Fjögur þvottakerfi,
þrjú hitastig.
Umboðsmenn um land allt.
Jólatilboð!