Morgunblaðið - 28.11.2002, Blaðsíða 18
ERLENT
18 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VOPNAEFTIRLITSMENN Sam-
einuðu þjóðanna skoðuðu í gær tvo
staði í Írak þar sem talið var hugs-
anlegt að geymd væru gereyðingar-
vopn. Þar með hófst að nýju í Írak
formlegt eftirlit eftir fjögurra ára hlé
og fóru tveir hópar eftirlitsmanna til
að skoða verksmiðjur í nágrenni
Bagdad. Sagði talsmaður vopnaeftir-
litsnefndarinnar (UNMOVIC), Hiro
Ueki, að hóparnir hefðu lokið þessum
verkefnum og að ekkert hefði komið
upp á.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, sagði í París að svo virtist sem
vopnaeftirlitið hefði farið vel af stað
og hann ítrekaði að stríð væri ekki
óumflýjanlegt í Írak, ef Saddam
Hussein Íraksforseti héldi áfram að
sýna samstarfsvilja.
Haitham Mahmoud, framkvæmda-
stjóri Al-Tahadi-herstöðvarinnar í
Bagdad, sagði komu vopnaeftirlits-
mannanna þangað hafa komið sér í
opna skjöldu. Þeir hefðu hins vegar
fengið þá aðstoð, sem farið var fram á.
„Við sýndum þeim öll herbergi,
vinnustöðvar og rannsóknarsvæði,“
sagði hann við fjölmiðla. „Þegar þeir
kvöddu okkur sögðu þeir okkur að
ekki væri um nein vandamál að
ræða.“
Það voru erindrekar Alþjóðakjarn-
orkumálastofnunarinnar sem ákváðu
að fyrsti viðkomustaður vopnaeftir-
litsmanna SÞ skyldi vera Al-Tahadi-
stöðin. Byggingar hernaðarmann-
virkisins voru áður notaðar sem
kvennafangelsi.
Annað lið vopnaeftirlitsmanna
heimsótti grafítverksmiðju í Al-Am-
iriya, um 70 km vestur af Bagdad. Þar
höfðu vopnaeftirlitsmenn einmitt við-
haft eftirlit á árunum 1991–1998, áður
en þeir hrökkluðust á brott frá Írak.
Fjölmiðlafólk í tugatali
Vopnaeftirlitsmennirnir yfirgáfu
hótel sitt í Bagdad í gærmorgun á
bifreiðum sem merktar voru SÞ í bak
og fyrir. Um var að ræða sex sérfræð-
inga Alþjóðakjarnorkumálastofn-
unarinnar og ellefu liðsmenn
UNMOVIC, en þeim fylgdu fulltrúar
Íraksstjórnar. Alþjóðlegir blaða- og
fréttamenn í tugatali eltu síðan
vopnaeftirlitsmennina á eigin öku-
tækjum.
Olli þessi hersing Land Cruiser-
bíla umferðaröngþveiti í miðborg
Bagdad, að sögn fréttamanns BBC.
Vopnaeftirlitsmennirnir hafa með-
ferðis hátæknibúnað, sem á að gera
þeim auðveldara fyrir að sinna verk-
efni sínu, þ.e. greina hvort gereyðing-
arvopn er að finna í Írak. Þeir eiga
skv. ályktun öryggisráðs SÞ að hafa
óheftan aðgang að þeim svæðum í
Írak, sem þeir kjósa að skoða, auk
þess sem þeir mega yfirheyra helstu
vísindamenn Íraka án afskipta stjórn-
valda. Niðurstaða vopnaeftirlitsins
gæti ráðið úrslitum um það hvort
Bandaríkin láta verða af hótunum sín-
um um árás á Írak.
AP
Vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna í bílum sínum við upphaf eftirlitsverka þeirra í Bagdad í gær.
Vopnaeftirlit SÞ fer
vel af stað í Írak
Bagdad. AFP.
BANDARÍSKIR íhaldsmenn fylgj-
ast grannt með Svíanum Hans Blix,
yfirmanni vopnaeftirlits Samein-
uðu þjóðanna, en þeir telja hættu á
því að hann taki ekki nógu hart á
Írökum. Margir á hægri væng
bandarískra stjórnvalda segja að
Blix hafi látið Íraka komast upp
með allt of mikið múður þegar
hann var yfirmaður Alþjóðakjarn-
orkumálastofnunarinnar á árunum
1981 til 1997.
Tónninn var sleginn í grein sem
Gary Milhollin, yfirmaður sjálf-
stæðrar stofnunar um kjarn-
orkuvopnaeftirlit, skrifaði nýverið í
Wall Street Journal undir fyr-
irsögninni „Hans hinn ofur-
varkári“.
„Árið 1990, sama ár og Írakar
réðust inn í Kúveit, sögðu eftirlits-
menn Blix að samvinna Íraka væri
til fyrirmyndar,“ sagði Milhollin.
„En allan þann tíma var Saddam að
undirbúa smíði kjarnorkusprengju
fyrir framan nefið á þeim.“
Milhollin gaf í skyn að Blix hefði
vitað að Írakar réðu yfir nægilega
miklu magni af auðguðu úrani til að
réttlæta eftirlitsferðir á þriggja
vikna fresti en samt hafi eftirlits-
menn aðeins verið sendir til Íraks
tvisvar á ári. Hann krafðist þess í
greininni að Blix legði til atlögu við
Saddam með þau sönnunargögn
sem Vesturlönd ráða yfir um ger-
eyðingarvopn Íraka.
„Ella mun hr. Blix fá þann heiður
að hafa ekki getað fundið írösku
sprengjuna fyrir Persaflóastríðið,
finna hana ekki á eftir og finna
hana ekki enn.“
Butler gagnrýnir Blix
Milhollins segir ríkisstjórn Bills
Clinton hafa verið andvíga skipun
Blix, sem er fyrrum utanrík-
isráðherra Svíþjóðar, í embætti yf-
irmanns vopnaeftirlits SÞ. En
Frakkar og Rússar höfnuðu Rolf
Ekeus, öðrum Svía, sem Banda-
ríkjamenn vildu fá í starfið. Þótti
þeim Ekeus, sem hafði verið yf-
irmaður vopnaeftirlitsnefndar SÞ á
árunum 1991–1997, of frekur í
framgöngu.
Steven Dolley, yfirmaður ann-
arrar sjálfstæðrar stofnunar um
kjarnorkuvopnaeftirlit, lýsti einnig
tortryggni í garð Blix í viðtali við
Fox-sjónvarpsstöðina. Sagði hann
að Alþjóðakjarnorkumálastofnunin
hefði tekið á Írökum með silki-
hönskum þegar Blix var þar yf-
irmaður og ekki reynt að sann-
reyna undanbrögð Íraka.
Ástralinn Richard Butler, sem
eitt sinn fór fyrir vopnaeftirliti SÞ í
Írak, gagnrýndi Blix einnig í sam-
tali við CNN-sjónvarpsstöðina. Seg-
ir hann að Blix hafi oft látið sem
hann sæi ekki ýmsa hluti sem rann-
saka hefði þurft nánar, bæði í Írak
og Norður-Kóreu. „Og margir ótt-
ast að hann muni haga sér með
sama hætti við núverandi aðstæður.
Ég trúi því ekki en ég vil að þessum
hlutum sé haldið til haga,“ sagði
Butler.
Bandarískir
hægrimenn
tortryggja Blix
Washington. AFP.
Reuters
Hans Blix kemur til fundar með
fulltrúum í öryggisráði SÞ í New
York sl. mánudag.
ANDLEGA vanheill maður,
sem kvaðst vera félagi í al-
Qaeda-hryðjuverkasamtökun-
um, rændi í gær ítalskri far-
þegaþotu með meira en 60
manns um borð. Var hún á leið
frá Bologna á Ítalíu til Parísar
en lenti þess í stað í Lyon. Þar
var maðurinn yfirbugaður og
handtekinn.
Flugræninginn, Stefano Sav-
orani, kom fram í flugstjórnar-
klefann með eitthvað, sem virt-
ist vera kassi, og sagði það
sprengju, sem hann gæti
sprengt með fjarstýringu.
Lýsti hann einnig yfir, að hann
væri félagi í al-Qaeda en ljóst
var frá upphafi, að hann var
ekki alveg með réttu ráði. Sav-
orani er 29 ára, fyrrverandi lög-
reglumaður á Ítalíu, og sagt er,
að hann hafi reynt með nánast
sömu aðferð að ræna flugvél á
leiðinni frá Marseille til Parísar
árið 1999 og franskri hraðlest
árið áður.
Talsmaður lögreglunnar í
Lyon sagði, að eftir lendingu
flugvélarinnar þar hefði Savor-
ani bara gengið út úr henni með
öðrum farþegum og strax verið
handtekinn.
Flugræn-
ingi hand-
tekinn
Lyon. AFP. NÍGERÍSKA blaðakonan Isioma
Daniel er sögð vera farin úr landi eft-
ir að þess hafði verið krafist að hún
yrði myrt fyrir að móðga Múhameð
spámann. Samstarfsfólk hennar á
dagblaðinu ThisDay segir hana
komna til Bandaríkjanna, að því er
Reuters-fréttastofan greinir frá.
Á þriðjudaginn gáfu yfirvöld í hér-
aðinu Zamfara í Norður-Nígeríu út
trúarlega tilskipun þess efnis að
múslimum bæri að myrða Daniel
vegna þess að hún hefði móðgað spá-
manninn í grein sem hún skrifaði og
varð kveikjan að mannskæðum upp-
þotum í borginni Kaduna.
Umrædda grein skrifaði Daniel
vegna mótmæla múslima við því að
fegurðarsamkeppnin Ungrú heimur
færi fram í Nígeríu. Sagði Daniel í
greininni, sem birtist 16. nóvember,
að Múhameð spámaður hefði ekki
verið á móti keppninni og gæti jafn-
vel hafa verið meira en til í að kvæn-
ast einhverjum þátttakendanna.
Þetta gerði marga múslima æva-
reiða og báru þeir eld að ritstjórn-
arskrifstofum ThisDay í Kaduna og
síðan að kirkjum og hótelum. Um
220 manns dóu í uppþotunum.
Leiðtogum múslima ber reyndar
ekki saman um hvort tilskipun yfir-
valda í Zamfara-héraði sé fullgild,
því að slíkar tilskipanir eru yfirleitt
gefnar út af íslömskum klerkum.
Blaðakonan
sögð flúin
úr landi
TALSMAÐUR kanadíska forsætisráðherrans, Jeans
Chretiens, hefur sagt starfi sínu lausu en hún komst í
fréttirnar í síðustu viku þegar greint var frá því að hún
hefði kallað George W. Bush Bandaríkjaforseta „hálf-
vita“. „Mér sýnist alveg ljóst að það uppþot sem orðið
hefur mun gera mér ókleift að sinna starfi mínu,“ sagði
talsmaðurinn, Francoise Ducros, í uppsagnarbréfi sínu.
Ducros lét ummælin umdeildu falla í samtali við út-
varpsfréttamann á leiðtogafundi NATO í Prag í síðustu
viku. Hún mun hafa verið að ræða tilraunir Bush til að
setja málefni Íraks í forgrunn á dagskrá NATO-
fundarins. „En sá hálfviti,“ mun Ducros hafa sagt við
fréttamanninn en annar blaðamaður, sem heyrði ummæl-
in, hafði þau síðan eftir Ducros.
Ekki var í upphafi greint frá því hver embættismanna
kanadíska forsætisráðherrans hefði látið ummælin falla
en stjórnarandstaðan í Kanada ljóstraði því hins vegar
upp og krafðist þess að Ducros yrði látin víkja. Sló afsök-
unarbeiðni Ducros ekkert á það uppþot, sem varð í Kan-
ada, og á mánudag vöktu nokkrir stjórnarandstæðingar
athygli á því að ummælin væru rakin í dagblaði í Írak
sem dæmi um þá andstöðu sem stefna Bush mætti á
Vesturlöndum.
Chretien hafnaði upphaflega boði Ducros um afsögn.
Reyndi hann einnig að gera lítið úr atvikinu. Sagði Chret-
ien ummælin óheppileg en að þeir Bush væru vinir og að
forseti Bandaríkjanna „væri bara alls enginn hálfviti“.
Hann ákvað hins vegar nú að samþykkja uppsögnina.
Talsmaður
Chretiens segir
starfi sínu lausu
Kallaði Bush Bandaríkja-
forseta „hálfvita“
Ottawa, Toronto. AP, AFP.
AP
Jean Chretien, forsætisráðherra Kanada, bar þau um-
mæli til baka að George W. Bush væri „hálfviti“.