Morgunblaðið - 28.11.2002, Side 42
LISTIR
42 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
JÓHANN Páll Valdi-
marsson útgáfustjóri
JPV-útgáfu hefur gert
athugasemd við fram-
kvæmd bóksölukann-
anna sem Félagsvís-
indastofnun stendur að
fyrir Félag íslenskra
bókaútgefenda og
Morgunblaðið. Athuga-
semdin byggist á því að í
lista yfir bóksölu dag-
ana 19.–25. nóvember
sem birtist í Morgun-
blaðinu í dag sé ekki
tekin með bóksala í
verslunum Bónuss á því
tímabili. Stjórn félags
íslenskra bókaútgef-
enda ákvað á fundi sínum fimmtudag-
inn 21. nóvember að bóksala í stór-
mörkuðum yrði ekki tekin inn í
kannanirnar fyrr en þeir byðu uppá
flestar þær bækur sem væru á jóla-
bókamarkaði. „Rök þeirra eru þau að
Bónus sé ekki enn búin að taka inn
nægjanlegt magn titla,“ segir Jóhann
Páll Valdimarsson.
Sigurður Svavarsson
formaður stjórnar Fé-
lags íslenskra bókaút-
gefanda sagði í samtali
við Morgunblaðið að
sami háttur væri hafður
á nú og undanfarin ár
með því að bóksala í
stórmörkuðum á borð
við Hagkaup og Bónus
væri tekin inn í kann-
anirnar jafnóðum og
þessar verslanir væru
komnar með það úrval
bóka sem til stæði.
„Hagkaup var tilbúið
viku fyrr en Bónus og
því er bóksala í Hag-
kaupsverslununum tek-
in með í könnun síðustu viku. Bónus
verður síðan með í könnun þessarar
viku þar sem úrvalið þar var fyrst
orðið ríkulegt í byrjun vikunnar.“
„Staðreyndin er sú að forlög Edd-
unnar voru mun seinni með bækur
sínar á markað en JPV en þeir voru
samt með ýmsar bækur í sölu í Bónus
í síðustu viku en ekki nægjanlega
margar að þeirra mati til að Bónus
mætti taka þátt í listanum,“ segir Jó-
hann Páll Valdimarsson.
„Undir þessu gat ég ekki setið enda
gefur metsölulistinn engan veginn
rétta mynd af bóksölunni án Bónuss.
Hlutur þeirra í bóksölunni undanfarin
ár hefur verið gífurlega stór og bæk-
ur JPV hafa selst í stórum upplögum í
Bónus í síðustu viku og ljóst að þessi
ákvörðun skaðar okkar hagsmuni,“
segir Jóhann Páll Valdimarsson.
„Okkur þykir sem sala á fátæklegu
úrvali sem boðið er í stórmörkuðum
áður en þeir hefja bóksölu sína fyrir
alvöru geri lítið annað en skekkja
myndina af raunverulegri eftirspurn
og því höfum við farið þessa leið að
mæla ekki sölu í stórmörkuðum fyrr
en bóksalan þar er komin á fullt
skrið,“ segir Sigurður Svavarsson. Á
aukafundi stjórnar Félags íslenskra
bókaútgefanda sem haldinn var í gær
var ákvörðunin frá fundinum þann 21.
nóvember ítrekuð með átta atkvæð-
um gegn einu mótatkvæði. Í stjórn fé-
lagsins sitja 12 fulltrúar bókaútgef-
anda.
Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi
Gerir athugasemd við
bóksölukannanir
Jóhann Páll
Valdimarsson
ÞORSTEINN Guðmundsson hef-
ur á þeim rúmu ellefu árum sem liðin
eru síðan hann útskrifaðist úr Leik-
listarskóla Íslands afkastað miklu
sem rithöfundur, leikskáld, leikari og
leikstjóri. Í upphafi ferilsins lék hann
í farsa í Borgarleikhúsinu og barna-
leikriti í Þjóðleikhúsinu auk þess sem
hann tók þátt í sýningu And-leikhúss-
ins á Danna og djúpsævinu bláa, hann
lék í einleik sem byggður var á smá-
sögu eftir Tsjékhov 1994 á veitinga-
húsinu Ara í Ögri og í tveimur gam-
anleikritum sem voru færð upp í
Loftkastalanum 1996 og 2000 – en
hann er án efa þekktastur fyrir fram-
lag sitt og leik í Fóstbræðraþáttunum
sem sjónvarpað var af Stöð tvö nokk-
ur síðustu ár. Hann hefur nokkrum
sinnum leikstýrt, oftast hjá Halaleik-
hópnum, en fyrir þann hóp hefur
hann einnig samið leikrit. Á þessu ári
kom hann fram með félaga sínum,
Sigurjóni Kjartanssyni úr Fóst-
bræðrum, undir nafninu El Prumpos
Pissos í uppistandi auk þess sem
hann hefur samið efni fyrir útvarps-
þátt Sigurjóns.
Fóstbræður hafa sem hópur hlotið
Edduverðlaunin en Þorsteinn fékk
tilnefningu til nýafhentra Edduverð-
launa sem karlleikari ársins í auka-
hlutverki fyrir frábæra túlkun sína á
Arnari í kvikmyndinni Manni eins og
ég. Hann gaf út safn samtengdra
smásagna, Klór, árið 2000 og nú er
nýútkomið eftir hann smásagnasafnið
Hundabókin.
Handlagni píparinn er í leikritinu
titill á klámsögu sem er lesin á síma-
þjónustunni Lostalínunni. Símon
eyðir stórum hluta tíma síns og stórfé
í að hringja í þjónustusíma. Dag einn
er símsvarinn óvirkur og símakláms-
daman Valgerður, sem kallar sig
Línu, les beint upp úr handriti sög-
unnar. Þegar hún spyr hvort einhver
sé á línunni spinnast samræður út frá
efninu og fer vel á með talsímavinum
og þau fara að ræða lífið og tilveruna.
Málin flækjast þegar kemur í ljós að
Birna, kona Símons, hlerar samtal
þeirra.
Þessar aðstæður eru mjög heppi-
leg umgjörð um hugleiðingar um
hvernig hægt er að nota ímyndunar-
afl sitt til að byggja upp nýjan veru-
leika og aðra sjálfsímynd með tungu-
málinu og fá aðra til að trúa á hvort
tveggja og jafnvel greiða stórfé fyrir
aðgang að öllu saman. Grínið byggist
á hve aðstæðurnar eru spaugilegar
og hvernig hversdagsleikinn stangast
sífellt á við heim ímyndunarinnar.
Persónurnar eru nefnilega sára-
hversdagslegar og öll þekkjum við
þessar manngerðir úr þjóðfélaginu í
kringum okkur, þótt okkur gruni ef-
laust ekki að þau taki sér slíkt fyrir
hendur. Hljóðvinnslan er alltaf trú-
verðug, áheyrandinn hefur á tilfinn-
ingunni að persónurnar ræði saman í
síma án þess að hljóðgæðum sé fórn-
að á nokkurn hátt.
Eins og undirritaður hefur áður
drepið á í umsögn um annað útvarps-
leikrit Þorsteins skiptir meginmáli til
að koma gamansemi hans til skila að
leika hlutverkin blátt áfram. Allt
byggist á að áheyrendur trúi á þær
spaugilegu aðstæður sem skapast
þegar nauðavenjulegar hversdags-
manneskjur lenda í einhverju óvenju-
legu. Hér hefur Hallmar Sigurðsson
skilið þetta rétt og leikur þessara
þriggja frábæru gamanleikara,
Helgu Brögu Jónsdóttur, Eddu
Björgvinsdóttur og Kjartans Guð-
jónssonar, er umfram allt hófstilltur.
Helga og Kjartan koma vel til skila
vandræðaganginum í persónum sín-
um en Edda Björgvinsdóttir gegnir
stærra hlutverki – hún leikur eigin-
konuna sem gerir sér grein fyrir að
maðurinn hennar er orðinn afhuga
henni kynferðislega og orðinn háður
klámlínunum. Hér gildir það að leika
með sem minnstum tilþrifum hefur
mest áhrif. Edda sýnir á sér sjaldséða
hlið og skapar þannig kjölfestuna í
flutningi verksins enda skín vanmeta-
kennd persónunnar alltaf í gegn.
Handlagni píparinn er mun betra
verk en útvarpsleikrit Þorsteins,
Hugleiðingar dauðvona offitusjúk-
lings, sem frumflutt var fyrir rúmu
ári, enda tekst honum best upp þegar
hann snýr upp á hversdagsleikann og
sýnir áhorfendum eða áheyrendum
sínum nýjan flöt á honum. Viðbrögð
meðaljónanna þegar óvenjulegar að-
stæður setja líf þeirra úr skorðum eru
bráðfyndin en um leið flettir Þor-
steinn ofan af ýmsum þjóðfélagsfyr-
irbrigðum og sýnir þau frá óvenju-
legum sjónarhornum.
Lostalína
LEIKLIST
Útvarpsleikhúsið
Höfundur: Þorsteinn Guðmundsson. Leik-
stjóri: Hallmar Sigurðsson. Hljóðvinnsla:
Georg Magnússon. Leikarar: Edda Björg-
vinsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir og
Kjartan Guðjónsson. Var áður á dagskrá
1999. Endurflutt sunnudag 24. nóvem-
ber; endurtekið að kvöldi fimmtudags
28. nóvember.
HANDLAGNI PÍPARINN
Sveinn Haraldsson
Veiðiklær hefur að
geyma það helsta
sem Ísland hefur
upp á að bjóða
sem veiðiland,
matreiðslu á villi-
bráð og almennur
fróðleikur er veittur
um þær tegundir
sem veiddar eru.
Þær eru önd, gæs,
rjúpa, hreindýr, svartfugl, skarfur og
lundi.
Farið er á veiðar með íslenskum
veiðimönnum. Íslenskir mat-
reiðslumenn sýna matreiðslu á bráð-
inni og koma með hugmyndir að mat-
reiðslu og framsetningu. Í lok
spólunnar fylgja uppskriftir að níu villi-
bráðarréttum ásamt ráðleggingum um
val á vínum með þeim. Þá er fróðleikur
um lifnaðarhætti umræddra tegunda.
Útgefandi er Landmark kvikmynda-
gerð. Spólan Veiðiklær er tæpir tveir
tímar að lengd.
Myndband
♦ ♦ ♦
Aðventutónleikar í Neskirkju
Forsala á aðventutónleika sem Ís-
landsdeild Amnesty International
efnir til í Neskirkju 10. desember, á
alþjóðlegum mannréttindadeginum
er hafin. Aðgöngumiðar fást í versl-
un Skífunnar á Laugavegi og á skrif-
stofu Amnesty International í Hafn-
arstræti 15, í Reykjavík.
Á tónleikunum koma fram margir
af kunnustu tónlistarmönnum lands-
ins, m.a. Björn Thoroddsen gítar-
leikari, Egill Ólafsson söngvari, Guð-
rún Birgisdóttir flautuleikari, Guðný
Guðmundsdóttir fiðluleikari, Peter
Maté píanóleikari, Signý Sæmunds-
dóttir söngkona, Þóra Fríða Sæ-
mundsdóttir píanóleikari og Þor-
steinn Gauti Sigurðsson píanóleikari.
Ágóðinn rennur til mannréttinda-
starfs Íslandsdeildar Amnesty Int-
ernational.
Stórtónleikar í Hallgrímskirkju
Þá er hafin forsala í Skífunni á
jólatónleika sem haldnir verða í Hall-
grímskirkju 12. desember kl. 20.
Fram koma um 200 tónlistarmenn,
m.a. 40 hljóðfæraleikarar úr Sinfón-
íuhljómsveit Íslands, félagar úr
Karlakórnum Fóstbræðrum, Vox
femine og Gospelkór Fíladelfíu auk
100 barna úr Skólakór Kársness og
söngkonurnar Védís Hervör, Mar-
grét Eir, Guðrún Árný, Valgerður
Guðnadóttir og Ragga Gísla.
Forsala á
tónleika
= %#! 9%> ! 9
%?@ %7'A !
% 9B 9 %AC# !
%D
%
%= < %7'A !
%E5 %F !
%; B #! %AC# !
" %E %F #
$
%5? 9%AC# !
%
&A# %;
' $
%E # 95%AC# !
G !H*)214678%%3)% 2'
% 9B 9 %AC# !
"(
% 9B 9 %AC# !
) *
% 9B 9 %AC# !
+ ,
%7 F, %AC# !
-
$! %G" D!95% -
%IB%;
!
./ . %# 9 %F + 0
/ . %A9E95%7'A !
%@499 %AC# !
1%FJ # " JK%F 2
% %F *)21('4678%%('.('1(946-16)+16(.:-'
" %E %F ' $
%E # 95%AC# !
345 6%G L %7'A !
% # E 95%F ). %;< 95 95 9%F " "
. /
%E ;< %;
7$ 8
%4 9 9%7'A !
+
(
%
<%M ! $
%9 %;
93
" .
%FN E %M ()211 21+46,(1%.:-'
%D
%
#
$
%5? 9%AC# !
% 6 .
% A995%7'A !
:
$7 $
.
7%G< B 95,!,% %$,
%=" ;J L%F #
/%F8 %G99O !
%
;<
=
. %
5 % 3
+. #
>??@%%# 5P 9
+
., $
AAA% ;"' % "5!Q 3 B
;<
=
. %
5 % 2 // /
%75 E %F .
$ ;
Q 9! "5 +-, 5,+00+,R !<F "B
Q "5 ! 9 Q"5C! ,G 9 $&
"& 9! $ " "& : +<6-'4621%-'+11+16('
%?@ %7'A !
%= < %7'A !
%E5 %F !
%; B #! %AC# !
%
%A# %;
:: C
/ 6%G % "5!Q +
%G 9E 9 %F -
%7JK 'J%7'A !
D
7*/ %5
95%F 1 $
-%%
<
A *)214678%%)=>0
;/ %# %#
! +
*
%P# % + E %B "#995%F 4 %75 99 %7'A !
"
% ! #%F F
%;9D %4
%GHI?GHHJ%G F E 9 %F %8
%%F
+
;5" F ; & #
F599#" ;5 9 # "
G< 9 ' ' CG< 9 &#! !
E!!
A #
,
+
' C;5" ! !
;5 75 5 P!
' C;5%#! & < ' CG< 9 E <
G
A #