Morgunblaðið - 28.11.2002, Side 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 59
Guðfræðistofnun Háskóla Ís-
lands heldur málþing undir yf-
irskriftinni: Túlkun og minni-
hlutahópar, laugardaginn 30.
nóvember í Hátíðasal Háskóla Ís-
lands kl. 10–15 og er öllum opið.
Fundarstjóri er Einar Sigurbjörns-
son prófessor. Erindi halda: Jón
Magnús Ásgeirsson prófessor,
Kristín Loftsdóttir lektor, Gunn-
laugur A. Jónsson prófessor, Arn-
fríður Guðmundsdóttir lektor, Hjalti
Hugason prófessor og Kristín Þór-
unn Tómasdóttir héraðsprestur.
Einar Sigurbjörnsson veitir allar
nánari upplýsingar eisig@hi.is
Jólasýning Árbæjarsafn verður op-
in sunnudagana 1. og 8. desember kl.
13–17. Í Árbænum er skorið út
laufabrauð og steikt og gestum boð-
ið að bragða á. Kerti verða búin til í
skemmunni, bæði úr tólg og vaxi. Á
baðstofulofti verður spunnið, prjón-
að og saumaðir roðskór og krakkar
vefja jólatré lyngi og jólasögur verða
lesnar. Í Hábæ verður hangikjötið
komið í pottinn og leikfangasýningin
í Kornhúsi hefur fengið jólasvip, þar
verður einnig sýnt jólaföndur. Í
Efstabæ er jólaskrautið komið úr
kössunum, og skatan komin í pott-
inn. Í Listmunahorninu verður sýn-
ing á jólaskrauti og í salnum í húsinu
Lækjargötu 4 verða sýnd jólatré af
ýmsum toga ásamt jólaskrauti. Dill-
onshús býður upp á veitingar, heitt
súkkulaði og jólalegt meðlæti.
Dagskráin hefst kl. 14 verður messa
í safnkirkjunni og kl. 15 hefst jóla-
trésskemmtun. Sunnudaginn 1. des-
ember syngja skólabörn úr Ártúns-
skóla jólalög. Síðan verður dansað í
kringum jólatréð. Jólasveinar verða
á vappi um safnsvæðið – kl. 14–16
hrekkjóttir – og taka þeir þátt í
dansinum kringum jólatréð.
Dalaþing hið fyrra, íbúaþing að
Laugum í Sælingsdal, verður haldið
laugardaginn 30. nóvember kl. 11.
Starfað verður í þremur hópum auk
þess sem unglingar munu starfa sér-
staklega í hópi og fjalla um þau mál
sem þeim stendur hugur til. Einnig
verður fjallað um atvinnumál, ferða-,
samgöngu- og menningarmál, fé-
lagsmál, æskulýðs- og íþróttamál og
málefni aldraðra. Að loknu þingi
verður unnið úr tillögunum og nið-
urstöðurnar kynntar íbúunum.
Dalaþing hið síðara verður haldið í
janúar næstkomandi. Niðurstöður
þinganna verða notaðar í þeirri
stefnumótunarvinnu sem er að hefj-
ast á vegum sveitarfélagsins. Íbúar
nágrannasveitarfélaganna eru einn-
ig velkomnir.
Í DAG
Kynning hjá Úrvali-Útsýn á 16. daga
ævintýraferð til Kenýa og Tansaníu
verður í dag, fimmtudaginn 28 nóv-
ember kl. 20, í sal aðalskrifstofu Úr-
vals-Útsýnar í Lágmúla 4. Þar verð-
ur m.a. gengið á hæsta fjall Afríku,
Kilimanjaró. Ferðin sem hér um
ræðir verður farinn 25. febrúar 2003
og lýkur 12. mars 2003. Ferðin byrj-
ar á sjö daga fjallgöngu á Kilimanj-
aró í Tansaníu hæsta fjalli Afríku síð-
an er dýralíf i Tsavo-þjóðgarðinum í
Kenýa skoðað. Þaðan liggur leiðin til
Austurstrandar Afríku. Allir vel-
komnir. Nánari upplýsingar um ferð-
ina er að finna á vefslóð Úrvals-
Útsýnar www.urvalutsyn.is undir
sérferðum eða á www.afrika.is.
BÓKAÚTSALA Björns Jóns-
sonar á Hjarðarhaga 26 heldur
áfram um óákveðinn tíma. Til
sölu er mikið úrval bóka sem
Björn hefur safnað á liðnum ár-
um. Opið er kl. 14–16.30 virka
daga.
Bókaútsala
Björns
Jónssonar
Bæði fötluð og
ófötluð börn
Í frétt í Morgunblaðinu sunnudag-
inn 24. nóvember var rangt farið með
í frétt frá Svölunum að leikskólinn
Múlaborg væri með sérdeild fyrir
fötluð börn. Rétt er að Leikskólinn
Múlaborg starfar eftir heiltækri
skólastefnu, sem er hugmyndafræði
um framkvæmd og skipulag kennslu
í skólastarfi. Í leikskólanum eru
bæði fötluð og ófötluð börn.
Ljóðmyndaverk
Í viðtali við Eyvind P. Eiríksson
og syni hans Eyjólf og Erp, sem birt-
ist í Morgunblaðinu föstudaginn 22.
nóvember síðastliðinn, urðu þau mis-
tök að skrifað var ljósmyndasýning í
staðinn fyrir ljóðmyndasýning. Hið
rétta er að Eyvindur er með ljóð-
myndaverk á sýningu í Genúa um
þessar mundir og verður með ljóð-
myndaverk á sýningu hér á landi í
janúar næstkomandi. Hlutaðeigandi
eru beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.
LEIÐRÉTT
EIMSKIPAFÉLAG Íslands hf. hef-
ur sent frá sér eftirfarandi athuga-
samd:
„Vegna misvísandi frétta sem
birst hafa í fjölmiðlum um úrskurð
áfrýjunarnefndar samkeppnismála í
máli Eimskipafélagsins vegna kæru
Samskipa vill félagið árétta að í úr-
skurðinum felist ekki að Samskip
eigi ótakmarkaðan rétt til aðgangs
að öllum gögnum málsins. Þvert á
móti er ótvírætt að aðgangur Sam-
skipa nær ekki til gagna sem hafa að
geyma viðkvæmar viðskiptalegar
upplýsingar eða aðrar upplýsingar
sem varða ekki málið.
Í úrskurði áfryjunarnefndar sam-
keppnismála er aðeins staðfest aðild
Samskipa að málinu og hyggst Eim-
skipafélagið leita endurskoðunar á
þeirri niðurstöðu.“
Athugasemd
SVÖLURNAR, félag fyrrverandi
og núverandi flugfreyja, hefur
styrkt Foreldrasamtökin vímulaus
æska með tölvu og ljósritunarvél.
Svölurnar fjármagna styrki sína
með sölu jólakorta og rennur allur
ágóði óskiptur til líknarmála.
Í stjórn félagsins eru Þórdís
Jónsdóttir, formaður, Erla Hafrún
Guðjónsdóttir, varaformaður, og
Guðlaug Jónsdóttir, meðstjórnandi.
Fjarstaddar voru Birna Bjarnadótt-
ir, ritari, og Inga Eiríksdóttir,
gjaldkeri.
Morgunblaðið/Kristinn
Frá afhendingu gjafarinnar frá Svölunum. Erla Wíum, Foreldrahúsi, og Þórdís Jónsdóttir takast í hendur.
Svölurnar
styrkja
LÁRA Björnsdóttir félagsmála-
stjóri kynnti tilnefningar og val á
heimaþjónustustarfsmanni ársins
2002 í lok málþings um félagslega
heimaþjónustu sem haldið var á
Grand hótel mánudaginn 18. nóv-
ember sl. Í ár bárust 14 tilnefn-
ingar og var úr vöndu að ráða fyrir
dómnefndina sem gat ekki gert
upp á milli tveggja tilnefninga og
voru það því tveir starfsmenn sem
deildu með sér titlinum í ár.
Þær sem deildu verðlaunafénu
og heiðrinum voru Kristíanna Frið-
riksdóttir sem starfað hefur frá
1970 eða í 32 ár og Sólveig Jóns-
dóttir sem starfað hefur frá 1975.
Báðar eru þær starfsmenn í Félags-
og þjónustumiðstöðinni Árskógum
í Breiðholti. Hlutu þær 75 þúsund
króna peningaverðlaun hvor. Auk
langs og farsæls starfsferils þóttu
þær Kristíanna og Sólveig hafa
skarað fram úr vegna þjón-
ustulundar og sveigjanleika. Þær
hafa einnig hlotið viðurkenningu
frá notendum sínum vegna um-
hyggju og hlýju sem þær leggja í
störf sín og sýnt mannvirðingu í
orði og verki sem eru einkunn-
arorð Félagsþjónustunnar, segir í
fréttatilkynningu.
Þeir tólf aðrir sem tilnefndir
voru höfðu starfað frá 1 til 12 árum
og þar af var einn karlmaður.
Fengu þeir afhenta ljóðabókina
Perlur sem er ljóð íslenskra kvenna
í samantekt Silju Aðalsteinsdóttur í
viðurkenningarskyni.
Í dómnefndinni voru: Þórunn
Sveinbjörnsdóttir frá Eflingu,
Hrefna Haraldsdóttir trún-
aðarmaður fatlaðra og starfsmaður
Þroskahjálpar, Bryndís Steinþórs-
dóttir frá Félagi eldri borgara og
þær Sigrún Karlsdóttir og Lára
Björnsdóttir frá Félagsþjónust-
unni.
Starfsmenn
heimaþjón-
ustu verð-
launaðir
Sólveig Jónsdóttir, Lára Björnsdóttir og Kristíanna Friðriksdóttir.
TVÖ íslensk verkefni hlutu verðlaun
Evrópska skólanetsins um bestu
notkun á upplýsingatækni í skóla-
starfi. Hátt í 800 verkefni bárust í
keppnina og komust 16 þeirra í úr-
slit.
Annað verkefnið er eftir Salvöru
Gissurardóttur. Það er vefur fyrir
námskeiðið Nám og kennsla á Net-
inu sem hún kennir við framhalds-
deild Kennaraháskóla Íslands. Sá
vefur varð í 4. til 12. sæti í aðal-
keppninni. Hitt íslenska verkefnið
sem hlaut verðlaun er eftir Maríu B.
Kristjánsdóttur og Sigurlaugu
Kristmannsdóttur kennara í Fjöl-
brautaskólanum við Ármúla. Það
hreppti fyrsta sæti í flokki raun-
greinaverkefna. Um er að ræða vef
sem notaður er við kennslu í líffræði.
Þess má geta að Fjölbrautaskólinn
við Ármúla hefur undanfarin fjögur
ár tekið þátt í þróunarskólaverkefni
á vegum menntamálaráðuneytisins.
Höfundum íslensku verkefnanna
var boðið til Stokkhólms þar sem
þeir tóku við verðlaununum í gamla
þinghúsinu 21. nóvember sl. Á vef
Evrópska skólanetsins má fá frekari
upplýsingar um þau verkefni sem
unnu til verðlauna.
Samkeppnin fór fram í tengslum
við eSchola 2002 sem var viðburður
sem Evrópska skólanetið stóð að sl.
vor. Eins og áður segir barst mikill
fjöldi verkefna í keppnina, víða að frá
Evrópu. Þess má geta að í fyrra
hreppti íslenskt verkefni þriðju
verðlaun í þessari keppni.
Verðlaunasamkeppni eSchola
2003 verður haldin 7. apríl til 9. maí
og gefst þá kostur á að senda inn
verkefni. Upplýsingar eru á
www.menntagatt.is.
Vefur Salvarar er á slóðinni
www.asta.is/nkn2/ Vefur Sigurlaug-
ar og Maríu er á slóðinni www2.fa.is/
deildir/liffraedi/nat103/02h Vefur
Evrópska skólanetsins er á slóðinni
www.eun.org.
Tvö íslensk
verkefni unnu
til verðlauna
FULLTRÚAR Íslands í dansi,
atvinnumennirnir Karen Björk
Björgvinsdóttir og Adam
Reeve, sem jafnframt eru fé-
lagsmenn í ÍR, kepptu í Heims-
meistarakeppninni í standard-
dönsum sem fram fór í Black-
pool í Englandi á sunnudag.
Þau dönsuðu inn í 24 para úrslit
en óstaðfest var í hvaða sæti
þau höfnuðu.
Um 50 pör tóku þátt í keppn-
inni og einungis tvö pör af þeim
hóp æfa báðar greinar og eru
Karen og Adam annað þeirra.
Þau eru eitt örfárra para í
heiminum sem æfa hvort
tveggja, þ.e. standard og latin,
og hafa náð svo langt í hvori
grein fyrir sig, segir í frétta-
tilkynningu.
Karen og Adam eru núver-
andi Evrópumeistarar í 10
dönsum og höfnuðu í 4. sæti í
heimsmeistarakeppninni í 10
dönsum á síðasta ári. Það mót
fer fram í Düsseldorf í Þýska-
landi um næstu helgi og munu
þau keppa þar, segir í frétt frá
Dansíþróttasambandi Íslands.
Komust í
24 dans-
para úrslit
23. nóvember sl. um kl. 15.05 varð
árekstur á gatnamótum Suðurlands-
brautar-Grensásvegar og Engjaveg-
ar. Varð áreksturinn á milli blárrar
Opel Astra-fólksbifreiðar sem ekið
var norður Grensásveg og ljósgrárr-
ar Toyotu Corolla-fólksbifreiðar sem
ekið var austur Suðurlandsbraut.
Þá varð annar árekstur sama dag
kl 16.50 á gatnamótum Reykjanes-
brautar og Stekkjarbakka. Var þá
grænni Toyotu Corolla-fólksbifreið
ekið af Stekkjarbakka og inn á
gatnamótin. Í sama mund var blárri
Suzuki Baleno-fólksbifreið ekið suð-
ur Reykjanesbraut og inn á gatna-
mótin.
Í ofangreindum tilvikum er
ágreiningur um stöðu umferðarljósa
og eru þeir sem geta gefið frekari
upplýsingar beðnir að snúa sér til
umferðardeildar lögreglunnar í
Reykjavík.
Ekið utan
í Range Rover
Þá lýsir lögreglan eftir vitnum að
umferðaróhappi er varð á bifreiða-
plani við Húsasmiðjuna í Grafarvogi,
25. nóvember á milli kl. 18.45 og
18.55. Ekið var utan í græna Range
Rover-fólksbifreið sem lagt var í bif-
reiðastæði og fór tjónvaldur, sem lík-
lega ók hvítri nýlegri Renault-sendi-
bifreið, af vettvangi.
Lýst eftir
vitnum