Morgunblaðið - 28.11.2002, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 63
DAGBÓK
Töskur og belti
Bankastræti 11 • sími 551 3930
20%
afsláttur
af öllum
yfirhöfnum
VINNUFATABÚÐIN
Laugavegi 76,
s. 551 5425
Lítill fatalager
til sölu fyrir verslanir eða einstaklinga
Jólakjólar - jóladress - skart og
leikföng í skóinn
Upplýsingar í síma 661 4153
Árnað heilla
LJÓÐABROT
Það er órétt
ef orpið hefr
á máskeið
mörgu gagni,
rammriðin
Rökkva stóði,
vellvönuðr
því er veitti mér.
Var eg árvakr,
bar eg orð saman
með málþjóns
morgunverkum,
hlóð eg lofköst
þann er lengi stendr
óbrotgjarn
í bragar túni.
Egill Skallagrímsson
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 28.
nóvember, er sextug Elísa-
bet Jónsdóttir, Háagerði
16, Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Guðmundur Ingi
Guðmundsson húsasmiður.
Þau hjónin taka á móti ætt-
ingjum og vinum á heimili
sínu laugardaginn 30. nóv-
ember kl. 16.
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 28.
nóvember, er fimmtug Mar-
grét Bóasdóttir söngkona,
Snorrabraut 71, Reykjavík.
Af því tilefni verður hún
með opið hús á morgun,
föstudaginn 29. nóvember,
frá kl. 20 í sal FÍH, Rauða-
gerði 27, Reykjavík.
VESTUR lætur ófriðlega í
sögnum. Fyrst teflir hann
fram tveimur litum til sókn-
ar, en þegar það vekur enga
lukku hjá makker, doblar
hann geimsögn mótherj-
anna. Lesandinn er í suður
og fær tækifæri til að láta
hart mæta hörðu:
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♠ D6
♥ 7532
♦ 1084
♣ÁKG9
Suður
♠ K743
♥ KDG106
♦ KD
♣104
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 hjarta
2 hjörtu * 4 hjörtu Pass Pass
Dobl Allir pass
Innákoma vesturs sýnir
minnst 5-5 skiptingu í svörtu
litunum. Hann leggur niður
tígulásinn í upphafi og spilar
síðan spaðaás og meiri
spaða. Austur fylgir lit.
Hvernig er best að spila?
Með látum sínum hefur
vestur staðsett hvern punkt
og teiknað upp skiptinguna.
Hann er greinilega með ás-
ana þrjá og er að vonast eftir
víxltrompun í vörninni. Og
honum verður að ósk sinni ef
sagnhafi spilar strax trompi:
Norður
♠ D6
♥ 7532
♦ 1084
♣ÁKG9
Vestur Austur
♠ Á10952 ♠ G8
♥ Á4 ♥ 98
♦ Á ♦ G976532
♣D8763 ♣52
Suður
♠ K743
♥ KDG106
♦ KD
♣104
Austur mun þá trompa
spaða yfir blindum og síðan
fær vestur stungu í tígli:
tveir niður.
Þessi örlög má forðast
með því að yfirtaka spaða-
drottningu og svína tvisvar í
laufinu. Spila svo laufás.
Austur trompar væntan-
lega, en suður yfirtrompar
og spilar hjarta. Nú er allt
bit farið úr vörninni, því
austur er tromplaus. Ef
austur lætur hálaufin lifa,
hendir sagnhafi tveimur
spöðum heima og getur þá
yfirtrompað spaðann heima.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6
4. d3 d6 5. c3 g6 6. Rbd2 Bg7
7. Rf1 O-O 8. Rg3 a6 9. Bxc6
bxc6 10. O-O h6 11. h3 Be6
12. He1 c5 13. Be3 Rd7 14. d4
exd4 15. cxd4
Rb6 16. b3 cxd4
17. Bxd4 a5 18.
Bxg7 Kxg7 19.
Dc2 a4 20. b4 a3
21. Had1 Kh7 22.
Hd4 Rd7 23. e5
De7 24. exd6
cxd6 25. Dd2 Re5
Staðan kom
upp á Ólympíu-
skákmótinu sem
lauk fyrir
skömmu í Bled í
Slóveníu. Alex-
ander Moroze-
vich (2707) hafði
hvítt gegn Gabr-
iel Sargissjan (2568). 26.
Hxe5! dxe5 27. Hh4 h5 28.
Rxh5 Dxh4 29. Rxh4 gxh5
30. Dg5 Hfb8 31. Dxh5+ Kg8
32. Dg5+ Kf8 33. Dxe5 Kg8
34. Dg5+ Kf8 35. Df6 Kg8
36. f4 Hxb4 37. Dg5+ Kf8 38.
Dc5+ Kg8 39. Dxb4 Bxa2 40.
Db7 Ha4 41. Dc8+ Kg7 42.
Dc2 og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert traustur í öllu sem þú
tekur þér fyrir hendur og að
gefast upp er ekki til í þinni
orðabók.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það eru nokkur mál sem þola
enga bið og þú gerir aðeins
illt verra með því að slá þeim
á frest. Taktu þér tak og
kláraðu málin.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hugsaðu ekki of mikið um
hvað öðrum finnst um gjörð-
ir þínar og haltu bara áfram
á sömu braut. Trúðu á sjálf-
an þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Láttu þér ekki bregða þótt
ókunnir aðilar hafi samband
og vilji gefa þér tækifæri á
að spreyta þig. Þú ert vel
upplagður til stórra átaka.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ekki hlusta á þá sem segja
að draumar þínir geti aldrei
ræst. Þú ert á réttri leið eins
og koma mun í ljós.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það sem þér kann að virðast
undrun á leið þinni er í raun
og veru prófsteinn á leið
þinni til aukins þroska.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er ekki sjálfgert að þú
getir afstýrt öllum þeim
óhöppum, sem þú sérð vera í
uppsiglingu. Láttu ekki hug-
fallast heldur gakktu æðru-
laus til verks.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er ástæðulaust að láta
smámunina vefjast fyrir sér.
Vertu óhræddur, gefðu þér
góðan tíma til að kanna
málavöxtu og taktu svo af-
stöðu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Breyttu út af venjunni með
því að gera eitthvað alveg
nýtt til að örva hugann. Þú
færð aðstoð úr óvæntri átt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Láttu ekki smáatriðin fara í
taugarnar á þér. Hristu
þetta slen af þér og gakktu
öruggur til móts við ný og
spennandi verkefni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þetta er kjörinn dagur til
framtíðaráforma. Farðu
samt varlega því einhver
reynir viljandi að villa þér
sýn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Haltu fast um pyngjuna, það
þarf ekki stóra óaðgæslu til
að aurarnir fljúgi frjálslega.
Auðgaðu því anda þinn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Áhugaverðu tilboði verður
skotið inná borð hjá þér í
dag, en það er betra að verja
peningum í eitthvað sem
varir lengi eða tryggir fram-
tíðaröryggi þitt
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
BRÚÐKAUP. 27. apríl sl. voru gefin saman í Háteigskirkju
af séra Bjarna Karlssyni, Sigrún Snædal Logadóttir og Þor-
steinn Waagfjörð. Með þeim á myndinni er dóttirin Logey
Rós. Heimili þeirra er í Kópavogi.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með tveggja
daga fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Samþykki af-
mælisbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur hringt
í síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á net-
fangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Siglfirðingar unnu
parasveitakeppnina
Hörkukeppni var um efsta sætið í
Íslandsmótinu í parasveitakeppninni
sem spiluð var um helgina. Sveit
Estherar Jakobsdóttur leiddi fyrir
síðustu umferðina en spilaði gegn
sveitinni sem var í öðru sæti í loka-
umferðinni. Hvert stig (impi) var
verðmætt í þessari viðureign en sveit
Bjarkar Jónsdóttur vann leikinn
með 18 vinningsstigum gegn 12 og
þar með mótið með 131 stigi en sveit
Estherar hlaut 130 stig.
Lokastaðan varð annars þessi:
Björk Jónsdóttir 131
Esther Jakobsdóttir 130
María Haraldsdóttir 122
Anna Ívarsdóttir 121
Ljósbrá Baldursdóttir 120
Ritarar og smiðir 114
Kristjana Steingrímsdóttir 110
Sigursveitin er siglfirzk. Meðspil-
ari Bjarkar er eiginmaður hennar
Jón Sigurbjörnsson forseti Brids-
sambandsins og systkini hans, Stef-
anía og Ásgrímur.
Kristinn efstur í Gullsmára
Ellefta og síðasta umferð í árlegri
sveitakeppni Bridsdeildar FEBK
Gullsmára var spiluð mánudaginn
25. nóvember. 12 sveitir tóku þátt í
keppninni.
Beztum árangri náðu:
Sveit Kristins Guðmundssonar 219
Sveit Páls Guðmundssonar 210
Sveit Unnar Jónsdóttur 210
Sveit Guðjóns Ottóssonar 173
Sveit Þorgerðar Sigurgeirsd. 172
Síðan var spilaður stuttur tví-
menningur. Miðlungur 60.
NS
Guðjón Óttósson og Guðm. Guðvinsson 78
Páll Guðmundsson og Filip Höskuldsson 66
Díana Kristjánsdóttir og Ari Þórðarson 62
AV
Valdimar Lárusson og Einar Elíasson 69
Karl Gunnarsson og Ernst Bachmann 68
Þrjú pör vóru jöfn í þriðja til
fimmta sæti með 61: a) Ásta Sigurð-
ardóttir og Margrét Sigurðardóttir,
b) Einar Markússon og Sverrir
Gunnarssons, c) Þorgerður Sigur-
geirsdóttir og Stefán Friðbjarnar-
son.
Gullsmárabrids alla mánu- og
fimmtudaga. Mæting kl. 12.45 á há-
degi.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson