Morgunblaðið - 28.11.2002, Page 68
HLJÓMSVEITIN Írafár, sem er einvinsælasta popphljómsveit landsins,gaf nýverið út fyrstu plötuna sína,Allt sem ég sé, og heldur útgáfu-
tónleika í tilefni þess í Borgarleikhúsinu í
kvöld. „Diskurinn var þrjú ár að fæðast,“ segir
Birgitta Haukdal, hin áberandi söngkona
hljómsveitarinnar, um nýju plötuna.
Nokkur laganna höfðu heyrst í útvarpi áður
en platan kom út; „Hvar er ég?“ kom út á
Svona er sumarið árið 2000 og „Fingur“ og
„Eldur í mér“ komu út á safnplötu með sama
heiti ári síðar. Þrjú lög til viðbótar, „Ég sjálf“,
„Stórir hringir“ og „Stjörnuryk“ hafa hljómað
á öldum ljósvakans í sumar og haust.
„Við höfum þarna forskot. Fólk veit hvað
það er að kaupa. Það veit að það er ekki bara
eitt gott lag á diskinum, sem það þekkir,“ segir
Birgitta.
Gott ár fyrir Írafár
Birgitta og Andri eru sammála um það að
sumarið í ár hafi verið þeirra besta hingað til.
Spilaði hljómsveitin allar helgar víðs vegar um
landið, sem er mjög við hæfi í ljósi þess að
meðlimir hljómsveitarinnar koma úr öllum átt-
um, nánar tiltekið Húsavík, Seljahverfi, Ísa-
firði, Selfossi og Kirkjubæjarklaustri.
Árið hefur aldeilis verið gott hjá hljómsveit-
inni; Birgitta var kosin kynþokkafyllsta konan
af hlustendum útvarpsstöðvarinnar FM957, til-
nefnd söngkona ársins á Íslensku tónlist-
arverðlaununum og kosin söngkona ársins á
Hlustendaverðlaunum FM957 í febrúar. Í sama
mánuði gerði hljómsveitin einnig plötusamning
við Skífuna.
Ófáar ungar stúlkur hafa tekið upp ýmislegt
frá Birgittu hvað varðar klæðaburð og stíl.
„Mömmurnar koma stundum til mín og segja
mér að dætur þeirra séu komnar með strípur
og séu alltaf að æfa sig að syngja,“ segir hún
hæversklega en er jafnframt stolt af því að
geta verið fyrirmynd, sem foreldrarnir séu
ánægðir með.
Náið samstarf
Óhætt er að segja að hljómsveitin sé sérlega
náin. segir Andri.
„Þetta er orðið nánast eins og systkina-
hópur,“ segir Birgitta. Reyndar er hún enn
nánari einum hljómsveitarmeðlimi því trommu-
leikarinn, Jóhann Bachmann, er kærasti henn-
ar til meira en þriggja ára.
„Ég hélt fyrst að þetta yrði of mikið,“ segir
hún en bætir við að allt hafi gengið vel upp.
„Þegar þú ert í hljómsveit þá er margt, sem
kemur upp á en það kom okkur á óvart hversu
vel við höfum unnið úr því.“
Vignir Snær Vigfússon gítarleikari semur öll
lög hljómsveitarinnar en hann hefur líkt og
Sigurður Rúnar Samúelsson, verið í hljóm-
sveitinni frá upphafi. Vignir og Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson útsettu síðan Allt sem ég
sé saman.
Birgitta og Andri segja Vigni vera mikinn
tónlistarmann og eru ánægð með að hafa góð-
an lagasmið í hljómsveitinni. Vigni hefur enn-
fremur verið líkt við Guðmund Jónsson, laga-
smið og gítarleikara Sálarinnar hans Jóns
míns.
Ekki sjálfsagður hlutur
Þau segja hljómsveitina meðvitaða um að
meðbyrinn, sem hún hefur fengið að und-
anförnu, vari ekki að eilífu. Má segja að þau
fljúgi hátt en virðast ekki vilja slá stjörnuryki í
augu fólks heldur vera þau sjálf.
„Maður á aldrei að taka hljómsveit á Íslandi
sem sjálfsögðum hlut. Eitt lag gerir ekki neitt
fyrir þig. Þú verður alltaf að vera að gefa út og
spila úti um allt. Fólk er svo fljótt að gleyma,“
segir Birgitta. „Maður verður að vinna fyrir
þessu,“ segir Andri.
Hljómsveitin var með mun fleiri lög tilbúin
en komust fyrir á diskinum. „Við vorum að
skipta um lög á diskinum fram á síðustu
stundu,“ segir Andri. Vignir er búinn að semja
fjölmörg lög til viðbótar og ætlar hljómsveitin
að fara saman í sumarbústað strax á nýju ári
og vinna með lögin. Þau hafa beitt þessari að-
ferð fyrr og segir Birgitta það hafa gefist vel.
„Það var varla hægt að ganga um sumarbú-
staðinn fyrir græjum. Við líka grillum saman
og förum í pottinn inn á milli. Á svona stundu
eru allir svo frjóir,“ segir hún og bætir við að
áhrifin frá öllum hljómsveitarmeðlimum skili
sér í lögin.
Birgitta semur hinsvegar meirihluta text-
anna. „Það er gaman að geta sett tilfinningar
sínar niður á blað, syngja og túlka þetta á sinn
hátt,“ segir hún.
Eru þau
sjálf
Írafár er ein vinsælasta popp-
hljómsveit landsins. Inga Rún
Sigurðardóttir ræddi við Birg-
ittu Haukdal söngkonu og Andra
Guðmundsson hljómborðsleikara
um nýju plötuna og samstarfið.
Írafár flýgur hátt þessa dagana en Birg-
itta og Andri eru sammála um að sumarið í
ár hafi verið þeirra besta hingað til.
’ Við bjuggum saman írútu alveg frá fimmtu-
degi til sunnudags í allt
sumar … Við fengum frí
einn föstudag í ágúst og
notuðum hann til að
keyra á Ísafjörð. ‘
Allt sem ég sé er komin í verslanir. Írafár er með
útgáfutónleika í Borgarleikhúsinu í kvöld klukkan
20.30 og er ekkert aldurstakmark. Forsala í Borg-
arleikhúsinu og Skífunni. Þáttur um Írafár er á
dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöld klukkan 21.45.
ingarun@mbl.is
TENGLAR
........................................................................
www.irafar.is
Morgunblaðið/Kristinn
68 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Vit 461
KRINGLA
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Vit 468
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P
Roger Ebert
1/2 Kvikmyndir.is
DV
KRINGLA
Kvikmyndir.is
1/2
HL MBL
RadíóX
Sýnd kl. 4.50. Sýnd kl. 8. B.i. 16.Sýnd kl. 5.45 með enskum texta 8 og 10.10. B.i. 12.
Roger Ebert
1/2 Kvikmyndir.is
DV
1/2HL MBL
8 Eddu verðlaun
WITH
ENGLIS
H
SUBTIT
LES
AT 5.4
5
Yfir 53.000 áhorfendur
TILRAUNIN
Sýnd kl. 5.50 og 10.15.
Ísl. texti. B.i. 16.
HL. MBL
SK RadíóX
ÓHT Rás2
HK DV BLOOD
WORK
1/2Kvikmyndir.com
RadíóX
Sýnd kl. 5, 6.30, 8 og 10.
AUGLÝSING fyrir teiknimynda-
grínþáttinn breska 2DTV hefur
verið bönnuð af Breska útsend-
ingaeftirlitinu (BACC) á þeim
grundvelli að hún sé móðgandi
við Bush Bandaríkjaforseta. Í
auglýsingunni sést teiknimynda-
útgáfa af Bush taka sér mynd-
band í hönd og segja: „Uppá-
haldið mitt – það þarf bara að
stinga því í myndbandstækið.“ En
svo stingur teiknimyndaforsetinn
spólunni í brauðrist og kveikir í
því. Önnur auglýsing fyrir sama
þátt var einnig bönnuð en í henni
segir David Beckham fyrirliði
enska fótboltalandsliðsins: „Vict-
oria, hvernig stafarðu DVD?“
Talsmenn grínþáttarins segja
bann við auglýsingunni fáránlegt,
sérstaklega í ljósi þess að engum
hefur dottið í hug að banna háðið
í þáttunum sjálfum sem sé mun
meira krassandi.
Bann við
Bush-háði