Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 4

Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fullveldistónleikar KK-bandið og Einar Kárason á Gauki á Stöng sunnudaginn 1. desember kl. 21. Miðaverð 1.000 kr. Þétt tónlist og blúsaður upplestur SIGMUNDUR Felixsson húsasmíða- meistari þykir hafa sýnt mikið snar- ræði við björgun konu og þriggja barna hennar úr Hólmsá. Hann segir erfiðast að hafa heyrt til barnanna þegar hann óð út að bílnum. „ Fljótlega kom í ljós að það vantaði hníf til að skera á bílbeltin, því það var ómögulegt að losa barnið úr barnabíl- stólnum öðruvísi. Ég kallaði eftir hníf og til mín kom maður sem skar á belt- in. Á meðan hélt ég höfði barnsins upp úr vatninu.“ Barnið var meðvitundarlaust á meðan þessu fór fram og móðir þess í ökumannssætinu einnig. Sigmundur hugði að henni þegar börnunum hafði verið bjargað á land og þurfti enn að beita hníf til að losa hana úr beltinum. Lífgunartilraunir á barninu fóru fram á bakkanum jafnhliða. „Ég fór aftur út og reif upp fram- hurðina og sá þar konuna. Ég gat engan veginn losað beltin án þess að skera á þau. Við fórum strax með hana í land og hófum lífgunartilraunir á henni og héldum þeim áfram uns björgunarlið kom á vettvang.“ Að björguninni kom einnig Sigrún Steinbergsdóttir vinkona Sigmundar, en geta má þess að hann fór á skyndi- hjálparnámskeið fyrir um 30 árum og beitti þekkingu sinni fyrst nú. Eins og vænta má varð honum mikið um at- burðina en taldi ekki sennilegt að hann myndi leita sér áfallahjálpar. Gunnar Örn Pétursson varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, stýrði aðgerðum við Hólmsá í gær. Slökkviliðið var kallað út kl.15.27 og voru um 20 slökkviliðsmenn sendir á vettvang Allar stöðvar fullmannaðar „Það vildi svo heppilega til að það var óvenju lítið að gera í hefðbundnum sjúkraflutningum og því voru allar stöðvar fullmannaðar. Við gátum strax sent fimm sjúkrabíla, kafarabíl með þremur köfurum og fullmannaðan tækjabíl á 5–6 mínútum.“ Þegar slökkviliðið kom á vettvang höfðu vegfarendur bjargað börnun- um þremur á land og losað móður þeirra út úr bílflakinu. Slökkviliðs- menninir tóku við lífgunaraðgerðum á móðurinni og yngsta barninu og fluttu þau ásamt eldri börnunum á Landspítalann. Kafararnir fluttu móðurina á land eftir að Sigmundur Felixson og Sigurður G. Ragnarsson höfðu náð henni út úr flakinu og köf- uðu niður að bílnum til að athuga hvort fleiri væru um borð. „Aðgerðin gekk mjög vel með hjálp vegfarendanna,“ sagði Gunnar Örn. Þess má geta að svipað slys varð í Hólmsá um miðjan apríl árið 2000, þegar bíll lenti í ánni á hvolfi. Þá var áin mun vatnsmeiri og fór bíllinn nán- ast alveg á kaf. Innanborðs var ungt par og var konan á kafi í allt að hálf- tíma áður en hún bjargaðist út. Lá hún lengi í öndunarvél á gjörgæslu- deild. Flestir þeirra slökkviliðsmanna sem sinntu því slysi voru einnig á vettvangi í gær og segir Gunnar Örn að bíllinn í gær hafi lent á nákvæm- lega sama stað og bíll parsins um árið. Hann segir vegfarendurna sem komu fyrstir á slysstað hafa staðið sig frá- bærlega vel og gengið rösklega til verks. „Það skiptir örugglega mjög miklu máli um það hversu vel tókst til,“ sagði hann. Skar á bílbeltin með hníf Morgunblaðið/Júlíus Mikill viðbúnaður var við Hólmsá vegna björgunaraðgerðanna. ÞEGAR rætt var um það í for- eldraráði leikskólans á Tjarnarborg hversu gaman það væri að geta sett upp jólaleikrit á leikskólanum, tók Ingibjörg Þórisdóttir leikkona, sem situr í foreldraráðinu, sig til og samdi leikrit handa krökkunum ásamt vini sínum og samstarfs- manni, Jóni Páli Eyjólfssyni. Af- raksturinn, leikritið Jólagjöf handa Grýlu, var síðan frumsýnt á Tjarn- arborg í gær, við ágætar und- irtektir barnanna. Ingibjörg fer með hlutverk Bínu sem fær óvænta heimsókn frá Bjúg- nakræki sem er á stúfunum eftir jólagjöf handa Grýlu mömmu sinni. Sumum krökkunum brá nokkuð þegar Bjúgnakrækir klifraði allt í einu inn um gluggann og eitthvað fór bramboltið í sveinka fyrir brjóstið á krökkunum því sum þeirra fóru að gráta. Það hafði þó ekki mikil áhrif á framvindu leik- ritsins því leikskólakennararnir komu krökkunum til bjargar og fylgdu þeim út úr salnum. Þar full- vissuðu kennararnir börnin um að Bjúgnakrækir væri ágætis karl, þótt það væru stundum svolítil læti í honum og þorðu sum þeirra meira að segja aftur inn í salinn. Grýla alveg hætt að borða börn Bjúgnakrækir sagði að það væri orðið svo lítið framboð á óþekkum börnum þessa dagana að Grýla væri alveg hætt að borða börn. Hann ætl- aði að gefa henni bjúgu í jólagjöf, en svo varð hann svo svangur að hann borðaði öll bjúgun sjálfur, eitt þús- und talsins. Þá fékk Bjúgnakrækir þá hugmynd að háfa jólastjörnuna úr himnafestingunni og gefa Grýlu. Bínu líst ekki vel á þessa fyr- irætlan, þar sem allir í veröldinni eiga jólastjörnuna saman. Hún bað krakkana á Tjarnarborg að koma með fleiri hugmyndir og datt þeim ýmislegt í hug sem gæti glatt Grýlu. Ljósakróna, stytta, klukka, ofn, föt og bók var meðal þeirra hugmynda sem krakkarnir vörpuðu fram, en því verður þó að sjálfsögðu ekki ljóstrað upp hér hvað Grýla kerl- ingin mun fá í jólagjöf frá syni sín- um. „Mamma hennar Tótu breyttist í leikrit,“ sagði einn áhorfandinn hrifinn að sýningu lokinni, en dóttir leikkonunnar sem er á Tjarnarborg heitir Þórhildur Helga. Ingibjörg sagði að það hefði verið mjög gam- an að flytja leikritið fyrir krakkana. „Þau voru mjög stillt og prúð og ég hafði gaman af því hvað þau hlógu skemmilega. Þau voru svolítið hrædd þarna í byrjun enda kemur jólasveinninn óvænt inn, en þau voru fljót að jafna sig,“ segir Ingi- björg. Morgunblaðið/ÞorkellIngibjörg Þórisdóttir ræðir við börnin á Tjarnarborg í hlutverki Bínu. „Mamma hennar Tótu breyttist í leikrit“ „ÞETTA er mjög spennandi tækifæri og mikill heiður fyrir mig. Það hlýtur alltaf að vera draumur rit- höfunda að fá bækur sínar gefnar út íöðr- um löndum en heima- landinu,“ segir Björn Ingi Hrafnsson, en réttindastofa Eddu – útgáfu gekk í gær frá samningi við danska forlagið Lademann um útgáfu bókar hans, Barist fyrir frelsinu. Í henni er rakin saga mæðgn- anna Guðríðar Örnu Ingólfsdóttur og Hebu Shahin og hvernig þær börðust fyrir eigin frelsi er faðir Hebu, sem er Egypti, hafði kyrrsett dóttur sína í Egyptalandi og tilkynnt henni að hún myndi aldrei framar snúa til Íslands. Guðríður Arna lagði sig í mikla hættu er hún fór til Egyptalands til að end- urheimta dóttur sína, því ef upp hefði komist hefði beðið hennar löng fang- elsisvist. Þær búa nú báðar á Íslandi. Óvenjulegt að saga sem þessi endi vel Björn Ingi segir sannsögulegar bækur um árekstra ólíkra menning- arheima vinsælar alls staðar, en fátítt sé að réttur á íslenskum viðtalsbók- um sé seldur til útlanda. „Bókaútgáfur á Norður- löndunum og víðar hafa sýnt sögunni mikinn áhuga vegna þess að það er svo ótrúlega sjaldgæft að flótti eða „barnsrán“ frá Miðausturlöndum takist. Réttur feðranna er svo ríkur í heimaland- inu þó að forræðið sé dæmt íslenska foreldrinu hér heima. Þess vegna vekur sagan mjög mikla athygli.“ Björn Ingi bendir einnig á að saga mæðgn- anna sé mjög alþjóðleg og gerist í mörgum löndum. „Hún gæti auðvitað gerst í næstum hvaða landi sem er. Hún snýst um konu sem býður örlögunum byrginn og ákveður að sækja barnið sitt jafnvel þótt það hefði getað kostað hana ævilangt fangelsi.“ Lademann forlagið er hluti af Eg- mont samsteypunni sem er eitt öfl- ugasta útgáfufyrirtæki heims með yf- ir eitt hundrað fyrirtæki í 24 löndum. Barist fyrir frelsinu kemur meðal annars í bókaklúbbi sem nefnist „Virkelighedens verden“ og er með tugþúsundir félaga. Ráðgert er að bókin komi út í Danmörku á næsta ári í yfir 20 þúsund eintökum til að byrja með. Danir kaupa út- gáfurétt á Barist fyrir frelsinu Björn Ingi Hrafnsson ÖLLUM viðskiptavinum og starfsmönnum Hagkaupa í Njarðvík var vísað út úr versl- uninni af lögreglu og slökkviliði síðdegis í gær þegar varasöm lofttegund lak út af kælivél á lager verslunarinnar. Bruna- varnir Suðurnesja telja víst að loftegundin hafi verið freon. Talsvert var af fólki í versl- uninni þegar starfsfólk varð vart við reyk inni á lager. Kall- að var á slökkvilið og lögreglu og öllum vísað út úr versluninni. Fljótlega tókst að loka fyrir lek- ann og var húsið reykræst að því búnu. Verslun lokað vegna freon-leka
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.