Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 69

Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 69
Hreinn nafngreindur hjá RÚV Missagt var í Morgunblaðinu í gær að aðilar hafi ekki verið nafn- greindir í frétt RÚV um bréfaskipti Hreins Loftssonar, lögmanns, og ríkislögreglustjóra. Hið rétta er að aðilar voru nafngreindir í frétt RÚV en ekki í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá 5. nóvember. Mynd af listaverki á hlið Mynd af verki Rósu Sigrúnar Jónsdóttur sem birtist með umsögn um sýningu hennar í Galleríi Skugga í blaðinu í gær sneri ekki rétt. En nú er síðasta sýningarhelgi. Beðist er velvirðingar á mistökun- um. Rangt föðurnafn Eyþór Agnarsson, 6 ára Eskfirð- ingur, var fyrir mistök sagður Ragn- arsson í Morgunblaðinu í gær. Ey- þór er beðinn velvirðingar á þessum mistökum. Ekki starfsmaður Sæsilfurs Guðleifur Einarsson á Mjóafirði var ranglega sagður starfsmaður fiskeldisstöðvarinnar Sæsilfurs í Morgunblaðinu á fimmtudag. Er hann beðinn velvirðingar á mistök- unum. Verk Rósu Sigrúnar Jónsdóttur í Galleríi Skugga. Leiðrétt FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 69 AFMÆLI Hún Svanhildur Snæ- björnsdóttir á Hellu á Hellissandi er áttatíu ára í dag. Þegar gamlir og góðir vinir standa á þvílíkum tímamótum fer maður ósjálfrátt að hugsa aftur í tímann og rifja upp liðna daga og atburði, sem tengjast viðkom- andi. Þegar ég var á barnsaldri tengdist ég heimilinu á Hellu og öll- um íbúum þar órjúfandi böndum, þar sem við Gunnar Már, sonur Svanhildar, vorum vinir og leikfélag- ar. Þess vegna var ég tíður gestur á Hellu. Það fyrsta sem kemur upp í hugann, þegar ég hugsa um hana Svönu, er kaffi og kringlur með kúm- eni. Einnig kaldir fingur og frostbólg- in eyru, sem fengu endurnýjun líf- daga í hitanum í eldhúsinu á Hellu. Manni var oft kalt í þá daga. Það var nefnilega alltaf svo mikið að gera hjá okkur Gunna Má og við sáumst ekki fyrir í ákafanum við að yrkja lífið, á skautum, á seglasleðum eða við að brjóta niður ónýta báta í bálköst ára- mótanna svo eitthvað sé nefnt. En þetta var allt í lagi, þar sem maður var alltaf velkominn, í hvaða ástandi sem var, í hlýjuna, kaffið og kringlurnar hjá henni Svönu. Þetta er ástæðan fyrir því að í huga mér er alltaf mikið kúmenbragð af þessum minningum. Hún Svana er kona með stórt SVANHILDUR SNÆBJÖRNSDÓTTIR hjarta og litríka skap- höfn. Hún hefur ákveðnar skoðanir og liggur ekki á þeim. Og dugnaður hennar er vel þekktur og viðurkennd- ur á Hellissandi undir Jökli. Hann hefur áþreifanlega komið fram í störfum hannar á félagslega sviðinu. Þar má nefna kirkjukórinn á Ingjaldshóli, Kven- félag Hellissands, skólanefndina og svo margt, margt annað. Og allt þetta gerði hún, án þess að það kæmi niður á hennar stóra og barnmarga heimili. Það var ekki heiglum hent, að hafa stjórn á öllum strákahópnum. Dóttirin er að- eins ein og var alltaf eins og ljós, nema þegar hún þurfti að tuska bræð- ur sína svolítið til. Þá fannst manni stundum, að ekki orkaði tvímælis, að hún er dóttir hennar mömmu sinnar. Svana mín, ég er þess fullviss, að ég mæli fyrir munn fjölmargra hér undir Jöklinum, þegar ég óska þér innilega til hamingju með öll árin. Hér minnist fólk þín sem trausts vinar, sem aldrei bregst. Sem sterkrar konu sem fylgir skoðunum sínum eftir af fullri einurð og sannfæringu. Það er ósk mín að góður Guð gefi þér gleðiríka daga það sem eftir er. Það er gott að eiga minn- ingar um trausta vini. Minningar með kúmenbragði. Grétar Kristjónsson. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Brúðhjón A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r Lyfjafræð- ingafélag Ís- lands 70 ára LYFJAFRÆÐINGAR halda af- mælishátíð í tilefni af 70 ára afmæli Lyfjafræðingafélags Íslands í dag, laugardaginn 30. nóvember. Dagskrá hátíðarinnar er tvíþætt, þ.e. annars vegar ráðstefnan Dagur lyfjafræðinnar sem að þessu sinni hefur þemað Siðfræði í viðskiptum og vísindum og hins vegar afmæl- ishátíð með kvöldverði og dansleik um kvöldið. Nú eru á fjórða hundrað félagar í Lyfjafræðingafélagi Íslands sem starfa m.a. í apótekum, hjá lyfja- framleiðendum, umboðs- og dreif- ingarfyrirtækjum, við rannsóknir, kennslu og fleira, segir í fréttatil- kynningu. Efling og borgin semja UNDIRRITAÐ hefur verið sam- komulag milli Eflingar – stéttarfélags og Reykjavíkurborgar um breytta launaröðun þeirra starfsmanna sem lokið hafa diplomanámi í leikskóla- fræðum frá Kennaraháskóla Íslands og vinna á Leikskólum Reykjavíkur. Efling-stéttarfélag hefur í áratugi unnið að starfsmenntun fyrir starfs- menn í leikskólum. Markmið félags- ins og fyrirrennara þess hefur ávallt verið að félagsmenn gætu bætt við sig námi með því að bjóða stöðugt upp á starfstengd námskeið þar sem starfs- menn geti bætt þekkingu sína og auk- ið hæfni í starfi. Þá hafa starfs- menntasjóðir með aðild Eflingar – stéttarfélags aðstoðað félagsmenn við að sækja sér nám og námskeið þ.m.t. við ofangreint diplomanám,“ segir í fréttatilkynningu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.