Morgunblaðið - 30.11.2002, Side 8
Silungur á Íslandi
Vitum aldrei
hverju við
eigum von á
EGGERT Skúlason ogFriðrik Guðmunds-son kvikmynda-
gerðarmaður hafa í sam-
vinnu við Eddu – miðlun og
útgáfu gefið út myndband-
ið Silungur á Íslandi. Á
myndbandinu er efni sniðið
fyrir harðáhugasama
stangaveiðimenn, en farið
er með flugustangir um
bakka Laxár í Mývatns-
sveit og Eyjafjarðarár og
fluguveiðar á urriða og sjó-
bleikju stundaðar af kappi.
Þetta er sum sé myndband
um silungsveiði og hinn eð-
alborni lax kemur þar
hvergi við sögu. Eggert
svaraði nokkrum spurning-
um Morgunblaðsins.
– Hver er aðdragandinn
að þessu myndbandi og
hver gefur það út?
„Edda – miðlun og útgáfa gef-
ur myndbandið út í samvinnu við
okkur Friðrik Guðmundsson.
Samstarfið við Eddu hefur verið
afar ánægjulegt og þar á bæ er
mikil fagmennska. Hvað varðar
aðdragandann þá er þetta allt
Friðriki að kenna. Hann dró mig
út í þetta og það var svo sem
ekkert erfitt, því ég elska veiði-
skap og allt sem honum við-
kemur.“
– Hvers vegna þetta efni en
ekki etthvað annað úr stanga-
veiðiflórunni?
„Mun fleiri veiðimenn veiða
silung en lax. Þegar kemur að
umfjöllun er hún í öfugu hlut-
falli. Við sáum einfaldlega mögu-
leika á að höfða til stærri mark-
aðar með þessum hætti. Einnig
má segja að ofurlítil eigingirni
eigi sér stað. Ég hef veitt urriða
í Laxá í Mývatnssveit um nokk-
urra ára skeið og er gersamlega
kolfallinn fyrir þessu umhverfi.
Ég er einnig í ástarsambandi við
Eyjafjarðará, sem er einhver
skemmtilegasta silungsveiðiá
landsins þegar kemur að bleikju.
Loks, það er búið að mynda svo
mikið af laxi að þetta er kær-
komin tilbreyting.“
– Er þetta hugsað sem
kennslumyndband?
„Já og nei. Þetta er ekki
kennslumyndband í hefðbund-
inni merkingu orðsins. Hins veg-
ar eru í myndinni flinkir veiði-
menn sem miðla af reynslu sinni
og í þeim skilningi er þetta
kennslumyndband. Mesti lær-
dómurinn í veiðiskap felst í að
kunna að taka á móti upplýs-
ingum frá ólíkum uppsprettum.“
– Verður þetta sýnt í sjón-
varpi á næstu misserum?
„Ekki í bráð allavega. Þetta
efni er fyrst og fremst hugsað
sem myndband. Edda miðlun –
og útgáfa heldur utanum sjón-
varpsréttinn en það er alveg
ljóst að þetta fer ekki
í sjónvarp næsta ár-
ið.“
– Segðu okkur eitt-
hvað frá efnistökunum
og hvernig vinnsla
bandsins fór fram.
„Efnistökin eru ofurlítið öðru-
vísi en verið hefur í öðrum veiði-
þáttum sem við Friðrik höfum
komið að. Nú liggur áherslan
meira á veiðinni sjálfri og minna
á náttúru og umhverfi. Við erum
að horfa á markhópinn veiði-
menn. Þegar svona þættir eru
unnir fyrir sjónvarp er krafan að
efnið hafi breiðari skírskotun.
Vinnslan er tímafrek og að
vissu leyti áhættusöm. Áhættan
felst í því að við erum að mynda
náttúru sem lýtur ekki lögmál-
um og við vitum aldrei hverju
við eigum von á. Það kom líka í
ljós að við þurftum að fara fjór-
ar ferðir í Eyjafjarðará áður en
við náðum því efni sem þarf til
að bera upp svona mynd.
Í fyrsta skipti fengum við kaf-
ara til að mynda með okkur. Það
var Erlendur Bogason á Akur-
eyri sem sá um þann þátt. Hann
gerði ótrúlega flotta hluti fyrir
okkur.“
– Er markaður fyrir svona
efni hér á landi?
„Já, það er klárt mál að hann
er fyrir hendi. Hins vegar búum
við á litlum kletti norður í
Dumbshafi og því miður búa
ekkert voðalega margir hér.
Sökum þess hve markaðurinn er
lítill er svona útgáfa aldrei mikið
gróðaævintýr. En menn eru líka
að vinna við áhugamálið sitt og
fyrir það er mikið gefandi.“
– Geturðu nefnt eitthvað á
myndbandinu sem kemur
skemmtilega á óvart?
„Við lentum í mikilli veiði í
báðum þessum ám, þó svo að
sumarið hafi verið erfitt í þeim
báðum. Kafaramyndirnar standa
upp úr og svo fá menn að kynn-
ast tveimur nýjum sil-
ungaflugum sem ekki
hafa verið kynntar op-
inberlega áður.“
– Hvað liggur að
baki gerð svona
myndbands?
„Mikil vinna, meiri vinna og
svo aðeins meiri vinna. Hugsjón-
ir manna og dugnaður og velvilji
gríðarmargra aðila. Þeir sem
sérstaklega hjálpuðu okkur eru
hjónin María Anna Clausen og
Ólafur Vigfússon í Veiðihorninu,
Norðurljós og veiðifélögin fyrir
norðan. En það er afskaplega
þægileg tilfinning að halda á
barninu þegar hríðirnar eru að
baki.“
Eggert Skúlason.
Eggert Skúlason er fæddur 5.
apríl 1963 í Reykjavík. Stúdent
frá Menntaskólanum í Hamra-
hlíð 1983. Lauk prófi sem verð-
bréfamiðlari vorið 2001. Eggert
var blaðamaður og fréttastjóri
við NT og Tímann á árunum frá
1984 til 1990, síðan fréttamaður
og dagskrárgerðarmaður hjá Ís-
lenska útvarpsfélaginu, Stöð 2,
frá 1990 til vors 2001. Síðan hef-
ur hann rekið fyrirtækið Emax
ehf. Eiginkona Eggerts er Anna
Guðmundsdóttir og eiga þau son-
inn Hafþór Eggertsson, sem er
fæddur 1994.
...kafara-
myndirnar
standa uppúr
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Nei, nei, ég var bara í þjálfunarbúðum fyrir jólasveina í Írak ekki í hryðjuverkum,
hr. ríkislögreglustjóri.
Komdu. Vertu 007 í dag
Nýr Ford
Focus 007 er
frumsýndur d
í Brimborg e
núna
Fáðu þér Pepsi Blue með brakandi
Doritos og flotta vinninga í 007
njósnaleik Brimborgar.
Ford styrkir James Bond bíómyndina.
Komdu og skoðaðu Ford Focus 007 í nærmynd -
í dag. Farðu í bíó og horfðu á alla bílana frá Ford.
Komdu í Brimborg og taktu þátt í 007 njósnaleiknum
og reyndu eins og þú getur til að sigra.
Vertu 007 í dag (sigraðu) flottir vinningar:
• Bond-bíómyndir (19) frá upphafi á DVD
• Rómantískur kvöldverður á ORO fyrir 2
• Margir töff hlutir merktir James Bond
Bara í dag kl. 12-16
Komdu í dag. Svörin í 007
njósnaleiknum er að finna
í Brimborgarsalnum.
Brimborg Bíldshöfða 6 Reykjavík sími 515 7000 • brimborg.is
Bond-sleðinn