Morgunblaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 32
AKUREYRI 32 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ „SLÖKKVILIÐ Akureyrar brást fljótt og vel við og þakka má skilvirku slökkvistarfi að bjarga tókst mjög miklum eignum,“ segir dr. Björn Karlsson brunamálastjóri í bréfi til Félags slökkviliðsstjóra á Íslandi varðandi brunann í Strýtu á Akureyri á síðasta ári. Björn sagði í sam- tali við Morgunblaðið að Félag slökkviliðsstjóra hefði leitað eftir umsögn Brunamálastofnunar í kjölfar fréttar í Morgunblaðinu í vikunni. Þar gagnrýnir Sigurður L. Sigurðsson trúnaðarmaður Slökkviliðs Akureyrar mjög harkalega stjórnun og slökkvistarf í brunanum í Strýtu. Jafnframt gagnrýnir Sigurður að ekki hefði verið skrifuð stórbrunaskýrsla vegna brunans. Í bréfi Brunamálastjóra kemur fram að starfs- menn Brunamálastofnunar kannist ekki við þá mynd af slökkvistarfinu sem máluð sé upp í frétt- inni. Björn sagði að starfsmaður Brunamálastofn- unar hefði verið kominn á staðinn innan við hálf- tíma eftir að eldurinn í Strýtu kom upp. Þá var slökkviliðið komið á staðinn. Starfsmaður stofn- unarinnar fylgdist svo með slökkvistarfinu á með- an það stóð yfir. „Eðli slökkvistarfa er þannig, að eftir á er alltaf hægt að finna eitthvað að. Því þykir eðlilegt að eft- ir slökkvistarf fari menn yfir málin og ef talið er að eitthvað mikið hafi verið að, er eðlilegt að Bruna- málastofnun komi að málinu og upplýsi þá aðra slökkviliðsstjóra, þannig að þeir geti líka lært af því,“ sagði Björn. Í bréfi brunamálastjóra kemur jafnframt fram að eftir athugun málsins hafi Brunamálastofnun komist að þeirri niðurstöðu að ekki ætti að flokka þennan bruna sem stórbruna og að ekki hefðu ver- ið slíkir annmarkar á slökkvistarfinu að ástæða væri til að rannsaka það nánar. Nokkru seinna kom fram að tjónið hefði numið um 50 milljónum króna, sem þykir ákaflega vel sloppið miðað við þau gífurlegu verðmæti sem voru í húfi. Ennfrem- ur segir í bréfinu að starfsmenn Brunamálastofn- unar hefðu ekki séð ástæðu til að skrifa sérstaka skýrslu um brunan í Strýtu og töldu að starfs- menn Slökkviliðs Akureyrar hefðu staðið eðlilega að verki við erfiðar aðstæður. Þá kemur fram í bréfi brunamálastjóra að tækjabúnaður Slökkviliðs Akureyrar hafi verið mjög góður á landsmælikvarða, endurnýjun bún- aðar með eðlilegum hætti og aðstaða í slökkvistöð til fyrirmyndar. Þá þykir starfsemi eldvarnaeft- irlits á starfssvæði Slökkviliðs Akureyrar hafa verið mjög góð. Brunamálastjóri um brunann í Strýtu á Akureyri á síðasta ári Þakka má skilvirku slökkvistarfi að bjarga tókst miklum eignum Magnús Ólafsson læknir ásamt Kjartani Ólafssyni félagsfræðingi, Rósu Eggertsdóttur sérfræðingi og Kristjáni Má Magnússyni sálfræð- ingi fjallar um rannsókn sína á tengslum þyngdar grunnskólabarna við líðan og námsárangur á fræðslu- fundi sem haldinn verður í Háskól- anum á Akureyri, Þingvallastræti á þriðjudag, 3. desember kl. 16.15. Gagna var aflað hjá börnum í 4., 7. og 10. bekk á þjónustusvæði Heilsu- gæslunnar á Akureyri. Í erindum þeirra verður sagt frá helstu nið- urstöðum rannsóknarinnar. Rannsókn þessi var kynnt á lækna- þingi nú í haust en hún var valin úr hópi margra annarra sem ein hin at- hyglisverðasta. Á NÆSTUNNI Liverpool-klúbburinn á Íslandi efn- ir til „fánadags“ í Nýja bíói á Ak- ureyri á sunnudag, 1. desember. Á slíkum dögum eru stuðningsmenn liðsins hvattir til að mæta í bún- ingum og skapa góða Anfield- stemningu, segir í frétt frá klúbbn- um. Dagskráin hefst kl. 11 með því að sýnd verða brot úr gömlum leikjum Liverpool. Getraunir og leikir verða í gangi og allar konur sem mæta í Liverpool-búningi fá verðlaun. Leik- ur Liverpool og Man. Utd hefst svo kl. 12.15. Aðgangur er ókeypis. Jólasýning ellefu félaga í Samlag- inu verður opnuð þar á morgun, laugardaginn 30. nóvember. Sam- lagið er í Listagili, Kaupvangs- stræti. Samlagið er listmunaverslun sem myndlistarmenn af Norðurlandi reka og hafa til sýnis og sölu verk sín, sem eru m.a. vefnaður, leir, mál- verk, grafík, teikningar og mósaík. Opið er alla daga fyrir jól nema mánudaga frá kl. 14 til 18 og á laug- ardögum frá kl. 11 til 16. Á MORGUN ÍSLANDSKLUKKUNNI sem stendur við húsnæði Háskólans á Akureyri verður hringt í tilefni af fullveldisdeginum, 1. desem- ber. Boðið verður upp á hátíð- ardagskrá þar sem tvö erindi verða flutt. Björn Ingólfsson, skólastjóri í Grenivíkurskóla, kynnir nýútgefna bók sína, „Bein úr sjó. Um fisk og fólk í Grýtubakkahreppi“ og fjallar um mikilvægi sjávarútvegsins fyrir sjálfstæði Íslendinga og Elín Díanna Gunnarsdóttir, sál- fræðingur og lektor við HA, flyt- ur stutt erindi um streitu og tek- ur sérstaklega fyrir þá streitu sem fylgir jólaundirbúningnum. Eftir að erindunum lýkur mun Hermann Óskarsson, dósent og varaforseti háskólaráðs, flytja ávarp við Íslandsklukkuna sem síðan verður hringt tvisvar sinn- um fyrir árið 2002. Dagskráin hefst klukkan 14 í hátíðarsal Háskólans og allir eru velkomnir. Íslands- klukkunni hringt SKAUTAFÉLAG Akureyrar átti 21 keppanda á Íslandsmóti barna og unglinga í listhlaupi á skautum, sem fram fór í Reykjavík nýlega og komu stúlkurnar heim hlaðnar verðlaunum. Keppt var í 9 flokkum á mótinu og átti SA keppendur í 7 flokkum. Áhugi á íþróttinni fer vaxandi og fjöldi keppenda eykst ár frá ári. Fyrir tveimur árum átti SA aðeins 12 keppendur á mótinu. Fjórar stúlkur frá SA unnu til gullverðlauna á Íslandsmótinu að þessu sinni; Audrey Freyja Clark í 13-14 ára flokki A, Sigrún Lind Sigurðardóttir í 9-10 ára flokki A, Guðný Ósk Hilmarsdóttir í 9-10 ára flokki B og Erla Guðrún Jó- hannesdóttir í flokki B 8 ára og yngri. Þrjár stúlkur frá SA unnu til silfurverðlauna, Kristín Helga Haf- þórsdóttir 11-12 ára flokki A, Telma Eiðsdóttir 9-10 ára flokki B og Urður Ylfa Arnarsdóttir í flokki B 8 ára og yngri. Þá vann Thelma Rut Hafliðadóttir til brons- verðlauna í 13-14 ára flokki B. Stúlkurnar frá Skautafélagi Akureyrar sem þátt tóku í Íslandsmóti barna og unglinga í listhlaupi á skautum. Íslandsmót barna og unglinga í listhlaupi á skautum Góður árangur norðanstúlkna „MÉR fannst rosalega gaman og mennirnir um borð tóku svakalega vel á móti mér,“ segir Karl Guð- mundsson, Kalli, en hann fór með skólafélögum sínum í 10. bekk Lundarskóla í sjóferð út á Pollinn við Akureyri með skólaskipinu Dröfn á dögunum. Karl er bundinn hjólastól og seg- ir hann aðgengið um borð í skipinu ekki miðað við að menn ferðist um í slíkum farartækjum. „Það var allt mjög þröngt, en allt í lagi þegar ég var kominn niður til að hlusta á fiskifræðinginn frá Hafró segja okkur margt mjög áhugavert,“ seg- ir Kalli. Eftir fyrirlesturinn fóru krakkarnir á annan stað í skipinu, „en ég komst varla þangað, en það var í lagi því Hafró-maðurinn kom með fullt af sjávardýrum til að sýna mér.“ Með honum í för var Sigrún Fanney Sigmarsdóttir, þroskaþjálfi í Lundarskóla, og hún tekur undir með Kalla varðandi móttökurnar um borð. „Ég vissi að aðgengið væri ekki gott fyrir hjólastóla og satt best að segja leist mér ekkert á þegar við þurftum að fara niður þröngan stiga, en mennirnir um borð voru einstaklega liprir. Alveg til fyrirmyndar,“ segir Sigrún Fanney. Kalli segir að þegar krakkarnir voru búnir að skoða sig um inni hafi verið farið út á dekk. „Ég hélt að þeir myndu veiða fleiri fiska en þeir gerðu,“ segir hann. Þegar skólafélagar hans fóru að gera að aflanum valdi Kalli að fara upp í brú, „og þar sat ég í skipstjór- astólnum og var fræddur um öll tæki og tól sem þar voru. Ég gat fylgst með því sem krakkarnir voru að gera í gegnum sjónvarpið allan tímann,“ segir Kalli en hann var mjög ánægður með ferðina, sem tókst vel í alla staði. „Og ég væri alveg til í að fara aðra svona ferð, nema sú mætti vera aðeins lengri.“ Karl Guðmundsson fór á sjó með skólaskipinu Dröfn Væri alveg til í að fara aftur og vera lengur Morgunblaðið/Muggur Skólafélagarnir fræðast um fiskana, en Kalli gat fylgst með á skjá.Kalli í skipstjórastólnum. Morgunblaðið/Muggur ÁÆTLAÐ er að tekjur Akureyrar- bæjar verði tæplega 7,9 milljarðar króna á næsta ári. Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2003 verður á fundi bæj- arstjórnar næsta þriðjudag, en hún var tekin fyrir í bæjarráði á fimmtu- dag. Á þeim fundi var lögð fram tillaga um að útsvarsprósenta í staðgreiðslu opinberra gjalda á næsta ári verið óbreytt frá því sem nú er eða 13.03% af álagningastofni. Gert er ráð fyrir að skatttekjur nemi tæplega 3,9 milljörðum króna og aðrar tekjur um 4 milljörðum, þannig að tekjur verða samtals um 7,9 milljarðar. Rekstrargjöld eru áætluð um 7,4 milljarðar króna. Bróðurpartur útgjaldanna er vegna fræðslu- og uppeldismála, eða rúmir 2 milljarðar króna. Fé- lagsþjónustan kostar um 477 millj- ónir, til íþrótta- og tómstundamála fara rúmlega 455 milljónir króna, 216 til menningarmála, 140 vegna gatna, umferðar- og samgöngumála, 101 milljón vegna umhverfismála og 82 milljónir eru áætlaðar til bruna- mála og almannavarna. Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar Áætlað að tekjur nemi um 7,9 milljörðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.