Morgunblaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 41
HEILSA MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 41 TEKINN er til starfa Hjálparsími Rauða krossins, með númerið 1717, og er hann opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa aðstoð vegna depurðar, kvíða, þunglyndis eða sjálfsvígshugsana. Þangað geta allir leitað, ungir sem gamlir, þegar sálræn vandamál virðast þeim um megn. Hjálparsíminn tekur við af Trúnaðarsímanum sem hefur verið rekinn síðastliðinn áratug fyrir ungt fólk sérstaklega. Rauði kross Íslands, Landlæknisembættið, Neyðarlínan og geðsvið Landspítala – háskólasjúkrahúss hafa gert samkomulag um að reka Hjálparsímann. Starfsmenn og sjálfboðaliðar Rauðakrosshússins, sem er athvarf Rauða krossins fyrir börn og unglinga í vanda, svara í Hjálp- arsímann. Þeir búa að áralangri reynslu við að svara slík- um símtölum og munu fá reglulega þjálfun í samvinnu við geðsvið Landsspítala háskólasjúkrahúss og Landlækn- isembættið. Landlæknir áætlar að gerðar séu um 500 sjálfsvígstil- raunir á ári hér á landi. Hjálparsíma Rauðakrossins er ætlað forvarn- arhlutverk sem felst í því að taka við símtölum fólks með sjálfsvígshugsanir og veita eins konar sálræna skyndihjálp. Einnig er gert ráð fyrir að aðstand- endur fólks með slíkar hugsanir, þeirra sem hafa gert sjálfsvígstilraunir og, ekki síst þeirra sem hafa svipt sig lífi geti nýtt sér þjónustuna. Samkvæmt könnunum eru margir þeirra sem gera tilraun til sjálfsvígs í raun ekki tilbúnir til að deyja en hafa, af ýmsum ástæðum, glatað viljanum til að lifa. Vonir standa til að þeir sem þannig er ástatt um líti á Hjálparsímann sem valkost og að tilkoma þessarar þjónustu verði til að lækka tíðni sjálfsvígs- tilrauna. Síminn er aðalstyrktaraðili Hjálparsíma Rauða krossins samkvæmt sam- komulagi sem Síminn og Rauði kross Íslands hafa undirritað og gildir til árs- loka 2004. Auk Símans hafa Íslandssími og Tal ákveðið að gefa eftir gjald vegna símtala í 1717. Allar hringingar í 1717 verða því gjaldfrjálsar fyrir þá sem hringja. Haukur Hauksson unglingafulltrúi í Rauðakrosshúsinu Heilsan í brennidepli 1717 – Hjálp- arsími Rauða krossins Ef á þig sækir kvíði, þung- lyndi eða sjálfsvígshugs- anir HJARTASJÚKDÓMA má að hluta rekja til óbeinna reykinga í æsku, að því er kemur fram í nýrri rannsókn og greint var frá á ASH Daily News. Aust- urrískir rannsakendur hafa komist að þeirri niðurstöðu að börn á aldrinum 3–15 ára, sem eiga foreldri er reykir allt að 20 vindlinga á dag, eru í um helm- ingi meiri hættu á að fá þau líf- fræðilegu einkenni sem valda skemmdum á æðakerfinu. Áhættan er talin vera um 130% ef báðir foreldrar eru reykingamenn, en mæður sem reykja hafa meiri áhrif hvað þetta varðar en feður sem reykja. Áhættan er talin vera um 130% ef báðir foreldrar eru reykingamenn. Óbeinar reykingar valda hjartasjúk- dómum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.