Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 50

Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 50
MINNINGAR 50 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Anna SigurveigÓladóttir fædd- ist á Birningsstöðum í Ljósavatnsskarði í Þingeyjarsýslu 18. ágúst 1941. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 19. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar eru hjónin Sól- veig Jónsdóttir, f. 25.9. 1917, og Óli A. Guðlaugsson, f. 17.7. 1916. Anna Sigur- veig á eldri hálfsyst- ur, en hún er Alda Aradóttir, f. 17.10. 1939, faðir hennar var Ari Þórðarson. Anna Sigurveig giftist 22.4. 1962,eftirlifandi eiginmanni sin- um, Sveini Birgi Sigurgeirssyni, f. 31.7. 1937. Hann er sonur hjónanna Sigurgeirs Kristjáns- sonar, f. 22.7. 1912, d. 30.1.1985, og Pernellu Olsen, f. 20.12. 1913, d. 11.10. 1991. Einkasonur Önnu Sigurveigar og Sveins Birgis er Birgir Óli Sveinsson, f. 3.5. 1961. Börn hans eru: 1) Gunnar Örn, f. 21.11. 1983, móðir hans er Hólm- fríður Hermannsdóttir, f. 21.1. 1962. 2) Sveinn Óli, f. 3.9. 1990, móðir hans er Guðný Sif Njáls- dóttir, f. 29.1. 1963. 3) Hrannar Marel, f. 26.2. 2002, móðir hans og eiginkona Birgis Óla er Rósa Símonardóttir, f. 24.9. 1971. Þau búa á Akureyri ásamt syni sínum og fóst- ursonum Birgis Óla, þeim Birgi Snæ, f. 17.6. 1990, og Óttari Sindra, f. 12.3. 1994. Anna Sigurveig fluttist sjö ára göm- ul til Akureyrar ásamt foreldrum sínum og syst- ur. Hún stundaði nám í Barna- skóla Akureyrar og síðan í Gagnfræðaskólanum. Hún kynntist eftirlifandi eiginmanni sínum á Akureyri og fóru þau að vinna saman á strandferðaskip- inu Esjunni. Þau hófu búskap á Akureyri og Anna Sigurveig vann á skógerðinni Iðunni þar til árið 1982, er þau hjónin fluttust til Reykjavíkur. Hóf hún störf hjá Bæjarútgerðinni sem síðar sameinaðist Granda og vann hún þar, þar til hún lést. Útför Önnu Sigurveigar fór fram í kyrrþey. Elskuleg tengdamóðir mín er lát- in, langt fyrir aldur fram. Það var mér mikill heiður að fá að kynnast þér, þótt tími okkar saman hafi ver- ið allt of stuttur. Þú varst mjög elskuleg í alla staði, hörkudugleg og alltaf svo indæl. Ég á aldrei eftir að gleyma því hvað þú varst glöð þegar þú fréttir að þú værir að verða amma aftur eftir langan tíma og þegar svo litli prinsinn okkar fæddist í febrúar og þú komst og varst hjá okkur um tíma. Það er svo sárt að hugsa til þess að þú fáir aldrei að sjá hann labba, heyra hann tala eða segja amma, eins og þú ljómaðir öll þegar þú sást hann og hvað þú hlóst innilega þegar þú heyrðir í honum í símanum, hann sem var þér svo mikils virði. Ég sit hér ein heima hjá þér og hugsa um allar þær stundir sem við áttum saman og efst í huga minn kemur brúðkaupsdagurinn minn og Birgis Óla, sem var í sumar. Þú varst svo ánægð með þennan dag því þú ljómaðir öll og varst alveg einstak- lega falleg í íslenska búningnum. Litli prinsinn þinn var líka skírður þennan dag og fékk nafnið Hrannar Marel. Það var bara núna um daginn sem ég fór að hugsa um það af hverju við völdum þetta nafn á hann frekar en hitt nafnið sem kom svo vel til greina og núna veit ég af hverju, því að nafnið þitt er í hans nafni, Hrannar. Það hefur einhver hvíslað þessu að okkur. Ég lofa þér því, elsku Anna, að ég skal alltaf hugsa vel um alla prinsana þína og þú verður alltaf með okkur bæði í huga og hjarta. Hvíl þú í friði, elsku hjartans Anna mín. Þín tengdadóttir, Rósa Símonardóttir. Þegar mér bárust fréttir af and- láti frænku minnar Önnu Siggu var mér brugðið. Það var aðeins rúm vika frá því að hún greindist með krabbamein og þar til hún var öll. Svona er lífið hvort sem okkur líkar það eður ei. Ég á erfitt með að trúa því að hún Anna Sigga sé farin yfir móðuna miklu. Margar góðar stundir áttum við saman bæði á Akureyri og hér fyrir sunnan. Anna Sigga var móðursystir mín og var hún aðeins 14 ára þegar ég fæddist. Hún fylgdist vel með litlu frænku sinni alla tíð. Anna Sigga og Sveinn eignuðust sinn einkason Birgi Óla þegar þau bjuggu á Brekkugötunni á Akureyri. Þá var gott að eiga frænku sem passaði þegar hún var í heimsókn fyrir norðan. Frænka mín hafði gaman af allri list hvort sem það var myndlist, sönglist eða handverk. Móðir mín Alda missir ekki bara systur sína heldur líka mikla vinkonu. Þær hafa átt marga laugardagana sam- an síðastliðin ár, t.d.farið á búð- arrölt, sýningar, kaffihús og margt fleira. Ég bið góðan guð að styrkja Svein eigimann hennar, soninn Birgi Óla og fjölskyldu hans, afa og ömmu á Akureyri og aðra ástvini sem eiga um svo sárt að binda. Við Ægir og fjölskylda sendum þeim innilegar samúðarkveðjur. Anna Sigga er farin. Mér finnst það óréttlátt og á erfitt með að sætta mig við það. En minning- arnar á ég eftir og þær getur eng- inn frá mér tekið. Þær eiga eftir að lýsa og lifa um alla framtíð og létta okkur harminn. Það er okkar líkn í sárum sökn- uði. Blessuð sé minning hennar. Sólveig Stefánsdóttir. Mig langar að minnast frænku minnar Önnu Siggu, en það var hún ætíð kölluð. Það er svo stutt síðan ég hitti hana í afmæli mömmu sinn- ar í september, þá var hún hress og kát að sjá, eins og hún var æv- inlega. En hlutirnir breytast fljótt. Alda systir hennar hringdi í mig fyrir hálfum mánuði og sagði mér að Anna Sigga væri fársjúk. Viku seinna var hún dáin. Hún tapaði baráttunni við krabbamein- ið. Þegar við Anna Sigga hittumst var alltaf stutt í hlátur og glens. Hún var með afbrigðum létt í lund og hláturmild. En nú er hláturinn hennar þagnaður og heyrist ekki oftar. Elsku frænka, minningarnar um þig eru allar ljúfar og ég mun geyma í minningunni brosið þitt og hláturinn. Innilegar samúðarkveðjur send- um við Einar Sveini, Birgi Óla, Rósu og sonum, einnig Öldu. Síðast og ekki síst elsku nöfnu minni og Óla. Blessuð sé minning þín kæra frænka. Sólveig Kristjánsdóttir. Í dag kveðjum við uppáhalds frænku okkar, hana Önnu Siggu. Einlæg lífsgleði hennar, listfengi og dillandi hlátur hefur fylgt okkur frá blautu barnsbeini og minning henn- ar mun fylgja okkur alla tíð. Hún var listamannssál og kynnti okkur systur á unga aldri fyrir heimi list- arinnar með því að draga okkur á hina ýmsu listviðburði. En hún var hógvær um sín eign verk og sýndi þau fáum. Það var helst að list- sköpun hennar birtist okkur í jóla- pökkunum. Við munum varla eftir henni öðruvísi en geislandi af kát- ínu og hlátur hennar var bráðsmit- andi. Við teljum okkur vera mjög lánsamar að hafa átt hana að sem frænku og vinkonu sem var alltaf til staðar. Í raun var hún okkur aukamamma sem fylgdi okkur í gegnum lífsins stærstu stundir, studdi í mótlæti og hvatti til dáða. Minning hennar mun lifa í hjörtum okkar alla tíð. Elísabet og Íris Ragna. ANNA SIGURVEIG ÓLADÓTTIR ✝ Karl Gunnarssonfæddist í Þykkva- bæ 22. júní 1924. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu á Patreksfirði 22. nóvember síðast- liðinn. Foreldrar hans voru hjónin Gunnar Eyjólfsson bóndi, f. 20. apríl 1894, d. 10. október 1969, og Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. febrúar 1898, d. 23. desember 1960. Systkini hans eru Sigurlín, f. 20. nóvember 1920, d. 27. júní 1998, Jón Óskar, f. 3. mars 1922, Jónína, f. 19. nóvem- ber 1926, Hafsteinn, f. 11. sept- ember 1928, Björgvin, f. 15. nóv- ember 1930, d. 14. febrúar 1965, Svava, f. 11. júní 1934, Karen Alda, f. 1. febrúar 1936, og Har- aldur, f. 2. ágúst 1937. Karl kvæntist 27. nóvember 1948 Dyljá Gróu Stefánsdóttur húsfreyju, f. 6. ágúst 1928. For- eldrar hennar eru Stefán Sig- urðsson verkstjóri, f. 24. septem- ber 1892, d. 10.11. 1971, og Ólafía Bjarnadóttir húsfreyja, f. 26.11. 1903, d. 7.1. 1979. Börn Karls og Dyljár eru: 1) Eyjólfur, f. 27. júní 1948, maki Steinunn Sveinsdóttir, f. 8. febrúar 1957. Börn Eyjólfs af fyrra hjónabandi: Dyljá Erna, f. 17. júlí 1970, Eva Rut, f. 10. októ- ber 1972, Eyþór Örn, f. 31. októ- ber 1978. 2) Sigríður, f. 16. októ- ber 1949, maki Erlendur Kristjánsson, f. 26. júní 1949. Börn þeirra: Kristján Rafn, f. 26. júní 1973, d. 14. september 1995, Sigríður Filippía, f. 17. mars 1977, og Karl Óttar, f. 17. júlí 1979. 3) Stefán, f. 2. september 1952. Börn hans: Arnar Geir, f. 7. mars 1975, Bryndís, f. 31. desember 1979, og Berglind, f. 13. janúar 1983. 4) Karl Ólafur, f. 10. desember 1967, maki Ólöf Guðný Geirsdóttir, f. 3. nóvember 1968. Börn þeirra: Daníel Geir, f. 7. júlí 1994, Ellen Björg f. 6. jan- úar 1999, og Alex- ander Kristján f. 6. janúar 1999. Karl bjó í for- eldrahúsum í Tobba- koti í Þykkvabæ þar sem hann sinnti ýmsum störfum, þá var hann einnig tvær vertíðir til sjós í Vestmannaeyjum. Karl fluttist síðar til Reykjavíkur þar sem hann vann við ýmis störf m.a. hjá bretanum, Loftleiðum og í vél- smiðju. Árið 1949 hóf Karl störf hjá Strætisvögnum Reykjavíkur, fyrst sem bifreiðastjóri en síðar sem vaktformaður og loks eftir- litsmaður. Karl starfaði hjá Strætisvögnum Reykjavíkur í hartnær 40 ár eða til ársins 1988, þegar hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Samhliða því starfi ók Karl og rak leigubifreið, fyrst hjá Bifröst, en síðan hjá Hreyfli eftir sameiningu stöðvanna. Leigubifreiðaakstri hætti Karl er hann varð sjötugur. Karl og Dyljá stofnuðu sitt fyrsta heimili í Mávahlíðinni á árinu 1948. Á ár- unum 1953 til 1966 bjuggu þau í Kópavogi, en frá þeim tíma og allt til ársins 2002 bjuggu þau á Kleppsvegi 140 í Reykjavík en þá fluttu Karl og Dyljá til Patreks- fjarðar. Útför Karls verður gerð frá Patreksfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku afi Kalli. Okkur langar að kveðja þig og þakka þér fyrir allar góðu stundirnar. Við minnumst þess sem börn hve mikill gleðigjafi þú varst, alltaf hress og kátur. Það var mikið líf og fjör þegar fjöl- skyldan kom saman. Minningarnar um þig og allar góðu stundirnar með þér geymum við í hjarta okk- ar og biðjum góðan Guð að gæta þín. Dyljá, Eva og Eyþór. KARL GUNNARSSON Elsku pabbi minn. Það er erfitt að trúa því að þú sért farinn, og eiginlega er ég ekkert búin að meðtaka það, finnst þú vera hjá okkur ennþá. Margar góðar minningar á ég um þig og í hvert skipti sem ég hugsa um þig er ég svo þakklát fyrir að hafa kynnst þér og fengið að eiga þig sem pabba, þú ert besti pabbi í heimi. Þú stóðst alltaf með okkur í gegnum súrt og sætt og alveg sama hvað gekk á, þá varstu alltaf tilbúinn að hjálpa. Alltaf varstu tilbúinn að hvetja okkur áfram í því sem við vorum að gera og alltaf fengum við að finna skilyrðislausa ást frá þér og mömmu. Það sem ein- kenndi þig var góðmennska og hjálp- semi, þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa og lést alltaf alla aðra en sjálfan þig ganga fyrir. GYLFI HALLVARÐSSON ✝ Gylfi Hallvarðs-son fæddist á Litlu-Vegamótum á Seltjarnarnesi 13. ágúst 1937. Hann andaðist á Landspít- alanum við Hring- braut 12. nóvember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Dómkirkjunni 21. nóvember. Ein af mörgum minn- ingum er þegar við vor- um lítil, þá gerðir þú upp flottan gamaldags sleða þar sem einn sat á sæti og annar stóð fyrir aftan og ýtti honum áfram, þú lagðir mikið í hann, pússaðir og mál- aðir hann voða flott, sleðinn varð rosalega vinsæll í hverfinu og all- ir krakkarnir öfunduðu okkur af honum þó þeir ættu nýjustu og vinsæl- ustu sleðana á markað- inum. Og stundirnar sem maður ætlaði aðeins að koma við hjá þér og mömmu, þá kannski teygðist það upp í tvo tíma því maður var lentur á kjaftatörn við þig eða að spyrja þig ráða eða fá sögur hjá þér. Margar gleðiminningar á ég einmitt um það, er við erum að tala saman um allt og ekkert eða ég að spyrja þig ráða. Þú hafðir nefnilega alltaf góð ráð á reiðum höndum eða góða sögu. Þú varst góður í því að semja sögur og ljóð og ekki vantaði frásagnarhæfi- leikann, því alltaf þegar ég les sögur eftir þig sé ég allt fyrir mér og lifi mig inn í það. Og þú sást ótrúlegustu hluti úr umhverfinu og gast fengið mann til að horfa öðruvísi á hlutina með skemmtilegum og nákvæmum lýsing- um á manneskjum eða aðstæðum. Alltaf var stutt í húmorinn hjá þér og alveg fram á síðustu stundu þótt síð- asta ár hafi verið erfitt, og aldrei kvartaðir þú þó þú hafir þjáðst, þú vildir ekki vera að láta hafa neitt fyrir þér eða ónáða neinn. En nú er baráttunni lokið, ég sakna þín sárt og vildi fá meiri tíma með þér en er fegin að þjáningu þinni sé lokið, og held að þú sért að fylgjast með okkur og halda verndarhendi yfir okkur. Þangað til við hittumst aftur. Þín Magna Ósk. Elsku afi. Það var gaman að hafa þig. Þú ert besti afi minn, ég sakna þín mjög mikið. Stundirnar sem við vorum saman voru mjög skemmtileg- ar, t.d. þegar við fórum í lautarferð, upp í sumarbústað og til Akureyrar um verslunarmannahelgina. Það var mjög gaman á jólunum með þér þótt þú værir veikur, þú varst góður við alla í kringum þig. Ég lofa að passa sumarbústaðinn í staðinn fyrir þig. Ég veit að þú fylgist alltaf með mér. Þinn Gylfi Þór. Elsku Gylfi afi minn. Þú ert besti Gylfi afi minn í öllum heiminum. Ég sakna þín svo mikið. Ég held áfram að syngja fyrir þig, því ég veit að þú heyrir í mér og að þú heldur áfram að passa mig. Og ég skal passa sumarbú- staðinn vel fyrir þig, elsku afi minn. Þín Annarósa Ósk. Elsku afi. Það er erfitt að missa þig, allavega þegar ég er svona ung, þú varst besti afi á öllu jarðríkinu. Ég man til dæmis þegar þú og amma fór- uð með okkur í lautarferð á Selfoss, við tókum með okkur samlokur og gos til að narta í. Svo man ég líka eftir því að þið fóruð með okkur í útilegu til Akureyrar nokkrum sinnum. Stund- irnar sem við erum búin að vera sam- an eru svo skemmtilegar allar. Ekki síst þegar ég bjó alltaf til ljóð og sög- ur handa þér, þú varst svo hrifinn af þeim. Ég var líka alltaf hjá þér hérna heima þegar þú varst veikur. Það eina sem amma gerði var að hringja í mig, þá keyrði mamma mig til ykkar og þegar amma var farin og við vorum bara tvö heima, gafstu mér alltaf smá nammi. Síðan horfðum við saman á sjónvarpið. Við fórum líka svo oft upp í sumarbústað og höfðum það gott. Við systkinin vorum úti að leika okk- ur á meðan amma skar niður snúða og vínarbrauð, svo kom hún út og kallaði á okkur. Svo spiluðum við stundum. Núna er svo tómlegt allt, þegar við sváfum hjá ömmu sastu alltaf í stóln- um þínum en núna þegar við komum til ömmu er stóllinn tómur. Svo kom- um við alltaf inn til þín og buðum góða nótt en núna er plássið þitt autt, en við söknum þín alltaf og ég veit að þú fylgist vel með okkur. Þín Alda Hrönn. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minning- argreina
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.