Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 53

Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 53
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 53 ✝ Símon SigurjónÞorsteinsson fæddist í Vallarhús- um í Grindavík 7. júlí 1921. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 15. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þorsteinn Símonar- son, f. 24. júní 1892, Vallarhúsum í Grindavík, d. 5. apríl 1973, og Gróa Magn- úsína Magnúsdóttir, f. 8. september 1982, Akurhúsum í Grindavík, d. 3. september 1971. Systkini Símonar voru: Magnús, f. 22. nóvember 1919, d. 7. febr- úar 1937; Rósa, f. 14. desember 1926, d. 31. mars 1979; og Gunn- ar, f. 20. júlí 1929, d. 10. febrúar 1999. Hinn 31. desember 1955 gekk Símon að eiga Stefaníu Sigríði Guðlaugsdóttur, f. 24. júní 1921, frá Hópi í Grindavík, d. 22. apríl 1989. Foreldrar hennar voru Guðlaugur Guðjónsson frá Hópi í Grindavík og Guðmunda Guðna- dóttir frá Dísarstöðum í Sandvík- urhreppi. Börn Símonar og Stef- aníu eru: 1) Margrét Bergþóra, f. 6. mars 1952, gift Cheng Theng Pang og eiga þau eina dóttur, Helanu Geok Ling. 2) Hild- ur, f. 9. mars 1958, og á hún einn son, Davíð Þór. 3) Þor- steinn, f. 29. ágúst 1959, kvæntur Bryndísi S. Guð- brandsdóttur, og eiga þau þrjú börn, Rósu Dögg, Símon og Sindra Snæ. Fósturdóttir Símons og dóttir Stefaníu er Erla Björg Del- berts, f. 9. maí 1944, gift Jóni Nikulaisyni, og eiga þau þrjú börn, Guðlaug Örn, Stefaníu Sigríði og Kristjönu. Símon byrjaði til sjós á ferm- ingaraldri, byrjaði í Njarðvíkun- um sem háseti hjá Magnúsi í Höskuldarkoti. Hann tók skip- stjórapróf frá Stýrimannaskólan- um árið 1959. Var síðan skip- stjóri á ýmsum bátum frá Grindavík. Í nokkur ár sigldi hann einnig á fraktskipum sem bátsmaður. Einnig vann hann ýmis störf í landi svo sem við vél- smiðju og vaktmennsku í laxeldi. Útför Símons verður gerð frá Grindavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku pabbi og afi. Ennþá eigum við erfitt með að trúa því að þú sért farinn frá okkur. Þó svo að þú hefðir átt við veikindi að stríða í nokkur ár léstu það ekki stoppa þig, alltaf varst þú á ferð og flugi. Alltaf varst þú tilbúinn til að koma og laga allt hérna heima hjá okkur, það lék allt í höndunum á þér. Eitt skiptið vantaði mig borð og þú komst með þrjár útgáfur eftir miklar pælingar. Og þegar þú komst til Reykjavíkur gastu ekki stoppað of lengi því þú þurftir að gefa gæs- unum. Gæsirnar sem þú hugsaðir svo vel um, þær eiga eftir að sakna þín. Ég er mjög þakklát fyrir að Davíð sonur minn fékk að hafa þig svona lengi, hann var oft hjá þér og þú hérna hjá honum. Þú kenndir hon- um margt. Þú hefur afrekað mikið um ævina. Ég minnist þess þegar ég fór með þér að hitta eftirlifendur á banda- ríska strandgæsluskipinu Alexand- er Hamilton, skipinu sem þú tókst þátt í að bjarga árið 1942. Þá varst þú á Freyju GK. Við eigum eftir að sakna þín mjög mikið. Margt er að minnast, margt er þér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi. Hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Þín dóttir og dóttursonur Hildur og Davíð Þór. Elsku afi minn. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð (Þórunn Sig.) Þótt sárt sé að hugsa til þess að þú sért farinn þá vil ég þakka fyrir þann tíma sem ég fékk að hafa þig. Síðustu daga hef ég hugsað mikið um farinn veg og þegar ég hugsa til þín sé ég að þú hefur ekkert breyst í þau 25 ár sem ég þekkti þig. Á göml- um myndum ertu alltaf eins, hraust- ur, sterkur og alltaf á fullu. Þú varst þannig maður að þér leið best þegar nóg var að gera. Ég er afar þakklát fyrir að síðasta skiptið sem við vorum saman var við útskriftina mína. Það var mér mikils virði að þú gast komið og svo varstu svo fínn í skyrtunni sem Erla gaf þér. – Takk fyrir að hafa þótt svona ógurlega vænt um mig! Þú varst alltaf með ráð við öllum vanda, nú síðast að sjóða hangikjöt til að ná brunalyktinni úr húsinu. Mér þykir leitt að þú fékkst ekki kaffisopann sem við töluðum um í nýja húsinu mínu, en eitt vil ég að þú vitir að það er orðið rosa fínt hjá okkur og lyktin er öll farin. – Takk fyrir góð ráð! Skeifan er komin upp og hangir fallega í forstofunni, við setjum hina á hliðið um leið og búið verður að gera við það. Eitt verður skrítið, að senda ekki fleiri póstkort á Túngötuna, ég mun samt halda áfram að skrifa þér og senda þér það bara til himna. Það gefur mér ró í hjarta að vita að Guð og amma geyma þig, þar til við hittumst á ný. Ástarkveðjur. Þín Helena. Kæri afi. Þótt þú sért farinn burt úr þessum heimi mun ég ávallt geyma minningu þína í hjarta mér. Kristjana Jónsdóttir. SÍMON S. ÞORSTEINSSON ið um hana hjálpi ykkur til að takast á við sorgina. Sigríður Elín, Þorvarður, Guðmundur og Valdimar. Nú líður að aðventunni og skuggar myrkurs og jólaljósa spila sjónarspil sem er engu líkt. Þetta er sá tími er flestir fara að huga að jólum en þau færast ótrúlega nær, tíminn flýgur áfram. Eins er með mannsævina, hún er ótrúlega stutt, hún líður áfram eins og árstraumur og áður en við er litið er komið að kveðjustund. Í stundarheimi líður líf fyrr en lýði varir, sem hvirfilbylur um haf strúki, ljómi leiftur um loftboga. (Jón Ólafsson) Þannig var um Hönnu mágkonu mína, hún átti mikið eftir að gera, m.a. fylgjast með barnabörnunum komast á legg, en hún var aðeins 61 árs er hún lést. Hönnu mágkonu minni kynntist ég fyrst fyrir um tæplega 40 árum þegar Böðvar bróðir minn fór að vera með henni. Ég man ennþá þegar hún kom fyrst í heimsókn, ég var eitthvað að sýsla mér á stofugólfinu heima hjá okkur og komu þau þá í dyrnar. Síð- an giftu þau sig og eignuðust þrjár stúlkur, sem allar eru giftar eða í sambúð, Önnu Láru sem á fjóra drengi, Lilju sem á fjögur börn og Ír- isi. Bjuggum við í nágrenni við hvert annað í um tvo áratugi. Fór ég oft til Hönnu til að fá lánaðar bækur hjá henni en hún átti fullt af ævintýra- sögum sem ég las af mikilli elju öll ungdómsárin. Hönnu var margt til lista lagt, m.a. var hún mjög mikið fyrir tónlist og hlustaði á alls konar tónlist, hún átti gítar sem hún kunni að spila á en gaf sér ekki tíma til að rækta það eftir að húsmóðurstörfin tóku við. Einnig var hún með einhverja fallegustu rithönd sem ég hef séð. Hún og Böðvar bróðir minn störf- uðu nánast alltaf saman með fáeinum undartekningum, voru þau með garðrækt. Voru þau mjög vinnusöm og samhent í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur og voru búin að byggja sig vel upp bæði í véla- og geymslu- kosti. Hanna vann með mér smátíma þegar ég ásamt fleirum fór út í smá fyrirtækjarekstur. Var mikil liðs- styrkur að henni. Hún kom til móður minnar um áratugaskeið, hjálpaði og spjallaði við hana. Fyrir það ber að þakka. Hanna var ekki allra og var lítið fyrir að trana sér fram en þeir sem þekktu hana vissu að hún hafði hjarta úr gulli. Eitt af því síðasta sem hún ákvað var að gefa konu minni afmælisgjöf og fylgdi hún því eftir alveg fram á síðustu stundu. Fyrir um þremur árum fór hún að kenna sér þess meins sem nú hefur lagt hana að velli eftir hetjulega bar- áttu en hún var einstaklega hugrökk kona og barðist hetjulega til síðustu stundar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ég og fjölskylda mín sendum Bödda, dætrum og fjölskyldum þeirra, aldraðri móður, systkinum og öðrum vandamönnum og vinum inni- legustu samúðarkveðjur okkar. Blessuð sé minning hennar. Valdimar Sigurjónsson og fjölskylda. Þegar ég minnist Hönnu frænku minnar vill hugurinn reika til baka þegar ég ungur gerði fátt skemmti- legra en að fá að heimsækja frænd- fólk mitt austur í Stekkum. Gjarnan var farið með Steindórsrútunni og fór hún jafnan mikinn svo að í hvert skipti sem ég leit aftur sást aðeins þykkur rykmökkurinn og áleit ég þá að hann hlyti að ná milli Selfoss og Reykjavíkur óslitinn. Ég á í huga mér þá mynd þegar þær systur Hanna, Lilly og vinkonan og fóstur- systir þeirra Bíbí voru úti á túni snú- andi ilmandi töðunni og þegar ég hafði gengið heimdragann, heilsað Önnu móðursystur minni og Lárusi, henti ég frá mér töskunni, hljóp út á túnið með hrífustubb og reyndi að fylgja þeim stöllum eftir en hafði ekki erindi sem erfiði. Ég man hve vel fór á með þeim og hve fimlega þær unnu sitt verk og brátt fékk tún- ið á sig nýtt munstur. Gjarnan finnst mér hafi verið talað um þær systur Hönnu og Lillý í sömu andránni. Þær voru á líkum aldri þá táningsstúlkur í blóma lífsins heillaðar af rokktónlist- inni sem þá var að hellast yfir heim- inn. Þær fylgdust vel með og kæmi út ný plata var hún komin á fóninn í Stekkum. Hanna ásamt Lillý og Dodda bróð- ur þeirra urðu fyrir föðurmissi ung að árum er Guðmundur faðir þeirra lést úr sjúkdómi en fyrir þrautseigju og dugnað Önnu móður þeirra var haldið áfram með liðsinni Lárusar sem kom á heimilið og varð síðar eig- inmaður Önnu og gekk þeim systk- inum í föðurstað og reyndist hinn besti faðir. Anna og Lárus eignuðust síðar þá Guðmund og Valdimar og systkinahópurinn stækkaði og ærslin og fjörið einnig. Hestamennska hef- ur alltaf verið mikil í Stekkum því bæði Guðmundur og Lárus voru ann- álaðir hestamenn. Hanna eignaðist ung mikinn gæðing sem Hetja hét. Var þessi hryssa fjörviljug með mik- inn kostagang og síðar varð megin- stofn hrossanna í Stekkum kominn út frá þessari gæðingshryssu. Mikið öfundaði ég Hönnu af þessu hrossi og öllu því umtali sem hryssan fékk. Hanna var sjálf hesthneigð og lagin hestakona. Á kyrrlátum kvöldum heyrðist vel til tónspils sjávarins úr fjöru Eyrar- bakka og fleira en tónar barst með kvöldgolunni því eftirlifandi mann sinn, Böðvar Sigurjónsson, fann Hanna á Eyrarbakka. Samband þeirra var einstaklega fallegt og bar góðan ávöxt í þremur myndardætr- um sem hafa ásamt eiginmönnum og börnum staðið þétt við hlið foreldra sinna. Böðvar og Hanna störfuðu nánast eingöngu með eigin rekstur, þ.e. garðrækt af margvíslegu tagi, og fórst þeim það einkar vel því dugn- aður þeirra og forsjá var mikil. Skap- lag Hönnu var einstakt því frá henni stafaði svo mikil hlýja og virðing til fólks. Heimsókn til þeirra á Eyrar- bakka var mikið gefandi og ekki að- eins í miklum myndarskap þegar heimabökuðu krásirnar héldu matar- borðinu þétt við jörð heldur einnig í fræðandi samræðum við þau hjón um heima og geima. Ótímabær sjúkdómur birtist sem Hanna tókst á við af æðruleysi og þrautseigju. Þegar ég heimsótti Hönnu á Landspítalann í október- mánuði var enn til staðar þessi geisl- andi persónuleiki síkvikur, unglegur líkt og þegar ég sá hana snúa heyinu forðum daga með systur og vinkonu. Böðvari og dætrum og öðrum að- standendum votta ég mína dýpstu samúð. Hvað verður fegra fundið en friður og rósamt geð, angur úr huga hrundið, hjartað glaðvært þar með, innbyrðis elskan hreina með æru í hverjum stað? Heims eftirlætið eina eflaust dæmi ég það. (Hallgr. Pét.) Þormar Ingimarsson. Elsku amma. Ég ætlaði segja frá öllum góðu stundunum sem við átt- um saman en reyndar eru þær svo margar að það væri hægt að skrifa heila bók um það. Ég held að í hvert einasta skipti sem ég fór til þín höfum við spilað og áttum alltaf frábærar stundir. Þú varst til í allt, t.d. horfa á mig keppa í fótbolta eða fylgjast með mér spila á trommurnar, og eins þegar ég lék á árshátíðinni í skólanum. Ég held ég hafi aldrei hitt jafn duglega mann- eskju og þig, t.d. þegar þú varst að taka upp rófurnar og vildir hjálpa til við allt. Svo greindist þú með krabba- mein og varðst stundum mikið veik og þurftir að vera mikið á sjúkrahúsi. Ég á aldrei eftir að gleyma þér. Guð blessi þig. Magnús. Elsku amma. Nú þegar þú ert fall- in frá standa eftir minningarnar um þig og þær stundir sem við áttum saman. Þótt þú hafir verið mikið veik undir það síðasta mun ég alltaf minn- ast þín sem sterkrar og gríðarlega duglegrar konu, en umfram allt gáf- aðrar. Þú fylgdist vel með öllum mál- efnum og var því hægt að tala um allt milli himins og jarðar við þig. Sner- ust samræður okkar oftar en ekki um íþróttir og tónlist. Einnig minnist ég samveru okkar í þau ótal skipti sem ég var hjá ykkur afa. Notaði ég þá hvert tækifæri þegar frí var í skól- anum til að heimsækja ykkur, hvort sem um var að ræða jólafrí, sumarfrí eða bara helgarfrí. Þar var stjanað við mig og þótt oft væri mikið að gera í búskapnum hafðir þú alltaf tíma til að spila og spjalla. Það er mér mikils virði hversu vel þú fylgdist með mér í leik og starfi og hvattir til dáða. Er það mér minnisstætt þegar þú komst að horfa á mig spila fótbolta þegar ég var yngri. Elsku amma, ég kveð þig með söknuði, en gleðst um leið yfir þeim tíma sem við áttum saman. Elsku afi, ég bið guð að styrkja þig og hugga í sorg þinni. Böðvar Einarsson. Amma okkar á Bakkanum gaf sér alltaf tíma til að vera með okkur að spila og gerði allt sem við báðum hana um. Við máttum t.d. ráða hvað væri í matinn og hún unni okkur mjög heitt eins og við unnum henni. Þegar við spiluðum með henni gaf hún okkur súkkulaði og nammi. Hún horfði með okkur á Dalalíf og Stellu í orlofi. Þegar við vorum í heimsókn sat hún stundum með afa og las, hlustaði á útvarpið og prjónaði handa okkur barnabörnunum. Ég sakna ömmu rosalega mikið og ég veit að hún fylgist með okkur af himnum ofan, þar sem hún hefur það betra, því hún var mikið veik. Haraldur og Hanna. Árið 1973 stofnaði ég ásamt tveim- ur vinum mínum fyrirtækið Einars- höfn hf. á Eyrarbakka. Við gerðum út einn bát og keyptum afla af tveim- ur til þremur öðrum bátum. Aflinn var verkaður í salt, skreið, harðfisk, settur í gáma til útflutnings o.s.frv. Tækin voru frumstæð í fyrstu. Flatt var í höndum og flakað. Við leituðum að fólki til starfa og meðal þeirra fyrstu, sem hófu störf hjá okkur voru ung hjón Böðvar Sigurjónsson og Valgerður Hanna Guðmundsdóttir, Böddi og Hanna eins við kölluðum þau. Þarna kom til starfa auk þeirra 15–20 manna kjarni, sem vann sam- an í nokkur ár oft langan og erfiðan vinnudag. Kaffistofan var lítil og þröng og kannski þess vegna mynd- aðist einstök stemmning, mikið var hlegið og margar sögur flugu. Hanna tók þátt í þessu öllu, en með nokkrum öðrum hætti en aðrir, hún hafði sig ekki mikið í frammi í galsanum, var ætíð hin rólega og yfirvegaða kona. Hanna var sérlega samviskusöm dugleg og vandvirk. Hún var einstak- lega flinkur starfsmaður og vann öll verk með glæsibrag. Hanna hafði einhvern þann sjarma að fyrir henni var borin sérstök virðing. Þessum góða hópi starfsmanna stjórnaði lengst af sérlega vandaður maður Fryólf Nilsen, sem einnig er fallinn frá langt um aldur fram. Böddi og Hanna hafa alla tíð stundað garðyrkju á sumrin með sömu vandvirkni og samviskusemi, sem einkenndi öll þeirra störf. Það voru ógnvænleg tíðindi, þegar frétt- ist að Hanna hefði greinst með þann voðalega sjúkdóm, sem nú hefur kall- að hana til feðra sinna. Það var mér undrunarefni með hve miklu æðru- leysi þau hjónin tóku þessari váfrétt. Ég og fjölskylda mín vottum Böðv- ari, dætrunum og öðrum í fjölskyld- unni okkar innilegustu samúð. Bless- uð sé minning hennar. Jón Bjarni. MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudagana, frá þriðjudegi til sunnudags. Greinunum er hægt að skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist), á disklingi eða í vélrituðu hand- riti. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Bréfsími fyrir afmælis- minningargreinar er 569 1115. Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaupvangs- stræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Ef birta á minningargrein á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi) verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dög- um fyrr.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.