Morgunblaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 61
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 61
afsláttur
25%
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
7
9
2
4
/
s
ia
.is
Til að fá hið eina sanna jólabragð í baksturinn
dugar ekkert annað en ekta íslenskt smjör.
Smjörið laðar fram það besta í bakstrinum og
gerir kökurnar að ómótstæðilegri freistingu.
Bakaðu þér
vinsældir!
Nú er jólasmjör á tilboði í næstu verslun
MEÐ þessari grein vil ég vekja at-
hygli á slæmri stöðu atvinnulausra á
Íslandi. Samkvæmt upplýsingum
heimasíðu Vinnumálastofnunar eru
um 4.600 manns atvinnulausir og
þeim fer fjölgandi milli mánaða.
Þessir einstaklingar búa við ömur-
legt hlutskipti.
Allt frá því að stjórnvöld gerðu
breytingar á kjörum atvinnulausra
árið 1995 hafa atvinnuleysisbætur
lækkað verulega miðað við almenna
launaþróun í landinu. Í lögum um at-
vinnuleysistryggingar sem tóku gildi
árið 1981 og giltu til ársins 1993 voru
atvinnuleysisbætur miðaðar við dag-
vinnulaun fiskvinnslufólks. Þetta
viðmið var afnumið með lögum sem
tóku gildi árið 1995. Ef notað væri
sama viðmið og gert var árið 1993,
væru fullar atvinnuleysisbætur í dag
kr. 88.351,- á mánuði. Þær eru hins
vegar kr. 73.765,- eða tæplega 20%
lægri. Hefðu atvinnuleysisbætur
hins vegar tekið mið af launavístölu
sem var í ársbyrjun 1997, 148,8 stig
og í september 2002, 227,2 stig hefði
hækkun atvinnuleysisbóta orðið um
53%. Fullar atvinnuleysisbætur í
janúar 1997 voru kr. 53.785,- og
væru í dag um kr. 82.000,- hefðu þær
fylgt launavísitölu. Þá má geta þess
að umsamin lágmarkslaun í dag fyrir
fulla dagvinnu á mánuði eru kr.
90.000,- samkvæmt kjarasamningi
Starfsgreinasambands Íslands og
Samtaka atvinnulífsins.
Þessar tölur sýna okkur að kjör
atvinnulausra hafa versnað verulega
á síðustu árum og eru langt undir því
marki sem viðunandi getur talist og
ekki í neinu samræmi við þá velferð-
arhugsun sem eðlileg er í landi sem
telst til ríkari þjóða heims. Þjóðfélag
sem samþykkir að leggja allt að 300
milljónir í hernaðarbrölt á vegum
Nató, á sama tíma og þeim einstak-
lingum sem missa sitt lífsviðurværi
er ætlað að lifa af um 73.000 krónum
á mánuði, er á villigötum. Rétt er að
geta þess að hér er verið að tala um
fullar bætur. Atvinnuleysisbætur
taka jafnan mið af vinnuframlagi sl.
tólf mánuði og því eru fjölmargir
með skertar atvinnuleysisbætur.
Það er eðlileg krafa að atvinnu-
leysisbætur verði þegar í stað hækk-
aðar verulega og taki mið af því sem
þær væru í dag hefði gamla reglan
um viðmið verið látin halda sér.
Afleiðingar stefnu stjórnvalda í
málefnum atvinnulausra eru mjög
sýnilegar í þjóðfélaginu. Fátækt hef-
ur stóraukist, sífellt fleiri þurfa á fé-
lagslegri aðstoð að halda og prestar
og góðgerðarsamtök hafa bent á þá
miklu neyð sem ríkir hjá fólki með
lága framfærslu. Því miður eru
dæmi um að stjórnmálamenn hafi
gert lítið úr þessum alvarlega vanda.
Slíkum mönnum ber að fyrirgefa því
þeir vita ekki um hvað þeir eru að
tala. Hins vegar vitum við það sem
störfum í verkalýðshreyfingunni og
erum í daglegu sambandi við þessa
einstaklinga.
Það hefur verið ánægjulegt að
fylgjast með baráttu aldraðra og ör-
yrka fyrir bættum kjörum sem eftir
mikla baráttu er nú að skila árangri
því stjórnvöld og Landssamband
eldri borgara hafa gengið frá sam-
komulagi þess efnis. Ljóst er að eitt
af forgangsverkefnum verkalýðs-
hreyfingarinnar næstu vikurnar
verður að krefja stjórnvöld um að at-
vinnuleysisbætur taki sambæri-
legum hækkunum og orðið hafa á
lágmarkslaunum síðustu ár.
Í lokin skora ég á stjórnvöld að
taka málið þegar til umræðu með
það að markmiði að hækka atvinnu-
leysisbætur sem eru þær lægstu sem
þekkjast meðal þeirra þjóða sem
eðlilegt hlýtur að bera sig saman við.
Hvað með atvinnulausa?
Eftir Aðalstein Á.
Baldursson
„Fátækt
hefur stór-
aukist, sí-
fellt fleiri
þurfa á fé-
lagslegri aðstoð að
halda.“
Höfundur er formaður Verkalýðs-
félags Húsavíkur.
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum