Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 67
MESSUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 67
Hleinum 13.40 og til baka að lokinni at-
höfn. Allir velkomnir. Prestarnir.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskóli kl.
11.00 í sal Álftanesskóla. Ásgeir Páll og
Kristjana stjórna. Rúta ekur hringinn fyrir
og eftir. Foreldrar eru hvattir til að fylgja
börnum sínum og efla þau í kirkjustarfinu.
Prestarnir.
BESSASTAÐAKIRKJA: Aðventusamkoma
safnaðarins verður hátíðleg haldin í kirkj-
unni kl. 17.00. Ath. breyttan tíma. Álft-
aneskórinn og Skólakór Álftanesskóla
syngja. Elísabet Waage leikur á hörpu og
Hrönn Helgadóttir á orgel. Nývígður djákni
safnaðarins, Hólmfríður Margrét Konráðs-
dóttir, flytur hugleiðingu. Sr. Friðrik J. Hjart-
ar og sr. Hans Markús Hafsteinsson ann-
ast upplestur. Allir velkomnir. Prestarnir.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl.11:00. Guðsþjónusta kl. 14:00.
Prestur: sr. Hjörtur Hjartarson. Organisti:
Örn Falkner. Kór Grindavíkurkirkju leiðir
safnaðarsöng. Sóknarnefnd.
HVALSNESKIRKJA Föstudagurinn 29.
nóvember. Miðhús: helgistund kl. 12.
Boðið upp á léttan hádegisverð gegn
vægu gjaldi. Allir velkomnir. Laugardag-
urinn 30. nóvember. Safnaðarheimilið í
Sandgerði Kirkjuskólinn kl. 11 Allir vel-
komnir. Sunnudagurinn 1. desember:
Hvalsneskirkja. Fyrsti sunnudagur í jóla-
föstu. Fullveldisdagurinn. Guðsþjónusta
kl. 11. Afkomendur Guðrúnar Guðmunds-
dóttur og Guðmundar Guðmundssonar frá
Bala gefa gjafir til Hvalsneskirkju. Ferm-
ingarbörn taka þátt í guðsþjónustunni.
Kirkjukór Hvalsneskirkju syngur. Organisti
Steinar Guðmundsson. Sóknarprestur
Björn Sveinn Björnsson
ÚTSKÁLAKIRKJA: Laugardagurinn 30.
nóvember. Safnaðarheimilið Sæborg.
Kirkjuskólinn kl. 14. Allir velkomnir.
Sunnudagurinn 1. desember. Fyrsti
sunnudagur í jólaföstu. Fullveldisdag-
urinn. Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjudagur
kvenfélagsins Gefnar í Garði. Kvenfélags-
konur annast ritningarlestra. Ferming-
arbörn taka þátt í guðsþjónustunni. Kirkju-
kór Útskálakirkju syngur. Organisti Steinar
Guðmundsson Að guðsþjónustunni lokinni
standa kvenfélagskonur fyrir basar í safn-
aðarheimilinu Sæborgu. Garðvangur.
Helgistund kl 15:30. Alfa-námskeið eru
haldin í Safnaðarheimilinu Sæborgu á
miðvikudagskvöldum kl. 19. Sókn-
arprestur Björn Sveinn Björnsson. Ytri-
Njarðvíkurkirkja. Messa (altarisganga)
sunnudaginn 1. desember kl. 13.30.
Prestur sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Kór
kirkjunnar syngur undir stjórn Natalía
Chow organista. AA-félagi flytur reynslu-
sögu.Allir hjartanlega velkomnir að fagna
komu nýs kirkjuárs. Sunnudagaskóli
sunnudaginn 1. desember kl.11. Umsjón
Ástríður Helga Sigurðardóttir, sr. Kristín
Þórunn Tómasdóttir og Natalía Chow org-
anisti. Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík).
Sunnudagaskóli sunnudaginn 1. desem-
ber kl. 11. Umsjón Petrína Sigurðardóttir,
Katla Ólafsdóttir og Arngerður María Árna-
dóttir organisti.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Aldursskiptur
sunnudagaskóli kl. 11 árd. Starfsfólk
sunnudagaskólans er: Arnhildur H. Arn-
björnsdóttir, Guðrún Soffía Gísladóttir,
Laufey Gísladóttir, Margrét H. Halldórs-
dóttir, Samúel Ingimarsson og undirleikari
í sunnudagaskóla er Helgi Már Hann-
esson. Guðsþjónusta kl. 14. Börn borin til
skírnar. Prestur: sr. Ólafur Oddur Jónsson.
Ræðuefni: Ríki Guðs, þar sem upp snýr
niður! Kór Keflavíkurkirkju syngur. Org-
anisti og stjórnandi: Hákon Leifsson. Með-
hjálpari: Björgvin Skarphéðinsson. Að-
ventutónleikar Kórs Keflavíkurkirkju
kl.20.30. Organisti og stjórnandi: Hákon
Leifsson. Kórinn syngur m.a. Nú kemur
heimsins hjálparráð, Kom þú kom vor
Immanúel, Ave verum corpus e. Mozart,
Leið mig Guð eftir Wesley, Á dimmri nóttu
bárust boð. Söfnður syngur ásamt kór
Nóttin var sú ágæt ein og Heims um ból.
Bylgja Dís Gunnarsdóttir og Guðmundur
Sigurðsson syngja dúett. Hjálmar Árna-
son, alþingismaður, flytur ræðu.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. Sunnu-
dagaskóli fyrir börn á sama tíma. Léttur
hádegisverður í safnaðarheimilinu á eftir.
Guðsþjónusta á Ljósheimum. Guðsþjón-
usta á heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Laugardagur: Aðventuvaka í kirkjunni kl.
18. Kl. 10-16 kveikt á ljósum í Selfoss-
kirkjugarði. Rafvirkjar aðstoða. Athygli er
vakin á messu-kynningu í Útvarpi Suður-
lands á laugardögum kl. 13 á FM105,1 og
96,3. Foreldramorgnar á hverjum mið-
vikudegi. Morguntíð í kirkjunni þriðjudaga
til föstudaga kl. 10. Kaffisopi á eftir. Kálfa-
tjarnarsókn Kirkjuskóli laugardaginn 30.
nóvember kl. 11:15 í Stóru-Vogaskóla. Að-
ventukvöld sunnudaginn 1. desember kl.
17 í Kálfatjarnarkirkju. Sr. Carlos Ferrer.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11.
Aðventustund kl. 17. Söngfélag Þorláks-
hafnar undir stjórn Julians Isaaks. Hug-
vekja Ingólfur Guðmundsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Kl. 11 sunnu-
dagaskólinn. Tónlistarnemandi leikur jóla-
lag, barn borið til skírnar. Kl. 20 aðventu-
kvöld, kór safnaðarins syngur aðventu og
jólalög undir stjórn Jörgs Sondermann.
Einsöngur Jón Hólm. Ræðumaður kvölds-
ins er presturinn Kristján Valur Ingólfsson.
Fermingarbörn lesa ritningalestra og flytja
helgileik undir stjórn sóknarprests og Hjör-
dísar Jakobsdóttur. Ávarp flytur Bára Frið-
riksdóttir.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Messa kl.
11 (ekki kl. 14 eins og auglýst var í Bú-
kollu). Stúlknakórinn Hekla (eldri hópur)
syngur við messuna. Orgelleikari Nína
María Morávek. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 14. Skálholtskórinn syngur. Sókn-
arprestur.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: aðventukvöld fyrir
allt prestakallið sunnudag kl. 20.30 og
hefst það á orgelvígslu. Kirkjukór og
barnakór syngja. Helgileikur ferming-
arbarna við flautuleik Söndru Guðjóns-
dóttur. Lúsíusöngur nemenda Þelamerk-
urskóla. Hátíðarræðu flytur Hjördís
Sigursteinsdóttir, oddviti. Helgistund.
GLERÁRKIRKJA: Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Fyrsta aðventukertið tendrað.
Barnakór kirkjunnar syngur og leiðir söng.
Ósk ræðir við börnin. Foreldrar, afar og
ömmur eru hvött til að fjölmenna með
börnum sínum. Ath. Fundur æskulýðs-
félagsins kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnu-
dagur: Kl. 11 sunnudagaskóli. Kl. 19.30
bæn, kl. 20 almenn samkoma. Erlingur
Níelsson talar. Mánudagur: Kl. 15 heim-
ilasamband (fyrir konur). Allir velkomnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN á Akureyri: Laug-
ardaginn 30. nóv. verður samkoma kl.
20:30. Gunnar Þorsteinsson í Krossinum
mun predika og lofgjörðarhópur Krossins
sér um tónlistina. Allir eru velkomnir með-
an húsrúm leyfir. Sunnudaginn 1. desem-
ber er sunnudagaskóli fjölskyldunnar kl.
11:30. Fjalar Freyr Einarsson sér um
kennsluna. Á meðan fer fram skemmtilegt
barnastarf sem er skipt í hópa eftir aldri.
Síðan verður vitnisburðar-samkoma kl
16:30. Fjölbreytt lofgjörð og fyr-
irbænaþjónusta, einnig verður barnapöss-
un fyrir börn undir sjö ára aldri. Allir eru
hjartanlega velkomnir. Á fimmtudögum
eru bænastundir kl. 20:00 Einnig eru
Bænastundir alla virka daga klukkan 7:00
að morgni og í hádeginu kl. 12:30
STÆRRA-ÁRSKÓGSKIRKJA: Lauf-
ássprestakall, Svalbarðskirkja: Kirkjuskóli
laugardaginn 30. nóv. kl. 11. Kyrrðarstund
sunnudagskvöldið 1. des. kl. 21. Grenivík-
urkirkja: Kirkjuskóli laugardaginn 30. nóv.
kl. 13.30. Grenilundur: Guðsþjónusta
sunnudaginn 1. des. kl. 16. Prestssetrið
Laufási: Opið hús mánudagskvöldið 2.
des. kl. 20.30 fyrir þau sóknarbörn sem
vilja ræða um sannan jólaundirbúning,
Sóknarprestur.
HRÍSEYJARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Aðventukvöld kl. 19.30. Ath. tíma-
setningu. Egilsstaðakirkja. Guðsþjónusta
kl. 11. Barnakórinn leiðir sönginn. Ung-
lingastarf kl. 20-22. 2. des. (mánud.)
Kyrrðarstund kl. 18. Kl. 20 Uppbygging-
arstund með lofgjörð og umjöllun um bæn-
ina. Sóknarprestur. Vallneskirkja. Aðven-
tuhátíð Vallanes- og Þingmúlasóknar kl.
16:30. Fjölbreytt dagskrá, m.a. syngur kór
Vallanes- og Þingmúlasóknar og börn
syngja og leika, jólasaga flutt og Sigríður
Eir Zóphóníasdóttir syngur einsöng. Sókn-
arprestur.
EIÐAPRESTAKALL: Bakkagerðiskirkja.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Kirkjubæj-
arkirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.
Fimmtudagur 5. desember kl 20.30.
Kirkjumiðstöðin Eiðum: Eiða-og Hjalta-
staðarsókna. Súkkulaði og smákökur á
eftir. Allir velkomnir. Sóknarprestur.
KIRKJUBÆJARKLAUSTURSPRESTAKALL
Prestsbakkakirkja á Síðu: Kl. 14:00 Að-
ventuhátíð – Fullveldisdagurinn. Við ætl-
um að koma saman í kirkjunni okkar og
njóta þess að eiga þar stund saman við
upphaf aðventu og fagna nýju kirkjuári.
Börn úr leikskólanum Kærabæ munu
syngja nokkur lög af hjartans list. Sömu-
leiðis hefur kirkjukórinn verið að æfa nokk-
ur ný og gömul jólalög undir stjórn Krist-
ófers Sigurðssonar organista.
Ræðumaður verður frú Ólafía Jak-
obsdóttir, fyrrv. sveitarstjóri. Ferming-
ardrengir munu lesa jólasögu og fara með
bænir með presti. Hátíðinni lýkur í skól-
anum þar sem kirkjukórinn verður með sitt
glæsilega kaffihlaðborð til styrktar kór-
starfinu. Hjúkrunar- og dvalarheimilið
Klausturhólar (7. des): Kl. 14:30 Helgi-
stund. Sungin verða lög tengd aðventunni.
Sr. Baldur Gautur Baldursson.
„Ég ætla að verða
söngkona þegar
ég verð stór.“
-það er kaffið!
Magnea Herborg er 7 ára.
Hún fæddist með sjaldgæft efna -
skipta frávik sem kallast PKU.
Með aðstoð sérhæfðra heil -
brigðis starfs manna og strangri
forskrift um matar æði nýtur hún
lífsins eins og önnur börn.
Undanfarin ár hefur Gevalia kaffi lagt milljónir króna til félags-
og góð gerðar mála. Í ár leggjum við okkar af mörkum til að
styrkja Umhyggju, félag til stuðnings langveikum börnum,
til að opna þjónustumiðstöð fyrir foreldra og systkini.
Þegar þú kaupir pakka af Gevalia kaffi renna 15 krónur
til þessa verkefnis.
Sýnum umhyggju í verki um jólin.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
RY
D
1
91
94
11
/2
00
2