Morgunblaðið - 30.11.2002, Side 76
FÓLK Í FRÉTTUM
76 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Gusgus
Attention
Underwater
Gusgus eru, eins og þau kalla sig á um-
slaginu, Earth, Buckmaster, Biggi veira
og President Bongo. Lög eftir gusgus
nema „Desire“ eftir Daníel Ágúst og gus-
gus og „Call of the wild“ eftir Jimi Tenor.
Upptökur og stjórn í höndum gusgus.
GUSGUS hefur nú snúið aftur eft-
ir nokkurt hlé, að vísu í breyttri og
fámennari mynd
en tvíefld að dans-
krafti. Það eru ein
þrjú ár síðan This
is Normal kom út
og áherslurnar
hafa breyst, lögin
ekki eins „stíliser-
uð“ og (of)unnin heldur er farið niður
í grunnþættina og hlutirnir skornir
niður . Einhvers staðar heyrði ég
það að þegar gusgus var „fjöllista-
hópur“ þurfti oft að púsla saman
lagabútum og tillögum frá meðlim-
um í eitt lag en nú þegar færri væru
um hlutina væri ferlið einfaldara og
lögin í heild sinni unnin frá grunni.
Hvað sem því líður, hljóma lögin á
þessari plötu meira blátt áfram og
útsetningarnar beinskeyttari. Að
vissu leyti er horfið aftur til þeirra
tíma þegar danstónlistin var aðal-
málið nema hvað nú blandast líka
nokkur „eitískeimur“ við.
Platan getur varla byrjað sterkar
en á „Unnecessary“, frábærlega
grípandi lagi með ómótstæðilegum
takti og æpandi gítarvæli sem hljóm-
ar eins og út úr öðrum tíma (les:
áttatíu og eitthvað). Sálarfull og
svört rödd Urðar, nýju söngkonunn-
ar, dáleiðir mann líka með sér.
Snilldardiskóið heldur áfram með
„David“ og ef glaðhlakkalegt hljóm-
borðsstefið þar fær mann ekki til að
fórna höndum og dilla sér í dansgleði
gerir ekkert það. Daníel Ágúst á inn-
komu á diskinum með laginu „Des-
ire“, flóknari taktpælingar þar og
boðið upp á ýmsar beygjur sem hæfa
leikrænni rödd hans vel, yfirbragðið
hér er allt meira í ætt við „gamla
gusið“.
Eftir þetta diskóstuð er skipt
nokkuð um svip og í stað stuðviðlag-
anna kemur hreinni teknótrans og
línulegri lagasmíðar, keyrt á takt-
grunnum og endurtekningum. Oft
vel heppnað, t.d. „Dance you down“
þar sem kuldalegur og óbilandi dans-
takturinn minnir jafnvel á elsta efnið
með New Order, einhver endurlits-
keimur af þessu. Á disknum er líka
að finna lag eftir hinn finnska Jimi
Tenor sem Urður syngur, „Call of
the wild“ og er eftirminnilegt fyrir
sérkennilega ójarðneska hljóma og
smágerðan takt. Urði tekst sérstak-
lega vel upp í lokalaginu „Don’t hide
what you feel“, syngur á sínum eigin
tíma yfir seiðandi trommu- og tölvu-
takti, verulega flott og fengur að
henni í sveitina. Í þessu tæknivædda
hljóðumhverfi kemur rödd hennar
inn með lífræna og tilfinningaríka
vídd sem gefur lögunum meira líf
fyrir bragðið.
Þótt ekki nái öll lögin hér að hefja
sig upp úr taktvirkinu og verði lang-
dregin, þá er heildarsvipurinn nokk-
uð sterkur. Gusgus tekst að koma
fólki strax á hreyfingu og halda því
svo áfram við efnið og ekkert því til
fyrirstöðu að byrja sólarhringspartí-
ið.
Steinunn Haraldsdóttir
Tónlist
24 stunda
partífólk
Þótt fámennari sé hefur gusgus snúið aftur tvíefld að danskrafti, segir í umsögn um plötuna Attention.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
"Grettissaga er stórkostleg leikhúsupplifun."
S.S og L.P. Rás 2
Grettissaga saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu
lau 7. des kl. 20, laus sæti, þri 17. des, uppselt, sun 29. des kl. 20, laus sæti
Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur
sun 1. des, uppselt, mið 4. des, nokkur sæti, fim 5. des, örfá sæti, föst 6. des, örfá sæti,
mið 11. des, Félagsheimilinu Klifi, ÓLAFSVÍK, föst 13. des, LOKASÝNING FYRIR JÓL.
Sýningarnar á Sellófon hefjast kl 21.00
Stóra svið
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Su 1/12 kl. 20,
Fö 6/12 kl 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 1/12 kl 14,
Lau 7/12 kl 20 ATH: Kvöldsýning
Su 8/12 kl 14,
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fi 5. des kl 20 - AUKASÝNING
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Í kvöld kl 20
ATHUGIÐ ALLRA SÍÐASTA SÝNING
Nýja svið
Þriðja hæðin
Litla svið
Forsalur
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
HERPINGUR e. Auði Haralds og
HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason
í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA
Lau 28/12 kl 20
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Í dag kl 16:30, Mi 4/12 kl 20
ATH: Breyttan sýningartíma
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Í kvöld kl. 20, Lau 7. des kl 20
AÐ BREYTAST Í SVAN
Umræðukvöld um gildi þess að breyta um stefnu og
blómstra á óvæntan hátt
Frummælendur: Ásdís Þórhallsdóttir, leikstjóri,
Guðrún Ögmundsdóttir alþigismaður,
Jón Björnsson, sálfræðingur,
Sigurdór Halldórsson, sjómaður
Má 2/12 kl 20:00
SÓL & MÁNI Nýr íslenskur söngleikur
eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR TILBOÐSVERÐ KR. 2.800 GILDIR TIL JÓLA
Frumsýning 11. janúar
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA! - BORGARLEIKHÚSIÐ - FJÖLSKYLDUVÆNT LEIKHÚS
Börn, 12 ára og yngri, fá frítt í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum.
(Gildir ekki á söngleiki og barnasýningar).
EINARS BEN HÓPURINN:
Jólakaffi í Borgarleikhúsinu með Einari Ben, Mozart,
Matthíasi Jochumssyni, Gísla á Uppsölum ofl.
Umsjón: Guðrún Ásmundsdóttir, Eyvindur Erlendsson
Su 1 des kl. 16:30 Aðgangseyrir kr. 1.500
Smurbrauðsverður innifalinn
Miðasala Iðnó í síma 562 9700
Hin smyrjandi jómfrú
sýnt í Iðnó
4.-5. sýn. sun. 1. des. kl. 15 og 20
6. sýn. lau. 7. des. kl. 20
7.-8. sýn. sun. 8. des. kl. 15 og 20Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir
sýningar. Sími 562 9700
Munið gjafakortin!
Lau. 30/11 kl. 21 Nokkur sæti
Fim. 5/12 kl. 21 Nokkur sæti
Fös. 6/12 kl. 21 50. sýning - Uppselt
Fös. 13/12 kl. 21 Nokkur sæti,
síðasta sinn fyrir jól
Veisla í Vesturporti!
..ef ykkur langar til að eiga stund
þar sem þið getið velst um af
hlátri, ekki missa af þessari leiksýn-
ingu... (SA, Mbl.)
sun. 1. des. kl. 21.00 Uppselt
fös. 6. des. kl. 21.00
Örfáar sýningar eftir
Vesturport, Vesturgata 18
Miðasala í Loftkastalanum,
Sími 552 3000
loftkastalinn@simnet.is
www.senan.is
9. sýn. sun. 1. des. kl. 14 örfá sæti
10. sýn. lau. 7. des. kl. 14. laus
sæti
JÓLARÓSIR
SNUÐRU OG TUÐRU
eftir Iðunni Steinsdóttur
Lau. 30. nóv. kl. 13 og 16 uppselt
Sun. 1. des. kl. 14. nokkur sæti
Mið. 4. des. kl. 10 og 13.30 uppselt
Fim. 5. des. kl. 10.30 uppselt
Fös. 6. des. kl. 10. uppselt
Lau. 7. des kl. 13 og 15.15 uppselt
Sun. 8. des. kl. 14. laus sæti
HVAR ER STEKKJARSTAUR?
eftir Pétur Eggerz
Sun. 1. des kl. 16 laus sæti
Þri. 3. des. kl. 10 og 14 uppselt
Fim. 5. des. kl. 14 uppselt
Mið. 11. des. kl. 10 uppselt
Miðaverð kr. 1.100.
Netfang: ml@islandia.is
ww.islandia.is/ml
Lau. 30. nóv. kl. 20.30 UPPSELT
Sun. 1. des. kl. 20.30
Fim. 5. des. kl. 20.30
Leikfélag
Mosfellssveitar
Beðið eftir
Go.com air
í Bæjarleikhúsinu,
við Þverholt
9. sýn. föstudag 29. nóv. kl. 20
10. sýn. laugardag 30. nóv. kl. 20
Síðustu sýningar
Miðapantanir í síma 566 7788
Miðasala opnuð 2 tímum fyrir sýningu
Kíktu á www.leiklist.is