Morgunblaðið - 08.12.2002, Page 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AÐVENTUTÓNLEIKAR Sinfón-
íuhljómsveitar Norðurlands verða
að þessu sinni í íþróttahúsi Gler-
árskóla og hefjst kl. 16 í dag,
sunnudag. Á efnisskránni eru
Fagottkonsert í B-dúr K 191 eftir
Wolfgang Amadeus Mozart, kons-
ert fyrir tvær fiðlur og hljómsveit
í d-moll eftir Johann Sebastian
Bach, menúettar eftir Ludwig
van Beethoven og Luigi Boccher-
ini, jólalög og jólaævintýrið Snjó-
karlinn eftir Howard Blake.
„Aðventutónleikarnir okkar
hafa unnið sér fastan sess hér
fyrir norðan og við erum alltaf
með þá í samstarfi við börn.
Hingað til hafa það verið barna-
kórar en nú eru suzuki-nemendur
með okkur í fyrsta skipti,“ sagði
Guðmundur Óli Gunnarsson,
stjórnandi Sinfóníuhljómsveit-
arinnar, í samtali við Morg-
unblaðið.
„Hugmyndin er sú að boðið sé
upp á eitthvað sem allir, ungir
sem aldnir, hafa gaman af að
heyra á aðventunni; til að koma
fólki í jólastemmningu.“
Suzuki-nemendurnir eru frá
Akureyri, Borgarnesi, Kópavogi,
Reykjanesbæ og Reykjavík. Það
eru nemendur sem leika einleiks-
hlutverkin í fyrsta kafla úr Kons-
ert fyrir tvær fiðlur og strengja-
sveit í d-moll eftir Bach, tveimur
menúettum eftir þá Beethoven og
Boccherini og nokkrum jólalög-
um.
Johann Sebastian Bach er
þekktastur fyrir sín kirkjulegu
verk en einnig eru til heimildir
fyrir því að hann hafi efnt til
vikulegra tónleika í heimaborg
sinni, Leipzig, þar sem flutt voru
ýmis kammerverk eftir hann, þar
á meðal konsertinn sem spilaður
verður í dag á Akureyri.
Einleikari í fagottkonsert Moz-
arts er Pál Barna Szabó. Pál er
ungverskur en flutti til Íslands
1996 og settist að á Sauðárkróki
þar sem hann starfar sem tónlist-
arkennari og kórstjóri. Hann hef-
ur spilað með Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands síðan hann kom til
landsins „og er það okkur mikil
ánægja að hafa hann á einleik-
arapallinum í þetta skiptið“, segir
í frétt frá hljómsveitinni.
Fagottkonsertinn K 191 er
sagður hafa verið meðal fyrstu
einleikskonserta Mozarts, saminn
1774 þegar tónskáldið var 18 ára.
Talið er að Mozart hafi samið
fleiri konserta fyrir þetta hljóð-
færi, en þessi er sá eini sem varð-
veist hefur. Síðasta verkið á efn-
isskránni er jólaævintýrið
Snjókarlinn eftir Howard Blake.
Verkið samdi Blake 1982 við sam-
nefnda barnasögu eftir Raymond
Briggs. Það varð strax mjög vin-
sælt og er flutningur þess orðinn
fastur liður um hver jól í Eng-
landi. Verkið er til í ýmsum út-
gáfum: sem ballett, sviðsverk,
tónlist við samnefnda teiknimynd
og í konsertútfærslu með sögu-
manni eins og það verður flutt á
þessum tónleikum. Sögumaður er
Skúli Gautason leikari og ein-
söngvari er 11 ára stúlka, Hrafn-
hildur Marta Guðmundsdóttir.
Börn á Aðventutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
Til að koma fólki í jólastemmningu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á æfingu, ásamt um það bil 60 suzuki-
nemendum, fyrir Aðventutónleika sem verða í íþróttahúsi Glerárskóla í
dag kl. 16. Guðmundur Óli Gunnarsson stjórnandi er fyrir miðri mynd.
Í LISTASAFNI Íslands stendur
yfir sýning á Íslenskri myndlist frá
árunum 1980–2000. Alls eru 98 lista-
verk á sýningunni sem eru í eigu
safnsins og eru unnin á þessu 20 ára
tímabili. Þau eru eftir 53 listamenn.
Þegar innkaupanefnd Listasafns-
ins festir kaup á samtímalistaverki
er hún jafnframt að skrá og skrifa
íslenska nútímalistasögu. Það er því
ábyrgðarmikið hlutverk sem nefnd-
in, og ekki síst forstöðumaður, tekur
að sér. Á sýningu sem þessari er
ekki aðeins verið að sýna helstu
strauma myndlistar undanfarin 20
ár, heldur er líka verið að gefa okkur
sem lifum þennan tíma tækifæri til
að sjá hvort sú listasaga sem safnið
er að skrifa sé rétt og viðunandi. Út
frá því sjónarhorni er ýmislegt at-
hugavert við sýninguna, en helst er
það vöntun á myndbandsinnsetning-
um og myndbandsgjörningum sem
hefur verið áberandi tjáningarform í
myndlist undanfarin ár bæði hér á
landi og erlendis. Aðeins eitt mynd-
bandsverk er sýnt á vegg með
myndvarpa og er það frekar illa
framsett ef miðað er við uppruna-
lega listaverkið. Verst þótti mér þó
að sjá hvernig farið var með mynd-
bandsgjörning, sem áður var stað-
bundinn í Galleríi Skugga og var
varpað þar á vegginn í kjallaranum.
Í Listasafni Íslands er gjörningur-
inn sýndur í venjulegu sjónvarpi og
verður þannig algerlega marklaus.
Eðlilega þegar safn kaupir þess
háttar verk er annaðhvort verið að
kaupa hugmynd og listamaðurinn þá
fenginn til að endurtaka gjörninginn
fyrir rými í safninu, eða þá er smíð-
að nýtt rými sem er nákvæm eft-
irgerð af upprunalega herberginu
þar sem gjörningurinn var fram-
kvæmdur. Margt annað mætti fara
betur varðandi framsetningu á lista-
verkum á sýningunni, en ekkert
annað listform virðist sæta skiln-
ingsleysi af hálfu aðstandenda safns-
ins annað en myndbandsformið og
kýs ég því að horfa sem mest
framhjá framsetningunni sökum
þess að markmið forstöðumannsins,
sem jafnframt er sýningarstjóri,
virðist fyrst og fremst vera það að
gera straumum myndlistar á þessu
20 ára tímabili sem best skil og til
þess leggur hann metnað í fjöldann.
Vissulega líða nokkur listaverkanna
óþægilega mikið fyrir þrengslin, en
yfirlitið verður ítarlegra og er, fyrir
utan vöntun á myndbandsinnsetn-
ingum, nokkuð trúverðugt. Þó er að-
eins 1⁄3 hlutinn af þeim verkum sem
safnið hefur eignast á tímabilinu til
sýnis, en hina 2⁄3 hlutana geta sýn-
ingargestir skoðað á tölvutæku
formi í safninu.
Ef stiklað er á stóru þá hefst tíma-
bilið á „Nýja málverkinu“ svokall-
aða. Tíðari og greiðari aðgangur ís-
lenskra listamanna að umheiminum
varð til þess að örari breytingar
urðu í myndlist hér á landi en áður
og í kjölfar Nýja málverksins tóku
áherslur listamanna ólíkar stefnur.
Nokkrir listmálarar fóru að skoða
rómantískari gildi málverksins, aðr-
ir leituðu í mínimalíska konseptlist,
ljósmyndir hlutu loks viðurkenningu
í íslenskri samtímalist, myndbandið
gaf nýja möguleika til tjáningar og
vakning og nýr skilningur varð á
skúlptúr og rýmislist. Listamenn
hófu að skoða ýmsar hliðar á nátt-
úrunni, samfélaginu, þjóðararfinn,
tungumálið, kynjahlutverkið, hand-
verkið og svo má lengi telja. Segja
má að þetta 20 ára tímabil, sem
heyrir undir póstmódernisma, marki
vissa upplausn í listum þar sem allar
leiðir eru listamanninum opnar upp
á gátt og hann er óháður nokkurri
ríkjandi stefnu, nálgun eða útfærslu.
Þannig er ástandið enn í dag hvort
sem menn sjá það sem stefnuleysi
eða frelsi fyrir myndlistarmanninn.
Athyglisvert finnst mér að sjá hve
listaverkin eldast misjafnlega á
þetta skömmum tíma. Listaverk
sem fyrir tæpum 10 árum þóttu
frísklegt innlegg í listumræðu á Ís-
landi eru fremur veik á sýningunni.
Önnur eldast firnavel og gefa jafnvel
tilefni til að líta á og endurskoða þær
áherslur sem eru í listum í dag, t.d.
hvað handverk varðar og umfang
listaverka.
Góð fræðsludagskrá um sýn-
inguna er í boði hjá listasafninu og
ætti hún að gefa færi á opinni um-
ræðu um hlutverk og stöðu mynd-
listar á Íslandi sem/og hlutverk og
stöðu listasafnsins. Jafnframt tel ég
sýninguna vera kjörið tækifæri fyrir
aðstandendur listasafnsins til að
skoða hvar þau skila hlutverki sínu
vel og hvar þau þurfa að bæta sig,
rétt eins og myndlistarmaður þarf
að gera þegar hann heldur einka-
sýningu. Sjálft framtakið tel ég svo
vera listasafninu til sóma enda er
hér á ferðinni einhver umfangs-
mesta sýning á íslenskri samtímalist
sem um getur.
„Norðurljósabarinn“, rýmisinnsetning eftir Halldór Ásgeirsson á sýningunni Íslensk myndlist 1980–2000 í Listasafni Íslands.
Straumar og stefnur í
íslenskri samtímalist
MYNDLIST
Listasafn Íslands
Yfirlitsýning úr safnaeign síðastliðinna
20 ára. 53 samtímalistamenn. Safnið er
opin alla daga frá kl. 11–17. Sýningunni
lýkur 12. janúar 2003.
SAFNAEIGN
Málverkið „Banner“ eftir Jón Óskar í baksýn og „Speglun“ Steinunnar
Þórarinsdóttur í forgrunni. Sýningin stendur til 12. janúar 2003.
Jón B.K. Ransu
UNIVISJON, kvikmyndafram-
leiðsludeild fjölmiðlamiðstöðvar há-
skólans í Bergen, hefur hlotið verð-
laun fyrir heimildamynd sem gerð
var um Íslenska erfðagreiningu.
Myndin nefndist Decoding the
Icelanders, sem útleggja má sem Ís-
lendingar erfðagreindir og hefur
hún þegar verið seld til fjölda landa.
Verðlaunin voru veitt í flokki vís-
indaheimildamynda.
Heimilda-
mynd
verðlaunuð
OPNUNARTÍMA i8, Klapparstíg
33, hefur verið breytt. Galleríið er
opið fimmtudaga og föstudaga frá kl.
11-18 og laugardaga frá kl. 13–17 eða
eftir samkomulagi.
Núna stendur yfir sýning á verk-
um eftir ýmsa af listamönnum gall-
erís i8. Galleríið verður lokað frá 19.
desember til 9. janúar.
I8 breytir opn-
unartíma sínum
♦ ♦ ♦