Morgunblaðið - 08.12.2002, Side 35
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 2002 35
Sérhæfðir sölumenn í atvinnuhúsnæði!
FRANZ@holl.is
Hóll — Alltaf
rífandi salaAGUST@holl.is
FJÖLDI EIGNA TIL
SÖLU OG LEIGU!
Ekki hika við að hringja í
okkur félagana,
Franz, gsm 893 4284,
Ágúst gsm, 894 7230.
Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi,
Austurvegi 3, 800 Selfossi,
sími 480 2900 - fax 482 2801- fasteignir@log.is
Hveramörk 2, Hveragerði
140 fm einbýli ásamt 30 fm bíl-
skúr. Eignin telur 5 svherb. 2 stof-
ur, rúmgott eldhús og eru þvotta-
hús og búr innaf. Baðherbergi og
sérgestasnyrting. Góður garður
og steypt innkeyrsla. Verð 13,9 m.
Áhv. ca 6,3 m. Íb.lánasj.
Heiðmörk 6a, Hveragerði
82,8 fm parhús. Tvö svefnherb.
stofa, eldhús m/gluggageymslu
innaf, rúmgott baðherbergi.
Geymsluloft yfir allri íbúðinni.
Góður suðurgarður. Þrefalt gler í
gluggum. Eign í góðu viðhaldi.
Skipti möguleg á eign á Rvk-
svæðinu. Verð 10,2 m. Áhv. ca 6
m. húsbr.
Dynskógar 18, Hveragerði
Mikið endurn. og huggul. 118,9 fm
eldra einb. á eftirsóttum stað. 3
svherb., stofa, eldhús, þvhús og
baðherb. Vandaðar innré. og inni-
hurðir sem og gólfefni endurn.
Stór garður og mögul. á bílskúrs-
rétti. Verð 10,9 m. áhv ca. 4,3 m.
Kambahraun 23, Hveragerði
146 fm einbýli ásamt tvöföldum
43 fm bílskúr. Vel staðsett, í botn-
langagötu. 4 svefnherb. 2 rúm-
góðar stofur, arinn í neðri stofu.
Eldhús með viðarinnréttingu, gott
tvískipt þvottahús innaf. Baðher-
bergi flísalagt í hólf og gólf. Garður er gróinn, hellulögð verönd m/heitum
potti. Hitalögn í plani f. framan bílskúr. Verð 16,8 m. Áhv. 7,2 m. húsbr.
Bjarkarheiði 6 og 8, Hveragerði
113,7 fm parhús í smíðum ásamt
35,8 fm innbyggðum bílskúr.
Skriðkjallari undir húsunum. Húsin
fást afhent á ýmsum byggstigum.
Fyrsta byggstig, fullbúnar að utan
og rúmlega fokheld að innan. Grófjöfnuð lóð. Húsin verða klædd að ut-
anverðu með lituðu innbrenndu stáli og því viðhaldsfrí næstu árin. Verð
frá 11.960 þús.
Heiðarbrún 74, Hveragerði
Eign sem kemur skemmtilega á
óvart. pallabyggt parhús með inn-
byggðum bílskúr, samtals 139 fm.
Einstaklega rúmgóð eign. 4 svefn-
herb. Rúmgóð stofa, stórt eldhús,
baðherbergi hefur verið algerlega
endurnýjað. Þvottahús og gott
geymsluloft yfir bílskúr. Mikið endurnýjuð eign. Verð 13,6 m. Áhv. 6,9 ca
byggsj. + húsbr.
Eignir í Hveragerði
VIÐ eigum öll mikið undir því
að alþjóðavæðingin takist vel. Hún
felur í sér að allar þjóðir eigi raun-
verulega möguleika á sjálfbærum
vexti og geti sigrast á fátækt. Fyr-
irtækin hafa hér lykilhlutverki að
gegna.
Alþjóðavæðing þjónar hagsmun-
um allra en það hefur verið vand-
kvæðum bundið fá öll ríki til að
taka þátt í henni. Þrátt fyrir mikl-
ar framfarir býr enn einn millj-
arður manna við sára fátækt og
stjórnarhættir eru afleitir víða um
heim.
Samningalotan, sem nú fer fram
innan WTO (Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar) kennd við Doha í
Kvatar, gerir kleift að taka frekari
jákvæð skref í alþjóðavæðingunni.
Við skorum þess vegna á ríkis-
stjórnir Norðurlandaþjóða að beita
sér fyrir frekara frjálsræði í al-
þjóðlegum viðskiptum. Keppikefli
okkar er að tollar á viðskipti með
iðnaðarvörur verði úr sögunni árið
2010.
Andúðarbylgjur gegn alþjóða-
væðingunni fara reglulega um
heiminn og marka djúp spor
óánægju með allt sem lýtur að
starfsemi sem teygir sig þvert yfir
landamæri. Megnið af þessari and-
úð á ekki við haldbær rök að styðj-
ast heldur byggist á þeim rang-
hugmyndum að ríku þjóðirnar noti
alþjóðavæðingu og frjáls viðskipti
til þess að arðræna hinar fátækari.
Þetta er goðsögn. Kofi Annan, að-
alritari Sameinuðu þjóðanna, hefur
kveðið skýrt að orði í þessu sam-
hengi: „Þeir sem hafa orðið undir
við skiptingu gæða heimsins eru
ekki þar sem alþjóðavæðingin er
mest heldur eru það þeir sem eru
utanveltu í þeirri þróun.“
Opin hagkerfi
Sagan kennir okkur að vöxtur
og velferð verða mest í opnum
hagkerfum þar sem góðir stjórn-
arhættir ríkja. Norðurlönd eru
gott dæmi um þetta. Öll voru þau
fátæk bændasamfélög fyrir 150 ár-
um en eru nú þróuð lýðræðisríki
þar sem lífskjör eru með því besta
sem þekkist í heiminum.
Það er óhugsandi að fyrirtæki á
borð við Nokia, Volvo, Marel,
Norsk Hydro og Grundfos hefðu
orðið til án þess að geta þróað,
framleitt og selt vörur sínar víða
um heim. Með sama hætti er erfitt
að ímynda sér norrænt samfélag
án slíkra fyrirtækja.
Fríverslun, án tolla og tækni-
legra viðskiptahindrana, tryggir að
fyrirtæki geta keppt á jafnrétt-
isgrundvelli. Það eykur hag-
kvæmni sem leiðir af sér meiri
efnahags- og félagslega velferð hjá
þeim fyrirtækjum og þjóðum sem
eru virkir þátttakendur. Fríversl-
un breiðir út tækni og þekkingu,
og eykur úrval góðrar vöru á
lægra verði.
Sama gildir um fjárfestingar
milli landa. Fjármagnið nýtist með
hagkvæmari hætti en ella. Þegar
norrænt fyrirtæki fjárfestir í fyr-
irtæki í þróunarlandi færist þang-
að ekki aðeins fjármagn heldur
einnig tækni og þekking. Slíkt
samstarf stórbætir yfirleitt sam-
keppnisstöðu fyrirtækisins í þró-
unarlandinu.
Löndin í Asíu, sem oft eru köll-
uð asísku tígrarnir í efnahagslegu
tilliti, eru gott dæmi um hvernig
stefna gagnvart umheiminum get-
ur skipt sköpum en þessi ríki hafa
búið við gríðarlegan efnahagslegan
vöxt frá sjöunda áratugnum. Þró-
unin hefur á hinn bóginn orðið
gerólík hjá þeim hópi ríkja í Afr-
íku sem voru álíka stödd í efna-
hagslegu tilliti við upphaf sjöunda
áratugarins en hafa ekki enn opn-
að efnahagslíf sitt gagnvart um-
heiminum. Mörg þróunarríki
brynja sig enn háum tollmúrum
sem koma meðal annars í veg fyrir
svæðisbundna verslun milli þess-
ara ríkja. Þessir tollar eru miklu
skaðlegri fyrir þróunarríkin sjálf
en þau iðnvæddu. Það breytir hins
vegar ekki því að mikilvægast er
fyrir þróunarlöndin að fá betri að-
gang að mörkuðum ríku landanna.
Alþjóðabankinn hefur nýlega
komist að þeirri niðurstöðu að full-
komin fríverslun myndi auka
tekjur í heiminum um 2,8 milljarða
Bandaríkjadala. Sú fjárhæð er
sannarlega umhugsunarverð.
Baráttan gegn fátækt
Fyrirtækin vilja gjarnan leggja
sitt af mörkum í baráttunni gegn
fátækt en þróunarríkin verða líka
sjálf að taka þátt í þeirri baráttu.
Fyrirtækin þrífast ekki og skapa
hagsæld nema þar sem góðir
stjórnarhættir ríkja – og þar er
ekki heldur rúm fyrir óábyrg fyr-
irtæki. Á leiðtogafundi Sameinuðu
þjóðanna í Jóhannesarborg síðast-
liðið sumar var einmitt þessi tví-
þætta ábyrgð stjórnvalda rækilega
undirstrikuð.
Góðir stjórnarhættir fela í sér
að fyrir hendi eru leikreglur og
stofnanir sem tryggja lög og reglu
í landinu. Án góðra stjórnarhátta
og réttaröryggis er borin von að
laða að erlendar fjárfestingar.
Áhættan er beinlínis of mikil.
Erlendar fjárfestingar í þróun-
arríkjunum hafa gífurlega þýð-
ingu, ekki síst vegna aukins hag-
vaxtar, atvinnusköpunar, aðgangs
að tækni og þekkingu og þátttöku
í uppbyggingu grunnþátta sam-
félagsins en einnig vegna þess að
beinar erlendar fjárfestingar eru
miklu umfangsmeiri en öll önnur
fjárframlög til þessara ríkja. Þær
eiga því miklu ríkari þátt í að
hjálpa þeim úr fátækt til hagsæld-
ar.
Þróunaraðstoð er einnig mikil-
væg. Hún á að gera þróunarríkj-
unum fært að taka þátt í alþjóða-
væðingunni. Bestur árangur næst
með þróunarhjálp sem stuðlar að
góðum stjórnarháttum og eykur
þar með möguleika landsins til
þess að taka þátt í verkaskiptingu
þjóðanna.
Ábyrgð fyrirtækjanna
Oft er rætt um samfélagslegt
hlutverk fyrirtækja í tengslum við
alþjóðavæðinguna. Rannsóknir
leiða í ljós að fyrirtæki á erlendum
mörkuðum setja sér yfirleitt mun
háleitari viðmið varðandi um-
hverfi, vinnuvernd og félagsleg
réttindi en heimafyrirtækin og
leggja því sitt af mörkum til sjálf-
bærs vaxtar.
Til þess að fyrirtækin geti skap-
að eigendum sínum arð verða þau
að byggja upp traust hjá við-
skiptavinum sínum og samstarfs-
aðilum. Markaðslögmálin knýja því
fyrirtækin til þess að haga rekstri
sínum þannig að ekki sé tekin
óþörf áhætta og orðspori spillt.
Rétt er að hafa í huga að fyr-
irtækin hafa meðferðis verðmæta-
mat og siðferðiskennd frá heima-
löndum sínum hvar í heiminum
sem þau kunna að fjárfesta.
Til þess að koma til móts við
auknar kröfur, sem gerðar eru til
hegðunar fyrirtækja á alþjóða-
mörkuðum, hafa þau sjálf, eða í
samstarfi, mótað sér alls kyns
reglur og staðla um góða við-
skiptahætti. Kosturinn við reglur
af þessu tagi er að þær mótast af
kröfum markaðarins hverju sinni.
Ekki er til nein algild aðferð sem
hægt er að leggja til grundvallar
því hvernig fyrirtæki eiga að axla
samfélagslega ábyrgð. Það er sjálf
hegðun fyrirtækjanna sem skiptir
máli – ekki reglur á pappír.
Umsvif norrænna fyrirtækja á
erlendum mörkuðum eiga ríkan
þátt í að skapa hin góðu lífskjör á
Norðurlöndum samtímis því sem
þau breiða út nýja tækni, þekk-
ingu og gildismat hvar sem þau
eru að störfum. Hagstæð skilyrði
fyrir alþjóðavæðingu eru nauðsyn-
leg í þessu samhengi. Þess vegna
vonum við að þær viðræður, sem
nú fara fram á vettvangi Alþjóða-
viðskiptastofnunarinnar, marki
mikilvægan áfanga í að auka al-
þjóðavæðinguna enn frekar.
ALÞJÓÐAVÆÐING
ER NAUÐSYNLEG
Eftir Hans Skov
Christensen, Johannes
Koroma, Finn Bergesen,
Ara Edwald, Svein
Hannesson og Göran
Tunhammar
„Sagan kennir okkur
að vöxtur og velferð
verða mest í opnum
hagkerfum.“
Dansk Industri – Danmörku, Hans
Skov Christensen framkvæmdastjóri
Industrins och Arbetsgivarnas Cent-
ralförbund – Finnlandi, Johannes
Koroma framkvæmdastjóri
Næringslivets Hovedorganisasjon –
Noregi, Finn Bergesen fram-
kvæmdastjóri
Samtök atvinnulífsins – Íslandi, Ari
Edwald framkvæmdastjóri
Samtök iðnaðarins – Íslandi, Sveinn
Hannesson framkvæmdastjóri
Svenskt Näringsliv – Svíþjóð, Göran
Tunhammar framkvæmdastjóri.
Morgunblaðið/Kristján
Karl E. Sveinsson, vélvirki í Kröflu, hleypir holunni upp en Benedikt Stein-
grímsson frá Orkustofnun t.h. fylgist með mæli á hljóðdeyfinum.