Morgunblaðið - 08.12.2002, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
MJÖG umfangsmikið umferðareftirlit lögregl-
unnar í Reykjavík stendur nú sem hæst og verð-
ur því haldið áfram út desembermánuð. Á föstu-
dagskvöld voru tíu lögreglumenn við eftirlit á
Kringlumýrarbraut og stöðuðu um 1.400 öku-
menn á bílum sínum. Myndaðist löng bílaröð á
Kringlumýrarbrautinni vegna vegatálma lög-
reglunnar og fór enginn í gegn án þess að ræða
við lögreglu. Voru sumir ökumenn óhressir yfir
töfinni sem af þessu hlaust. Eftirlitið stóð frá kl.
23.30 til 1.30 og var einn ökumaður grunaður
um ölvun við akstur. Upp komst um nokkur til-
vik þar sem ökumenn voru réttindalausir við
akstur eða höfðu ekki ökuskírteini sín meðferðis
eins og þeim er skylt samkvæmt lögum. Þá voru
nokkrir á óskoðuðum bílum að sögn lögregl-
unnar.
Umferðareftirlitið er ekki bundið við helg-
arnar í desember að sögn lögreglu og mega öku-
menn því búast við að verða stöðvaðir jafnt virka
daga sem um helgar.
Morgunblaðið/Júlíus
1.400 ökumenn stöðvaðir
KOSTNAÐUR ríkissjóðs af mót-
framlögum vegna viðbótarlífeyris-
sparnaðar ríkisstarfsmanna hefur
tvöfaldast milli áranna 2001 og 2002
og nemur um 800 milljónum króna í
ár. Gert er ráð fyrir að þátttaka rík-
isstarfsmanna í viðbótarlífeyris-
sparnaði hafi náð jafnvægi og að út-
gjöld vegna þessa standi í stað á
næsta ári.
Samkvæmt upplýsingum Ólafs
Hjálmarssonar, skrifstofustjóra
fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneyt-
isins, námu útgjöld af mótframlög-
um vegna viðbótarlífeyrissparnaðar
ríkisstarfsmanna innan við 0,5% af
launakostnaði með launatengdum
gjöldum árið 2001 en í október síð-
astliðnum hafi útgjöldin verið komin
í 1% af heildarlaunakostnaði með
launatengdum gjöldum. Þetta jafn-
gildi því að kostnaður ríkissjóðs
vegna mótframlaganna á ári sé nú
um 800 milljónir króna.
Ólafur sagði að þátttaka ríkis-
starfsmanna í viðbótarlífeyrissparn-
aði væri mismunandi milli stofnana.
2% framlag skapar rétt
á 2,2% viðbótarframlagi
Í sumum mjög litlum stofnunum
væri þátttakan mjög mikil en annars
staðar væri hún minni. Óvissa ríkti
um hve þátttakan yrði mikil meðal
ríkisstarfsmanna eins og á almenn-
um markaði, en fjármálaráðuneytið
teldi að það væri komið á jafnvægi,
meðal annars vegna betri lífeyris-
réttinda opinberra starfsmanna en
almennt gerðist. Því væri ekki gert
ráð fyrir því að útgjöld vegna viðbót-
arlífeyrissparnaðarins ykjust á árinu
2003.
Aðspurður sagði Ólafur að út frá
þessum tölum mætti áætla að þátt-
taka ríkisstarfsmanna í viðbótarlíf-
eyrissparnaði gæti jafngilt um 60%
nýtingu, en auðvitað væri mismun-
andi eftir einstaklingum að hve
miklu leyti þeir nýttu sér þetta.
Sumir nýttu sér þennan rétt að fullu
en aðrir í minna mæli.
Það gildir um ríkisstarfsmenn eins
og starfsfólk á almennum vinnu-
markaði að leggi þeir 2% í viðbót-
arlífeyrissparnað ber launagreið-
anda að leggja 2% í mótframlag
vegna viðbótarlífeyrissparnaðarins.
Ríkið bætir síðan við 10% ofan á
framlag launþegans, þannig að sá
sem leggur til hliðar 2% af launum í
viðbótarlífeyrissparnað fær til við-
bótar 2,2% framlag frá atvinnurek-
anda og ríkissjóði. Þetta framlag er
til viðbótar greiðslu í lífeyrissjóð,
sem er 10% á almennum markaði en
15,5% hjá opinberum starfsmönnum.
Opinberir starfsmenn sveitarfélaga
eiga hins vegar ekki rétt á ofan-
greindu mótframlagi þar sem sveit-
arfélögin voru ekki tilbúin til þess að
semja um það með tilvísan til betri
lífeyrisréttar opinberra starfsmanna
en starfsmanna á almennum mark-
aði.
Útgjöld ríkissjóðs af mótframlögum vegna viðbótarlíf-
eyrissparnaðar verða um 800 milljónir króna í ár
Kostnaður ríkissjóðs
tvöfaldast milli ára
ÓVENJUMARGIR bílar ultu í
gærmorgun á landinu. Flestar urðu
velturnar í umdæmi lögreglunnar í
Borgarnesi eða þrjár. Einn maður
slasaðist er jeppi hans valt við
Vogatungu við Laxá í Leirársveit
um klukkan átta og var hann flutt-
ur á sjúkrahús á Akranesi en var
ekki lífshættulega slasaður að sögn
læknis. Þá valt fólksbíll á svipuðum
slóðum um klukkutíma síðar án
þess að fólk meiddist. Um klukkan
hálftíu valt þriðji bíllinn ofan við
Borgarnes og þar meiddist fólk lít-
illega.
Lögreglan í Borgarnesi sagði að
hálka hefði myndast í Borgarfirði í
gærmorgun og yrðu vegfarendur að
haga akstri eftir aðstæðum.
Við Eyrarbakka valt bifreið í
hálku um klukkan ellefu og
skemmdist töluvert en ökumaður-
inn slapp ómeiddur. Þá valt bíll á
Mýrdalssandi um sama leyti. Jeppi
með tveimur mönnum innanborðs
valt í fljúgandi hálku og festist ann-
ar þeirra í bílflakinu. Tókst honum
að losa sig áður en björgunarlið
kom á vettvang og var fluttur til
skoðunar á heilsugæsluna á Vík, en
var ekki talinn alvarlega slasaður.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Slys í hálkunni
Á NÆSTA ári er heimilt að veiða
800 hreindýr, auk hreindýrskálfa
sem fylgja kúm sem eru felldar.
Þetta er talsverð aukning því á
þessu ári mátti veiða 574 hreindýr.
Þessi heimild er veitt með fyrir-
vara um að ekki verði verulegar
breytingar á stofnstærð fram að
veiðum sem kalli á endurskoðun á
fjölda veiðiheimilda.
Karen Erla Erlingsdóttir, starfs-
maður hreindýraráðs, segir að
talningar í vor og sumar hafi leitt í
ljós að stofninn sé mun sterkari en
áður. Náttúrustofa Austurlands
hafi sett niðurstöðu talninganna
inn í reiknilíkan og lagt til að veiði-
kvótinn yrði 800 dýr. Þessa tillögu
hafi hreindýraráð og síðan um-
hverfisráðuneytið samþykkt. Að-
spurð segir Karen að menn telji
helst að góð tíð hafi orðið til þess
að hreindýrunum hefur fjölgað.
Hreindýraveiðitími er frá 1. ágúst
til 15. september. Á þessu ári voru
veidd 535 dýr en leyfilegt var að
veiða 574 dýr.
Fleiri
hreindýr
skotin á
næsta ári
MÁLUM sem borist hafa Barna-
húsi hefur fjölgað nokkuð frá því í
fyrra. Það sem af er þessu ári hafa
157 viðtöl verið tekin við meinta
þolendur kynferðisofbeldis og 11
börn til viðbótar bíða eftir viðtali
meðan mál þeirra eru könnuð. Í
fyrra komu 117 mál til kasta
Barnahúss, þar af voru 45 skýrslu-
tökur fyrir dómi en í ár eru
skýrslutökur fyrir dómstólum
orðnar 56. Á heimasíðu Barna-
verndarstofu segir að þótt fjöldi
mála sem berist Barnahúsi hafi
farið vaxandi þýði það ekki að kyn-
ferðisofbeldi á börnum fari vax-
andi. Samanburður við önnur lönd
bendi ekki til þess að málin séu
tíðari hér á landi. Fjölgunin bendi
hins vegar til að fólk sé meira vak-
andi fyrir glæpum af þessu tagi en
verið hefur.
Fjölgun mála hjá Barnahúsi
157 viðtöl á þessu ári
ÁRNI Magnússon, formaður bæjar-
ráðs Hveragerðisbæjar, segist gæla
við þá hugmynd hvort ekki gæti ver-
ið skynsamlegt að sameina Hvera-
gerði, Ölfus og Grindavík.
Í viðtali við Árna sem birt er í
Morgunblaðinu í dag bendir hann á
að með slíkri sameiningu yrði til
álíka stórt sveitarfélag og Árborg,
„auk þess sem innan þessara sveitar-
félaga er að finna geysimiklar orku-
auðlindir og ferðaþjónustutengingu í
Bláa lóninu annars vegar og heilsu-
bænum Hveragerði hins vegar þeg-
ar fram líða stundir. Hvort tveggja
hefði svo góða tengingu við flugvöll-
inn í Keflavík,“ segir Árni.
Formaður bæjar-
ráðs Hveragerðis
Íhuga sam-
einingu við
Grindavík
Hér/B10–11