Morgunblaðið - 14.12.2002, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 11
Dagana 12. til 15. des.
bjó›um vi› 20 % afslátt af
öllum Ecco skóm.
Opi› laug. 10-22 og sunnud. 13-18
[s
v
a
rt á
h
v
ítu
]
dagar
20% Afsláttur af
öllum ecco skóm
Laugaveg i 83 s : 562 3244
Komdu og gerðu góð kaup fyrir jólin.
Náttkjólar 1.800.-
Náttföt frá 2.500.-
Peysur frá 2.990.-
Blúndubolir frá 2.900.-
Kanínuskinn frá 2.290.-
opið lau. og sun. til 22.
MJÚKIR PAKKAR
Lagersala Antik-hússins
er opin alla daga frá kl. 14.00-18.00
í Suðurhrauni 12, Garðabæ.
Borðstofuhúsgögn, bókaskápar, skrifborð og skrautmunir.
Falleg
kvenúr
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
frá
Góð gjöf
verð frá
5.900
kvenfataverslun
Skólavörðustíg 14,
sími 551 2509.
Ítölsku
peysurnar
SAMKEPPNISRÁÐ hefur ákveðið
að stofnun nýs einkahlutafélags,
Græns ehf., skuli lúta ákveðnum
skilyrðum til að koma í veg fyrir
röskun á samkeppni.
Einar Sverrisson, lögmaður
Græns ehf., segir að fyrirtækið sé
ánægt með ákvörðunina og skilyrðin
komi ekki á óvart. Aðalatriðið sé að
hagsmunir keppinauta Baugs eru
tryggðir.
Eggert Á. Gíslason framkvæmda-
stjóri Mata ehf., samkeppnisaðila
Græns ehf., segir að sér komi málið á
óvart. „Það kemur okkur á óvart að
samkeppnisráð hafi hleypt þessu í
gegn,“ sagði Eggert í samtali við
Morgunblaðið.
Ingimar Jónsson forstjóri
Kaupáss, sem einnig er stór innflytj-
andi grænmetis og ávaxta, segir að
Grænt ehf. muni verða í jafnri eigu
Baugs Group hf. og Eignarhalds-
félagsins Fengs hf. Félagið muni
eiga tvö heildsölufyrirtæki á græn-
metis- og ávaxtamarkaði; Banana
ehf. og Ávaxtahúsið, Nýtt og ferskt
ehf. Bananar ehf. voru áður að fullu í
eigu Fengs, en Ávaxtahúsið að jöfnu
í eigu Fengs og Baugs.
Í ákvörðun ráðsins segir að það
telji að samningurinn um stofnun
Græns feli í sér samruna í skilningi
18. gr. samkeppnislaga. Mat sam-
keppnisráðs sé að samruninn upp-
fylli skilyrði 1. mgr. 18. gr. til íhlut-
unar og því séu skilyrði sett.
Óheimilt að semja um hlutfall
Í fyrsta lagi verði Baugi Group og
tengdum fyrirtækjum annars vegar
og Grænu ehf. og tengdum fyrir-
tækjum hins vegar óheimilt að semja
um að tiltekið hlutfall af ávöxtum og
grænmeti í vöruframboði verslana í
eigu Baugs sé keypt af Grænu og
tengdum fyrirtækjum.
Í öðru lagi skuldbindi Baugur og
tengd fyrirtæki sig til að kaupa
grænmeti og ávexti af keppinautum
Græns ehf. og dótturfélaga þess,
bjóði þeir umræddar vörur af sam-
bærilegum gæðum við sambæri-
legum eða betri kjörum en Grænt og
dótturfélög þess geti boðið.
Í þriðja lagi sé Baugi óheimilt að
gera þá kröfu til Græns að verslanir
Baugs njóti betri viðskiptakjara en
aðrir viðskiptavinir Græns, umfram
það hagræði sem ætla megi að
Grænt hafi af umfangi viðskiptanna.
Óheimilt að útiloka
viðskiptamenn
Í fjórða lagi sé Grænu óheimilt að
gera og starfa eftir samningum sem
útiloki ákveðna viðskiptamenn frá
viðskiptum við félagið. Baugi sé
óheimilt að beita sér á nokkurn hátt
gagnvart Grænu, þannig að það hafi
þau áhrif að samkeppnisstaða ann-
arra viðskiptavina Græns veikist.
Fimmta skilyrði samkeppnisráðs
kveður á um að stjórnarmenn,
starfsmenn og eigendur að meira en
1% í Baugi Group hf., dótturfélögum
þess eða fyrirtækjum sem það hafi
virk yfirráð yfir skuli ekki sitja í
stjórn eða varastjórn fyrirtækja
tengdra Grænu ehf. sem eigi við-
skipti við keppinauta Baugs eða
keppinauta fyrirtækja tengdra
Baugi. Hið sama gildi um maka
stjórnarmanna, starfsmanna og eig-
enda og þá sem séu skyldir þeim eða
mægðir í beinan legg eða systkini
þeirra.
Yfirlýsing um þagnarskyldu
Í sjötta lagi sé starfsmönnum
Græns óheimilt að veita öðrum,
þ.m.t. stjórnarmönnum og eigendum
félagsins, upplýsingar um viðskipti
og viðskiptakjör einstakra viðskipta-
vina. Starfsmenn Græns skuli und-
irrita sérstaka yfirlýsingu um þagn-
arskyldu og trúnað þar um. Afrit
yfirlýsingarinnar skuli sent Sam-
keppnisstofnun.
Sjöunda og síðasta skilyrðið kveð-
ur á um að Grænt ehf. skuli kynna
ákvörðun ráðsins og hvað í henni fel-
ist fyrir starfsmönnum, eigendum,
stjórnarmönnum og viðskiptavinum
innan eins mánaðar frá birtingu
hennar. Þá skuli fyrirtækið upplýsa
Samkeppnisstofnun um framkvæmd
á ákvörðuninni innan tveggja mán-
aða.
Í ákvörðuninni segir að brot á skil-
yrðum samkeppnisráðs varði viður-
lögum samkvæmt 13. kafla sam-
keppnislaga.
Samruni í heildsölu grænmetis og ávaxta
Samkeppnisráð setur
Grænu ehf. skilyrði
KONA slapp lítið meidd er bíll sem
hún ók valt á Skagastrandarvegi
skömmu fyrir klukkan tíu í gær-
kvöldi.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Blönduósi var launhált er
slysið varð. Konan var ein í bílnum
en töluverðar skemmdir urðu á
honum.
Fjögur minniháttar umferðar-
óhöpp urðu í Keflavík í gær en eng-
in meiðsl urðu á fólki. Árekstrar
urðu á Mávabraut og á horni
Hringbrautar og Aðalgötu auk þess
sem keyrt var á kyrrstæða bíla við
Samkaup og Grænás. Engin slys
urðu á fólki er bíll rann til í hálku
og lenti á öðrum bíl á Kirkjubraut á
Höfn í Hornafirði um klukkan 21 í
gærkvöldi.
Litlar skemmdir urðu á bílunum.
Hálkublettir
á Holtavörðuheiði
Hálkublettir voru í gær á Holta-
vörðuheiði. Hálka og hálkublettir
voru einnig víða á Vestfjörðum,
Norður- og Austurlandi.
Að öðru leyti var greiðfært um
helstu þjóðvegi landsins.
Nokkur umferðaróhöpp
urðu af völdum hálku
ATVINNA mbl.is