Morgunblaðið - 14.12.2002, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 14.12.2002, Qupperneq 28
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 28 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ P P F O R L A G Bylting BÍTLANNA eftir Ingólf Margeirsson Ingólfur Margeirsson áritar bók sína BYLTING BÍTLANNA laugardaginn 14. desember kl. 14:00 í Pennanum Eymundsson Austurstræti. Hinir frábæru tónlistarmenn Valgeir Guðjónsson og Jón Ólafsson spila bítlalög á staðnum og Magnús Einarsson útvarpsmaður les úr bókinni. Frábært tilboðsverð. „FULLTRÚAR frá borginni hafa talað um að síst af öllu megi einangra aldraða og öryrkja. Það er því furðulegt hvernig að okkur er nú vegið,“ sagði maður um áttrætt á miklum hitafundi sem haldinn var í þjónustuseli Sléttuvegar 11-13 um tillögur að breyttu fyrirkomulagi félagsstarf aldraðra á fimm stöðum í borginni. Á fundinn mættu vel- flestir íbúanna, Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri Reykjavíkur, auk Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur, fram- kvæmdastjóra þjónustusviðs Fé- lagsþjónustunnar. „Ég skil ekki hvernig þið getið ímyndað ykkur að við séum sátt við að verða flutt einhverjum hreppa- flutningi hingað og þangað til að sækja félagsstarf annars staðar,“ benti ein konan á og var augljóslega mikið niðri fyrir. „Það er bara rugl að láta sér detta þetta í hug. Oft hef- ur okkur fundist við vera sniðgeng- in. Við erum fólkið sem eigum að njóta þessarar þjónustu og við erum fólkið sem höfum nú byggt upp þetta þjóðfélag og okkur finnst við eiginlega eiga þetta inni hjá borg- inni.“ Benti hún á að gamalt fólk væri vanafast og að meðalaldurinn í húsunum væri yfir 80 ár. Greinilegt var á fundinum að íbú- arnir eru ósáttir við tillögurnar sem m.a. fela í sér að á fimm stöðum í borginni verður skipulagt starf, s.s. handavinna, leirlist, smíði og önnur tómstundaiðja, lögð niður. Á níu stöðum verður starfið eflt. Sam- kvæmt tillögunum verður leikfimi, heitur matur og ýmis önnur þjón- usta til boða í þjónustumiðstöðv- unum, enda telst hún að sögn félags- málastjóra til félagsþjónustu sem borginni er skylt að veita. Íbúar fá þó áfram þjónustuselin til afnota og geta skipulagt eigið félagsstarf sem þeir þurfa þó að greiða sjálfir fyrir. Hingað til hafa íbúar á Sléttuvegi 11-13 greitt 500 krónur á mánuði í félagsstarfið. Tillögur um breytt fyrirkomulag verða lagðar fram í borgarstjórn 19. desember nk. Vilja ekki sækja starfið annað Íbúar Sléttuvegar eru ósáttir við að þeim sé gert að fara í aðrar mið- stöðvar til að sækja þá afþreyingu sem hingað til hefur verið í þjón- ustuseli hússins. Þeir segja fé- lagsstarfið á öðrum stöðum þétt- setið og segjast sjá lítinn sparnað í því að senda fólk milli þjónustu- miðstöðva með leigubílum í stað þess að halda uppi starfi á stöðunum fimm áfram. „Skipulagt starf hefur verið hér í um níu stundir á viku,“ benti ein kona á. „Það er rúmlega eitt dagsverk.“ Lára sagði að fé- lagsstarfið í húsinu kostaði Reykja- víkurborg engu að síður fimm millj- ónir árlega. Forstöðumanni þjónustumiðstöðvarinnar verður sagt upp frá áramótum. Þá benti Lára á að breytt fyrir- komulag yrði ekki eingöngu gert í sparnaðarskyni heldur til að efla frumkvæði aldraðra og nýbreytni í félagsstarfinu sem eftirspurn hefur verið eftir. Benti hún á þann mögu- leika að sækja um styrki til skipu- lags félagsstarfs til félagsmálaráðs í framtíðinni. „Við viljum að þið ákveðið hvað verður í félagsstarf- inu,“ sagði Lára en fundarmenn virtust flestir vera sammála um að þeir vildu hafa óbreytt ástand. „Þið megið frekar bæta við starfið hérna,“ var algengt sjónarmið. Á fundinum kom fram mikil gremja íbúanna að þeir hafi ekki verið hafðir með í ráðum áður en ákvörðun um breytta starfsemi var samþykkt í félagsmálaráði. Fannst þeim framhjá sér gengið og bentu á að margir hefðu keypt íbúðir í hús- unum til þess að geta sótt starfið sem þar færi fram. Þá hefði verið gerður samningur við Reykjavík- urborg um félagsstarfið. Fram komu fyrirspurnir um hver ætti að hafa yfirumsjón með þjón- ustuselinu þar sem forstöðumanni hefði verið sagt upp. Að sögn Láru á eftir að ákveða með hvaða hætti það verði gert. Margir íbúar sögðu að þeir gætu ekki hugsað sé að sækja starfið ann- ars staðar og enn aðrir bentu á að sökum veikinda ættu þeir erfitt um vik að ferðast. „Sumir nota göngu- grindur eða súrefniskút og það er nú ekkert auðvelt að hoppa upp í leigubíl með slíkt,“ sagði ein konan. Verkefnisstjóri verður að sögn Þórdísar Lóu ráðinn til að aðstoða íbúana við að koma eigin fé- lagsstarfi af stað í þjónustuselj- unum. „Það er alltaf erfitt að breyta út af vananum,“ sagði hún. „En margir vilja sjá um starfið sjálfir og ekki láta okkur alltaf ráða því hvað er í boði hverju sinni.“ Samkvæmt tillögunni tekur breytt fyrirkomulag félagsstarfs aldraðra í fimm þjónustumið- stöðvum í Reykjavík gildi í maí á næsta ári. Öldruðum heitt í hamsi Almenn óánægja með breytingar á félagsstarfi aldraðra kom fram á miklum hitafundi íbúa Sléttuvegar 11–13 með félagsmálastjóra í gærkvöldi. Fossvogur Morgunblaðið/Jim Smart Íbúum er umhugað um að félagsstarf haldi áfram í þjónustuseli hússins. REKSTUR nýrrar heilsugæslu- stöðvar í Salahverfi í Kópavogi verður boðinn út eftir helgi sam- kvæmt ákvörðun Jóns Kristjáns- sonar heilbrigðisráðherra. Er þetta í fyrsta sinn sem rekstur heilsugæslustöðvar er boðinn út hér. Útboðið verður auglýst á morgun og gögn vegna þess munu liggja frammi á þriðjudag. Hluti af tekjum stöðvarinnar verður af- kastatengdur. Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið hefur tekið til leigu húsnæði á Salavegi 2 undir starf- semi heilsugæslustöðvarinnar og verður það tilbúið til innréttingar í apríl 2003. Rekstur stöðvarinnar gæti því hafist 1. ágúst á næsta ári. Ráðuneytið mun standa straum af leigugjöldum hússins og stöðin mun heyra beint undir það. Afkastatengdar tekjur „Með útboðinu er verið að gefa einkaaðilum möguleika á að skipu- leggja þjónustuna eftir eigin hug- myndum, þó þannig að heilsugæsl- an verði ávallt fyrsti viðkomustaður sjúklings. Mark- miðið með útboðinu er að auka að- gengi, hagkvæmni og skilvirkni í heilsugæslunni og tryggja sam- fellda og heildræna þjónustu,“ sagði Svanhvít Jakobsdóttir, skrif- stofustjóri heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytis, í samtali við Morgunblaðið í gær en hún var for- maður verkefnisstjórnar sem sá um undirbúning útboðsins. „Hluti af tekjum stöðvarinnar verður af- kastatengdur, sem þýðir að hann verður háður fjölda koma og vitj- ana.“ Einnig verða greiðslur til verk- sala í formi höfðatölugreiðslna og fastra greiðslna. Dæmi eru þegar um að rekstur heilbrigðisþjónustu hafi verið boð- inn út eða samið hafi verið beint við aðila um tiltekna þjónustu. Má þar nefna rekstur heilsugæslu- stöðvar í Lágmúla. „En rekstur í heilsugæslu hefur ekki áður verið boðinn út. Munurinn á rekstrinum í Salahverfi mun m.a. felast í því að rekstraraðila er gert að eiga allan lausabúnað á stöðinni, eins og tæki, rekstrarvörur og húsgögn og standa straum af öðrum rekstrar- gjöldum stöðvarinnar. Þá er af- kastatengingin einnig nýlunda í slíkum rekstri,“ segir Guðmundur Hannesson hjá Ríkiskaupum sem munu sjá um útboðið. Í útboðslýsingunni eru bæði verk lækna og hjúkrunarfræðinga afkastatengd og er það einnig ný- lunda að sögn Svanhvítar. „Þarna gefst fagfólki tækifæri til að skipu- leggja þjónustuna, auka sveigjan- leika og hafa aðra verkaskiptingu milli lækna og annarra fagstétta, þó innan gildandi lagaramma.“ Samningur til átta ára „Miðað er við að samningstíminn sé átta ár með kosti á framleng- ingu til fjögurra ára,“ segir Svan- hvít og bendir á að þjónustusvæði stöðvarinnar nái til Linda- og Sala- hverfis ásamt Vatnsendahverfum en um 4.200 manns búa á þessu svæði í dag. Gert er ráð fyrir að hverfin verði fullbyggð árið 2012 og íbúafjöldinn verði þá um 11 þús- und. „Stöðin mun veita alla almenna heilsugæsluþjónustu, þ.e. almenna læknis- og hjúkrunarþjónustu, mæðraeftirlit, ungbarnavernd og skólaheilsugæslu. Samkvæmt skil- yrðum í útboðsgögnum verður einnig sérstök áhersla lögð á þjón- ustu við unglinga.“ Faglega verða gerðar sömu kröf- ur til stöðvarinnar í Salahverfi og allra annarra heilsugæslustöðva að sögn Guðmundar. „Viðskiptavinir verða ekki varir við breytt rekstr- arform. Breytingin er fyrst og fremst fólgin í því að ráðuneytið skapar rekstraraðilum ákveðinn tekjugrundvöll og þeir eiga síðan að standa algjörlega undir rekstr- inum sjálfir, bæði stjórnunarlega og hvað varðar starfsmannahald. Rekstraraðili stöðvarinnar ræður til sín fólk samkvæmt ákveðnu kaupi og kjörum. Starfsfólkið verð- ur ekki ríkisstarfsmenn.“ Hann segir að samkvæmt út- boðsgögnum sé mönnum talið það til tekna ef þeir koma með ein- hverjar nýjungar, nýsköpun og framtíðarsýn inn í heilsugæsluna. „Við erum í raun að kalla eftir því að menn komi inn í reksturinn með hugmyndir sínar og erum að gefa þeim vettvang til að útfæra þær og þróa.“ Útboðið verður auglýst um helgina, fyrirhugað er að halda kynningarfund með þeim sem bjóða í reksturinn í byrjun janúar, en skilafrestur er til 30. janúar nk. Ný heilsugæslustöð í Salahverfi mun taka til starfa um mitt næsta ár Rekstur heilsu- gæslu boðinn út í fyrsta sinn Kópavogur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.