Morgunblaðið - 14.12.2002, Qupperneq 33
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 33
AKUREYRI
FRAMKVÆMDASTJÓRI Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja telur
ekki lagalegan grundvöll til að semja
við heimilislækna um önnur kjör en
kjaradómur hefur ákvarðað. Lækn-
arnir hafa ákveðið að sækja ekki um
gömlu störfin sín og því ljóst að
starfsemi heilsugæslustöðvanna
kemst ekki í samt lag á næstunni.
Stjórnendur Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja (HSS) og fulltrúar
þeirra heimilislækna sem sögðu upp
störfum og hættu 1. nóvember síð-
astliðinn hafa verið í viðræðum und-
anfarna daga. Upp úr þeim hefur
slitnað.
Í yfirlýsingu sem Sigríður Snæ-
björnsdóttir framkvæmdastjóri
sendi frá sér í gær kemur fram að
læknarnir krefjast þess meðal ann-
ars að fá aksturstíma til og frá vinnu-
stað metinn til vinnutíma og viðbót-
arlaunaflokka. Þess má geta að allir
læknarnir búa á höfuðborgarsvæð-
inu. Telur framkvæmdastjórinn sig
ekki hafa lagalegan grundvöll til að
semja um sérkjör af þessu tagi og
hefur þessi túlkun hennar verið stað-
fest af heilbrigðisráðuneytinu.
Fækkun lækna óviðunandi
Í yfirlýsingu sem sjö fyrrverandi
heimilislæknar hjá HSS sendu frá
sér í gær kemur fram að samskipti
þeirra við stjórnendur HSS einkenn-
ist af trúnaðarbresti. Segjast þeir
meðal annars hafa boðið endurráðn-
ingu á þeim starfskjörum sem þeir
nutu áður. Hins vegar hafi komið í
ljós að forsendur séu verulega
breyttar. Nefna þeir sérstaklega að
ætlunin sé að fækka heilsugæslu-
læknum. „Að okkar áliti er fækkun
lækna óviðunandi þar sem hún leiðir
til skertrar þjónustu við skjólstæð-
inga heilsugæslunnar og verri
starfsskilyrða heilbrigðisstétta á
stofnuninni,“ segir í yfirlýsingunni.
Læknarnir segja að þessu fylgi
einnig sú augljósa staðreynd að ekki
standi til að endurráða alla þá sem
sögðu upp störfum. Í tilkynningu
HSS segir aftur á móti að öllum
læknunum sem sögðu upp hafi verið
boðin kjör sem séu í fullu samræmi
við nýlegan úrskurð kjaranefndar.
Ljóst er að þessi niðurstaða hefur
í för með sér að áfram verður röskun
á starfsemi heilsugæslunnar, eins og
framkvæmdastjórinn bendir á í til-
kynningu sinni, en jafnframt látin sú
von í ljósi að læknar ráði sig aftur til
stofnunarinnar og þjónustan komist
í gott horf á nýjan leik. Tveir heim-
ilislæknar eru nú við störf á heilsu-
gæslustöðinni í Keflavík.
Slitnað upp úr við-
ræðum við lækna
Keflavík
Ljósmynd/Hilmar Bragi
ÁÆTLAÐ er að samtals gisti 150–
160 manns frítt á Hótel Keflavík
um helgina. Er þetta fólk sem nýt-
ir sér tilboð hótelsins um versl-
unarferð til Reykjanesbæjar.
Mikill áhugi hefur verið á til-
boði Hótels Keflavíkur um endur-
gjaldslausa gistingu á hótelinu
gegn því að fólk framvísi kvitt-
unum fyrir kaupum á vörum eða
þjónustu í bænum sem svarar til
verðmætis gistingarinnar. Hótelið
tekur frá 20 herbergi í þessu
skyni á hverri nóttu fram til jóla.
Steinþór Jónsson hótelstjóri
segir að fyrstu dagana eftir að til-
boðið var kynnt hafi allar helg-
arnar bókast og biðlistar mynd-
ast. Þegar mest hafi verið hafi
verið 40–50 manns á biðlista eftir
gistingu einstaka nætur um helg-
ar. Minni eftirspurn er virku dag-
ana.
Steinþór segist hafa reynt að
koma til móts við fólkið með því
að bæta við herbergjum, eftir því
sem unnt hafi verið, og sumir hafi
fært sig til. Um 130 manns gistu á
hótelinu um síðustu helgi, fólk
sem bókaði sig samkvæmt þessu
tilboði, og búast má við að 150–
160 manns gisti um helgina.
„Það kemur okkur svo sem ekki
á óvart, miðað við reynsluna frá
síðasta ári, að fólk verslar tölu-
vert meira en það þarf til að nýta
tilboðið,“ segir Steinþór. Flestir
kaupa inn fyrir 20 til 50 þúsund
en sést hafa tölur yfir 200 þúsund
krónur. Segist Steinþór vera
ánægður með hvernig þetta geng-
ur og gestirnir séu einnig ánægð-
ir með framtak hótelsins og þjón-
ustuna sem þeir fá í verslunum í
Reykjanesbæ. Starfsfólk hótelsins
verði mjög vart við þetta.
150 gista frítt um helgina
Keflavík
Flestir atvinnulausir á Suðurnesjum
5% kvenna án vinnu
Reykjanes
ATVINNULEYSI eykst enn á Suð-
urnesjum og undanfarna tvo mánuði
hefur það verið hlutfallslega hið
mesta á landinu. Atvinnuleysi á
svæðinu hefur ekki verið meira í sex
ár.
Í lok nóvembermánaðar voru 372
Suðurnesjamenn án vinnu, sam-
kvæmt yfirliti Vinnumálastofnunar.
Hafði þeim fjölgað um 52 frá mán-
uðinum á undan og 238 frá nóvember
í fyrra. Enn er atvinnuleysið að
aukast því í gær voru tæplega 400
einstaklingar skráðir atvinnulausir.
Ef litið er á meðaltalstölur í mán-
uðinum sést að atvinnuleysið er
3,8%, heilu prósentustigi yfir lands-
meðaltali. Mest er atvinnuleysið
meðal kvenna en 5% þeirra eru án
vinnu.
Flestir voru án vinnu í Reykja-
nesbæ í lok nóvember, 292 einstak-
lingar, og hafði þeim fjölgað um 50 í
mánuðinum og 190 á árinu. Í Sand-
gerði voru 35 atvinnulausir, 19 í
Grindavík og Garði og 7 í Vogum.
Fæst í Kirkjuhúsinu Laugavegi 31, Reykjavík,
Shellstöðinni v/Hörgárbraut, Akureyri,
Litla húsinu, Strandgötu 13B, Akureyri og í
Radíovinnustofunni Kaupangi Akureyri.
Verð kr. 200
Einstakt tækifæri
Af sérstökum ástæðum er Blómabúð
Akureyrar, ein elsta og fallegasta
blóma- og gjafavöruverslun landsins,
til sölu.
Upplýsingar í símum 821 2903 og 821 2904
Jóhann/Kristín
MEIRIHLUTI skólanefndar Akur-
eyrarbæjar hefur fyrir sitt leyti sam-
þykkt tillögu að lækkun á fjárhags-
áætlun fræðslu- og uppeldismála
fyrir næsta ár um rúmar 58 milljónir
króna. Það er m.a. gert með því
hækka gjaldskrár leikskóla, skóla-
vistunar og tónlistarskólans um 8%
frá 1. janúar nk.
Einnig með því að loka leikskólum
í tvær vikur í sumar, þó þannig að að-
eins helmingur þeirra loki á sama
tíma. Ennfremur með lækkun á
ýmsum útgjaldaliðum í sameiginleg-
um kostnaði leik- og grunnskóla,
eins og kostnaði vegna auglýsinga,
styrkveitinga og þróunarsjóðs,
ásamt því að fjölga ekki leikskóla-
rýmum frá því sem nú er.
Fulltrúar minnihlutans, þau
Marsibil Fjóla Snæbjarnarsdóttir
frá F-lista og Hermann Jón Tómas-
son frá Samfylkingunni, sátu hjá við
afgreiðslu tillögunnar. Hermann
lagði jafnframt fram bókun þar sem
hann mótmælir tillögum meirihlut-
ans um breytingu á tillögu að fjár-
hagsáætlun. Tillögurnar gangi gegn
hugmyndum um Akureyri sem fjöl-
skylduvænan bæ með ýmsum hætti.
Andstaða Hermanns beinist að al-
mennri hækkun gjalda um 8%, sér-
stökum hækkunum á gjöldum for-
eldra og lækkunum á ýmsum liðum
sem með beinum eða óbeinum hætti
munu hafa áhrif á starfskjör kenn-
ara og leikskólakennara og þá þjón-
ustu sem skólarnir veita.
Einnig kemur fram í bókun Her-
manns að andstaða hans beinist að
breytingum á áætlunum um framboð
leikskólarýma sem m.a. felast í því
að leikskólinn Árholt verði lagður
niður næsta haust. Hermann gerir
athugasemd við það að foreldrar og
starfsmenn leikskólans Árholts séu
ekki hafðir með í ráðum þegar
ákvörðun um lokun skólans er tekin.
Leikskólar, skólavistun
og tónlistarskólinn
Gjaldskrár hækki
um 8% um áramót
Jólasveinarnir koma í heimsókn á
svalirnar ofan við Pennann–
Bókval í dag, laugardaginn 14. des-
ember kl. 15.
Rithöfundarnir Anna Valdimars-
dóttir og Andri Snær Magnason
verða í versluninni þann dag. Anna
les upp úr bók sinni „Leggðu rækt
við ástina“ og Andri Snær les úr bók
sinni „Lovestar“. Þau verða í versl-
uninni kl. 16.
Í DAG
Jólasöngvar Kórs Akureyrar verða
á morgun, sunnudaginn 15. desem-
ber. Tvennir tónleikar verða að
þessu sinni, enda hefur aðsókn verið
góð undanfarin ár. Fyrri tónleikarn-
ir verða kl. 17 og þeir síðari kl. 20.30.
Á efnisskránni er aðventu- og jóla-
tónlist. Björn Steinar Sólbergsson
leikur á orgel og stjórnandi er Ey-
þór Ingi Jónsson.
Auk þess að hlýða á kórinn gefst
kirkjugestum kostur á að æfa jóla-
sálmana fyrir jólin því auk kórsöngs
verður almennur safnaðarsöngur.
Aðgangur er ókeypis og eru allir vel-
komnir.
Á MORGUN
Aglow, kristileg samtök kvenna,
halda jólafund næstkomandi
mánudagskvöld, 16. desember, kl.
20 í félagsmiðstöðinni Víðilundi 22.
Edda Swan, formaður land-
stjórnar Aglow, flytur ræðu
kvöldsins. Jónheiður P. Halldórs-
dóttir syngur einsöng. Fjöl-
breyttur söngur, fyrirbænaþjón-
usta og jólahlaðborð.
Á NÆSTUNNI
FRAMKVÆMDIR við fjöl-
nota íþróttahúsið á fé-
lagssvæði Þórs við Hamar
eru á lokastigi. Í gær var
lokið við að ganga endan-
lega frá gervigrasi knatt-
spyrnuvallarins og setja
upp mörk en áður var búið
að leggja tartanefni á
hlaupa- og stökkbrautir í
húsinu. Haraldur Jóseps-
son, verkefnisstjóri Ís-
lenskra aðalverktaka, sagði
að fyrirtækið myndi af-
henda húsið 22. desember
nk. en sín vegna mættu
knattspyrnuæfingar hefjast
í húsinu strax í dag. Í gær
átti eftir að hengja upp net
meðfram hlaupabrautunum en að
öðru leyti er allt klárt, að sögn Har-
aldar. Hann sagði verkið hafa geng-
ið vel, „við erum ánægðir og von-
andi eru aðrir það líka“.
Á fundi íþrótta- og tómstunda-
ráðs í vikunni kom fram að stefnt sé
að formlegri vígslu hússins laug-
ardaginn 18. janúar nk. Rekstur
fjölnota hússins verður í höndum
bæjarins en unnið er að því að gera
samstarfssamning við Íþróttafélagið
Þór, m.a. um baðvörslu, en búnings-
aðstaðan verður í kjallara Hamars.
Gert er ráð fyrir að fjölnota
íþróttahúsið verði opið frá miðjum
degi og langt fram á kvöld virka
daga og frá kl. 09–21 um helgar.
Ákveðið hefur verið að úthluta ÍBA
44 tímum á viku í húsinu, sem aftur
deilir út þeim tímum til Þórs, KA,
Vasks, GA og Skotfélagsins. Þá er
gert ráð fyrir að selja um 20 tíma á
viku til þeirra sem áhuga hafa á að
nýta sér húsið og er þar helst horft
til félaga í nágrenni Akureyrar.
Morgunblaðið/Kristján
Félagarnir Bjarki Kristjánsson og Davíð
Oddsson gátu ekki stillt sig um að prófa
gervigrasið í nýja fjölnotahúsinu í gær.
Framkvæmdum við fjölnota
íþróttahúsið að ljúka
Knattspyrnuæf-
ingar gætu hafist
strax í dag