Morgunblaðið - 14.12.2002, Page 38
LISTIR
38 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Mörkinni 3, sími 588 0640
Glæsilegar
jólagjafir
STEVE Hubback slagverksleikari
heldur einleikstónleika á þriðju hæð
Nýlistasafnsins í kvöld kl. 20. Steve
Hubback leikur eigin tónlist á hljóð-
færi sem hann hefur sjálfur smíðað
og hlýtur það að teljast nokkuð
merkilegt. Hljóðfærið er ásláttar-
skúlptúr; listaverk út af fyrir sig, og
jafnvel sleglarnir eru gerðir úr viði
sem hann tíndi í skógum Norges.
„Ég smíða öll hljóðfærin sjálfur,
ég er bæði tónlistarmaður og járn-
og bronssmiður; – þetta er býsna fal-
legur skúlptúr og hljóðin í honum
mjög flott. Tónlist mín er ekki hefð-
bundin; hún sækir í forna krafta, og
hljóðin í hljóðfærunum eru mjög
djúp. Ég nota líka fornar spilaaðferð-
ir, er með allt að fimm slegla í hönd-
unum í einu. Það kemur fyrir, ef mér
gengur vel, að ég fer í trans þegar ég
spila. Þannig má segja að tónleikarn-
ir verði ferðalag inn í heim ólíkan því
sem fólk á að venjast, en ekki hefð-
bundnir slagverkstónleikar.“ Hljóð-
færin eru ólík hefðbundnum slag-
verkshljóðfærum, gerð úr stáli og
viði, og Steve Hubback mótar og
valsar stálið sjálfur og rammarnir
eru gerðir úr smíðajárni. Gong og
fleira smíðar hann úr bronsi. Steve
Hubback spilaði áður nútímadjass,
en segist hafa verið orðinn þreyttur á
því. „Ég er í leit að sönnum gildum
og sannri merkingu í því sem ég geri.
Maðurinn er alltaf að reyna að nálg-
ast þetta óræði og ég
held að maður kom-
ist nær því með því
að skapa sjálfur.
Ætli þetta sé ekki
leit að einhvers kon-
ar uppljómun.“
Hubback segir tón-
listina bæði spunna
og samda, – hún geti
verið hvernig sem
er. „En það er alltaf
strúktúr í henni
hvort sem hún er
spunnin eða samin
áður. Þegar ég
spinn, er ég alltaf
búinn að leggja lín-
urnar í huga mér.“
Steve Hubback
hefur haldið tónleika
um alla Evrópu, og
víðar, til dæmis í Suður-Kóreu, og
hefur gefið út fjölda geisladiska, ým-
ist einn eða með hljómsveitum. Hann
hefur smíðað ásláttarskúlptúra fyrir
fjölmarga listamenn, Evelyn Glenn-
ie, Paolo Vinaccia, Marilyn Mazur og
fleiri. Þjóðarhljómsveitin í Wales
keypti líka af honum hljóðfæri, og nú
stendur bara á tónskáldunum að
kynna sér hljóðheim þeirra og þá
möguleika sem í þeim búa. En Steve
Hubback er bjartsýnn á að það ger-
ist, og langar til að smíða heila hljóm-
sveit hljóðfæra einhvern tíma í fram-
tíðinni. Þangað til þá, leitar hann í
fortíðina eftir innblæstri í þau hljóð-
rænu ævintýri sem hann tekur hlust-
endur með sér í.
Steve Hubback með slagverkstónleika í Nýló
Sækir í það forna
Morgunblaðið/Sverrir
Steve Hubback með tvö hljóðfæra sinna, smíðuð eft-
ir hugmynd sem hann fékk í draumi.
LISTAKONURNAR Iréne Jensen,
Marilyn Herdís Mellk og S. Anna E.
Nikulásdóttir opna sýningu í Rauðu
stofunni í Galleríi Fold við Rauðarár-
stíg í dag. Þær eru allar í grafík-
félaginu Áfram veginn og sýna nú ný
grafíkverk og verk unnin með bland-
aðri tækni.
Sýningin er sú þriðja í röð fjög-
urra stuttsýninga sem Gallerí Fold
stendur fyrir nú á aðventunni og lýk-
ur föstudaginn 20. desember
Grafíkverk á stuttsýningu
JÓLATÓNLEIKAR Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands verða í Há-
skólabíói í dag kl. 15. Að þessu
sinni eru einleik-
arar nemendur
úr Suzukitónlist-
arskólanum und-
ir stjórn Lilju
Hjaltadóttur og
stúlknakórinn
Graduale Nobili
undir stjórn
Jóns Stefánsson-
ar syngur.
Hljómsveitar-
stjóri er Bern-
harður Wilkin-
son. Kynnir er
Atli Rafn Sig-
urðarson leikari.
Tónleikarnir
hefjast á hressilegum forleik: Jóla-
forleik Leroys Andersons sem var
saminn og gefinn út á plötu um
miðja síðustu öld. Hann hefur upp
frá því hljómað á öldum ljósvakans
og á jólatónleikum bæði austan
hafs og vestan. Næsta tónskáld er
líka frá Norður-Ameríku. Vetrar-
minni sem stúlkurnar í kór Grad-
uale Nobili syngja er kafli úr verk-
inu Röddum jarðar eftir kanadísku
tónlistarkonuna Ruth Watson
Henderson. Þá verður fluttir tveir
kaflar úr tveimur af ríflega 230
fiðlukonsertum Vivaldis. Í fyrri
konsertkaflanum, sem hljómar fyr-
ir hlé, kemur fram hópur fiðlunem-
enda úr Allegro Suzukitónlistar-
skólanum, sem heldur upp á fimm
ára afmæli sitt næsta haust. Eftir
hlé fáum við svo að sjá og heyra
Sindra M. Stephensen handleika
fiðluna sína. Sindri er 13 ára gam-
all og hóf sitt fiðlunám fjögurra
ára samkvæmt Suzukiaðferðinni.
Hann er nú nemandi við Tónlistar-
skólann í Reykjavík þar sem Lilja
Hjaltadóttir er kennari hans.
Lög úr Harry Potter
Sinfóníuhljómsveitin og stúlk-
urnar í Graduale Nobili flytja
Snjókornavals úr Hnotubrjótnum
eftir Pjotr Tsjækovskí. Þá verða
flutt tvö atriði úr tónlist Johns
Williams við fyrstu kvikmyndina
um Harry Potter; fyrst tónræn
lýsing á undraveröld Harrys og
síðan atriði þar sem Hedwig, ugla
Harrys og sendiboði, er í sviðsljós-
inu.
Á seinni hluta tónleikanna verða
flutt jólalög, auk Sleðaferðarinnar
og Vivaldikonsertkaflans. Graduale
Nobili flytja útsetningu eftir Ruth
Watson Henderson á þulunni um
jóladagana og gjafirnar og frum-
flytja einnig nýja útsetningu Jóns
Ásgeirssonar á lagi hans Á jólanótt
við texta Gunnars Dal, sem fjallar
um ævintýraheim barnsins.
Að lokum fá tónleikagestir að
láta í sér heyra í tveimur alþekkt-
um jólalögum: Bráðum koma
blessuð jólin og Heims um ból eftir
Frans Gruber.
Stórir og
smáir í
Háskóla-
bíói
Hinn 13 ára gamli
Sindri M. Steph-
ensen leikur ein-
leik í Háskólabíói.
Sjávarsólin og
kuldinn í kirkj-
unni nefnist bók
þar sem Þorvarð-
ur Hjálmarsson
fléttar saman
heimspekilegri og
bókmenntalegri
hugleiðingu um
tilvistarheim-
speki Alberts
Camus eins og hún birtist í skáld-
sögunni Útlendingurinn og fleiri
verkum, auk þess sem gerð er grein
fyrir höfundinum og helstu viðfangs-
efnum hans. „Ungur að árum las
Camus samlanda sinn frá Alsír, heil-
agan Ágústínus, sem vakti hann til
umhugsunar um hinstu rök og um
dóminn. Camus var í eðli sínu upp-
reisnarmaður og reis gegn algildum
lausnum. Kúgun hinna undirokuðu
var honum þyrnir í augum. Þá heill-
aðist hann af grísku goðsögunum
og þaðan lá leiðin að Kristi, Kier-
kegaard og Nietzsche.
Við spyrjum og leitum sannleik-
ans um hvað við erum og hvað við
skynjum, en án sannleikans væri
engin spurning um okkur sjálf eða
heiminn möguleg. Samkvæmt hefð-
bundnum skilningi á tilvist-
arheimspeki er maðurinn það sem
hann gerir úr sér og val okkar stend-
ur að dómi Camus á milli tveggja
kosta, heiðindóms eða guðstrúar,
en þegar grannt er skoðað kemur í
ljós að í tilvistarheimspeki Camus
er ekki um neitt val að ræða. Bókin
er hugleiðing um þessar þver-
stæður og veitir annars konar sýn á
tilvistarheimspekina eins og hún
birtist í verkum Alberts Camus,“
segir í kynningu.
Útg. er Hið íslenska bókmennta-
félag. 110 bls. Verð: 2.300 kr.
Heimspeki
LISTAVERK eftir Sigurð Guð-
mundsson var afhjúpað á lóð
Barnaspítala Hringsins í gær.
Efnt var til samkeppni um lista-
verk á lóðinni árið 2000 og varð
hugmynd Sigurðar hlutskörpust í
henni. Stórt tré úr bronsi og hlut-
fallslega enn stærri stóll úr gran-
íti standa á nýrnalaga grunni úr
rauðamöl í garði Barnaspítalans
og sést verkið úr þremur álmum
hússins er snúa að garðinum.
Reyndar er þetta ekki eina verkið
sem Sigurður gerði fyrir spít-
alann. Á stóra gangglugga á
þremur hæðum byggingarinnar
hefur hann sett ævintýri, eða brot
úr ævintýrunum um Stóra-Kláus
og Litla-Kláus, Nýju fötin keis-
arans og fleiri. Þriðji hlutur verks
Sigurðar verður ekki settur upp
fyrr en í þann mund sem spítalinn
sjálfur verður opnaður í janúar;
það eru stórir pússaðir steinar,
sem listamaðurinn segir krakka
munu hafa gaman af að snerta og
strúka. Hjálmar Árnason, formað-
ur byggingarnefndar og list-
skreytingarsjóðs Barnaspítalans,
hélt tölu við athöfnina og gerði
meðal annars grein fyrir sam-
keppninni og að því búnu gaf
hann listamanninum orðið.
„Ég hafði ánægju af því í þessu
verki að setja mig inn í hug-
arheim barnsins, án þess að verða
barnalegur sjálfur. Ég hugsaði
mikið um barnið meðan ég var að
gera þetta, án þess að lækka mitt
listræna flug. Miðað við hefð-
bundnar vinnuaðferðir myndlist-
armanna má sjá að formin eru
ekki í hinu ídeala myndræna sam-
hengi, því stóllinn er allt of stór.
En það var einmitt þetta sem ég
sóttist eftir til að gera verkið æv-
intýralegra, undarlegra og
skekkja það viðtekna viðhorf sem
við höfum til hlutanna og búa til
ævintýraheim. Ef fullorðin mann-
eskja stendur fyrir framan stólinn
breytist hún í lítið barn. Upplif-
unin er þannig. Verkið tengist
líka ævintýrunum á gluggunum
sem mér finnst hafa tekist mjög
vel. Ég er í alla staði mjög ánægð-
ur með samvinnuna við arkitekta
hússins, Sigríði Magnúsdóttur og
Hans Olav Andersen, en þau hafa
unnið mjög náið með mér að
þessu.“
Í umsögn dómnefndar um verk
Sigurðar sagði meðal annars:
„Verkið er vel útfært og stílhreint
og þjónar afar vel tilgangi sínum
sem verk fyrir Barnaspítala
Hringsins. Útilistaverkið æv-
intýrastóll úr graníti og bronstré
örvar ímyndunarafl barnanna
óháð hreyfigetu þeirra. Inniverk-
ið er látlaust og góð tenging við
náttúruna, einnig skemmtilegt
leiktæki fyrir börnin. Textar úr
ævintýrum í gluggum kallast á
við granítstólinn úti og bronstréð.
Verkið sem heild gerir sjúklinga,
starfsfólk og aðstandendur að
þátttakendum í ævintýri. Verkið
er úr varanlegum efnum og flytur
einföld en jákvæð skilaboð. Verk-
ið sem heild er stílhreint með
léttu yfirbragði og fallegt.“
Morgunblaðið/Golli
Einn af þremur hlutum verks Sigurðar. Ævintýrin greypt í glugga Barnaspítalans.
Sigurður Guðmundsson myndlistarmaður við nýja
verkið á lóð Barnaspítala Hringsins.
Listaverk eftir Sigurð Guðmundsson afhjúpað við Barnaspítala Hringsins
Ævintýri úr
bronsi, graníti
og gleri