Morgunblaðið - 14.12.2002, Side 69

Morgunblaðið - 14.12.2002, Side 69
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 69 anförnum árum verið „unnið að því að tryggja að gögn um laun opin- berra starfsmanna séu til þess fallin að nýta megi í kjararannsóknum“. Þetta er stórlega orðum aukið: Í bók- un með nýja launakerfinu sem samið var um árið 1997 var ákvæði um að ríkið skyldi fylgjast með afleiðingum þess fyrir launamun kynjanna. Þetta hefur ekki verið gert. Ástæðan? Það er ekki til starfaflokkun. Mér vitan- lega hefur starfaflokkun ekki vafist fyrir stjórnvöldum í öðrum löndum. Annað dæmi er að hvergi er að finna skiptingu vinnuaflsins milli hins op- inbera og almenna markaðarins. Þriðja atriðið, kaldhæðnislegt eins og það kann að hljóma, snertir vill- una margfrægu þar sem launamun- ur kynja í opinbera geiranum var of- metinn. Þessi gögn eru ekki tekin saman reglulega fyrir opinbera markaðinn og voru þess vegna reikn- uð sérstaklega fyrir þessa könnun. Því miður fór sem fór – og Rann- sóknastofa í kvennafræðum og Kjararannsóknanefnd opinberra starfsmanna hafa þegar leiðrétt vill- una, skýrt hana og harmað mistökin. Launamunur kynja er eldfimt og hápólitískt mál. Það er mikilvægt að grafast fyrir um hann eins og gert er í þessari könnun. Það græðir enginn á að ofmeta hann og enginn hefur gert það vísvitandi eða í vafasömum tilgangi. Launamunurinn er mikill hér á landi og það er brýnt að leita leiða til að útrýma honum. Það er spurning hvort yfirlætislegri gagn- rýni á Evrópukönnunina er hér ætl- að að þjóna þeim tilgangi. Höfundur er lektor í kynjafræði við félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Moggabúðin Músarmotta, aðeins 450 kr. Mörkinni 3, sími 568 7477 www.virka.is Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og laugard. frá kl. 10-14 Gjafabréf til saumakonunnar nýtist vel þar sem efnaúrvalið er mikið Jólatónar í Ljósafossstöð Landsvirkjunarkórinn býður öllu tónelsku fólki á létta jólatónleika í Ljósafossstöð laugardaginn 14. desember kl. 16:00. Þuríður G. Sigurðardóttir og Þorgeir J. Andrésson syngja einsöng Kaffi og piparkökur að tónleikum loknum. Allir velkomnir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.