Morgunblaðið - 14.12.2002, Síða 71
lagsþjónustu Reykjavíkur, sem
veitir fjárstyrk fyrir karla til náms
í félagsráðgjöf, á sinn þátt í því að
þrír karlmenn útskrifast væntan-
lega með starfsréttindi í félagsráð-
gjöf frá Háskóla Íslands árið 2003.
Í undirbúningi eru fleiri hvatning-
araðgerðir. Einnig hefur verið lagt
til að Háskóli Íslands og Jafnrétt-
isráð, í samstarfi við fjölda stofn-
ana og fyrirtækja, hefji hvatn-
ingarátak til að kynna drengjum í
grunn- og framhaldsskólum nám í
hjúkrunarfræði við Háskóla Ís-
lands (Rósa Erlingsdóttir, minn-
isblað: Átaksverkefni; konur til for-
ystu og jafnara námsval kynjanna).
Í dag eru konur í meirihluta í
deildum félagsvísinda og við velt-
um því fyrir okkur hvort staðhæf-
ingar sem heyrast gjarnan, að kon-
ur séu ef til vill betur læsar á
tilfinningar en karlar og að þær
eigi betur með að vinna í hóp, sé
ástæðan fyrir því hvers vegna þær
sæki frekar í félagsvísindi. Hvað
varðar félagsráðgjöf er, að okkar
mati, skýringa frekar að leita í
þeirri hefð sem myndast hefur fyr-
ir því að líta á félagsráðgjöfina sem
rótgróna kvennastétt. Karlmenn
hafi hreinlega ekki lagt í að brjóta
upp þessa venju sem skapast hef-
ur. En til þess að slíkt geti orðið að
veruleika þyrfti að efla jafnrétt-
isumræðuna í Háskóla Íslands, og
víðar, enn frekar og ræða málin á
breiðari grundvelli svo hún nái
örugglega eyrum allra, líka karl-
þjóðarinnar.
Bæði kynin – betri þjónusta
Aukin aðsókn karlmanna í fé-
lagsráðgjöf, sem og aðrar greinar
sem einkennast af þátttöku
kvenna, er að okkar mati mjög já-
kvæð þróun. Karlkyns félagsráð-
gjafar gætu vissulega átt þátt í því
að koma með nýjar áherslur inn í
stéttina þar sem um breitt starfs-
svið er að ræða og þörf er á sí-
felldri endurnýjun. Einkunnarorð
félagsráðgjafar er heildarsýn, þar
sem félagsráðgjafanum er ætlað að
líta á vandkvæði einstaklinga út frá
persónulegum, félagslegum og
samfélagslegum þáttum í lífi hans.
Það mætti segja manni að full-
komin heildarsýn sé einmitt fengin
með sjónarmiðum beggja kynja að
leiðarljósi. Reynslan úr heilbrigðis-
og félagsmálaþjónustu bendir til að
karlkyns og kvenkyns starfskraft-
ar taki með ólíkum hætti á málum.
Kynin eru misjafnlega félagsmótuð
og kannski misjöfn að upplagi líka,
því hlýtur víðsýnin að aukast þegar
þau vinna saman að því að leita
lausna og það tryggir jafnframt oft
sanngjarnari þjónustu. Þetta á
ekki bara við í félagsráðgjöf heldur
í öllum fögum og sviðum sam-
félagsins.
Ef konur finna að karlar leita
inn á hefðbundin kvennasvið er
ekki ólíklegt að þær finni sig frek-
ar á meðal karla, á hefðbundnum
karlasviðum. Karlar þurfa að læra
á mjúku sviðin, á sama tíma og
konur læra á þau hörðu. Efna-
hagur framtíðarinnar byggist á því
að nýta alla þá þekkingu sem til
staðar er, og þá ekki síst kvenna,
því hún hefur verið vannýtt hingað
til. Einnig þarf að beina körlum á
breiðari vettvang því við þurfum
einnig krafta þeirra sem víðast.
Í öllum fögum er mikilvægt að
jafna hlutfall kynjanna þar sem
það hallar áberandi á annað hvort
þeirra, því allstaðar er þörf á sýn
beggja kynja og einnig not fyrir
mannauð og reynslu þeirra. Að því
er nú unnið við Háskóla Íslands.
Höfundar eru nemendur á fjórða ári
í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 71
alltaf á föstudögum
Síðumúla 3-5
Sími 553 7355
Opið alla daga frá kl. 11-18
23. des. opið frá kl. 11-23
24. des. opið frá kl. 11-13
Satínnáttkjólar
Stuttir verð kr. 3.800
Síðir verð kr. 6.400
Silkináttföt
Verð kr. 14.200
Undirföt
í úrvali
Draumagjöfin hennar!
Á fljúgandi fer›
- um jólin
15% afsláttur af brettapökkum
(bretti, skór og bindingar)
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1550 og 545 1500
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
1
94
42
12
/2
00
2