Morgunblaðið - 14.12.2002, Síða 73
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 73
FRAMBOÐSLISTAR vegna
komandi alþingiskosninga eru að líta
dagsins ljós hver af öðrum. Fyrir
liggur skv. úttekt fjölmiðla að konum
mun fækka í þinginu eftir næstu
kosningar. Í mínu kjördæmi, sem
kennt er við norðvestur, hafa birst
listar allra fjórflokkanna. Nokkra
umræðu hefur vakið karlaslagurinn,
slagsmál sitjandi þingkarla um að
halda öruggu sæti, konur lítt verið
nefndar til sögunnar í þeirri um-
ræðu. Listarnir enda þannig að það
er best að byrja að leita rétt ofan við
miðju ef maður ætlar að finna konu,
hreinir karlahlunkalistar að Sam-
fylkingunni undanskilinni.
Ég sem hef kennt mig við vinstri -
græna hafði nú ekki áhyggjur af
stöðu kvenna í mínum flokki. Í mín-
um flokki er stefnan skýr hvort sem
er í jafnréttis- eða kvenfrelsismál-
um. Ekki bara í stefnuskránni og
málefnahandbókinni heldur hefur
formaðurinn líka í hátíðarræðum
gert sér tíðrætt um meginstoðirnar
þrjár í stefnu flokksins; vinstri stefn-
una, umhverfisverndina og síðast en
ekki síst kvennabaráttuna. Við höf-
um öll klappað rosalega, jafnt konur
og karlar, svo ánægð með stefnuna
og meginstoðirnar og svo auðvitað
formanninn.
Nei, það var nú ekki ástæða til að
hafa áhyggjur af mínum flokki í
mínu kjördæmi, enda úrval af vel
frambærilegum konum sem mundu
sóma sér vel hvort sem er í 1. eða 2.
sæti, konum sem voru tilbúnar til að
hella sér í slaginn, konum sem njóta
virðingar og vinsælda á heimaslóð-
um og formaðurinn minn auk þess
búinn að vera að gera grín að slags-
málum karlanna í hinum flokkunum
um þingsætin.
En hver varð svo veruleikinn? Jú
vinstri - grænir, þótt þeir ættu nú
ekki marga þingmenn, voru lentir í
sömu vandræðum og hinir flokkarnir
með sitjandi karlkyns þingmann sem
átti litla von um endurkjör vegna
kjördæmabreytinganna. Góður fé-
lagi í þingflokknum, voðalega
skemmtilegur strákur, vinur for-
mannsins og þægilegur í allri um-
gengni. Svona karlmaður má ekki
missa von um þingsæti. Vandann
verður að leysa. Þetta var undra ein-
falt, nokkur símtöl milli miðaldra
fyrrverandi allaballakarla og lausnin
fundin; 2. sæti í Norðvesturkjör-
dæminu, – með góðri baráttu gæti
verið von um uppbótarþingsæti.
Léttir, – búið að koma körlunum fyr-
ir , – setjum konur í næstu 3-4 sæti,
það ætti að vera þokkalegt jafnrétti.
Er þá stefnan og allt talið um meg-
instoðirnar; kvennabaráttuna og
hitt, bara til hátíðarbrúks? Eigum
við konur að vera ánægðar meðan
stefnuskráin er í lagi hvernig sem
framkvæmdin er? Eru hinar megin-
stoðirnar kannski líka bara svona til
að nota spari?
Karlarnir hafa reynt að bera fram
ýmisleg rök fyrir listanum sínum.
Skemmtilegasta afsökunin er að
þurft hafi að gæta þess að frambjóð-
andi í 2. sæti skyggði ekki á karlinn
sem „átti“ 1. sætið. Dásamleg rök í
flokki sem hefur kvennabaráttu sem
eina af „meginstoðunum“.
Ekki er ég svo barnaleg að halda
að þetta greinarkorn mitt hafi áhrif á
karlakompaníið í vinstri - grænum.
Þeir munu afgreiða þetta annað-
hvort góðlátlega með – „ hún er ekki
í nógu góðu skapi í dag“ eða ein-
hverju þess háttar eða bara varpa
frá sér allri ábyrgð og vísa á uppstill-
ingarnefnd í kjördæminu. Þeir gætu
jafnvel att flokkshollri konu í að
svara mér. Steingrímur og félagar
hafa áralanga reynslu í að hrista af
sér málefnalega gagnrýni kvenna
eins og hverja aðra óværu og láta
það alls ekki hafa áhrif á sig.
Von mín er hinsvegar sú að konur,
sem enn hafa í sér ögn af kvennabar-
áttuneista, hugleiði málið. Það er
hægt að sitja heima á kjördag eða
skila auðu, – jafnvel teikna það sem
virðist skipta mestu máli á kjörseð-
ilinn. Er ekki kominn tími til að beita
„kvennaráðum“?
Þokkalegt
jafnrétti
Eftir Hjördísi
Hjartardóttur
Höfundur er varaþingmaður VG á
Norðurlandi vestra.
„Er þá stefn-
an og allt
talið um
meginstoð-
irnar;
kvennabaráttuna og
hitt, bara til hátíð-
arbrúks?“
alltaf á þriðjudögumHEIMILI/FASTEIGNIR
ATVINNA mbl.is
Pétur Gautur
Í dag ,kl. 16 –19, opnar jólasýning á nýjum
verkum á vinnustofu minni „Gallerí Örnólfur“
á horni Snorrabrautar og Njálsgötu.
Komið inn úr kuldanum og jólatraffíkinni og
þiggið piparkökur og léttar veitingar og
hlýðið á ljúfa tóna Tómasar R. Einarssonar
bassaleikara.
VERIÐ VELKOMIN OG TAKIÐ MEÐ YKKUR GESTI.
á aðventu
SýningSýningin er opin frákl. 16-18 alla dagafram að jólum.