Morgunblaðið - 14.12.2002, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 14.12.2002, Blaðsíða 79
SAMBAND íslenskra kristniboðs- félaga gefur út almanak, eins og und- anfarin ár, til kynningar á starfi samtakanna. Almanak næsta árs er sérstaklega helgað konum, lífi þeirra og kjörum og hvernig kristniboðs- starfið miðar að því að styrkja kon- urnar. Almanakinu er dreift ókeypis en með því fylgir gíróseðill sem nota má til að koma til skila fjárframlögum til starfsins. Fólk sem hefur áhuga á að fá eintak getur haft samband við skrifstofu Kristniboðssambandsins, húsi KFUM og KFUK, Holtavegi 28, eða nálgast það í sölubás samtak- anna í Kringlunni nú fyrir jólin. Kristniboðs- almanakið komið út FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 79 SIGURÐUR Hafsteinsson, sem er búsettur í Grenaa í Danmörku, hefur hafið sölu á dönskum jólatrjám á Dalvegi í Kópavogi. Er þetta í annað skiptið sem Sig- urður kemur hingað til lands að selja jólatré. Sigurður hefur ásamt fjöl- skyldu sinn fellt trén í Danmörku og flutt þau inn. 10% af andvirði sölunn- ar renna til einhverfra barna. Uppboð verður á 3,5 metra háu jólatré 20. desember nk. og mun and- virði þess renna óskipt til einhverfra barna, segir í fréttatilkynningu. Selur dönsk jólatré Morgunblaðið/Alfons Sigurður Hafsteinsson með jólatréð sem hann ætlar að bjóða upp 20. desember nk. Jólamarkaðurinn á Lækjartorgi verður opinn sunnudaginn 15. des- ember kl. 13–22. Á boðstólum verður m.a.: Sólheimakerti og Sól- heimasultur, handunnið jóla- skraut, hlæjandi húfur, heima- saumuð dúkkuföt, jólatré og grenigreinar, framandi skraut- munir, forngripir, skart og slípaðir steinar o.fl. Veitingasalan verður í höndum miðbæjarprests ásamt unglingum úr fjölþjóðastarfinu og Samhjálp. Bjarni Karlsson, sókn- arprestur í Laugarneskirkju, talar um aðventuna og jólaboðskapinn kl. 14. Tónlistarmennirnir Tómas R. Einarsson, Gunnar Gunnarsson og Þorvaldur Þorvaldsson flytja jólasálma. Kl. 15 flytur hljóm- sveitin Santiago lög af nýjum geisladiski sínum. Eyjólfur Krist- jánsson leikur og syngur nokkur lög kl. 20 og áritar nýja diskinn sinn Engan jazz hér í sölubás Skífunnar. Landakotskirkja Níu manna hóp- ur nýrra Íslendinga heldur jóla- vöku, á morgun, sunnudaginn 15. desember, kl. 16. Verkefnið heitir „Enginn er eyja“ og verða m.a. lesin ljóð, jólalög sungin bæði á ís- lensku og ensku, og að auki á tagalog (megintungumál Filipps- eyinga), bemba (tungumálið í Sambíu) og á þýsku. Jafnframt verður safnað fyrir hjálparstarfið í Zambíu og á Fil- ippseyjum til handa fátæku og veiku fólkið þar. Hinir nýju Ís- lendingar vilja með framlaginu auka skilning milli sín og eyja- skeggja. Neskirkja Rósakranssónötur númer 1–5 eftir Heinrich Biber verða fluttar í Neskirkju annað kvöld kl. 21. Það eru þeir Martin Frewer fiðluleikari, Dean Ferrell kontrabassaleikari og Steingrímur Þórhallsson orgelleikari sem flytja tónlistina og Örn Bárður Jónsson flytur ritningalestur og hugleið- ingu en Rósakranssöturnar lýsa fæðingu og fyrstu 12 árum Krists. Hver og ein lýsir einum þætti í lífi Krists eins og því er lýst í Nýja testamentinu. Á MORGUN Opið hús í félagsheimili ása- trúarmanna, Grandagarði 8, verð- ur í dag, laugardaginn 14. desem- ber kl. 2 – 5 en þar er nú verið að undirbúa stærsta blót ársins sem haldið verður um vetrarsólstöður. Formlega verður opnuð sýning Júlíusar Samúelssonar „Lífsins tré“. Júlíus sýnir þar olíumálverk og er efni verkanna sótt í goð- heima. Aðgangur er ókeypis í Hrafnakaffi ásatrúarmanna og allir velkomnir. Jólafundur LAUFS, landssamtaka áhugafólks um flogaveiki verður haldinn í dag, laugardaginn 14. desember kl. 14 – 16 í Hátúni 10, jarðhæð. Irma Sjöfn Óskarsdóttir fytur hugvekju og Guðlaug María Bjarnadóttir leikkona verður með upplestur. Heitt súkkulaði og jóla- kökur. Í gamla Hressingarskálanum verður ýmislegt um að vera í dag, laugardaginn 14. desember. Dag- skrá hefst kl. 15 með barnastund í umsjá Jónu Hrannar Bolladóttur miðborgarprests. Auður Jónsdóttir rithöfundur les úr bók sinni skrýtnastur er maður sjálfur. Kl. 16 kemur Margrét Pálmadóttir ásamt nokkrum söngsystrum sín- um úr Kvennakórnum og syngja. Kl. 17 syngur Hólmfríður Jóhann- esdóttir mezzósópran nokkur lög við undirleik Hreiðars Inga Þor- steinssonar. Jólaböll í Vetrargarðinum í Smáralind, í dag, laugardaginn 14. og á morgun, sunnudaginn 15. des- ember, kl. 14 – 16. Ásta og Lóa ókurteisa koma á jólaballið. Einnig verður boðið upp á myndatöku með jólasveininum við Hans Petersen frá kl. 14 – 16. Margir tónlist- armenn verða í Vetrargarðinum; á laugardaginn kl. 13.30 syngur Kata ásamt dönsurum og söngvurum, kl. 15 Í Svörtum fötum, kl. 17 Bubbi, Þórunn A., Papar, Eyfi og Valgeir Guðjónsson. Á sunnudag kl. 15 syngur Jóhanna Guðrún, KK, Pap- ar, Páll Rósinkrans, Í svörtum föt- um, Írafár, Land og synir, kl. Day- sleeper, Þórunn A., Hera og XXX Rottweiler hundar. Á laugardag kl. 19 verður jóla- skemmtun í Vetrargarðinum með Jólalest Coca-Cola. Jólasveinarnir verða á ferð í göngugötunni skemmta börnunum, harmonikku- og flautuleikarar flytja jólatónlist og Álafosskórinn syngur á laug- ardag kl.15. Jólalandið í Vetr- argarðinum er opið alla daga til jóla. Í Fjölskyldu- og húsdýragarð- inum verður boðið upp á hest- vagnaferðir um garðinn kl. 14 – 15 um helgina. Á sunnudaginn verður rúningsmaðurinn Guðmundur Hall- grímsson og konur frá ullarselinu á Hvanneyri. Einnig verður ráðu- nautur frá Bændasamtökunum til að mæla kjöt- og fituþykkt á fénu með aðstoð sónartækis. Kl. 10.40 er jólasaga lesin í fjósinu og kl. 14 munu jólasveinarnir og Grýla leyfa gestum garðsins að fylgjast með jólaundirbúningnum á heimili sínu, en jólasveinaheimilið er opið alla daga kl. 14 – 15. Í stað hefðbund- innar hestateymingar ætla dýra- hirðarnir að bjóða fólki í hest- vagnaferð í rúmlega 100 ára gömlum hestvagni kl. 14 – 15 báða dagana. Virka daga verður hesta- teyming kl. 14 – 14.30. í Kaffihús- inu verður hádegishlaðborð. Upplýsingafundur um virkjana- áformin á hálendi Íslands verður í dag, laugardaginn 14. desember kl. 15 – 17, á efri hæð Grand Rokks að Smiðjustíg 6. Erindi halda: Katrín Theodórsdóttir lögmaður og Ólafur S. Andrésson, í stjórn Náttúruverndarsamtaka Íslands. Í DAG Jólahappdrætti Krabbameins- félagsins HAPPDRÆTTI Krabbameins- félagsins er helsta fjáröflunarleið krabbameinssamtakanna hér á landi. Einn mikilvægasti þáttur starfseminnar, fræðsla um krabba- mein og krabbameinsvarnir, byggist að langmestu leyti á happdrættisfé, svo og aðstoð og stuðningur við krabbameinssjúklinga og aðstand- endur. Í jólahappdrættinu fá konur heimsenda happdrættismiða. Vinn- ingar í jólahappdrættinu eru 150 talsins að verðmæti rúmar 18 millj- ónir kr. Aðalvinningur er Alfa Ro- meo 156 frá Alfa Romeo-umboðinu. Annar aðalvinningurinn er bifreið eða greiðsla upp í íbúð að verðmæti kr. 1.000.000. 148 vinningar eru svo úttektir hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti kr. 100.000. Vinningarnir eru skatt- frjálsir. Dregið verður 24. desember. Miðar eru einnig til sölu á skrif- stofu Krabbameinsfélagsins í Skóg- arhlíð 8. Mótmæla hækkunum á verðlagi EFTIRFARANDI ályktun hefur borist frá Verkalýðsfélagi Akraness: „Trúnaðarráð Verkalýðsfélags Akraness mótmælir harðlega þeim hækkunum á verðlagi sem nýlega hafa verið ákveðnar eða eru í burð- arliðnum. Verkalýðshreyfingin hef- ur í síðustu kjarasamningum axlað sinn hluta ábyrgðarinnar á því að halda aftur af verðbólgu. Hreyfingin sýndi jafnframt hvers hún er megn- ug í átakinu við að halda verðlags- hækkunum innan við rauðu strikin síðastliðið vor. Þær hækkanir sem nú hafa verið kynntar eru algjört stílbrot í þessu samhengi. Þær sýna að frumkvæði okkar er einskis metið og að ríkisstjórnin, ýmis fyrirtæki og sveitarfélög ætla ekki að axla sinn hluta ábyrgðarinnar. Flestum er í fersku minni að það þurfti að knýja ríkisstjórnina til þátttöku í átakinu um að halda verð- lagi innan við rauðu strikin. Það er greinilegt að hún nýtir sér fyrsta tækifæri til að hækka verðlag og leggja nýjar álögur á almenning í landinu. Þessar aðgerðir hljóta að gefa tóninn í undirbúningi næstu kjarasamninga.“ BÍLABÚÐ Benna hefur fengið um- boð fyrir bandarísku torfæruhjólin frá Cannondale, en gengið var frá samningum þess efnis um síðustu mánaðamót. Fyrsta sending af tor- færuhjólunum er komin og verða þau frumsýnd mánudaginn 16. desember. Helsta nýjungin er rafeindastýrð innsprautun eldsneytis og rafeinda- stýrt kveikjukerfi. Þannig geta eig- endur tengt mótorhjól sín við tölvu og stillt eiginleika vélar hjólanna með til- liti til þeirra aðstæðna sem ætlunin er að keyra við, en slíkt hefur hingað til ekki þekkst í torfæruhjólum. Enn- fremur koma þau með keppnisfjöðr- un frá Öhlins. Grind hjólsins er úr áli, vökvakúpling er staðalbúnaður, olíu- verk gírkassa er aðskilið frá vél og meðal framúrstefnubreytinga er að snúa strokklokinu öfugt við það sem hingað til þekkist en með því móti er hægt að stytta pústgreinina og hag- ræða uppsetningu hjólsins til muna, segir í fréttatilkynningu. Samhliða torfæruhjólunum mun Bílabúð Benna selja O’neal fatnað, Oakley gleraugu, Alpinestars hlífðar- fatnað og Michelin torfæruhjóladekk. Sýna torfæru- hjól frá Cannondale Fagna ákvörðun um jarðgöng um Héðinsfjörð EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur borist frá bæjaryfirvöldum á Siglu- firði vegna ákvörðunar um jarð- gangagerð: „Samgönguráðuneytið hefur kynnt ákvörðun um útboð vegna jarðgangagerðar á Austur- og Norðurlandi í vetur og fram- kvæmdaáætlun verkanna. Bæjaryf- irvöld á Siglufirði fagna því heils- hugar að nú liggi fyrir endanleg ákvörðun ríkisstjórnar og ráðuneyt- is um útboð jarðganga um Héðins- fjörð milli Siglufjarðar og Ólafs- fjarðar í febrúar 2003 og í framhaldi af því framkvæmdir við verkið. Er mikilsvert að með þeirri tilhögun sem ákveðin hefur verið helst sú hagkvæmni af samlegðaráhrifum beggja verkefnanna sem gert var ráð fyrir með sameiginlegu útboði. Það hlýtur ávallt að vera fagn- aðarefni þegar skynsamlegar ákvarðanir eru teknar í samgöngu- málum þjóðarinnar en áætluð þjóð- hagsleg arðsemi af byggingu jarð- ganga um Héðinsfjörð er um 14,5% samkvæmt skýrslu Vegagerðarinn- ar um umhverfismat framkvæmda.“ Byggðarann- sóknastofnun opnar heimasíðu VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnað- ar- og viðskiptaráðherra opnaði heimasíðu Byggðarannsóknarstofn- unar Íslands föstudaginn 6. desem- ber sl. Hjá Byggðarannsóknarstofnun eru stundaðar rannsóknir á sviði byggðamála og er stofnunin staðsett við Háskólann á Akureyri. Verk- efnastjóri Byggðarannsóknarstofn- unar er dr. Grétar Þ. Eyþórsson, en hann er jafnframt framkvæmda- stjóri Rannsóknarstofnunar Háskól- ans á Akureyri (RHA). Á síðunni má m.a. finna öflugan gagnvirkan gagnagrunn um íslensk- ar byggðarannsóknir. Er hér um að ræða þann fyrsta og eina sinnar teg- undar um byggðamál hérlendis, seg- ir í fréttatilkynningu. Slóð heimasíð- unnar er www.brsi.is og frétt af opnuninni má sjá á heimasíðu Há- skólans á Akureyri www.unak.is Frá afhendingu styrksins, frá vinstri: Fanney Karlsdóttir starfsmaður, Guðmundur K. Einarsson gjaldkeri og Garðar Guðjónsson, formaður Kópavogsdeildar, Margrét Scheving formaður og Ingibjörg Ingvadóttir gjaldkeri, fulltrúar Mæðrastyrksnefndar. Styrkir Mæðrastyrks- nefnd Kópavogs Auk matarstyrkja úthlutar nefndin fötum til þeirra sem á þurfa að halda. Fataúthlutun í desember fer fram á þriðjudögum kl. 16–18 í húsnæði deildarinnar í Hamraborg 20a. KÓPAVOGSDEILD Rauða kross- ins hefur veitt Mæðrastyrksnefnd Kópavogs 500 þúsund króna styrk vegna aðstoðar við fjölskyldur sem leita til nefndarinnar nú fyrir jólin. Í STAÐ útsendinga jólakorta í ár styrkir Sorpa Ferðafélag- ið Víðsýn. Ögmundur Einars- son, framkvæmdastjóri Sorp- eyðingar höfuðborgarsvæðis- ins bs. afhenti Ferðafélaginu Víðsýn styrk föstudaginn 13. desember. Ferðafélagið Víðsýn hefur það markmið að gefa fé- lagsmönnum kost á að fara í skipulagðar ferðir innanlands sem utan. Í félaginu eru rúm- lega 40 einstaklingar, gestir Vinjar, athvarfs fyrir geðfatl- aða sem Rauði kross Íslands rekur að Hverfisgötu 47, Reykjavík. Fyrir hönd Ferðafélagsins Víðsýnar veitti Garðar Sölvi Helgason, gjaldkeri félagsins og gestur Vinjar, styrknum móttöku og eins og áður kom fram mun styrkurinn nýtast til niðurgreiðslu ferðakostnaðar fyrir gesti Vinjar. Sorpa styrkir Ferðafélagið Víðsýn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.