Morgunblaðið - 14.12.2002, Side 82
DAGBÓK
82 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Brynjólfur fer í dag.
Fréttir
Bókatíðindi 2002. Núm-
er laugardagsins 14. des.
er 99087.
Mannamót
Norðurbrún 1, Furu-
gerði 1, Hæðargarður
31 og Vitatorg. Mánu-
daginn 16. desember
verður farið í aðventu-
ferð á Hellu í boði Hóp-
bíla og Hestheima þar
sem handverkssýning
heimamanna verður
skoðuð. Farið verður að
Hestheimum þar sem
verður boðið upp á jóla-
kaffihlaðborð með heitu
súkkulaði og kaffi ásamt
öllum gerðum af kökum
og smurðu brauði. Skag-
firðingarnir Ásta Begga
og Gísli á Hestheimum
syngja jólalög. Lagt af
stað kl. 12.30 frá Norð-
urbrún 1 og síðan teknir
farþegar í Furugerði,
Hæðargarði og Vita-
torgi. Uppl. í Norð-
urbrún s. 5688 6960,
Furugerði s. 553 4060,
Hæðargarði s. 568 3132
og Vitatorgi s. 561 0300.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Púttað er
í Hraunseli mánudaga
kl. 10 þriðjudaga kl. 13
fimmtudögum kl. 10 og
föstudögum kl. 13. Bilj-
ardstofan er opinn alla
virkadaga frá kl. 13–16.
Skráning og allar upp-
lýsingar í Hraunseli
síma 555 0142.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kór eldri
borgara í Damos. Fé-
lagsstarfið verður til 19.
des. og endar þá með há-
tíðarstund á Hlaðhömr-
um kl. 14.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmtud: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Handverks-
sýning á Garðabergi.
8 leirlistakonur nem-
endur hjá Svetlönu Mat-
usa og 10 konur nem-
endur í bútasaum hjá
Elísabetu Magnúsdóttur
á námskeiðum hjá FAG
með sýningu á Garða-
bergi. Sýningarnar eru
opnar á virkum dögum
og á laugardag kl. 13–17.
Allir velkomnir.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin kl. 10–13 virka
daga. Morgunkaffi, blöð-
in og matur í hádegi.
Sunnudagur: Dansleikur
kl. 20, Caprí-tríó leikur
fyrir dansi. Ljósaskreyt-
ingar á Akranesi, stutt
dagsferð 15. desember,
brottför frá Ásgarði
Glæsibæ kl. 14.
Söngvaka nk. miðviku-
dag 18. desember kl.
20.45. Umsjón Sig-
urbjörg Hólmgríms-
dóttir. Skrifstofa félags-
ins er í Faxafeni 12, sími
588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Myndlistarsýning Árna
Sighvatssonar stendur
yfir.
Gullsmári. Jólahlaðborð
verður í dag, laugardag-
inn 14. des. kl. 18.30.
Tekið á móti gestum
með fordrykk. Samkór
Kópavogs undir stjórn
Julian Hawlett. Fjölda-
söngur og dans.
Hvassaleiti. Litlu jólin
verða haldin þriðjudag-
inn 17. des. nk. kl. 13–16.
Á boðstólum verður jóla-
matur, Þorvaldur Hall-
dórsson kemur og sér
um jólatónlistina. Skrán-
ing er á skrifstofunni í
síma 588 9335.
Vesturgata 7. Nýtt
jóganámskeið byrjar
mánudaginn 6. janúar.
Kennt verður á mánu-
dögum og mið-
vikudögum kl. 10.30–
11.30. Leiðbeinandi
Hildur Björg Eydal.
Frír prufutími, upplýs-
ingar og skráning í
síma 562 7077. Jóla-
hugvekja verður
fimmtudaginn 19. des.
kl. 10.30 í umsjón séra
Hjálmars Jónssonar
dómkirkjuprests. Þor-
valdur Halldórsson
syngur og leikur á
hljómborð. Allir vel-
komnir.
Digraneskirkja, kirkju-
starf aldraðra. Opið hús
á þriðjudag frá kl. 11,
leikfimi, léttur máls-
verður, helgistund,
fræðsluþáttur, kaffi. All-
ir velkomnir.
Húnvetningafélagið og
Húnakórinn halda ár-
lega jólaskemmtun í
Húnabúð, Skeifunni 11, í
dag 14. des. kl. 15.
Húnakórinn syngur,
jólasveinn kemur í heim-
sókn. Kaffihlaðborð.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl. 10
laugardagsmorgna frá
Gjábakka. Krummakaffi
kl. 9. Allir velkomnir
Félag einhleypra. Jóla-
fundur í kvöld kl. 20 í
Konnakoti Hverfisgötu
105. Nýir félagar vel-
komnir. Munið gönguna
mánu- og fimmtudaga.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í fræðslu-
deild SÁA Síðumúla 3–5
og í Kirkju Óháða safn-
aðarins við Háteigsveg á
laugardögum kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
að Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið hús
alla laugardaga frá kl.
14.
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, er opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Leið 10 og 110 ganga að
Kattholti.
Slysavarnarkonur í
Reykjavík, laugardag-
inn 4. janúar verður
haldið jólaball frá kl. 15–
18 fyrir kvennadeild-
arkonur og fjölskyldur
þeirra. Vinsamlegast til-
kynnið þátttöku fyrir 18.
des. til Hrafnhildar í
síma 567 9794.
Breiðfirðingakórinn.
Sunnudaginn 15. des.
heldur Breiðfirðingakór-
inn bingó og syngur létt
jólalög í Breiðfirð-
ingabúð og hefst
skemmtunin kl. 14.30.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Austfjörðum.
Á Seyðisfirði: hjá Birgi
Hallvarðssyni, Botnahlíð
14, s. 472 1173. Á Nes-
kaupstað: í blómabúð-
inni Laufskálanum,
Kristín Brynjarsdóttir,
Nesgötu 5, s. 477 1212. Á
Egilsstöðum: í
Blómabæ, Miðvangi, s.
471-2230. Á Reyðarfirði:
hjá Grétu Friðriksd.,
Brekkugötu 13, s.
474 1177. Á Eskifirði:
hjá Aðalheiði Ingimund-
ard., Bleikárshlíð 57, s.
476 1223. Á Fáskrúðs-
firði: hjá Maríu Ósk-
arsd., Hlíðargötu 26, s.
475 1273. Á Hornafirði:
hjá Sigurgeir Helgasyni,
Hólabraut 1a, s.
478 1653.
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588 7555
og 588 7559 .
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrifstofu
félagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi) 2. hæð, s.
552 2154. Skrifstofan er
opin miðvikud. og
föstud. kl. 16–18 en utan
skrifstofutíma er sím-
svari. Einnig er hægt að
hringja í síma 861 6880
og 586 1088.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheim-
ersjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533 1088 eða í
bréfs. 533 1086.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd á
skrifstofutíma í síma
552 4440 frá kl. 11–15.
Kortin má einnig panta
á vefslóðinni:
http://www.parkinson.is/
sam_minningarkort.asp.
Í dag er laugardagur 14. desem-
ber, 348. dagur ársins 2002. Orð
dagsins: Eitt sinn voruð þér myrk-
ur, en nú eruð þér ljós í Drottni.
Hegðið yður eins og börn ljóssins.
(Efes. 5, 8.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 sleitulaust, 8 grotta, 9
þurrki út, 10 ungviði, 11
horfa, 13 húsfreyjan, 15
fáni, 18 lítið, 21 sápulög,
22 skjálfa, 23 eldstæði, 24
vanmáttugur.
LÓÐRÉTT:
2 fugl, 3 rýja, 4 flanaði, 5
orkt, 6 guðs, 7 vangi, 12
togstreitu, 14 viðkvæm,
15 flot, 16 endurtekið, 17
kátt, 18 syllu, 19 borð-
haldinu, 20 fjallstopp.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 bjáni, 4 fúlga, 7 bóman, 8 níræð, 9 agn, 11 turn,
13 hrum, 14 ósmáa, 15 brot, 17 klók, 20 þró, 22 ostur, 23
lofar, 24 iðaði, 25 rýrar.
Lórétt: 1 búbót, 2 álmur, 3 inna, 4 fönn, 5 lærir, 6 auð-
um, 10 gómar, 12 nót, 13 hak, 15 bloti, 16 ostra, 18 lifur,
19 kærar, 20 þrái, 21 ólar.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur gaman af góð-látlegum kvikindisskap og deil-
ir þeim áhuga með gárungunum
Guðjóni Inga Eiríkssyni og Jóni
Hjaltasyni. Hafa þeir gert mark-
visst út á þennan kvikindisskap
sinn, öðrum kvikindum til sjávar og
sveita til mikillar kátínu. Prakkara-
strik tvíeykisins eru bækur með
gamansögum sem þeir hafa sent frá
sér undanfarin ár þar sem þeir hafa
tekið í gegn nokkrar af „virðulegri“
starfsstéttum samfélagsins eins og
alþingismenn, lækna og presta. Í
nýjustu bókinni fá fjölmiðlamenn
svo fyrir ferðina. Ýmis neyðarleg
mismæli eða fleipur sem þeir hafa
farið með í beinni ljósvakaútsend-
ingu eða á prenti eru þar höfð eftir.
x x x
VÍKVERJI hefur skemmt sérkonunglega við lestur bókar-
innar og þá einna best yfir glappa-
skotum íþróttafréttamanna. Þeim er
auðvitað vorkunn því þeir eru nátt-
úrlega í langerfiðasta starfinu, að
þurfa að dæla út úr sér lýsingum, í
beinni útsendingu, frá oftast nær
æsilegum kappleikjum sem taka
rækilega á taugarnar. En til að vera
samkvæmur sjálfur sér stenst þó
kvikindið Víkverji ekki mátið að láta
nokkrar af skemmtilegustu glefsum
bókarinnar af þessu tagi flakka.
Hörður Magnússon á Stöð 2 og
Sýn hefur átt nokkra glæsilega
„málfarsspretti“ eins og orðað er í
bókinni. Þannig sagði hann eitt sitt:
„Desailly maldar í móðinn.“ Við
annað tækifæri sagði hann: „Þarna
sjáum við Houllier. Hann er glaður
á bragðið.“ Og enn annað: „Þetta er
slæm sjón fyrir Arsenal. Ljungberg
að reyna að haltra.“ Og fáir íþrótta-
fréttamenn þekkja eðlisfræði knatt-
arins betur en fyrrverandi mark-
varðahrellir úr Hafnarfirðinum:
„Sjáiði knöttinn! Hann er á fleygi-
ferð í loftinu!“
Samúel Örn Erlingsson á Sjón-
varpinu hefur átt sína spretti á
kappvelli íþróttalýsinga. Eitt sinn
sagði hann um handboltalið KA þeg-
ar risarnir Robert Duranona, Er-
lingur Kristjánsson, Patrekur Jó-
hannesson og Alfreð Gíslason voru
þar fremstir í flokki: „Allir leikmenn
liðsins eru á annan meter.“ Vá!
Í lýsingu á öðrum handknattleiks-
leik þar sem landsliðið okkar keppti
sagði hann um Gunnar Beinteins,
Geir Sveinsson og Héðin Gilsson:
„Þeir standa vörnina núna: Gunnar,
Geir, Héðinn. Það er nú bara eins og
maður sé að lesa upp úr Njálu.“ Já,
þeir eru líka víðlesnir íþróttafrétta-
mennirnir.
Svo fannst Samúel knattspyrnulið
KR fá „hornspyrnu á mjög hættu-
legum stað“.
x x x
GUÐJÓN Guðmundsson á Stöð 2og Sýn er maður með
ákveðnar skoðanir og veigrar sér
ekki við að flíka þeim: „Þetta er
kókapuffs-kynslóðin. Hún hefur
ekki stigið hendi í kalt vatn.“ Og
Guðjón, gamall aðstoðarmaður
Bogdans, þekkir sko hvað snýr upp
og hvað niður á íþróttamanni:
„Hann verður að fara af velli. Hann
getur ekki stigið í hnéið.“ Guðjón
þekkir líka muninn á góðum og
slæmum sendingum: „Þetta var
glæsileg sending hjá Cole, en hann
á ekki möguleika á að ná boltanum.“
„Donadoni reyndi þarna slæma
sendingu.“
Hafið þakkir fyrir kæru „kvik-
indi“, Guðjón Ingi og Jón, að standa
vaktina fyrir okkur hin.
Friðum rjúpuna
GÓÐIR Íslendingar.
Opnið augu ykkar fyrir
fegurð rjúpunnar í náttúru-
lega umhverfi. Látum hana
í friði, hættum að drepa
rjúpuna, njótum hennar lif-
andi. Friðum rjúpuna.
Gleðileg jól.
Elsa Pétursdóttir,
Neðstaleiti 5.
Rjúpnaveiði
VEIÐIMENN. Liggur
ykkur svo lífið á að veiða
rjúpurnar að um leið og
veður batnar þá þurfið þið
að rjúka af stað með ákafa
til veiða? Gætuð þið ekki
notað tímann í leiðinni og
veitt óvin rjúpunnar, tófu
og mink.
Hjartað í brjóstinu blakti
svo ótt
blásvörtu augun full orða
af gnótt
þar eru bænir þess mæla
ei má
maður ég hrelldur kom
náð þína á
miskunnar, miskunnar
þurfi.
Anna.
Nammiland
Hagkaupa
UM síðustu mánaðamót
fórum við tvær vinkonur í
nammilandið í Hagkaupum
í Kringlunni. Þegar við
höfðum fyllt pokana með
góðgæti og fórum að vigta
nammið var okkur sagt að
það væri ekki 50% afsláttur
af namminu, það væri bara í
Smáralind. Við hættum við,
skiluðum namminu og fór-
um í Smáralindina þar sem
við keyptum nammið á 50%
afslætti. Þegar heim var
komið fórum við að lesa
Fréttablaðið og þar var
auglýsing um 50% afslátt í
nammilandinu í Hagkaup-
um, bæði í Smáralind og
Kringlunni. Hvernig stend-
ur á þessu?
Tvær vinkonur.
Að gera
undantekningu
ÉG keypti jólagjöf handa
móður minni í blómabúðinni
Dalíu um síðustu jól. Þetta
var gjöf sem kostaði 7.900
krónur sem hún ákvað að
skipta. Hún fann ekkert
sem hana hugsanlega lang-
aði í og fékk inneignarnótu.
Næstu 8 mánuðina fór hún
reglulega í Dalíu en gat
engan veginn fundið eitt-
hvað sem hana langaði í.
Ákvað ég þá að hringja í
eiganda verslunarinnar og
útskýra fyrir honum hvern-
ig málin stæðu og ég spurði
hann hvort hann gæti
mögulega gert undantekn-
ingu og endurgreitt þessa
upphæð svo hún gæti keypt
sér eitthvað sem hana lang-
aði virkilega í. Hann var
mjög dónalegur og sagðist
ekki hafa heyrt um þetta
mál áður og skildi ekki af
hverju hún gæti ekki fundið
sér neitt. Ég reyndi að út-
skýra fyrir honum að hana
langaði ekki bara í eitthvað
heldur eitthvað sérstakt því
þetta væri jólagjöf frá mér.
Hann sagðist ætla að hugsa
málið og hringja í mig
næsta dag. Þremur mánuð-
um og mörgum samtölum
síðar hringdi hann loks til
að láta vita að hann ætlaði
ekki að endurgreiða þetta.
Ég hefði verið fullkom-
lega sátt við þetta svar í
fyrsta skipti sem ég talaði
við hann en er ansi ósátt að
bíða svona eftir þessu svari.
Kt. 020880-5119.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÁGÆTI Velvakandi:
Vegna greinar í dálki þínum 11. des.
sl., „frá húsmóður í vesturbænum“, þar
sem fram koma rangar fullyrðingar um
Læknavaktina, vil ég sem stjórn-
arformaður fyrirtækisins taka eftirfar-
andi fram.
Læknum ber lögum samkvæmt að
skrá öll samskipti sín og meðferð á
hverjum sjúklingi og skiptir þar ekki
máli hvort samskiptin eru „einföld“ að
mati sjúklings eða ekki. Slík samskipti á
að skrá á sérstaka samskiptaseðla fyrir
hvern og einn sjúkling og ber að varð-
veita lögum samkvæmt og senda afrit
af til heimilislæknis viðkomandi til upp-
lýsinga og öryggis fyrir sjúklinginn.
Læknavaktin er framlenging á þjón-
ustu heilsugæslustöðvanna hér á höf-
uðborgarsvæðinu utan dagvinnutíma
samkvæmt sérstökum þjónustusamn-
ingi við heilbrigðisyfirvöld. Læknavakt-
inni ber að innheimta komugjöld fyrir
hvern sjúkling sem fær hér þjónustu á
móttökunni í samræmi við reglugerð
HTR um sjúklingagjöld.
Þetta er nákvæmlega sama gjaldskrá
og í Heilsugæslunni og unnið eftir sömu
reglum og eiga að vera í gildi þar.
Komugjöld sem sjúklingar greiða hjá
Læknavaktinni koma til frádráttar
þeim greiðslum sem ella koma frá heil-
brigðisyfirvöldum í fjárlögum hverju
sinni.
Virðingarfyllst,
f.h. Læknavaktarinnar,
Atli Árnason,
stjórnarformaður LV.
Læknavaktin svarar húsmóður