Morgunblaðið - 20.12.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Styrktartónleikar í Fríkirkjunni
Væntum góðr-
ar aðsóknar
LÍKLEGA hefuraldrei verið jafnfyrirferðarmikil
umræðan um fátækt í
þjóðfélaginu og ekki tilvilj-
un að sú umræða er venju
fremur mikil er jólin eru í
nánd. Þá verður það
gjarnan sýnilegra en oft-
ast áður hversu margir
eru þurfandi í þjóðfélag-
inu.
Það er hægt að leita til
nokkurra stofnana og að-
ila, s.s. Mæðrastyrks-
nefndar, Hjálpræðishers-
ins og Hjálparstofnunar
kirkjunnar, en fyrir kemur
að einstaklingar og fyrir-
tæki leggja þessum stofn-
unum lið. Þannig hafa nú
tveir einstaklingar tekið
sig til og standa fyrir
styrktartónleikum í Fríkirkjunni
í kvöld og rennur allur ágóði af
þeim til Hjálparstofnunar kirkj-
unnar. Jónas Þórir Þórisson tón-
listarmaður er í forsvari fyrir tón-
leikunum.
– Hvenær verða tónleikarnir og
hvert er tilefni þeirra?
„Tónleikarnir, sem við köllum
Jólaljós, eru í Fríkirkjunni í kvöld
og hefjast klukkan rúmlega 20.
Tilefnið er einfalt, þetta kom til
tals í sunnudagaskólanum okkar
hér í Mosfellsbæ síðast liðinn
sunnudag, en þar erum við Hreið-
ar Örn framkvæmdastjóri Frí-
kirkjusafnaðarins í forsvari. Við
vorum að ræða um að við fyndum
fyrir því að margir ættu ekki mik-
ið til að halda gleðileg jól.“
– Hafið þið staðið að slíku áður?
„Ég var í hópi þeirra sem stóðu
að svipaðri uppákomu í Háskóla-
bíói fyrir mörgum árum og það
gekk alveg ótrúlega vel. Árin
1999 og 2000 voru síðan haldnir
styrktartónleikar í Neskirkju fyr-
ir einstæðar mæður út frá hug-
mynd Margrétar Árnadóttur
sópransöngkonu sem vildi með
þeim minnast látins eiginmanns
síns. Margrét fór síðan til söng-
náms í Vínarborg og er nú komin
aftur heim og syngur á tónleik-
unum í Fríkirkjunni.“
– Þú hefur þá reynslu af því að
almenningur bregst vel við svona
uppákomum?
„Já, svona lagað fellur alltaf vel
í kramið og við væntum þess að fá
góða aðsókn.“
– Segðu okkur eitthvað frá dag-
skránni....
„Já, Bergþór Pálsson syngur
nokkur jólalög ásamt kirkjukór
Lágafellskirkju og lítilli hljóm-
sveit. Páll Rósinkranz tekur tvö
létt jólalög, Egill Ólafsson hefur
samið nýtt jólalag og flytur það
við þetta tækifæri. Lagið nefnir
hann „Kyrrð um allan bæinn“ og
það er geysilega fallegt. Vinir
mínir Margrét Árnadóttir og Ívar
Helgason eru síðan komin heim í
jólafrí frá Vínarborg og taka lag-
ið. Ívar flytur t.d. Ekkó-aríuna úr
Jólaóratoríu Bachs ásamt 14 ára
stúlku, Sigrúnu Harðardóttur.
Ríkharður Örn Páls-
son syngur og einsöng
með kvartett sér við
hlið. Síðast en ekki síst
vil ég nefna Diddú sem
tekur nokkur lög, end-
ar meðal annars tónleikana á því
að syngja „Ó helga nótt“. Erindi
verða einnig flutt við þetta tæki-
færi, séra Hjörtur Magni Jó-
hannsson Fríkirkjuprestur held-
ur tölu, einnig séra Jón
Þorsteinsson sóknarprestur í
Lágafellskirkju og Jónas Þórir
Þórisson framkvæmdastjóri hjá
Hjálparstofnun kirkjunnar.“
– „Kyrrð um allan bæinn“, það
er nú ekki sú stemmning sem
mætir mönnum þessa síðustu
daga fyrir jól...
„Nei, kannski ekki, en það er
samt sem áður jólastemmning við
hæfi.“
– Og það gefa allir vinnu sína?
„Já, það fer ekki grænn eyrir í
eitt eða neitt. Það rennur hver
einasta króna óskipt til Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar, innan-
landsdeildar. Það kostar eitt þús-
und krónur inn fyrir fullorðna og
500 krónur fyrir börn. Ef aðsókn
verður góð gætum við því lagt
vænan skerf til þessarar aðstoð-
ar.“
– Hvers vegna Fríkirkjan?
„Fríkirkjan er gott hús og mið-
svæðis. Þar er allt sem þarf,
ágætur flygill og fallegt róman-
tískt orgel. Það voru einnig hæg
heimatökin þar, því vinur minn og
samstarfsmaður, Hreiðar Örn, er
framkvæmdastjórinn á staðnum.
Lágafellskirkja er líka svo lítil að
maður stendur ekki í svona lög-
uðu þar.“
– En hvernig verður sjóðnum
varið?
„Eins og ég gat um, þá rennur
allur ágóðinn til innanlandsað-
stoðar Hjálparstofnunar kirkj-
unnar, ég afhendi sjóðinn sum sé
alnafna mínum, Jónasi Þóri Þór-
issyni framkvæmdastjóra þar á
bæ. Aðstoð þaðan er fjárhagsað-
stoð og er útdeilt á þann hátt að
fólk sækir um styrk hjá sóknar-
presti sínum, þeir aðstoða við að
fylla út umsókn og síðan er hver
umsókn metin.“
– Þið haldið sem sé
að erillinn sé ekki orð-
inn svo mikill að fólk
gefi sér tíma til að
mæta?
„Er ekki gott að fara í miðbæ-
inn í jafn góðu veðri og hefur ver-
ið undanfarið og eiga þar góða
stund með vinum og ættingjum,
eða bara einn. Kaupa einhverjar
jólagjafir eða bara fá inn í sig
jólastemmninguna og fara síðan
inn í Guðshús og eiga þar nota-
lega stund með sjálfum sér og
öðrum og láta eitthvað gott af sér
leiða um leið?“
Jónas Þórir Þórisson
Jónas Þórir Þórisson er fædd-
ur í Reykjavik 28. mars 1956,
stúdent frá MR 1976. Lærði á
fiðlu sem barn hjá Birni Ólafs-
syni konsertmeistara og á orgel
hjá Karsten Askeland í Bergen
og á Íslandi hjá Herði Áskels-
syni, Douglas Brotschie og Mar-
teini H. Friðrikssyni. Sambýlis-
kona Jónasar er Guðbjörg
Magnúsdóttir og með henni á
hann soninn Egil. Með fyrri konu
sinni Ásu Elísu Einarsdóttur á
hann Aron Dalin, Viktor Díar og
Ísold Ötlu.
Ekki grænn
eyrir í eitt
eða neitt
SKYLDI engan furða að andrúms-
loftið á fundi borgarstjórnar hafi ver-
ið magnþrungið í gær. Fundurinn
hófst einungis rúmum klukkutíma
eftir að borgarfulltrúar Framsóknar
og VG lýstu því yfir á blaðamanna-
fundi að þeir teldu að í framboði Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur borgar-
stjóra fælist í raun að hún væri á leið
úr stóli borgarstjóra.
Virtist greinilegt að ákveðnir
brestir væru komnir í samstarf R-
lista-flokkanna, þeir voru þó ekki
djúpstæðari en svo að í lok fundar
kom Alfreð til Ingibjargar og Árna
Þórs, sem stjórnaði fundinum, og
hvíslaði einhverju að þeim sem virtist
kæta þau. Þá skáluðu allir borgar-
fulltrúar í lok fundarins, sem er hefð
við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Fundurinn hófst með því að borg-
arstjóri mælti fyrir B-hluta fjárhags-
áætlunar, sem fjallar um fyrirtæki í
eigu borgarinnar, en á fundinum fór
fram fyrri umræða um þann hluta og
síðari umræða um A-hlutann, sem
borinn er uppi með skatttekjum.
Borgarstjóri var um klukkutíma í
pontu, en kom ekkert inn á atburði
sólarhringsins á undan. Hún fór yfir
fjárhagsáætlun bílastæðasjóðs, frá-
veitur, höfnina og önnur fyrirtæki í
eigu borgarinnar. Einnig gerði hún
grein fyrir breytingartillögum meiri-
hlutans við A-hlutann, sem fólu í sér
aukið framlag til ýmissa málaflokka.
Áfram spólað í sama farinu
Björn Bjarnason, oddviti Sjálf-
stæðisflokks, sagði ekki votta fyrir
neinu nýju í frumvarpi að fjárhags-
áætlun fyrir árið 2003. Spólað væri
áfram í sama farinu, útgjöldin héldu
áfram að vaxa, skattbyrði að þyngjast
og þjónustu ætti að skerða.
„Því miður sýnir reynslan, að áætl-
anir R-listans um útgjöld borgarsjóðs
eða skuldir hans og hreinar skuldir
Reykjavíkurborgar eru lítið annað en
orð á blaði.“ Ef litið væri á samstæðu-
reikninginn kæmi í ljós að skuldir
Reykvíkinga hefðu frá 1993-2003
hækkað um 12,5 milljónir króna
hvern einasta dag, á núvirði.
Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins
2002, sem samþykkt var fyrir ári síð-
an, hefði verið gert ráð fyrir því að
hreinar skuldir borgarinnar í árslok
yrðu 33,2 milljarðar króna. „Útkomu-
spá fyrir árið 2002 gerir nú ráð fyrir
því að niðurstaðan verði 43,1 milljarð-
ur króna eða tæpum 10 milljörðum
hærri.“ Frávikið væri 30%.
Áætlunum skeikar um 12%
Fyrri áætlunum R-lista, hvað
rekstrarútgjöld borgarsjóðs varðar,
hefði skeikað um 12%. Sé áætlunin
2003 jafnilla úr garði gerð og fyrri
áætlanir fari þau yfir 30 milljarða
króna á næsta ári.
Ingibjörg Sólrún sagði stöðu borg-
arsjóðs þvert á móti hafa gjörbreyst
til hins betra á undanförnum árum.
Frá árinu 1999 hefðu skuldir í hlut-
falli af skatttekjum lækkað úr 75,1% í
62,1% Samkvæmt fjárhagsáætlun
fyrir árið 2003 yrði hlutfallið komið
niður í 59,2%. „Skuldir á hvern íbúa
lækki frá þessu ári til hins næsta úr
147 þúsund krónum í 144 þúsund,
sem sé reyndar með því lægsta sem
gerist á höfuðborgarsvæðinu.“ Á
sama tíma hefði borgarsjóður staðið í
gríðarlegum fjárfestingum, einkum
og sér í lagi í grunn- og leikskólum.
Björn gerði einnig grein fyrir
breytingartillögum Sjálfstæðis-
manna sem lögðu til að tekjuviðmið
vegna lækkunar eða niðurfellingar
fasteignaskatts og holræsagjalds á
íbúðarhúsnæði 67 ára og eldri og ör-
yrkja yrði hækkað um 50%. Þá var
lagt til að stofnkostnaður vegna
hjúkrunarheimila og annarra bygg-
inga í þágu aldraðra yrði hækkaður
um 82,5 m. kr. Skipulögðu fé-
lagsstarfi á þremur félagsmiðstöðv-
um aldraðra yrði haldið áfram og
hætt við sumarlokun leikskóla.
Ingibjörg Sólrún sagði Sjálfstæð-
ismenn skorta heildstæða stefnu-
mörkun og beinskeytta sýn til fram-
tíðar. Sýknt og heilagt væri verið að
reyna að grafa undan trúverðugleika
meirihlutans, í stað þess að greina
hver stefna Sjálfstæðisflokksins væri
í málefnum borgarinnar. Breytingar-
tillögur þeirra veittu litlu meiri inn-
sýn í hvar þeir teldu að ætti að hlúa
betur að grunnþjónustu í borginni.
Verulega hefði verið komið til móts
við óskir aldraðra og öryrkja um
lækkun fasteignagjalda. Það hlyti
alltaf að vera álitamál hversu langt
ætti að ganga í að skattleggja fólk eft-
ir aldri, en ekki tekjum. Sú tekjujöfn-
un sem eðlilegust væri og kæmi flestu
láglaunafólki til góða væri hækkun
skattleysismarka.
Framlög til Strætó minnkuð
Til að mæta þeim kostnaði sem
þessar breytingartillögur Sjálfstæð-
ismanna hefðu í för með sér lögðu
þeir jafnframt til að fjárveitingar til
ýmissa flokka yrðu skornar niður. 100
milljóna króna niðurskurður á fram-
lögum til Strætó bs. var stærsta
breytingin sem lögð var til, í millj-
ónum talið. Þá var lagt til að hætt yrði
við að veita 65 milljónum til sýning-
arskála í Aðalstræti, Miðborgar-
stjórn yrði lögð niður og hætt yrði við
rekstrarframlag til Aflvaka. Framlög
til Höfuðborgarstofu, Hverfaráðs,
Fræðslumiðstöðvar sem og Þróunar-
og fjölskyldusviðs yrðu skorin niður.
Ingibjörg sagði niðurskurðartillög-
ur minnihlutans einnig skorta stefnu
og skýra sýn. Í þeim væri vegið að
þeim þáttum sem væru til stuðnings
framþróunar í borginni. Niðurskurð-
ur til hverfisráða myndi draga úr
samráði við borgarbúa sem R-listinn
hefði frekar á stefnuskrá að efla en
draga úr.
Sjálfstæðismenn sögðu það skjóta
skökku við hversu illa borgarstjóri,
sem er formaður nýskipaðrar nefnd-
ar sem hefur það hlutverk að finna
sparnaðarleiðir í borgarkerfinu, tæki
þessum tillögum þeirra.
Spennuþrungið and-
rúmsloft í Ráðhúsinu
Þrátt fyrir að fjárhagsáætlun borgarinnar 2003
væri rædd fram og aftur á borgarstjórnarfundi í
gær var greinilegt að annað var efst í huga flestra
borgarfulltrúa. Yfirleitt voru fáir í salnum, menn
hópuðust saman fyrir utan og stungu saman nefjum.