Morgunblaðið - 20.12.2002, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 9
FÉLAG blikksmiðjueigenda vill að
skýrt verði án tafar hvernig reglum
skuli framfylgt um fyrirtæki á Evr-
ópska efnahagssvæðinu sem fara á
milli landa til að bjóða sína þjónustu
um lengri eða skemmri tíma. Um
þetta verði að gilda ákveðnar reglur
til að tryggja eðlilega samkeppni.
„Verulegur misbrestur er hins
vegar hér á landi á því að skýrt sé
hvernig að framkvæmd þessara
reglna skuli staðið sem skapar óþol-
andi óvissu fyrir fyrirtæki,“ segir í
ályktun sem var samþykkt á almenn-
um félagsfundi blikksmiðjueiganda
fyrr í mánuðinum.
Ingólfur Sverrisson, deildarstjóri
hjá Samtökum iðnaðarins, segir að
ástæðuna fyrir ályktuninni megi
rekja til þess að blikksmiðjur og
fleiri hafi gert samninga við portú-
galskt fyrirtæki um að þau myndu í
raun leigja iðnaðarmenn til íslenskra
fyrirtækja. „Íslensku fyrirtækin
borguðu mönnunum ekki laun held-
ur greiddu portúgalska fyrirtækinu
fyrir vinnu þeirra. Það var ágæt
reynsla af þessum mönnum en það
spruttu upp deilur um kjör þeirra og
hvernig skattgreiðslum þeirra væri
háttað,“ segir hann. Mönnum hafi
þótt sem ýmislegt væri óljóst varð-
andi hvaða reglur giltu um slíka
starfsmenn. Það vaki alls ekki fyrir
mönnum að koma í veg fyrir að hægt
sé að flytja inn vinnuafl í samræmi
við reglur EES þegar á því sé þörf.
Menn vilji hins vegar vita nákvæm-
lega hvaða reglum skuli fylgt, m.a. til
að jafnræði sé tryggt meðal fyrir-
tækja. „Meðan hið opinbera hefur
ekki skýrar reglur erum við fyrst og
fremst að krefjast þess að menn
hreinsi þetta borð,“ segir Ingólfur.
Hann segir að Samtök atvinnulífsins
og Alþýðusamband Íslands hafi látið
málið til sín taka og það sé í skoðun
hjá félagsmálaráðuneytinu.
Blikksmiðjueigendur vilja skýr-
ar reglur um fyrirtæki á EES
ÓLAFUR F. Magnússon, borgar-
fulltrúi F-lista frjálslyndra og
óháðra, segir augljóst að samninga-
nefnd Landsvirkjunar hafi verið
undir gríðarlegum þrýstingi frá
stjórnmálamönnum um að ná fram
samningsdrögum við Alcoa hvað sem
það kostaði. Fulltrúar Landsvirkj-
unar kynntu samningsdrögin á fundi
með borgarráðsfulltrúum fyrr í vik-
unni.
„Það er verið að búa til tímabund-
inn hagvöxt með því að ráðast í gríð-
arlegar framkvæmdir með miklum
skemmdum á náttúru landsins sem
sýnilega munu ekki skila hagnaði
heldur stórtapi þegar til lengri tíma
er litið,“ segir Ólafur.
Hann segir að bæði orkuverð og
viðmiðunarverð við heimsmarkaðs-
verð á áli sé verra en hann hafi átt
von á. Hafi hann verið viss í sinni sök
þá sé hann ennþá sannfærðari nú um
að Reykjavíkurborg eigi alls ekki að
taka þátt í framkvæmdum við Kára-
hnjúkavirkjun. Nauðsynlegt sé að
verja fjárhagslega hagsmuni borgar-
innar og tryggja að hún verði ekki
skuldsett umfram eignir.
Á fundi borgarráðs á þriðjudag
lagði Ólafur fram bókun þar sem
m.a. kemur fram að brýnt sé að eig-
endanefnd Landsvirkjunar um mat á
arðsemi Kárahnjúkavirkjunar og
fjárhagslegum skuldbindingum eig-
enda hennar, skili áliti sínu hið allra
fyrsta þannig að borgaryfirvöld geti
tekið rökstudda ákvörðun um hvort
horfið verði frá þátttöku í virkjunar-
framkvæmdunum.
„Ég tel brýnt að við getum tekið
rökstudda ákvörðun. Þessi samn-
ingsdrög eru allt of dýrkeypt fyrir
þjóðina og ekki síst Reykvíkinga
sem stóran eignaraðila Landsvirkj-
unar,“ segir Ólafur.
Ólafur F. Magnússon
um samning Lands-
virkjunar og Alcoa
Samningum
náð við Alcoa
hvað sem
það kostar
Bankastræti 14, sími 552 1555
Óskum öllum viðskiptavinum
okkar gleðilegra jóla!
Svörtu sparibuxurnar komnar aftur
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030.
Opið í dag frá kl. 10-20.
15% afsláttur
af úlpum og kápum
Minnum á gjafakortin
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið í dag frá kl. 10.00—22.00.
Óskum öllum viðskiptavinum okkar
GLEÐILEGRA JÓLA
Litla JÓLABÚÐIN
Grundarstíg 7, 101 R., s. 551 5992
Opið alla daga 12-18,
Þorláksmessu 10-23, aðfangadag 10-15
20% Afsláttur af
öllum herraskóm
og dömustígvélum
Gle›ileg
Fram a› jólum bjó›um vi›
20% afslátt af öllum herraskóm
og dömustígvélum.
jól
Opi› lau. og sun. 10-22
og fiorláksmessu 9-23
JÓLAGJÖFIN
FYRIR HANA OG HANN
-Peysur
-Blússur
-Slæður
-Veski
-Buxur
-Belti
-Pils
-Dragtir
-Kápur
-Jakkar
-Buxur
-Skyrtur
-Bindi
-Jakkar
-Jakkaföt
-Treflar
-Sokkar
-Peysur
-Frakkar
-Bolir
-Vaxjakkar
Kringlunni - sími 581 2300
Laugavegi 84, sími 551 0756
20% afslátturaf ullarkápumog mokkajökkum
Pelshúfur
og -treflar
Silkimarkaður
Silki náttföt: 7.400 kr. Silki náttkjólar: 5.600 kr.
Silki sloppar: 6.000 kr.
Herraskyrtur og bindi úr tælensku silki.
Handofin Pashmina og kasmír treflar og sjöl frá Nepal.
Silka Laugavegi 20,
opið 11.00-23.00 alla daga fram að jólum.
Úrval
jólagjafa
Náttsloppar
Náttföt
Nátttreyjur
Ullar & silkinærföt
Glæsileg undirföt
og margt margt fleira
Gjafakort
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum