Morgunblaðið - 20.12.2002, Síða 16

Morgunblaðið - 20.12.2002, Síða 16
ERLENT 16 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ EIN milljón Kambódíumanna kom saman í höfuðborg landsins, Phnom Penh, í gær til að fylgjast með því er nokkrir merkir búddhatrúarmunir voru fluttir í nýja grafhvelfingu. Stýrði Noro- dom Sihanouk Kambódíukonungur hátíðlegri athöfn á Udong-hæð í Phnom Penh, en þar verður mun- unum komið fyrir í 42 metra hárri grafhvelfingu sem reist var sér- staklega af þessu tilefni. Um er að ræða bein og tönn, sem sögð eru leifar Búddha sjálfs. Konungurinn sagði að grafhvelfingin hefði verið reist á stað sem stjörnuspekingar segðu að myndi „færa þjóðinni frið, stöðugleika, hamingju, stöð- ugar framfarir, hagsæld, tign og dýrð“. AP Búddha- munum komið fyrir STJÓRN George W. Bush Banda- ríkjaforseta hyggst ákveða í síðustu vikunni í janúar hvort hefja eigi hernað í Írak, að sögn heimildar- manna The Washington Post. Þeir segja að Bandaríkjastjórn telji sig geta sannfært önnur aðildarríki ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að Írakar hafi brotið gegn ályktun þess og fengið það til að heimila valdbeitingu fyrir lok janúar. Hans Blix, formaður vopnaeftir- litsnefndar Sameinuðu þjóðanna í Írak, kom fyrir öryggisráðið í gær og sagði að Írakar hefðu ekki gert fulla grein fyrir vopnaeign sinni í 12.000 síðna skýrslu, sem þeir lögðu fram fyrr í mánuðinum, eins og þeim bar samkvæmt nýjustu ályktun ör- yggisráðsins í Íraksmálinu. Mörgum spurningum væri ósvarað, einkum hvað varðar efnavopn þeirra, og halda þyrfti vopnaeftirlitinu áfram. Blix sagði að Írakar hefðu ekki hindrað vopnaleit eftirlitsnefndar- innar en í skýrslu þeirra kæmi „til- tölulega lítið“ fram sem staðfesti fullyrðingar þeirra um að þeir hefðu eyðilagt öll gereyðingarvopn sín. Mohamed ElBaradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinn- ar (IAEA), kom einnig fyrir örygg- isráðið og sagði að engar nýjar upp- lýsingar hefðu komið fram í greinargerð Íraka um kjarnorku- vopnaáætlun þeirra og frekari rann- sóknir væru nauðsynlegar. Eftir fund öryggisráðsins lýsti Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, því yfir að Írakar hefðu brotið gegn ályktun þess með því að veita ekki réttar upplýsingar um vopnaeign sína. Vendipunktur 27. janúar Gert er ráð fyrir því að á fundi ör- yggisráðsins 27. janúar leggi Blix fram fyrstu ýtarlegu greinargerð sína um vopnaskýrslu Íraka og sam- starf þeirra við eftirlitsnefndina. Bandarískir embættismenn segja að með því að bíða þar til í lok jan- úar, fremur en að knýja öryggisráð- ið til að lýsa því strax yfir að Írakar hefðu brotið gegn ályktuninni með því að gera ekki grein fyrir öllum vopnum sínum, sýni Bandaríkja- stjórn að hún vilji taka á málinu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Með því að bíða í mánuð til viðbótar fái Bandaríkjastjórn nægan tíma til að sanna sitt mál með rökum sem Írak- ar geti ekki hrakið og önnur aðild- arríki öryggisráðsins geti ekki snið- gengið. Colin Powell sagði í fyrradag að önnur aðildarríki öryggisráðsins væru sammála Bandaríkjastjórn um að vopnaskýrsla Íraka væri ófull- komin. Bandarískir embættismenn segja að stjórn Bush hafi komist að þeirri niðurstöðu að besta leiðin til að koma í veg fyrir að bandalagið gegn Írökum riðlist sé að fallast á að Sameinuðu þjóðirnar haldi vopna- leitinni áfram þar sem stjórnin sé sannfærð um að Írakar láti aldrei vopn sín af hendi eða leggi fram þær upplýsingar sem leitað hefur verið eftir. Þeir telja einnig að Írakar hætti samstarfinu við vopnaeftirlits- nefndina þegar hún óskar eftir því að fá að yfirheyra íraska vísinda- menn og vopnasérfræðinga utan Íraks. Yfirmenn Bandaríkjahers hafa sagt að hagstæðasti tíminn til að gera innrás í Írak sé í lok janúar eða byrjun febrúar. Hyggst ákveða í lok janúar hvort hefja eigi stríð Reuters Hans Blix, formaður vopnaeftirlits- nefndar Sameinuðu þjóðanna, ræð- ir við fréttamenn eftir fund örygg- isráðsins í gær. Washington. AP, The Washington Post, AFP. HUNDRUÐ íranskra Bandaríkja- manna gengu um götur Los Angeles í fyrradag til að mótmæla handtöku tuga karlmanna frá Mið-Austurlönd- um sem voru handteknir á mánudag þegar þeir mættu á opinberar skrif- stofur til að skrá sig samkvæmt hertum reglum um innflutning fólks frá Mið-Austurlöndum. Margir mótmælendanna héldu á skiltum með áletrunum eins og „Stöðvið mannréttindabrotin“ og „Hvað varð um frelsið og réttlætið?“. „Allir Íranar sem búa í Bandaríkj- unum eru harðduglegt fólk,“ sagði einn mótmælendanna. „Þeir eru vel menntaðir, þeim þykir vænt um þetta land og þeir eru allir andvígir hryðjuverkum.“ Innflytjendaeftirlitið vildi ekki skýra frá því hversu margir voru handteknir. Fregnir hermdu að a.m.k. 90 manns hefðu verið hand- teknir í San Diego og Orange-sýslu og hugsanlega hundruð manna í Los Angeles. Innflytjendaeftirlitið kvaðst að- eins hafa handtekið þá sem reyndust vera með útrunnar vegabréfsáritan- ir, ekki fólk með gilt landvistarleyfi. Flestir hinna handteknu voru látnir lausir gegn tryggingu og bíða dóms- úrskurðar um hvort þeim verður vís- að úr landi. Á mánudag rann út frestur ír- anskra, íraskra, líbýskra, súdanskra og sýrlenskra ríkisborgara til að skrá sig hjá bandarískum yfirvöld- um. Samkvæmt nýju reglunum eiga um 35 milljónir erlendra ríkisborg- ara í Bandaríkjunum að skrá sig og gert er ráð fyrir því að það taki þrjú ár. Bandaríkin Handtöku útlendinga mótmælt Los Angeles. AFP. HJARTAÁFÖLLUM í Bret- landi fjölgaði um 25% þegar enska landsliðið í knatt- spyrnu tapaði fyrir Argentínu í vítaspyrnukeppni í heims- meistarakeppninni 1998. Er þetta niðurstaða rannsóknar er birt verður í læknaritinu British Medical Journal á morgun. Douglas Carroll, við íþrótta- og æfingavísindadeild Háskólans í Birmingham, og samstarfsmenn hans athug- uðu sjúkrahússinnlagnir dag- inn sem leikurinn fór fram, 30. júní, og fimm næstu daga. Voru þær upplýsingar bornar saman við upplýsingar um innlagnir þessa sömu daga árin á undan og eftir og í mánuðinum áður en heims- meistaramótið fór fram. Í ljós kom að innlögnum vegna hjartaáfalls fjölgaði um 55 vegna úrslita leiksins. Nið- urstöðurnar þóttu svo sláandi að höfundar rannsóknarinnar leggja til að vítaspyrnu- keppnir verði aflagðar á þeim forsendum að þær geti verið ógn við almannaheill. Heilsufarsógnin sem stafar af vítaspyrnukeppnum kom fyrst í ljós í rannsókn sem gerð var á læknadeild Há- skólasjúkrahússins í Utrecht í Hollandi. Þegar hollenska fót- boltalandsliðið var slegið út úr Evrópukeppninni 1996 fjölgaði þeim körlum er létust af völdum heila- eða hjarta- áfalls í Hollandi um 50 pró- sent. Fótbolti er hjart- ans mál París. AFP. EFNT var til verkfalls í indverska hluta Kasmír í gær til að mótmæla dauðadómi yfir þremur múslímum sem indversk yfirvöld saka um að hafa aðstoðað við skipulagningu árásar á þinghúsið í Nýju Delhí sem leiddi næstum til stríðs milli Ind- lands og Pakistans. Leiðtogar aðskilnaðarsinna og samtök lögfræðinga í Kasmír for- dæmdu dauðadómana og stóðu fyrir verkfallinu. Verslunum var lokað og atvinnulífið lamaðist víðast hvar. Götumótmæli blossuðu upp á nokkr- um stöðum. Dómstóll í Nýju Delhí, sem fjallar um hryðjuverkamál, dæmdi menn- ina til hengingar í fyrradag eftir að hafa fundið þá seka um að hafa átt aðild að morðum og háð stríð gegn Indlandi. Mennirnir tóku ekki þátt í árás- inni á þinghúsið 13. desember í fyrra þegar fimm uppreisnarmenn frá Kasmír urðu níu manns að bana, átta lögreglumönnum og garðyrkju- manni, áður en þeir féllu í átökum við öryggissveitir. Sakborningarnir eru sagðir hafa aðstoðað við að undibúa árásina og veitt árásarmönnunum húsaskjól í Nýju Delhí. Dómarinn sagði að tveir mann- anna væru félagar í íslamskri hreyf- ingu, Jaish-e-Mohammed, sem berst gegn indverskum yfirráðum í Kasm- ír. Markmiðið með árásinni á þing- húsið hefði verið að myrða forsætis- ráðherra Indlands, Atal Bihari Vajpayee, og innanríkisráðherrann, Lal Krishna Advani, sem er einnig aðstoðarforsætisráðherra, og taka þingmenn í gíslingu. Indverjar sökuðu pakistönsku leyniþjónustuna og íslamskar hreyf- ingar í Pakistan um að hafa staðið fyrir árásinni, sem varð til þess að indverska stjórnin sendi hundruð þúsunda hermanna að landamærun- um og óttast var að stríð myndi blossa upp. Mennirnir, sem eru allir indversk- ir ríkisborgarar, héldu fram sakleysi sínu og ætla að áfrýja dauðadómun- um. „Ef það er hryðjuverkastarf- semi að biðja um að Kasmír fái frelsi þá er ég hryðjuverkamaður,“ sagði einn þeirra. Dauðadómum mótmælt harðlega í Kasmír Nýju Delhí. AP, AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.