Morgunblaðið - 20.12.2002, Síða 20
ERLENT
20 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Laugavegi
s. 511 4533
Kringlunni
s. 533 4533
Smáralind
s. 554 3960
Mikið úrval af
tískuskartgripum
TED LAPIDUS
RAUF Denktash, leiðtogi Kýpur-
Tyrkja, hét því í gær að leggja sig
fram um að ná samkomulagi við Kýp-
ur-Grikki og tryggja þannig að eyj-
arhlutarnir geti samtímis gengið í
Evrópusambandið, ESB. Hann
gagnrýndi harkalega Sameinuðu
þjóðirnar fyrir að setja tímamörk, 28.
febrúar, fyrir deiluaðila til að ná sam-
an um tillögur þar sem kveðið er á um
sambandsríki beggja þjóðarbrota, í
líkingu við fyrirkomulagið i Sviss.
Denktash, sem er 79 ára gamall og
gekkst undir mikla hjartaaðgerð fyr-
ir skömmu, fordæmdi einnig þá
ákvörðun ESB að bjóða Kýpur-
Grikkjum inngöngu í sambandið ef
ekki næðust samningar. Sagði Denk-
tash að Kýpur-Grikkir, sem eru mun
fleiri en grannarnir, yrðu að sýna
sveigjanleika. „Ef þeir segjast þegar
vera orðnir aðilar að ESB og ekki
þurfa á Tyrkjum að halda verður
keppikefli okkar að halda núverandi
stöðu og vernda ríki okkar,“ sagði
hann.
Tyrkland er eina ríkið sem viður-
kennir lögmæti ríkis Kýpur-Tyrkja.
Tyrkir hernámu héruð tyrknesku-
mælandi Kýpurbúa á norðurhluta
eyjarinnar 1974 eftir að reynt hafði
verið að sameina með hervaldi héruð
grískumælandi fólks Grikklandi
sjálfu.
Báðir deiluaðilar eru ósáttir við til-
lögur SÞ, Denktash telur réttindi
síns fólks ekki nógu vel tryggð. Glafc-
os Clerides, hinn 83 ára leiðtogi Kýp-
ur-Grikkja, krefst þess m.a. að réttur
allra þeirra hundraða þúsunda sem
urðu að yfirgefa heimili sín 1974 til að
snúa aftur heim verði tryggður.
Leiðtogi Kýpur-Tyrkja
segist vilja semja
AP
Rauf Denktash, leiðtogi Kýpur-
Tyrkja, ræðir við blaðamenn.
Ankara. AFP.
HÓPAR sem studdu talibanastjórn-
ina í Afganistan eru í nýrri skýrslu
Sameinuðu þjóðanna nefndir meðal
þeirra sem neyða börn til að taka
þátt í stríðsátökum, en niðurstöður
skýrslunnar voru kynntar fyrr í
þessari viku. Þetta er í fyrsta sinn
sem greint er frá því í skýrslu sem
þessari hvaða ríki eða hópar upp-
reisnarmanna iðka þennan ósið.
Í skýrslunni eru 23 aðilar frá 5
löndum nefndir til sögunnar sem
brotlegir við alþjóðalög er kveða á
um að ekki skuli kalla í herinn börn
yngri en 15 ára. Eru stríðandi fylk-
ingar í Búrúndi, Kongó, Líberíu og
Sómalíu, auk nokkurra hópa í Afg-
anistan, sérstaklega fordæmdar fyr-
ir að neyða börn til að gegna her-
mennsku.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, segir í aðfaraorðum með skýrsl-
unni að þessi listi sýni að „þeir sem
gerast sekir um að brjóta gegn al-
þjóðlegum viðmiðum komist ekki
upp með það athugasemdalaust“.
Hins vegar þyrfti að grípa til frekari
ráðstafana. T.d. þyrfti að kynna fyr-
ir fólki hver áðurnefnd viðmið væru,
auk þess sem styrkja mætti eftirlit
með brotum af þessari tegund.
Öryggisráð SÞ hefur þrívegis
ályktað gegn því að börn séu neydd
til að taka þátt í stríðsátökum og
tveir alþjóðasáttmálar eru í gildi um
aldurstakmörk hermanna.
!
"# $
% #
&
%
' (
)
* +
#
## "# ,
) !
)
)
-
!
"!
# $$ $
!
%
$$
&' #
'
"
. /001000
20 1
4
( (567
8 7 41 41
7
) ( 7 4
!(
)*)+,
#$ #
(-
,.55 ( 3:03000
.' 7 ;3000 5230003<
7
5=0 >
333=0 # 1 (
!
7 4
"#
?
#
( 7 "$%&!%
' @ 7
,
"#
(
7
)7 956
Þátttaka barna í stríði
fordæmd í skýrslu SÞ
Sameinuðu þjóðunum. AP.
ÞORSKUR og skyldar fisktegund-
ir hafa verið fæða milljóna Evrópu-
manna öldum saman en nú syrtir í
álinn. Þorskurinn er orðinn svo dýr
fæða að neytendur hrista höfuðið
og strunsa fram hjá þegar þeir
heyra það, segja fisksalar. „Guð
einn veit hvað verður um okkur,“
segir Jose Alberto, sem á versl-
unina Rei do Bacalhau (Þorsk-
kónginn) í Lissabon. Ráðherrar
sjávarútvegsmála í Evrópusam-
bandinu sitja enn á rökstólum í
Brussel og reyna að ná samkomu-
lagi um niðurskurð á veiðum aðild-
arríkjanna en hvorki gengur né
rekur. En fiskifræðingar segja að
annaðhvort verði veiðarnar skorn-
ar niður við trog eða þorskstofnum
í Norðursjónum útrýmt.
Útlitið er því svart fyrir fisksala
ekki síður en sjómenn en nýjar
tegundir eldisfisks á borð við leir-
geddu og Nílarkarfa sækja á og
koma að nokkru í stað hefðbund-
inna tegunda. Kollegar Albertos,
þeir John Strike, fisksali ársins í
Bretlandi, Jan van der Plas í Hol-
landi og Johnny Pauwels í Belgíu,
taka undir kvein Portúgalans.
Meðalverð á þorskkílóinu í Belgíu
var í fyrra 12 evrur, um þúsund
krónur, það var um 18 evrur á
árinu sem er að líða og líklegt að
það fari í 25 evrur, rösklega 2.100
krónur, á næsta ári, að sögn Pauw-
els. Strike segir að stutt sé í að
verðið eitt valdi því að þorskur
hverfi af markaðnum.
Þjóðarréttur Englendinga er
fiskur og franskar (fish and chips)
og samkvæmt hefðinni á fiskurinn
að vera þorskur. En fisksalar í
borginni Rugby skýra frá því að
megnið af þorskinum komi nú frá
löndum utan ESB, þ. á m. Fær-
eyjum, Grænlandi og Eystrasalts-
löndunum. Einn þeirra, Andrew
Thrasyvoulou, segist vera að huga
að því að kaupa þorsk frá Nýja-
Sjálandi, hinum megin á hnettin-
um.
Eldisþorskur lausnin?
Portúgalar eru mestu fiskneyt-
endur í ESB, meðalneyslan á
mann er um 60 kíló árlega en með-
altalið í sambandinu um 23 kíló.
Þorskur er hefðbundinn matur um
jólin í landinu, í verslunum við göt-
una Rua do Arsenal við Tagus-fljót
í Lissabon hangir þurrkaður
þorskur í rjáfrinu, saltaðar gellur
og kinnar eru í kössum á gang-
stéttinni.
Eitt af því sem getur breytt
myndinni er þorskeldi. Pauwels í
Belgíu segist nú þegar kaupa eld-
isþorsk frá Eistlandi, Noregi og
Danmörku. „Gæðin eru í lagi,“ seg-
ir hann. „Vandinn er að þeim tekst
ekki að framleiða nóg.“
Fisksalar
harma
þorskskortinn
Stofnar í Norðursjó í stórhættu
og verðið upp úr öllu valdi
Halle í Belgíu. AP.