Morgunblaðið - 20.12.2002, Qupperneq 26
SUÐURNES
26 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090
Jól 2002
Öðruvísi
jólaskreytingar
Full búð af nýjum gjafavörum
Sjón er sögu ríkari
BÆJARSTJÓRN Grindavíkur hefur
ákveðið að hækka útsvar úr 12,7 í
13,03% á næsta ári. Önnur sveitarfélög
á Suðurnesjum eru með óbreytt út-
svar. Gjald fyrir sorphreinsun og eyð-
ingu hækkar í öllum sveitarfélögunum
en önnur fasteignagjöld á einstaklinga
eru að mestu óbreytt frá árinu sem er
að líða.
Sveitarfélögin eru að undirbúa gerð
fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár og tvö
þeirra hafa samþykkt áætlanir sínar,
Reykjanesbær og Vatnsleysustrand-
arhreppur. Litlar breytingar virðast
vera á skattaálögum á íbúana, nema
hvað Grindvíkingar þurfa að borga
hærra útsvar en á þessu ári.
Með því að hækka útsvarið um
0,33%, í 13,03%, nýtir Grindavíkurbær
að fullu þá heimild sem Alþingi veitti
sveitarfélögunum á síðasta ári til að
auka tekjur sínar af útsvari. Hrepps-
nefnd Vatnsleysustrandarhrepps
ákvað strax að nýta sér þessa heimild
en önnur ekki.
Í Sandgerði verður útsvarið áfram
lægst, 12,6%, en litlu hærra í Reykja-
nesbæ og Gerðahreppi, 12,7%.
Meðalútsvar samkvæmt tilkynn-
ingu félagsmálaráðuneytisins er 12,8%
og er miðað við það hlutfall í stað-
greiðsluinnheimtu. Íbúar Grindavíkur
og Vatnsleysustrandarhrepps þurfa
að greiða það útsvar sem er umfram
þetta hlutfall við skattaálagningu sum-
arið 2004, vegna tekna á árinu 2003.
Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri í
Grindavík, segir að nauðsynlegt hafi
þótt að auka tekjur bæjarsjóðs til að
ná endum saman við gerð fjárhags-
áætlunar. Ólafur segir að á árinu 2002
hafi bæjarsjóður fengið greiðslu sem
ákveðin var í tengslum við breytingu á
Hitaveitu Suðurnesja í hlutafélag.
Slíkar greiðslur berist ekki á næsta
ári. Þá hafi rekstrarkostnaður hækk-
að, ekki síst launakostnaður, og aukn-
ar lántökur leiði til meiri vaxtakostn-
aður og hærri afborgana lána.
Ljóst er að víðar en í Grindavík er
erfitt að ná endum saman í fjárhags-
áætlunargerð en aðrar sveitarstjórnir
á Suðurnesjum hafa ekki ákveðið að
leysa vandann með hækkun á útsvari.
Hins vegar eru víða hækkanir á leik-
skólagjöldum og öðrum þjónustu-
gjöldum sveitarfélaganna.
Svipaðir fasteignaskattar
Samanlagður fasteignaskattur, hol-
ræsagjald og vatnsgjald verða 0,66% í
Sandgerði, Garði og Vogum en heldur
hærra í Grindavík (0,767%) og hæst í
Reykjanesbæ 0,68%. Eru þetta
óbreyttar hlutfallstölur frá árinu 2002.
Gjald fyrir sorphirðu og sorpeyðingu
hefur hins vegar hækkað verulega hjá
öllum sveitarfélögunum. Fjögur sveit-
arfélaganna leggja á 8.000 kr. gjald
fyrir þessa þjónustu, um 2.000 kr.
meira en á árinu sem er að ljúka, en
Reykjanesbær er með heldur lægra
gjald, eða 5.300 krónur og er það 2.400
kr. hækkun frá árinu í ár.
Sorpeyðingar- og sorphirðugjöldin
eru sjálfstæðir tekjustofnar sem sveit-
arfélögin hafa og þau nota til að standa
undir kostnaði við Sorpeyðingarstöð
Suðurnesja sem annast þessa þjón-
ustu fyrir þau. Guðjón Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfé-
laga á Suðurnesjum sem reka sorp-
eyðingarstöðina, segir að sveitarfélög-
in skipti áætluðum kostnaði við
fyrirtækið, að frádregnum öðrum
tekjum þess, á milli sín samkvæmt
íbúafjölda. Getur þessi kostnaður því
verið aðeins mismunandi milli sveitar-
félaganna. Guðjón segir að innheimt
gjald hafi verið mjög lágt og verið sé
að hækka það í áföngum. Nefnir hann
sem dæmi að sorphirðan ein og sér
kosti 6.200 krónur á íbúð og þá sé eftir
að eyða sorpinu. Í lok næsta árs verð-
ur tekin í notkun ný sorpeyðingarstöð
og má búast við auknum kostnaði
vegna þess átaks.
Lóðarleiga sveitarfélaganna er
nokku mismunandi, frá 1% í Gerða-
hreppi og upp í 2% í Reykjanebæ og
Sandgerði. Hreppsnefnd Vatnsleysu-
strandarhrepps ákvað að lækka lóðar-
leigu á landi sínu úr 1,4 í 1,2%. Mis-
jafnt er hvaða þýðingu þessi pró-
sentutala hefur, bæði vegna þess að í
sumum sveitarfélögunum er stór hluti
lóða í einkaeigu og vegna þess að víða
eru í gangi gamlir lóðarleigusamning-
ar þar sem leiga er reiknuð út frá tíma-
kaupi verkamanna og stærð lóðar en
ekki fasteignamati.
Getur munað á annan
tug þúsund
Við samanburð á sveitarfélögunum,
samkvæmt meðfylgjandi töflu, virðast
álögur vera lægstar á íbúa í Sandgerði
en hæstar í Grindavík. Meðalfjölskyld-
ur í Grindavík og Vatnsleysustrandar-
hreppi gætu þurft að greiða 10 til 20
þúsund króna hærra útsvar og fast-
eignagjöld á næsta ári en sambærileg
fjölskylda í Sandgerði, svo dæmi sé
tekið.
Grindavík og Vogar
með hæsta útsvarið
Suðurnes
(&)
'
*+!
# %
,--.
!
!
"#
$%
&'%
(
&/+
0
%*
arstjórn hafði staðfest á síðasta
fundi sínum.
Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri
segir að núverandi húsaleigusamn-
ingum verði sagt upp eftir áramótin,
með sex mánaða fyrirvara, og end-
urnýjaðir samningar verði gerðir
samkvæmt nýjum útreiknings-
reglum sem bæjarstjórn hafi sam-
þykkt. Segir Ólafur að með uppsögn
samninga vilji bæjarráðsmenn hafa
vaðið fyrir neðan sig við framkvæmd
breytingarinnar enda hafi ýmis önn-
ur sveitarfélög, til dæmis Reykja-
nesbær, farið þá leið. Með þessari til-
lögu sé reynt að standa sóma-
samlega að málinu gagnvart íbú-
unum.
GRINDAVÍKURBÆR er að falla
frá áformum um að hækka húsaleigu
á félagslegum íbúðum í eigu sveitar-
félagsins um áramót. Í staðinn verð-
ur húsaleigusamningum sagt upp
þannig að hækkunin komi til fram-
kvæmda næsta sumar.
Bæjarráð tók í fyrradag fyrir er-
indi kennara við Grunnskóla Grinda-
víkur þar sem hækkunum á húsa-
leigu er mótmælt. Kennarar, sem
búa í þessum íbúðum, telja húsaleig-
una hluta af starfskjörum sínum. Af
því tilefni ákvað bæjarráðið að
leggja til við bæjarstjórn að fresta
fyrirhuguðum hækkunum sem bæj-
Hækkun á húsa-
leigu frestað
Grindavík
JÓLABALL hjá Vísi hf. í Grinda-
vík er nýtt af nálinni. Ekki var
annað að sjá á ungum sem eldri en
gaman væri að ganga kringum
jólatréð við undirleik nú á dög-
unum þegar blaðamann bar að
garði.
Það er fyrir tilstilli starfsmanna-
félagsins á staðnum sem starfs-
menn og börn þeirra dönsuðu
kringum jólatréð í matsal starfs-
manna. „Stefnan að gera eitthvað
fyrir börn starfsmanna í kringum
árshátíð okkar. Í fyrra fórum við í
keilu en í ár er það jólaball með
jólasveini og öllu tilheyrandi,“
sagði Grímur Jónsson, gjaldkeri
nefndarinnar.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Göngum við í kringum
Grindavík
VIÐ messu í Hvalsneskirkju fyrir
skömmu voru kirkjunni færðar
gjafir. Meðal þeirra er ný skál í
liðlega 170 ára gamlan skírnar-
font sem í kirkjunni er.
Afkomendur hjónanna frá Bala,
Guðmundar Guðmundssonar og
Guðrúnar Guðmundsdóttur, færðu
kirkjunni 50 sálmabækur og Biblíu
til minningar um hjónin. Guð-
mundur var formaður sókn-
arnefndar í 20 ár og meðhjálpari í
8 ár.
Þá gaf Kristmann Guðmundsson
skírnarskál í elsta skírnarfont
kirkjunnar til minningar um Snjó-
laugu Sigfúsdóttur, eiginkonu
sína. Skálin er gerð úr leir og
gleri af Kolbrúnu Vídalín í lista-
smiðjunni Nýrri vídd í Sandgerði
en sjálfur skírnarfonturinn er frá
árinu 1828.
Skálin var notuð í fyrsta sinn
við athöfnina þegar séra Björn
Sveinn Björnsson skírði son Rósu
Önnu Björgvinsdóttur og Arnars
Bjarkasonar og hlaut drengurinn
nafnið Kristján Ingi.
Gáfu nýja skál í 170 ára
gamlan skírnarfont
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Hvalsnes
SÓLVEIG Pétursdóttir, dóms-
og kirkjumálaráðherran, heim-
sækir endurhæfingarsambýli
Byrgisins í Rockville í dag,
föstudag.
Ráðherra mun kynna sér
helstu þætti meðferðarstarfs
Byrgisins, sem meðal annars
hefur verið með fanga til end-
urhæfingar á Rockville.
Heimsókn Sólveigar mun
ljúka með því að boðið verður
upp á kaffi og síðan mun hún
ávarpa Byrgisfólk.
Dómsmálaráð-
herra heim-
sækir Byrgið
Rockville
Um 40 hús hafa verið tilnefnd í sam-
keppnina um Ljósahús Reykjanes-
bæjar 2003. Úrslit verða tilkynnt og
verðlaun afhent við athöfn sem fram
fer í Duus-húsum klukkan 17 í dag.
Á sama tíma verður tilkynnt hver
hefur verið valinn fallegasti jólagluggi
verslana í bænum, fallegasta heildar-
mynd á götu og fallegasta jólaskreyt-
ing á fjölbýlishúsi og raðhúsi.
Í DAG
SAMKAUP hf. verða reyklaus
vinnustaður um næstu áramót. Eftir
þau verða reykingar óheimilar í hús-
næði fyrirtækisins og á lóðum og
starfsmönnum verður óheimilt að
reykja á vinnutíma.
Hjá Samkaupum starfa tæplega
600 starfsmenn í 26 verslunum og
deildum. Fram kemur í fréttatil-
kynningu að undanfarna mánuði hef-
ur breytingin verið undirbúin með
útgáfu fræðsluefnis og kynningu
meðal starfsfólks.
Þá hefur starfsfólkinu staðið til
boða að sækja námskeið á vegum
Krabbameinsfélagsins því að kostn-
aðarlausu. Starfsmönnum hefur
jafnframt staðið til boða, fram að
áramótum, að fyrirtækið greiði and-
virði eins mánaðar skammts af hjálp-
arlyfi að eigin vali.
Samkaup verða
reyklaus
Suðurnes