Morgunblaðið - 20.12.2002, Side 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 33
NORSKI listmálarinn Odd Nerd-
rum hefur nú skipað sér í hóp frægra
Íslandsvina sem ganga skrefinu
lengra en að staldra bara við í Leifs-
stöð, heldur kaupa sér hús hér á
Fróni til að setjast að eða búa hluta
úr ári. Í miðrými Kjarvalsstaða
hanga nú þrjú stór málverk eftir
Nerdrum, máluð á árunum 2001–
2002. Nerdrum er sérstakur „gestur
á aðventunni“, eins og aðstandendur,
eða forstöðumaður, safnsins kjósa að
kalla það, og er sýningin nokkuð
óvænt í ljósi þess að í fyrravetur var
stór yfirlitssýning á verkum hans í
vestursal safnsins.
Ég ætla að leyfa mér að fullyrða
það að Odd Nerdrum sé þekktastur
núlifandi listmálara frá Noregi.
Hann, ásamt listmálurum eins og
Stephen McKenna og Carlo Maria
Mariani, vakti fyrst alþjóðlega at-
hygli á níunda áratug síðustu aldar
fyrir að mála í anda gömlu meistar-
anna. Odd Nerdrum er þó ekki bara
„endurfæddur“ meistari málaralistar
eins og oft er gefið til kynna. Opin-
berlega lifir hann persónu sína, eða
egó, samkvæmt þeim gildum sem
hann stendur fyrir í listum, hvort sem
það er í framkomu eða klæðnaði, og
hefur hann, líkt og listamennirnir
Joseph Beuys og Andy Warhol gerðu
á sínum tíma, skapað sér ímynd, eða
goðsögn, sem hefur talsverð áhrif á
hvernig hann er metinn sem lista-
maður. En fyrst og fremst eru það
auðvitað málverkin sem gera hann að
þeim virta og umdeilda listamanni
sem raun ber vitni. Við megum þó
ekki bara dást að hæfni hans og
merkja svo málverkin sem póstmód-
ernískt „kitsch“ unnið í anda 16. og
17. aldar málara á borð við Pieter
Brugel og Rembrandt Van Rijn. Þau
eru frásagnarheimur út af fyrir sig
sem minnir á myrkar miðaldir, en
virðist eiga sér stað í eyðilegri fram-
tíð, eins og eftir kjarnorkustríð, líkt
áströlsku hasarmyndunum um Mad
Max. Auk þess er margt í málverk-
unum sem forvitnilegt er að skoða í
samhengi við kvikmyndir Andreis
Tarkovskís, en einhver óræður
óhugnaður liggur yfir málverkum
Nerdrums sem erfitt er að festa hönd
á og er það sams konar andrúm og oft
er í myndum Tarkovskis, eins og
„Andrei Rublev“ og „Stalker“. Mál-
verkin á Kjarvalsstöðum eru engin
undantekning á því. „Fimm syngj-
andi konur“ sýnir fimm konur og einn
dreng sem frekar sýnast látin á sand-
inum en syngjandi. „Geðsjúklingar“
vekur jafnframt óhug og „Annað líf“
er sjálfsmynd listamannsins þar sem
hann annaðhvort sekkur eða rís úr
jörðu, sem er, eins og í flestum mynd-
um hans, sótt í eyðilegt landslag á Ís-
landi. Myndir Nerdrums spegla yf-
irleitt eitthvað í lífi hans sjálfs, en
hvort konurnar fimm eru úr fortíð
listamannsins og hann drengurinn,
„Geðsjúklingarnir“ einhver tilfinn-
ingabrot eða hvort „Annað líf“ hefur
eitthvað með ákvörðun hans um að
setjast að á Íslandi að gera getur
maður aðeins velt fyrir sér. En þegar
öllu er á botninn hvolft stendur mað-
ur frammi fyrir þungum og áleitnum
málverkum í epískum búningi sem
maður vill helst flýja en getur samt
ekki svo auðveldlega slitið sig frá.
Mad Max
og gamlir
meistarar
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir
Safnið er opið alla daga vikunnar kl. 10–
17 nema á miðvikudögum kl. 10–19.
Sýningin stendur til 31. janúar.
MÁLVERK
ODD NERDRUM
Jón B.K. Ransu
„Annað líf“ Odds Nerdrum.
TÓ-TÓ er nafnið á hönnunarsam-
vinnu myndlistarkvennanna Önnu
Þóru Karlsdóttur og Guðrúnar
Gunnarsdóttur. Báðar hafa þær ver-
ið virkar innan myndlistarinnar um
árabil. Anna Þóra hefur mestmegnis
unnið með ull og sýndi m.a. ullarverk
í Listasafni ASÍ í nóvember síðast-
liðnum. Guðrún Gunnarsdóttir er
menntuð í veflist og hefur reynt fyrir
sér með ýmis efni á því sviði á und-
anförnum árum. Verk hennar unnin
með vír, fíngerðar þrívíðar teikning-
ar, hafa vakið nokkra athygli og lof
gagnrýnenda. Samhliða myndlist-
inni vinna þær Anna Þóra og Guðrún
síðan saman að hönnun sem nefnist
Tó-Tó en ein merking orðsins tó er
ullarvinna. Þær selja afurðir sínar
meðal annars í Kirsuberjatrénu við
Vesturgötu. Þar má til dæmis sjá
skálar, fjöll og steina úr ull, unnin
hugvitssamlega og af húmor fyrir
möguleikum efnisins og íslenskri
þjóðarsál.
Eins og eðlilegt er þegar unnið er
jöfnum höndum og með sömu hrá-
efni innan myndlistarinnar og í
hönnun kemur að því inn á milli að
erfitt verður að greina mörkin þarna
á milli. Nú sýna listakonurnar bein-
línis út frá þeirri spurningu hvort
hluturinn geti í raun verið bæði, falið
í sér eiginleika myndlistarverks og
einnig haft notagildi sem hönnun.
Þetta er frekar háll ís að fóta sig á og
veltur dálítið á því hvaða kröfur eru
gerðar til myndlistarverka. Í mynd-
list sinni hefur báðum listakonum
tekist að vinna á áhugaverðan hátt á
eigin forsendum, Guðrún Gunnars-
dóttir hefur tekið vefformið og lagt
áherslu á grunneiginleika þess,
þráðinn sjálfan og möguleika hans.
Anna Þóra hefur skapað verk úr ull-
inni sem ekki er hægt að skoða öðru-
vísi en sem hluta af höggmyndalist.
Verkin sem Tó-Tó sýnir hér eru
falleg hvað varðar áferð, form og lit
og hvert um sig vekja þau áhuga á
nánari skoðun. Þau eru falleg fyrir
augað og frumlega unnin, við athug-
un má sjá ýmislegt í þeim, mismun-
andi mynstur, liti og áferð.
Í fréttatilkynningu er lögð áhersla
á margnota gildi verkanna, þeim má
til dæmis sveipa um sig eins og sjali.
Framsetning verkanna í galleríinu
er hins vegar svo einföld, en þau
hanga á vír meðfram veggjum, að
sýningin sem slík nær ekki að verða
mjög spennandi. Kannski er hún
hugsuð með möguleika áhorfandans
í huga, að fólk gæti hreinlega tekið
verkin niður og gengið með þau um
galleríið og þau lifnað þannig við, en
ég veit ekki hvort það gerist í raun
og veru. Önnur framsetning eða ein-
hver viðbót við sýninguna hefði ef til
vill getað auðveldað áhorfandanum
að sjá fyrir sér möguleika verkanna.
Þrátt fyrir þessa annmarka sýn-
ingarinnar sé ég fyrir mér að að
verkin standi undir sér sem frumleg
hönnun/myndlistarverk við
ákveðnar aðstæður eða framsetn-
ingu. Á góðum stað í rúmgóðum
gangi í heimahúsi getur óvænt um-
breyting átt sér stað þegar verkið er
þrifið niður af veggnum og því vafið
um axlir á leið út.
Skjól
og skraut
MYNDLIST – HÖNNUN
Gallerí Skuggi
Til 22. desember. Gallerí Skuggi er opið
þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 13–17.
VERK UNNIN ÚR ULL, ANNA ÞÓRA KARLS-
DÓTTIR, GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR,
TÓ-TÓ
Ragna Sigurðardóttir
Reyfi, verk eftir Tó-Tó í Galleríi Skugga við Hverfisgötu.
Orkuveitan
flytur!
5166000
Bæjarhálsi 1 - 110 Reykjavík
Afgreiðsla Orkuveitunnar opnar á nýjum stað mánudaginn
23. desember í glæsilegum húsakynnum
að Bæjarhálsi 1.
www.or.is
Nýtt símanúmer
Afgreiðslan er
opin frá kl. 8.30 –16.00
alla virka daga
Allar nánari upplýsingar er að finna á:
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
5
9
6
6