Morgunblaðið - 20.12.2002, Síða 41

Morgunblaðið - 20.12.2002, Síða 41
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 41 FYLGJENDUR og andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar eru margir hverjir ósammála um það, hvort virkjunin muni borga sig. Almenn- ingur á bágt með að átta sig á því, hvorir hafi rétt fyrir sér í málinu. Hér vil ég reyna að bregða ljósi á eina hlið þessa ágreinings og varpa í framhaldi fram einni spurningu um hana. Framkvæmdir við Kárahnjúka- virkjun munu kosta eigendur Lands- virkjunar um það bil 90–100 millj- arða króna sem greiddir verða á næstu árum, ef af framkvæmdum verður. Landsvirkjun mun að mestu fjármagna þessar framkvæmdir með lánsfé frá útlöndum, en vextirnir sem Landsvirkjun greiðir verða lægri en einkafyrirtæki þyrftu að greiða, vegna þess að eigendur fyr- irtækisins, ríkið og tvö sveitarfélög, ábyrgjast að lánin verði greidd, hvernig sem allt fer. Hinir erlendu lánardrottnar þurfa því ekki að ótt- ast um endurgreiðslur þótt Lands- virkjun færi á hausinn, til dæmis vegna náttúruhamfara sem kynnu að eyðileggja Kárahnjúkavirkjun, eða af öðrum ástæðum. Andstæðingar Kárahnjúkavirkj- unar segja að rétt sé að miða við hærri vexti en lántökuvexti Lands- virkjunar, þegar arðsemi fram- kvæmdarinnar er metin. Rökin eru í rauninni þau, að hin raunverulega arðsemi verkefnisins sé óháð því hverjir taki áhættu vegna fram- kvæmdanna. Þegar ríkið ábyrgist lánin sé áhætta þeirra fjárfesta sem láni í verkefnið orðin mun minni en ella, og þess vegna lækki vextir lán- takenda. Þetta breyti hins vegar ekki arðsemi verkefnisins, því hluti af kostnaði við framkvæmdirnar sé nú í reynd borinn af ríkinu, sem beri þennan kostnað með því að veita rík- isábyrgð. Fylgjendur Kárahnjúkavirkjunar segja, að rétt sé að miða við þá vexti sem lántaki þarf að greiða, þ.e.a.s. án þess að taka tillit til áhrifa ríkis- ábyrgðarinnar á vextina. Rökin fyrir því eru þau, að Landsvirkjun þurfi ekki að borga hærri vexti en þetta, svo að verkefnið borgi sig ef það ber þessa vexti. Hvorir skyldu nú hafa rétt fyrir sér? Við höfum annað nýlegt dæmi um áþekkt mál, nefnilega spurninguna um það hvort Íslensk erfðagreining eigi að fá ríkisábyrgð eða ekki. Ýms- um þykir óráðlegt að ríkið veiti erfðagreiningu ábyrgð vegna þess að sú ábyrgð sé dýr, líkur séu á að ríkið muni þurfa að greiða þau lán sem það ábyrgist, þ.e.a.s. hugsanlegt sé að erfðagreining fari á hausinn. Svo þykir öðrum þetta óráðlegt vegna þess að ábyrgðin skekki samkeppn- isstöðu fyrirtækja í þessum geira. Hún leiði til þess að verkefni, sem ekki ber sig fyrir eitt fyrirtæki – til dæmis Pharmaco – getur borið sig fyrir erfðagreiningu. Ástæðan fyrir því þarf ekki að vera önnur en sú, að annað fyrirtækið fái ríkisábyrgð á lán sín en hitt ekki. Þetta dæmi sýnir okkur, að rík- isábyrgð er verðmæt því hún getur gert það að verkum að verkefni sem ekki væru arðbær án hennar verði arðbær frá sjónarmiði fyrirtækja. Af þessu dæmi má líka læra að ríkis- ábyrgð er kostnaðarsöm fyrir ríkið (um leið og hún minnkar kostnað þeirra fyrirtækja sem njóta hennar) vegna þess að hún getur leitt til þess að ríkisvaldið þurfi að greiða afborg- anir af lánum sem fyrirtækið átti að greiða. Freistandi er að draga einn lærdóm í viðbót af þessu dæmi: Hann er sá, að snyrtilegast væri að ríkið hætti að veita ríkisábyrgðir og veitti fyrirtækjum heldur ríkisstyrki þegar nauðsynlegt er talið að styrkja verðug verkefni. Í framhaldi af því vaknar spurn- ingin: Hvað þyrfti ríkisstyrkur til Landsvirkjunar að nema hárri fjár- hæð, til þess að Landsvirkjun væri kleift að byggja Kárahnjúkavirkjun án þess að hafa ríkisábyrgð á þeim lánum sem taka þarf vegna verkefn- isins? (Í þessu sambandi þarf fólk ekki að láta rugla sig, að ríkið á helmingshlut í Landsvirkjun. Hinn helminginn eiga tvö sveitarfélög, svo að Landsvirkjun er hreint ekki venjulegt ríkisfyrirtæki.) Það er ekki svo einfalt mál að meta hversu hár ríkisstyrkurinn þyrfti að vera. Ástæður þess eru að við vitum ekki á hvaða vöxtum fjárfestar myndu vilja lána til framkvæmdar- innar án ríkisábyrgðar og jafnvel ekki fyrir víst hverjir vextirnir verða með ríkisábyrgðinni. Auk þess vitum við ekki fyrir víst hversu mikið fram- kvæmdir munu kosta, svo við vitum ekki hversu fjárhæðin, sem ríkið ætl- ar að ábyrgjast, er há. En um alla þessa hluti vita starfs- menn Landsvirkjunar betur en við hin. Þeir geta þá kannski frætt okk- ur um það, hversu hár ríkisstyrkur- inn þyrfti að vera, til þess að Lands- virkjun væri jafn vel sett með ríkisstyrkinn og með ríkisábyrgðina. Fróðlegt væri að fá svar við þessari spurningu í ljósi þess, að kostir rík- isstyrks umfram ábyrgð eru margir, til dæmis þeir að draga úr áhættu hvað varðar tekjur og útgjöld rík- isins. Borgar Kára- hnjúkavirkjun sig? Eftir Þorberg Þórsson „Hvað þyrfti ríkisstyrkur til Lands- virkjunar að nema hárri fjárhæð, til þess að Landsvirkjun væri kleift að byggja Kárahnjúka- virkjun án þess að hafa ríkisábyrgð á þeim lán- um sem taka þarf vegna verkefnisins?“ Höfundur er hagfræðingur. www.starri.is Sérhæfing í Intel-vörum Móðurborð - Örgjörvar - Flatir skjáir 3ja ára ábyrgð Góðir skór Skóbúðin Miðbæ Háaleitisbraut 58-60  Sími 553 2300 Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15. Naomi Campbell ilmvötnin fást í snyrtivöruverslunum og apótekum um land allt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.