Morgunblaðið - 20.12.2002, Side 51

Morgunblaðið - 20.12.2002, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 51 KNICKERBOX Laugavegi 62, sími 551 5444 KNICKERBOX Kringlunni, sími 533 4555 J ó l i n e r u k o m i n í K N I C K E R B O X — Munið gjafakortin — — Sendum í póstkröfu — Mikið úrval af nærfatnaði og náttfatnaði Munið flís-náttfötin og flís-sloppana - Ný sending - Fullar búðir af glæsilegum vörum HINN 6. nóvember síðastliðinn tóku krakkarnir í 7. bekk FK í Austurbæjarskóla þátt í verkefninu Dagblöð í skólum. Að lokinni vinnu- viku með dagblöð í skólanum komu þau í heimsókn á Morgunblaðið til að kynna sér nánar hvernig hlut- irnir ganga fyrir sig þegar dagblað verður til. Morgunblaðið vonar að heimsóknin hafi orðið þessum hressu og fróðleiksfúsu krökkum að gagni bæði og gamni. Morgunblaðið/Árni Sæberg ÞAÐ voru hressir krakkar úr 7. bekk í Hvassaleitisskóla sem komu við á Morgunblaðinu fyrir stuttu í þeim tilgangi að kynna sér ferlið við vinnslu á dag- blöðum. Þegar höfðu þau unnið með dagblöð í tímum og því upp- lagt að fá kynnisferð um alvöru dagblað. Bestu þakkir fyrir kom- una, krakkar! Morgunblaðið/Jim Smart HINN 21. nóvember síðastliðinn komu hinir kátu krakkar í 7. D úr Melaskóla í heimsókn á Morgunblaðið. Koma þeirra á blaðið var liður í verkefninu Dagblöð í skólum sem bekkurinn vann nýlega í skólanum. Krakk- arnir voru kurteisir bæði og fróðleiksfúsir, enda stend- ur bókstafurinn D í heiti bekkjarins fyrir „dásamlegt fólk“ að sögn kennarans. Morgunblaðið tekur heilshug- ar undir það og þakkar þeim kærlega fyrir komuna. Morgunblaðið/Þorkell Jólamót BR og SPRON Árlegt minningarmót Harðar Þórðarsonar á vegum Bridsfélags Reykjavíkur og SPRON verður að þessu sinni haldið sunnudaginn 29. desember. Minningarmót Harðar Þórðarson- ar er tvímenningur með Monrad ba- rometer-fyrirkomulagi, 44 spil með 4 spilum milli para. Spilamennska hefst klukkan 13 og áætluð spilalok eru um klukkan 19. Spilagjald í keppnina verður 2.000 krónur á spil- ara. Spilastaður í þessu skemmtilega móti verður Síðumúli 37, húsnæði Bridssambands Íslands. Húsrými þar setur mörk við hámarksþátttöku 60 para og eru spilarar því áminntir um að skrá sig í tíma til að tryggja þátttöku sína. Mögulegt verður að skrá sig í síma Bridssambandsins, 587 9360, á sérstökum skráningar- listum og á tölvupóstfanginu keppn- isstjori@bridgefelag.is Félag eldri borgara í Kópavogi Það spiluðu 22 pör í Michell-tví- menningnum 17. desember og urðu úrslitin eftirfarandi í N/S: Jón Pálmason - Ólafur Ingimundars. 267 Vilhjálmur Sigurðss. - Þórður Jörundss. 247 Aðalbj. Benediktss. - Leifur Jóhanness. 243 Hæsta skor í A/V: Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 287 Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 264 Helga Helgad. - Sigrún Pálsd. 259 Meðalskor 216. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.