Morgunblaðið - 20.12.2002, Síða 56
DAGBÓK
56 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Goða-
foss kemur og fer í dag.
Vigri, Freri, Borgin og
Queen T koma í dag.
Fréttir
Bókatíðindi 2002. Núm-
er föstudagsins 20. des-
ember er 34179.
Mannamót
Aflagrandi 40. Jóla-
súkkulaði í dag sem hefst
með jólabingói kl. 14. All-
ir velkomnir.
Árskógar 4. Kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofan.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
frjálst að spila í sal. Að-
ventumessa með sr.
Kristínu Pálsdóttur kl.
10.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kór eldri
borgara í Damos.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45 op-
in handavinnustofan,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–16.45 alla daga
nema mánudaga.
Félagsstarfið, Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
applikering, kl. 10–13 op-
in verslunin.
Félagsstarfið, Furugerði
1. Kl. 9, aðstoð við böðun
og smíðar og útskurður.
kl. 10, leikfimi og kl. 14
verður jólabíó. Allir vel-
komnir.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9–12 böðun,
kl. 9–16.30 opin vinnu-
stofa, myndlist, kl. 9.30
gönguhópurinn Gönu-
hlaup leggur af stað,
kaffi á eftir göngunni,
allir velkomnir, kl. 14
brids og spilamennska,
hárgreiðslustofan opin
9–14. Vinsamlegast pant-
ið Þorláksmessuskötuna
í dag.
Félagsstarfið, Lönguhlíð
3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 10–12 versl-
unin opin, kl. 11 leikfimi,
kl. 13. „Opið hús“, spilað
á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8 (Gjá-
bakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið Hraunsel verður
lokað til mánudagsins 6.
janúar 2003.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in kl. 10–13 virka daga.
Morgunkaffi, blöðin og
matur í hádegi. Skrif-
stofa félagsins er í Faxa-
feni 12, sími 588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf,
kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar kl. 12 skötuveisla í
Kaffi Bergi frá hádegi
spilasalur opinn, föstu-
daginn 3. janúar ára-
mótaguðsþjónusta í
Digraneskirkju. Á eftir
verður ekið um höf-
uðborgarsvæðið ljósum
prýtt. Skráning á þátt-
töku hafin, allar upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bókband.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Opið til kl. 17, heitt kaffi
á könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
fótaaðgerð og hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun. Fótaaðgerð, hár-
snyrting. Allir velkomn-
ir.
Korpúlfarnir, eldri borg-
arar í Grafarvogi. Vatns-
leikfimi í Grafarvogslaug
á þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17, hár-
greiðsla kl. 10–11 boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
alm. handavinna, kl. 10–
11 kántrýdans, kl. 11–12
stepp, kl. 13.30–14.30
Sungið við flygilinn, kl.
14–15 félagsráðgjafi á
staðnum, kl. 14.30–16
dansað í aðalsal.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla og
myndlist, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 12.30 leir-
mótun, kl. 13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað frá
Gjábakka, Fannborg 8,
kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13,
kl. 10 á laugardögum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum með
börnin sín á fimmtud.
kl.13–15 á Loftinu í Hinu
húsinu, Pósthússtræti
3–5. Opið hús og kaffi á
könnunni, djús, leikföng
og dýnur fyrir börnin.
Hressingarskálinn. Í
dag föstudag 20. des. frá
kl. 16.30 mun Steindór
Andersen kveða rímur
og Monika Abendroth
spila á hörpu. Sigurbjörg
Þrastardóttir les frum-
samin ljóð við túlkun
Lovísu Lóu látbragðs-
leikara. Thor Vilhjálms-
son les úr bók sinni
Sveigur og Þórunn
Valdimarsdóttir les úr
bók sinni Horfinn heim-
ur. Árið 1900 í nærmynd.
Allir velkomnir.
Minningarkort
Minningakort Áskirkju
eru seld á eftirtöldum
stöðum: Kirkjuhúsinu,
Laugavegi 31, þjón-
ustuíbúðum aldraðra við
Dalbraut, Norðurbrún 1,
Apótekinu, Glæsibæ og
Áskirkju, Vesturbrún 30,
sími 588-8870.
KFUM og KFUK og
Samband íslenskra
kristniboða. Minning-
arkort félaganna eru af-
greidd á skrifstofunni,
Holtavegi 28 í s. 588 8899
milli kl. 10 og 17 alla
virka daga. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum í Reykja-
vík: Skrifstofu
Hjartaverndar, Holta-
smári 1, 201 Kópavogi, s.
535-1825. Gíró- og
greiðslukort. Dval-
arheimili aldraðra,
Lönguhlíð, Garðs Apó-
tek, Sogavegi 108, Ár-
bæjar Apótek, Hraunbæ
102a, Bókbær í Glæsibæ,
Álfheimum 74, Kirkju-
húsið, Laugavegi 31,
Bókabúðin Grímsbæ
v/Bústaðaveg, Bókabúð-
in Embla, Völvufelli 21,
Bókabúð Grafarvogs,
Hverafold 1–3.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Reykja-
nesi: Kópavogur:
Kópavogs Apótek,
Hamraborg 11. Hafn-
arfjörður: Lyfja, Set-
bergi. Sparisjóðurinn,
Strandgata 8–10, Kefla-
vík: Apótek Keflavíkur,
Suðurgötu 2, Lands-
bankinn, Hafnargötu 55–
57.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Vest-
urlandi: Akranes:
Hagræði hf., Borgarnes:
Dalbrún, Brákarbraut 3.
Grundarfjörður: Hrann-
arbúð sf., Hrannarstíg 5.
Stykkishólmur: Hjá
Sesselju Pálsd., Silf-
urgötu 36. Ísafjörður:
Póstur og sími, Að-
alstræti 18. Stranda-
sýsla: Ásdís Guðmundsd.
Laugarholti, Brú.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Austur-
landi: Egilsstaðir:
Gallerí Ugla, Miðvangur
5. Eskifjörður: Póstur og
s., Strandgötu 55. Höfn:
Vilborg Einarsdóttir,
Hanarbraut 37.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Norð-
urlandi: Ólafsfjörður:
Blóm og gjafavörur, Að-
algötu 7. Hvammstangi:
Verslunin Hlín,
Hvammstangabraut 28.
Akureyri: Bókabúð Jón-
asar, Hafnarstræti 108,
Möppudýrin, Sunnuhlíð
12c. Mývatnssveit: Póst-
húsið í Reykjahlíð. Húsa-
vík: Blómasetrið, Héð-
insbraut 1, Raufarhöfn:
Hjá Jónu Ósk Péturs-
dóttur, Ásgötu 5.
Í dag er föstudagur 20. desember,
354. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Forustusauðurinn fer fyrir þeim,
þeir ryðjast fram, fara í gegnum
hliðið og halda út um það, og kon-
ungur þeirra fer fyrir þeim og Drott-
inn er í broddi fylkingar þeirra.
(Mika 2, 13.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 birki, 4 þrúga, 7 hörku-
frosts, 8 fráleitt, 9 doka
við, 11 tala, 13 drepa, 14
lygnir, 15 gort, 17 erfitt
verk, 20 ílát, 22 jarðeign,
23 Gyðingar, 24 gyðja, 25
tarfi.
LÓÐRÉTT:
1 bugða, 2 dáin, 3 fæði, 4
afbrotamann, 5 sníkju-
dýr, 6 hindra, 10 hvetja,
12 rödd, 13 augnhár, 15
málæði, 16 konu, 18
skjóðu, 19 sverð, 20 hafði
upp á, 21 skaði.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 lostafull, 8 dílum, 9 líkna, 10 ill, 11 útför, 13
ansar, 15 linna, 18 strák, 21 lít, 22 blund, 23 annir, 24
linnulaus.
Lóðrétt: 2 orlof, 3 tímir, 4 fella, 5 lokks, 6 edrú, 7 saur,
12 önn, 14 nýt, 15 labb, 16 nauði, 17 aldan, 18 stagl, 19
runnu, 20 kort.
Þakkir til Esso
ÞANNIG er mál með vexti
að ég fór á bensínstöð hjá
Esso við Skógarsel. Þar
fékk ég ekki þá þjónustu
sem ég taldi mig eiga rétt á
svo ég ákvað að senda póst á
esso@esso.is. Og þar stóð
sko ekki á viðbrögðunum.
Ég fékk svar um hæl að ég
ætti að fá alla þá þjónustu
sem völ væri á og spurt var
hvort ekki væri allt í lagi svo
að ég sagði sögu mína. Dag-
inn eftir hringdi stöðvar-
stjórinn í Skógarseli í mig
og við ræddum málin og í
framhaldi af því fékk ég
sendan glaðning heim.
Langaði mig að þakka
þeim hjá Esso kærlega fyrir
þessi frábæru viðbrögð.
HJL.
Að athuga vel verðið
13. desember sl. var ég að
versla í Hagkaupum í Skeif-
unni. Ég ákvað að kaupa tvö
lítil tæki sem auglýst voru í
Hagkaupabæklingi og áttu
að kosta 4.990 stykkið. Ým-
islegt fleira keypti ég en
þegar ég ætlaði að borga á
kassanum fannst mér heild-
arupphæðin fullmikil svo ég
skoðaði kassakvittunina.
Kom þá í ljós að þessi tæki
höfðu hækkað um 1.000 kr.
stykkið, kostuðu 5.990. Þeg-
ar farið var að athuga málið
og rætt við yfirmann var
mér sagt að 5.990 væri rétta
verðið þótt þetta tæki væri
auglýst á 4.990 í bæklingn-
um. Fékk ég þetta leiðrétt
en ég vil benda fólki á að at-
huga vel verðið áður en það
borgar núna í jólaösinni. Er
þetta ekki í fyrsta skipti sem
ég lendi í þessu.
Hafliði Helgason.
Þakkir
ÉG vil koma á framfæri
þakklæti mínu til Guðmund-
ar Olgeirssonar læknis og
hans starfsfólks á heilsu-
gæslustöð Seltjarnarness
fyrir góða móttöku og að-
stoð vegna veikinda konu
minnar.
Meyvant Meyvantsson.
Tapað/fundið
Nokia-sími
tapaðist
NOKIA 6110 tapaðist ein-
hvers staðar á leiðinni frá
Lyfju á Laugavegi að
Klapparstíg 15. des. síðast-
liðinn. Skilvís finnandi vin-
samlegast hafi samband í
síma 897 7595 eða 561 7595.
Mokkahúfa
týndist
BRÚN mokkahúfa týndist
föstudaginn 13. des. á leið-
inni frá Bankastræti að
Garðastræti. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
551 3518 eða 820 7505.
Dýrahald
Lúsífer
er týndur
LÚSÍFER er eins og hálfs
árs gamall fress, svartur
með hvíta grímu, hvíta
bringu, hvítar loppur og
svartan fegurðarblett á nef-
inu.
Hann var með bleika
hálsól og eyrnamerktur 561.
Hann týndist frá Urðarstíg
14 fyrir nokkru en þangað
var hann nýfluttur og ratar
þess vegna ekki heim og
gæti verið hvar sem er.
Þeir sem hafa orðið varir
við Lúsífer láti vita í síma
552 3014 eða 551 1717.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttirborgarstjóri hefur hrært upp í
hinni pólitísku umræðu með því að
gefa kost á sér til þingmennsku.
Fróðlegt var í gær að lesa hvað
pólitísku vefritin höfðu um þessa
ákvörðun borgarstjórans að segja.
Sínum augum lítur hver á silfrið,
eins og þar stendur.
x x x
VEFÞJÓÐVILJINN: „Af frétt-um síðdegis í gær mátti ætla
að stórtíðindi hefðu gerst því allir
fréttatímar og spjallþættir fylltust
af umfjöllun um að sjálf Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri ætl-
aði að gefa kost á sér í komandi
þingkosningum.
Þó er það nú svo að þetta ætti
ekki að vera nokkrum manni tíðindi
– nema ef til vill þeim sem hafa trú-
að því að orð Ingibjargar séu þess
virði að tekið sé mark á þeim … En
þeim sem kemur framboð Ingi-
bjargar á óvart er nokkur vorkunn
þegar aðdragandinn er skoðaður,
því stjórnmálamaður hefur líklega
aldrei gefið afdráttarlausara loforð
en Ingibjörg hefur gert um þetta
efni.“
KREML.IS: „Nú er ljóst aðIngibjörg Sólrún Gísladóttir
mun taka fimmta sætið á framboðs-
lista Samfylkingarinnar í Reykja-
víkurkjördæmi norður. Ljóst er að
innkoma hennar í landsmálin á eftir
að verða mikil vítamínsprauta fyrir
Samfylkinguna og fylgismenn
hennar enda hefur eftir henni verið
beðið. Eftir að KREML.IS lét gera
skoðanakönnun um áhrif innkomu
hennar nú í haust var sett á hana
mikil pressa, um tíma leit út fyrir
að andstæðingum Samfylkingarinn-
ar tækist að koma í veg fyrir að hún
gæfi kost á sér, nú er hins vegar
ljóst að Ingibjörg hefur ákveðið að
verða við þeirri áskorun sem ítrek-
að hefur verið sett fram.“
x x x
DEIGLAN.COM: „Farsinn íkringum fréttirnar af fram-
boði Ingibjargar í gær var ótrúleg-
ur. Í fyrstu spurðist út að leitað
hefði verið til hennar og var um það
fjallað í Fréttablaðinu og í morg-
unfréttum Ríkisútvarpsins. Síðdeg-
is sama dag virðist sem formaður
Samfylkingarinnar hafi ákveðið að
hefja einleik – að því er virðist í
þeim tilgangi að hjálpa Ingibjörgu
að skemma það litla sem eftir er af
trúverðugleika hennar … Dagurinn
í gær, sem átti að verða dýrðardag-
ur í lífi Ingibjargar Sólrúnar og til-
vist Samfylkingarinnar, varð póli-
tísk katastrófa.“
x x x
PÓLITÍK.IS: „Það eru gríðar-lega góðar fréttir fyrir alla ís-
lenska jafnaðarmenn að Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, borgastjóri, hef-
ur ákveðið að þiggja 5. sæti á lista
Samfylkingarinnar í öðru hvoru
Reykjavíkurkjördæmanna. Það er
ljóst að þessi sterki stjórnmálamað-
ur mun styrkja Samfylkinguna til
muna og draga fram skarpar línur
milli þeirra einstaklinga og leiðtoga
sem munu takast á í komandi al-
þingiskosningum. Ingibjörg Sólrún
hefur verið gagnrýnd fyrir að taka
þessa ákvörðun vegna fyrri yfirlýs-
inga sinna. Fólk þarf þó að átta sig
á því að aðstæður breytast hratt í
pólitík. Í pólitík fær maður oft að-
eins eitt tækifæri, a.m.k. fær maður
aðeins eitt tækifæri í einu. Það var
því hárrétt ákvörðun hjá Ingibjörgu
Sólrúnu að grípa þetta tækifæri.“
RAFMAGNSVEITA
Reykjavíkur hafði verið á
eilífum hrakhólum um
borgina vegna húsnæðis í
40 ár áður en hún náði loks
að sameinast við Ármúla
og Suðurlandsbraut.
Snyrtimennska og góð
þjónusta hefur alltaf verið í
hávegum höfð hjá Raf-
magnsveitunni. Einu sinni
heyrði ég erlendan gest
sem kom á Suðurlands-
braut skömmu eftir að flutt
var að „ef áfram heldur
sem horfir með garðinn við
hús RR verður þetta falleg-
asta lóð við opinbera bygg-
ingu á Norðurlöndum.
Og það hefur ræst eins
og sjá má á mynd í Fast-
eignablaði Morgunblaðsins
10. des. sl.
Eftir sameiningu orku-
fyrirtækjanna nú um alda-
mótin var tekin ákvörðun
um að byggja sameigin-
legar höfuðstöðvar við
Réttarháls. Það er því mik-
ið fagnaðarefni að þessi
þjóðþrifafyrirtæki sem
þjóna drjúgum hluta lands-
manna hafa loksins komist
í húsnæði sem hæfir svo
góðum fyrirtækjum.
Með ósk um friðsæla
framtíð og áframhaldandi
góða þjónustu.
Fyrrum starfsmaður.
Setur svip á bæinn