Morgunblaðið - 20.12.2002, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 57
DAGBÓK
Árnað heilla
REGLA Lew Mathe
varðandi trompútspil
hljóðar þannig: „Það á
aðeins að trompa út þeg-
ar það er rétt!“ Svo virð-
ist sem vestur hafi hitt á
réttu stundina til að
trompa út.
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ Á104
♥ Á32
♦ Á63
♣9865
Suður
♠ 7652
♥ KDG109
♦ K10
♣Á2
Vestur Norður Austur Suður
– 1 lauf Pass 1 hjarta
Pass 1 grand Pass 2 tíglar *
Pass 2 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil vesturs er smátt
hjarta. Hver er áætlunin?
Spilið er auðunnið með
öðru útspili, því þá vinnst
tími til að byggja upp
spaðastungu í borði með
ásnum. Og þá þarf spað-
inn ekki að falla 3-3. En
nú er vörnin skrefinu á
undan og getur hugsan-
lega trompað tvisvar út í
viðbót. Eigi að síður ætti
sagnhafi að gera út á
spaðastungu.
Það er til í dæminu að
sá mótherji sem á fjórlit-
inn í spaða eigi aðeins tvö
tromp. Og svo gæti spilið
verið þannig vaxið:
Norður
♠ Á104
♥ Á32
♦ Á63
♣9865
Vestur Austur
♠ KD98 ♠ G3
♥ 8654 ♥ 7
♦ D92 ♦ G8754
♣D7 ♣KG1043
Suður
♠ 7652
♥ KDG109
♦ K10
♣Á2
Sagnhafi spilar einfald-
lega litlum spaða á tíuna.
Austur fær slaginn á gos-
ann, en á ekki tromp til
að spila. Ekki flókið, en
þó er þetta spil sem auð-
velt er að klúðra við
borðið með því að taka
fyrst á spaðaásinn.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
80 ÁRA afmæli. 23. des-ember nk. verður
áttræð Fjóla Valdís Bjarna-
dóttir, Fífulind 15, Kópa-
vogi. Hún býður ættingjum
og vinum til veislu laugar-
daginn 21. desember kl. 15–
18 á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar í Bakkasmára
14, Kópavogi.
70 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 22. desember
verður sjötugur Tómas
Steindórsson, bóndi,
Hamrahól. Af því tilefni boð-
ar hann og fjölskylda hans
vini og vandamenn til gleð-
skapar í Hamrahól frá kl. 20
nk. laugardagskvöld og von-
ast hann til að sjá sem flesta.
LJÓÐABROT
Bjarni Thorarensen
Skjótt hefur sól brugðið sumri,
því séð hef ég fljúga
fannhvíta svaninn úr sveitum
til sóllanda fegri.
Sofinn er nú söngurinn ljúfi
í svölum fjalldölum,
grátþögull harmafugl hnípir
á húsgafli hverjum.
Skjótt hefur guð brugðið gleði
góðvina þinna,
ástmögur Íslands hinn trausti
og ættjarðar blóminn!
Áður sat ítur með glöðum
og orðum vel skipti.
Nú reikar harmur í húsum
og hryggð á þjóðbrautum.
Hlægir mig eitt, það, að áttu
því uglur ei fagna,
ellisár örninn að sæti
og á skyldi horfa
hrafnaþing kolsvart í holti
fyrir haukþing á bergi.
Floginn ertu sæll til sóla,
er sortnar hið neðra.
– – –
Jónas Hallgrímsson
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4.
e5 Re7 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 c5
7. Rf3 b6 8. Bb5+ Bd7 9. Bd3
Ba4 10. h4 h6 11. h5 Rbc6 12.
O-O c4 13. Be2 Kd7 14. Rh2
Dg8 15. Rg4 Dh7 16. Ha2
Haf8 17. Re3 Kc7 18. Bg4
Kb7 19. De2 Rd8 20. f4
f5 21. exf6 Hxf6 22. f5
Hhf8 23. fxe6 De4 24.
Bf3 Dxe6 25. Hf2 Be8
26. Rg4 Dxe2 27. Hxe2
He6 28. Re5 Rdc6
Staðan kom upp á
heimsmeistaramóti 20
ára og yngri sem
stendur nú yfir í Goa á
Indlandi. Heimamað-
urinn G Rohit (2.319)
hafði hvítt gegn Stef-
áni Kristjánssyni
(2.431). 29. Rxc4!
Hxe2 30. Rd6+ Kb8
31. Bxe2 Bd7 Þrátt fyrir
peðstapið hefur svartur tölu-
verð gagnfæri sem Stefán
nýtti sér til að tryggja sér
jafntefli. Framhaldið varð:
32. a4 Hf6 33. Ba3 Kc7 34.
Rb5+ Kb7 35. c4 a6 36. Rc3
Rxd4 37. Bxe7 Rxe2+ 38.
Rxe2 He6 39. Rf4 Hxe7 40.
Rxd5 He6 41. a5 bxa5 42.
Hxa5 He5 43. Ha3 Hxh5 44.
Hb3+ Kc6 og jafntefli samið.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir hugmyndaauðgi
og viðbragðsflýti og vilt
koma hlutum af stað. Árið
framundan felur í sér mörg
ný tækifæri og verður það
ánægjuríkt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Spennan frá í gær er liðin
hjá. Notaðu daginn í dag til
að sinna fjölskyldunni. Þú
ættir að koma einhverjum á
óvart með smágjöf.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Í dag er góður dagur til inn-
kaupa, sendiferða, til að
ljúka verkefnum og leysa
deilur við nána vini.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert í innkaupaskapi í dag.
Nú er rétti tíminn til að
kaupa eitthvað fallegt handa
þeim sem þér þykir vænst
um.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Dagurinn í dag verður þér
hagstæður. Fólk gleðst við
að sjá þig, allt gengur þér í
vil. Þú skalt njóta þessa.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Árangurinn sem þú hefur
náð á árinu getur stundum
verið þreytandi. Þess vegna
þarft þú að reyna að njóta
smá einverustundar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Í dag er gott að hitta vini og
kunningja. Samræður við
konur gætu yljað þér um
hjartaræturnar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Einhver, sem skiptir máli á
vinnustaðnum, tekur eftir
þér í dag. Fólki finnst skipta
máli hvað þú segir og því
skalt þú láta til þín taka.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gerðu eitthvað óvenjulegt í
dag. Reyndu að fullnægja
ævintýraþránni og breyta út
af daglegum venjum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Í dag er heppilegt að ræða
um sameiginlegar eignir en
samkomulag kann að vera
nokkuð langt undan.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú gætir gengið nokkuð
langt í samræðum við náinn
vin í dag. Tunglið er í and-
spæni við merki þitt og það
þýðir að þú þarft að gefa
talsvert eftir í viðskiptum
við aðra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Dagurinn verður jákvæður
fyrir starfið. Þú getur notið
hádegisverðar með sam-
starfsmönnum og viðskipta-
vinir eru vingjarnlegir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú skalt reyna að skemmta
þér í dag. Þetta er góður tími
fyrir ástamál, skemmtanir,
leiki við börn og íþróttir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VICENTE, sem er spánsk-
ur, óskar eftir íslenskum
pennavinum. Hann safnar
„viewcards“ og frímerkjum.
Vicente Martinez,
Apartado, 10.046,
28080 Madrid,
Espana.
JOSÉ, sem er kennari, ósk-
ar eftir íslenskum penna-
vinum. Hann hefur áhuga á
lestri, tónlist, bréfaskrifum
og ferðalögum.
José Augusto R. Pereira,
Rua Cambaúba 200/201,
Ilha do Governador,
Rio de Jeneiro/RJ,
21.940-000 – Brazil.
MARJAN, sem er 30 ára,
óskar eftir íslenskum
pennavinum.
Marjan Verhaar,
Spinaker 14g,
1034 Mj Amsterdam,
The Netherlands.
DANIELLE, sem er 14
ára gömul, óskar eftir ís-
lenskum pennavinum. Hún
hefur áhuga á íþróttum,
hjólreiðum og umhverfis-
vernd.
Danielle McEachern,
5661 Eloise or
Ottawa Ontano,
Koazwo,
Canada.
Pennavinir
Með morgunkaffinu
… þú ert að koma úr
langri siglingu.
Ég ætla að taka stúlk-
una mína með …
KIRKJUSTARF
TÓNLEIKAR eru í Fríkirkjunni í
Reykjavík í kvöld kl. 20 til styrktar
innanlandsaðstoð Hjálparstarfs
kirkjunnar
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum að neyð margra er mikil.
Mikil aukning er af þeim sem óska
eftir aðstoð í fyrsta sinn hjá Mæðra-
styrksnefnd og Hjálparstarfi kirkj-
unnar. Jónas Þórir, tónlistarmaður
og Hreiðar Örn Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Fríkirkjunnar í
Reykjavík, hafa safnað saman
nokkrum af bestu tónlistarmönnum
þjóðarinnar til að halda þessa tón-
leika en þeir eru Egill Ólafsson,
Bergþór Pálsson, Páll Rósinkranz,
Anna Sigríður Helgadóttir, Sigrún
Hjálmtýsdóttir (Diddú), Sigrún
Harðardóttir, Margrét Árnadóttir,
Ívar Helgason, Skólakór Varmár-
skóla, Kirkjukór Lágafellskirkju og
vinir Jónasar ásamt hljóðfæraleik-
urum. Ávörp flytja þeir Jónas Þór-
isson frá Hjálparstarfi kirkjunnar,
sr. Jón Þorsteinsson, sóknarprestur
Lágafellskirkju og sr. Hjörtur
Magni Jóhannsson, Fríkirkjuprest-
ur.
Á efnisskránni er meðal annars
frumflutningur á jólalagi eftir Egil
Ólafsson. Aðgangseyrir er 1.000 kr.
fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir
börn. Allur aðgangseyrir rennur
óskiptur til Hjálparstarfs kirkj-
unnar.
Kaffihúsakvöld Kefas
Í KVÖLD, föstudaginn 20. des., er
einnig kaffihúsakvöld í Fríkirkj-
unni Kefas. Unga fólkið í kirkjunni
býður þeim eldri og hverjum sem
vill, ungum sem öldnum, til veislu.
Kaffihúsið verður opnað kl. 19.30
og dagskráin hefst upp úr kl. 20,
eða þegar sem flestir hafa mætt á
svæðið. Léttar veitingar, ljóðalest-
ur, sögur, drama, tónlist, happ-
drætti og ýmsir aðrir gjörningar
verða á boðstólum. Komdu á kaffi-
hús í Fríkirkjunni Kefas og upp-
lifðu sanna jólastemmningu.
Jólaljós – styrkt-
artónleikar
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Hallgrímskirkja. Eldriborgarastarf í dag kl.
13. Leikfimi, æfingar við allra hæfi, undir
stjórn Jóhönnu Sigríðar. Súpa, kaffi og
spjall. Allir velkomnir.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 8–10 ára
drengi á laugardögum kl. 11. Starf fyrir 11–
12 ára drengi á laugardögum kl. 12.30.
Keflavíkurkirkja. Samvera í kirkjunni kl.
16.30–17.30.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkom-
ur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lofgjörð,
barnasaga, prédikun og biblíufræðsla.
Barna- og unglingadeildir á laugardögum.
Létt hressing eftir samkomuna. Allir vel-
komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10,
13 og 22 á FM 105,5.
Fríkirkjan Kefas. Í dag, föstudag, eru litlu
jól yngri unglinganna, 11–13 ára, kl. 18–
20. Allir koma í hátíðarskapi og með lítinn
pakka fyrir um 300 kr. Allir á aldrinum 11–
13 ára velkomnir.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Unglinga-
samkoma í kvöld kl. 21.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi:
Samkomur á laugardögum:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðu-
maður Sigríður Kristjánsdóttir.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11. Ræðu-
maður Björgvin Snorrason.
Biblíurannsókn og bænastund á fimmtu-
dögum kl. 20.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2,
Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður Einar Arason.
Biblíurannsókn og bænastund á föstudög-
um kl. 20.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40,
Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjón-
usta kl. 11. Ræðumaður Gavin Anthony.
Biblíurannsókn og bænastund á Breiðaból-
stað í Ölfusi á miðvikudögum kl. 20.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmanna-
eyjum: Biblíufræðsla kl. 10.30. Ræðumað-
ur Eric Guðmundsson.
Safnaðarstarf
Helgartilboð
Stígvél frá
Áður 17.995,-
Nú 9.995,-
Ath. opnunartíma
Lau. 21. des. kl. 10-20
sun. 22. des. og
mán. 23. des. kl. 12-20
Suðurlandsbraut, sími 533 3109