Morgunblaðið - 20.12.2002, Síða 58

Morgunblaðið - 20.12.2002, Síða 58
ÞAÐ læðist reglulega að manni sá grunur að það sé heill hellingur af óþekktu liði þarna úti, lokað inni í bíl- skúr, heima í stofu eða inn í herbergi sínu á hótel mömmu, að búa til mjög svo frambærilega tónlist og oft og tíðum áhugaverð- ari en sú sem verið er að gefa út. Fátt er gleðilegra en þegar þessi innilok- aða tónlist losnar úr læðingi og nær til eyrna almennings. Utan þess sem fram kemur í umslagi veit ég lítil sem engin deili á Ég … eða Mér, séu beygingarreglur virtar – nei það er eitthvað undarlegt, höldum okkur við Ég. Eftir því sem ég næst kemst hef- ur sveitin lítið sem ekkert komið fram opinberlega undir þessu skemmti- lega nafni. Þegar „Geitungarnir mín- ir“ tók að óma ótt í sumar kom maður því af fjöllum og fylltist forvitni enda hreint ekki á hverjum degi sem svo stórsmellið og límkennt íslenskt lag skýtur upp kollinum. Forvitni sú var enn viðvarandi í sarpinn bættust 10 lög, á fyrstu plötu Ég sem ber hið kokhrausta nafn Skemmtileg lög. Og skemmst er frá því að segja að Ég er enn að koma manni í opna skjöldu, núna með alveg stór- skemmtilegri plötu, þar sem í fyrir- rúmi er hin hreinræktaða gleði sem í rokkinu getur vel falist, stemning og stuð. Stuð! Stuð! Stuð! En tónlistin er samt ekkert létt- meti. Þetta er ekkert hnakkaskotið froðusnakk heldur vel þétt gítarrokk, á stöku stað vel margslungið og kaflaskipt, hrátt og frumstætt. Ef finna á einhverja samsvörun þá kem- ur einna helst í hugann nett loðið síð- bítl, einkum vegna skemmtilegra bakradda og McCartney-legs bassa- leiks, áhrif sem hinir bresku Super- grass hafa einnig samnýtt af smekk- vísi í gegnum tíðina og reyndar líka The Boo Radleys – man einhver eftir þeim? Hugmyndaríkir textarnir vekja líka oftast áhuga þótt þeir eigi reyndar til að fara út í fullmikið bull. Söngstíll aðalsprautunnar og laga- höfundarins Róberts Arnar Hjálm- týssonar á reyndar til að verða full- einhæfur fyrir heila plötu og sýrudúlleríið keyrir á köflum fram úr hófi. Annars er þetta allt saman meira og minna að svínvirka og „Geitungarnir mínir“ hreint ekki eini smellurinn á plötunni og nægir þar að nefna „Ég er minn eigin læknir“, „Minneapolis 92%“ og Dr. Gunna- legt „Lengst uppi á fjalli“. Málið er því einfalt. Skemmtileg lög er plata sem ber nafn með rentu. Ég er í svaka stuði ÉG Skemmtileg lög Fyrsta plata hljómsveitarinnar Ég heitir Skemmtileg lög. Ég eru Róbert Örn Hjálmtýsson söngur, dvergakór, bassi, gítar, orgel, trommur, dvergabanjó, Stein- dór Ingi Snorrason gítar, Baldur Sívert- sen Bjarnason gítar víbrafónn, Arnar Ingi Hreiðarsson bassi, Sigurður Breiðfjörð Jónsson. Lög og textar eftir Róbert og Steindór samdi þrjú þeirra með honum. Róbert stjórnaði upptökum. Íslenska járnbrautin Skarphéðinn Guðmundsson Morgunblaðið/Golli Ég, um mig, frá mér, til mín. Tónlist KVIKMYNDIR/TÓNLIST 58 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ VELDUR hver á heldur. Það er ekki á allra færi að gera myndir um ástvinamissi en jafnvel enn vanda- samara að draga upp viðunandi lýs- ingu á þeirri óbærilegu reynslu að vera skyndilega sviptur þeim sem maður elskar mest í ósveigjanlegan hramm geigvænlegra sjúkdóma. Við höfum margoft séð afþreyingariðnað- inn fást við þetta vandasama við- fangsefni og oftast verða undir. T.d. lék Susan Sarandon krabbameins- sjúka konu ekki alls fyrir löngu í óþol- andi vellumynd þar sem verið var að velta sér upp úr mannlegum harmleik á ódýrasta máta. Þá greindi menn mjög á um ágæti Myrkradansara Lars von Trier sem margir líktu við yfirgengilega sápuóperu. Ekkert slíkt er uppi á teningnum í En sång för Martin. Danski leikstjór- inn Bille August tekur fyrir miskunn- arlausan hrörnunarsjúkdóm sem kenndur er við Alzheimer og lýsir sér fyrst í minnistapi en ágerist mishratt í síauknum vitglöpum uns hann dregur sjúklinginn til dauða. August er vissu- lega mistækur og á að baki miðlunga einsog Hús andanna og Lesið í snjó- inn en þess á milli gerir hann snilld- arverk á borð við Pelle sigurvegari og Trú, von og kærleikur. Í þann hóp bætist Söngur handa Martin þar sem hann gengur afdráttarlaust til verks og segir átakanlega sögu umbúða- laust. Hlífir okkur gjörsamlega við væmni og vettlingatökum og skapar eina áhrifamestu mynd síðari ára. Nýtur fulltingis afburðaleikaranna Svens Wallter, þessa alltof sjaldséða stórleikara sem hreif mann fyrst fyrir röskum aldarfjórðungi í Mannen på taket, og Viveku Seldahl, sem jafnar fullkomlega magnaðan mótleikara sinn. Aðalpersónurnar eru miðaldra listamenn; konsertmeistarinn Barb- ara (Seldahl), fiðluleikari í sinfóníu- hljómsveit sem fær til liðs við sig stjórnandann Martin (Wallter), sem jafnframt er virt og þekkt tónskáld. Bæði búa í hamingjusnauðum hjóna- böndum og ekki þarf að orðlengja það að þau verða ástfangin og varpa frá sér ónýtinu, giftast og verða alsæl um sinn. Óvænt og fölskvalaus ástin, sem þau uppgötva á tímaskeiði þegar flest slík sund eru almennt að lokast, og tónlistarlífið veita þeim ómælda lífs- fyllingu. Barbara hættir störfum til að geta aðstoðað mann sinn við list- sköpunina og hamingjan ræður ríkj- um. Í fyrstunni fer að votta fyrir smá- vægilegu minnisleysi hjá hinum bráð- snjalla Martin en enginn telur ástæðu til að taka það alvarlega fyrr en það fer að aukast til vandræða. Hann leit- ar til læknis og þá kemur miskunn- arlaus sannleikurinn í ljós: Martin er haldinn hinum ólæknandi Alzheim- ersjúkdómi og hjónunum sagt að það besta sem þau geti gert í stöðunni sé að reyna að haga sér sem lengst eins- og ekkert hafi ískorist. Sem er í raun gálgafrestur því veikindin gefa engan grið og líf hjónanna hrynur í rúst á ör- stundu. Sem fyrr segir er En sång för Martin raunsæ mynd sem vafalaust dregur upp sanna mynd af þessum skelfilega sjúkdómi. Því kemur hún beint í andlitið á áhorfandanum og lætur örugglega engan ósnortinn. Eftir því sem ég best veit er Alzheim- ersjúkdómurinn misfljótur að kné- setja fórnarlömb sín, í tilfelli Martins er framvinda hans hröð og algjörlega óviðbúin. Ástríkið og hamingjan má sín lítils gagnvart slíkum örlögum. Eftir situr aðeins sársaukinn og miss- irinn. En sång för Martin skilur við mann meyran sem barn og knýr áhorfand- inn til að velta fyrir sér fallvaltleika lífsins. Örlög Martins og Barböru hljóta að vera verri en dauðinn. Ann- ars getur maður fátt sagt, enginn veit fyrr en reynt hefur. August er hins vegar ekki með neinar ódýrar mála- miðlanir heldur gerir sitt ýtrasta til að segja ógnarlega sögu á trúverð- ugan hátt með fullri virðingu fyrir of- urviðkvæmu viðfangsefninu. Hann á tvímælalaust þakkir skildar fyrir að opna augu áhorfandans fyrir hverf- ulleikanum og kenna manni að meta betur gæfuna og njóta hennar og hlúa að sínu á meðan maður er þess um- kominn. Hinn óbærilegi missir KVIKMYNDIR Regnboginn (Bíófélagið 101) Leikstjórn: Bille August. Handrit Bille August, byggt á Boken om E, eftir Ullu Isaksson. Kvikmyndatökustjóri: Jörgen Persson. Tónlist: Stefan Nilsson. Aðal- leikendur: Sven Wallter, Viveka Seldahl, Rune Brynjolfsson, Linda Källgren, Lisa Werlinder, Peter Engman, Klas Dahl- stedt. 115 mín. Egmont/Nordisk Film. Danmörk/Svíþjóð 2001. EN SÅNG FÖR MARTIN (SÖNGURINN HANS MARTINS) Sæbjörn Valdimarsson Sérstök jólasýning! 29. des. kl. 14. örfá sæti laus 5. jan. kl. 14 laus sæti 12. jan. kl. 14. laus sæti 19. jan. kl. 14. laus sæti Kvöldverður fyrir og eftir sýningar Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd. Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700 Munið gjafakortin! Lau 28/12 kl. 21 Jólasýning Nokkur sæti Fös 3/1 kl. 21 Uppselt Lau11/1 kl 21 Grettissaga saga Grettis leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu sun 29. des kl. 20, HÁTÍÐARSÝNING, nokkur sæti föst 3. jan, kl 20, laus sæti föst 10. jan, kl 20, laus sæti Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midavefur.is Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00. Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni fyrir sýningu á www.hhh.is Stóra svið SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson Frumsýning lau 11/1kl. 20 UPPSELT 2. sýn su 12/1 kl 20 gul kort, 3. sýn fö 17/1 kl. 20 rauð kort 4.sýn lau 18/1 græn kort SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller Lau 28/12 kl 20, Su 29/12 kl. 20 Sýningum fer fækkandi HONK! LJÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles og Anthony Drewe Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Su 29/12 kl 14, Su 12/1 kl 14, Nýja svið Þriðja hæðin Litla svið Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000 HERPINGUR e. Auði Haralds og HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA Lau 28/12 kl 20, Fö 10/1 kl 20 Síðustu sýningar RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Má 30/12 kl 20, UPPSELT, Fö 3/1 kl. 20 SÓL & MÁNI eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR - GJAFAKORT Á TILBOÐSVERÐI TIL JÓLA JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov frekar erótískt leikrit í þrem þáttum Su 29/12 kl 20, Fö 3/1 kl. 20 GJAFAKORT Í LEIKHÚSIÐ - FRÁBÆR JÓLAGJÖF JÓLAGAMAN BORGARLEIKHÚSSINS Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum í leikbúningi ofl. Su 5/1 kl 14 og 15 - Kr 500 15:15 TÓNLEIKAR Takemitsu, George Crumb. Benda Lau 21/12 kl 22 - ath. breytan tíma Hversdagslegt kraftaverk eftir Évgení Schwarz Leikstjóri: Vladimir Bouchler. Lau. 21.12. kl. 19 laus sæti fös. 27.12. kl. 20 lau. 28.12. kl. 19 Barn fær frítt í fylgd með fullorðnum í leikhúsið yfir jólin. Miðasölusími sími 462 1400 www.leikfelag.is Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju í Langholtskirkju Fös. 20. des. kl. 23:00 Lau. 21. des. kl. 23:00 Sun. 22. des. kl. 20:00 Kór Langholtskirkju Gradualekór Langholtskirkju Stjórnandi: Jón Stefánsson Einsöngvarar: Ólöf Kolbrún Harðardóttir Ólafur Kjartan Sigurðarson Úrvals hljóðfæraleikarar Kakó og piparkökur í hléi Ógleymanleg jólastemmning Miðasala í Langholtskirkju og við innganginn klang@kirkjan.is Laugardag 21. des. kl. 16.00 Lúðrasveitin Svanur Jólatónleikar Stjórnandi: Haraldur Árni Haraldsson. Skógarhlíð 20 105 Reykjavík Sími 551 5677 Miðasala í húsinu klukkutíma fyrir tónleika

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.